Lesbók Morgunblaðsins - 09.12.2000, Page 10
4
Utlanesfoss í Fljótsdal, gegnt Hallormsstað. Við fossinn er eitt hæsta stuðlaberg landsins og má
segja að fáir fossar hafi svo viðhafnarlega umgjörð.
fslensk öræfatign. Myndin er tekin úr lofl
MYNDABC
VERALDARVE
í stað þess að gefa út bók hefur Rafn Hafnfjörð sett 370
íslandsmyndir sínar ó vefinn. Slóðin er: icelandphot-
os.com og ekkert kostar að skoða myndirnar
EIR sem hafa þurft á að halda ým-
iskonar ljósmyndum af landinu
okkar, hafa í marga undanfama
áratugi vitað að Rafn Hafnfjörð á
námu af slíkum myndum. Hann er
einn þeirra sem hafa haft það við-
fangsefni £ frístundum sínum að
taka Ijósmyndir og hann er búinn
að fínkemba landið, ef svo mætti segja.
Rafn er fæddur í Hafnarflrði 1928 og ólst þar
upp. Hann gerðist einn af brautryðjendunum i
offsetprentun og er búinn að reka prentsmiðjuna
Litbrá síðan 1964. Um miðja öldina fór hann að
ferðast um landið og taka náttúrumyndir af al-
vöru, svo nærri má geta að þetta hálfrar aldar
safn er orðið allnokkuð að vöxtum. Áhugi hans á
náttúrunni og Ijósmyndun hefur haldizt í hendur
við áhuga hans á myndlist. Kveðst hann hafa sótt
allar myndlistarsýningar í Reykjavík eftir 1946
og framundir þetta. Allt sitt myndlistarvit segist
hann hafa frá íslenzkum myndlistarmönnum,
sem hann hefur kynnst persónulega; sumum
þeirra í tengslum við starfið. Af þeim sumum á
hann verðmætar myndir sem aldrei hafa verið
sýndar. Meðal vinnustofumynda hans er ein sér á
parti; hún sýnir vinnustofu Jóhannesar Kjarval í
Sigtúni eins og hann skildi við hana í síðasta sinn.
Rafn hefur verið stangveiðimaður af ástríðu og
á ferðalögum kveðst hann jafnan hafa veiðistöng-
ina á annarri öxlinni, en myndavélina á hinni.
Aftur á móti fer hann sjaldan til útlanda, því það
finnst honum ekki eins freistandi, en þegar það
gerist, þá er það til þess að komast á listasöfn.
Rafn hefur gefið út sæg af póstkortum með
íslandsmyndum, en aðeins þrjár litlar ljós-
myndabækur. Ein þeirra, This is Icelíind, með
texta á ensku, var gefin út 6 sinnum, en er nú
uppseld. I annarri smábók voru myndir af
Heklugosinu 1970.
Engin undur eftir svo langan feril, að honum
þætti kominn timi til að gefa út stóra og glæsi-
lega ljósmyndabók og þá með knöppum textum.
Við nánari athugun varð hann þó afhuga þeirri
hugmynd; fannst að hann væri að bera í bakka-
fullan lækinn. Á síðustu árum hefur komið út
talsverður fjöldi slíkra bóka, sem eiga sameigin-
legt að vera fallegar og vel út gefnar, en af ein-
hverjum ástæðum eru þær hver annarri líkar.
Ein til viðbótar mundi líklega ekki vekja mikla
athygli.
í Jökulgili á Landmannaafréttl. Tvelr ríðandi meni
1 O LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 9. DESEMBER 2000