Lesbók Morgunblaðsins - 07.10.2000, Side 20
UM TILVIST
‘ MANNS Á
TÆKNIÖLD
Dansleikhús með Ekka nýtir Iðnó með óhefðbundnum
hætti ó sýningunni Tilvist, sem frumsýnd verður í dag.
Dansað verður upp í gluggakistum og um gólfið allt, en
ekki ó sviðinu. Sýningin er hluti af dagskró leiklistarhótíð-
ar Sjólfstæðu leikhúsanna, Á mörkunum.
7
IVERKINU skiptist á hraði og þagnir í
túlkun okkar á efniviðnum,“ segir Aino
Freyja Jarvela, einn af sjö leikurum og
dönsurum í sýningunni. Tilvist er
sjötta sýning dansleikhópsins, sem
vinnur bæði með dansform og leiklist-
arform.
„Verkið fjallar um tilvist mannsins.
Upphaflega hugmyndin að baki verkinu var að
kanna breyttar aðstæður í samskiptum fólks í
tengslum við tækniframfarir, en í raun getur
hver og einn túlkað sýninguna á sinn hátt,“
segir Aino Freyja. „Við vörpum fram hug-
myndum fyrir áhorfendur en erum ekki með
einhliða boðskap.“
Hópurinn Danleikhús með Ekka hefur unn-
ið saman í 5 ár og kveður Aino Freyja hópinn
samstilltan. Stofnendur dansleikhússins eru
^ílestir fyrrverandi nemendur Listdansskóla
Islands og hafa þeir undanfarin ár stundað
nám hérlendis og í Evrópu og Bandaríkjunum.
Síðasta sýningin hópsins var verkið Ber,
sem fjallaði um einelti og var unnið út frá ljóði
eftir 13 ára stúlku. „Það má segja að hug-
Morgunblaöið/Ámi Sæberg
Hópurinn vinnur bæði med danshreyfingar og texta. Tónlistin í verkinu er eftir Kristján Eldjárn.
við örsögur eftir Elísabetu Jökulsdóttur og
ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur.
Tónlistina í verkinu samdi Kristján Eld-
járn. „Kristján er líklega þekktastur fyrir að
spila á klassískan gítar en hins vegar er tón-
listin í verkinu af öðru meiði. Hún er taktföst
og rafræn."
Sviðsmyndin er húsið sjálft
Sýningin er sett upp í samvinnu við Leikfé-
lag íslands, sem hluti af dagsskrá leiklistar-
hátíðar Sjálfstæðu leikhúsanna, A mörkunum.
Sýningar fara fram í Iðnó og mun hópurinn
nýta húsnæðið með óhefðbundnum hætti. Þau
flytja verkið á gólfinu og nota gluggana og
hurðirnar sem sviðsmynd, en gerð leikmynd-
ar er ennfremur í höndum Rannveigar Gylfa-
dóttur. „Ahorfendur eru hinsvegar bæði á
gólfinu og upp á svið,“ segir Aino Freyja og
útskýrir ennfremur að sýningin sé hönnuð
fyrir Iðnó. „Það er mjög gaman að geta notað
þessa gömlu byggingu með þessa fallegu
stóru glugga."
Frumsýningin hefst kl. 21 í kvöld.
myndin að Tilvist hafi sprottið útfrá þessu síð-
asta verki okkar. I kjölfar þess vildum við
kanna aðrar leiðir í samskiptum fólks.“
Sfyðjast við örsögur og Ijóð
Allir leikararnir og dansararnir semja verk-
in í sameiningu, en hvernig skyldi það ferli
eiga sér stað ? „Fyrstu vikurnar fara vanalega
í hugmyndavinnu. Við ræðum um það sem við
viljum gera og söfnum efni sem við teljum að
nýtist okkur. Ut frá því þróum við allskyns
senur og veljum það sem á best við. Því má
segja að við höfum unnið mun meira efni en
kemur fram á sýningunni. Á endanum raðast
þetta allt saman í eina heild, án þess þó að ég
geti útskýrt nákvæmlega hvernig það gerist,"
segir hún hlæjandi og bætir við að hópurinn
hafi æft verkið síðasliðnar fimm vikur. „Sýn-
ingarnar eru breytilegar því þær byggja að
hluta til á spuna. Vitaskuld þurfum við að
halda föstum línum, en innan hveiTar senu
getur ýmislegt breyst.“
Textinn sem fluttur verður, er að hluta til
saminn af sýnendum en einnig styðjast þeir
ÞETTA verður í sextánda skipti
sem ég kem til íslands,“ segir
Andreas Schmidt og hlær í sí-
mann með sinni fallegu barít-
onrödd. Söngvarinn er staddur
á heimili sínu í Hamborg þegar
viðtalið fer fram. „Mér þykir
mjög vænt um ísland og er
tengdur ýmsu fólki þar. Einn af mínum
^þestu vinum er til dæmis Hörður Áskelsson,
organisti Hallgrímskirkju."
Andreas segist reyna að koma hingað ár-
lega og rennir fyrir lax þegar færi gefst.
„Eg kem bara í stutta heimsókn að þessu
sinni og gæti því ekki sinnt þessu áhugamáli
mínu. Svo er líka orðið of langt liðið á árið,
það væru litlar líkur á að veiða eitthvað
núna,“ segir hann og hlær aftur.
Jafnvígur á óperu- og ijóðasöng
Andreas kemur fram á Kammertónleikum
í Garðabæ 2000 ásamt píanóleikaranum Ru-
dolf Jansen. Báðir eru þeir heimsþekktir
tónlistarmenn og hafa unnið til fjölda verð-
launa. Á efnisskrá tónleikanna sem haldnir
eru í Kirkjuhvoli verða á dagskrá verk eftir
Ludwig van Beethoven, Carl Löwe og Hugo
Wolf. „Þegar Sigurður Björnsson söngvari
Jfcað mig um að halda tónleikana hafði hann
hugmyndir um hvað ætti að vera á öðrum
hluta efnisskrárinnar. Hann nefndi Löwe og
það fannst mér vel til fundið. Löwe skrifaði
fjöldamargar ballöður á sínum tíma og var
mjög vinsæll í Þýskalandi fyrir um 70 árum.
Við völdum úr nokkrar fallegar og vel þekkt-
ar ballöður eftir hann. Sigurður stakk einnig
upp á An die Ferne Gelibte eftir Beethoven.
Það er lítill ljóðaflokkur sem tekur um tíu
mínútur í flutningi. Þetta er einnig fyrsti
Ijóðaflokkurinn sem skrifaður hefur verið,“
segir Andreas. Þennan ljóðaflokk hafa þeir
Rudolf Jansen píanisti marg oft flutt en
- saman hafi þeir hins vegar ekki flutt ballöð-
urnar eftir Löwe. „Rudolf var því hérna hjá
mér í Hamborg um síðustu helgi og við ein-
beittum okkur að því að æfa Löwe,“ útskýrir
hann.
Síðari hluti tónleikanna samanstendur af
Ijóðasöngvum eftir Hugo Wolf. „Wolf er að
mínu mati einn af mikilvægustu höfundum
TÓNVERK ER
LIFANDIVERA
Hinn góðkunni barítonsöngvari Andreas Schmidt er
væntanlegur hingað til lands næstu daga ásamt
píanóleikaranum Rudolf Jansen. Þeirmunu koma
fram í Kirkjuhvoli á miðvikudaginn í tónleikaröðinni
Kammertónleikar í Garðabæ 2000. Andreas ræddi
við EYRÚNU BALDURSDÓTTUR, m.a. um efnisskrána
og samstarf þeirrra Rudolfs.
ljóðasöngva og
mun ég flytja
hluta úr safninu
Eichendorff. Þau
eru falleg og fjöl-
breytt og ég
valdi þau sem
mér finnst búa
yfir mestu pers-
ónueinkennu-
um.“
Þessi verk hef-
ur Andreas
sungið til margra
ára og segist
aldrei verða leið-
ur á þeim. „Það
er svo sérstakt,
að tónverk er
eins og lifandi Andreas Schmldt,
vera sem alltaf barítonsöngvari.
Rudolf Jansen,
píanóleikari.
er að breytast
eins og maður
sjálfur. Það er
ekki hægt að
verða leiður á
því meðan hægt
er að takast á
við það með nýj-
um hætti og
finna nýja leið til
að flytja það.“
Andreas mun
vera einn af fá-
um söngvurum
sinnar kynslóðar
sem er jafnvígur
á óperu- og
ljóðasöng. „Sí-
fellt færri njóta
þess að hlusta á
ljóðasöng," út-
skýrir hann. „Ástæðan er sú að með árunum
hefur ljóðakennslu farið halloka í skólum og
nú er svo komið að yngra fólk skilur ekki
tungumál ljóðlistarinnar. Við höfum þurft að
finna nýjar leiðir til að koma ljóðasöng á
framfæri og það hefur verið mér ofarlega í
huga upp á síðkastið."
Vill síður vera ó flakki
Andreas hefur um dagana sungið við öll
helstu óperuhús heimsins, meðal annars Vín-
aróperuna, Covent Garden-óperuna í Lon-
don, Bastille-óperuna í París, Scala-óperuna
í Mílanó og Metropolitan-óperuna í New
York. Hann segist ekki geta bent á einn stað
öðrum fremur sem hann telur skara fram úr.
„Þessir staðir eru jafnmisjafnir og þeir eru
margir. Metropolitan er kannski besta óp-
eruhúsið tónlistarlega séð en áherslurnar á
sýningum í Bandaríkjunum eru samt allt
aðrar en hér í Þýskalandi. Hér eru hefð fyr-
ir að gera nútímalegar sýningar en það er
hins vegar síður algengt í Bándaríkjunum.
Þar þurfa menn að stíla inn á áhorfendur og
setja upp það sem líklegast er til vinsælda."
Andreas segist um þessar mundir starfa
aðallega í Hamborg og Berlín. „Því fylgja
langar fjarverur að heiman, að taka þátt í
óperuuppfærslum í öðrum löndum. Ég kann
því illa að vera of lengi án fjölskyldunnar
minnar og reyni því að taka aðeins þátt í óp-
eruuppfærslum hér í Hamborg og í Berlín
og á sumrin í Bayreuth.“ Einnig syngur
hann á konsertum, ljóðatónleikum og í óra-
toríum um heim allan.
Andreas hefur starfað með píanóleikaran-
um Rudolf Jansen síðastliðin tólf ár og fer
fögrum orðum um samstarf þeirra. „í 90%
tilvika spilar hann undir fyrir mig á tónleik-
um. Hin 10% virka ekki,“ segir hann og
hlær. „Rudolf er ekki einungis framúrskar-
andi tónlistarmaður heldur einnig yndisleg-
ur maður. Þessir hlutir eru ámóta mikilvæg-
ir,“ segir hann og bætir kíminn við. „Það
væri slæmt ef maður gæti ekki hugsað sér
að sitja við hlið píanistans á ferðalögum sök-
um þess að hann væri svo leiðinlegur. Ég er
mjög heppinn að eiga hann að.“
Tónleikar þeirra félaga hefjast í Kirkju-
hvoli kl. 20.00 miðvikudaginn ll.október.
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 7. OKTÓBER 2000