Lesbók Morgunblaðsins - 09.12.2000, Qupperneq 14
MINNISPÚNKTAR UM ÍSLENSKA KRISTNI - III
nK 1 ILW f WWkdíyr j-. A 9 f ^^ ■ /f
/AÍLx V,\ ¥ '/SPffSii
SKömmu eftir að Gissur ísleifsson varð biskup í Skálholti varð sá heimssögulegi atburður að fjölmennur hópur riddara fór í herför til Palestínu og hertók Jersúlam árið 1099. Þar með hófust kross-
ferðir, sem svo voru nefndar. Myndin er af fundi þar sem Úrban II páfi eggjaði Evrópumenn til fyrstu krossferðarinnar.
„ÞENNA ATBURÐ
SAGÐITEITUR OSS..."
EFTIR HERMANN PÁLSSON
Teitur ísleifsson hafói einstaka aðstöðu til að kynnast
sögu íslenskrar kristni. Gissur bróðir hans var annar
innfæddur biskup þjóðarinnar og ís leifur Gissurarson
faðir þeirra hinn fyrsti. Þegar betur er að góð kemur í
Ijós að ein af formæðrum Teits var • kristin. Hún var
ensk kona og hét Vilborg Ósvaldsdóttir.
6. Teitur margláti
ARI fróði nam ýmsan fróð-
leik af Halli Þórarinssyni
fóstra sínum í Haukadal,
en Hallur var fæddur í
heiðni og minntist þess
að Þangbrandur hinn
þýski skírði hann
þrevetran, en það var
vetri fyrr en kristni væri í lög tekin á ís-
landi. Hallur lést árið 1089, og þá tók við
búi í Haukadal Teitur prestur ísleifsson
hinn margláti (d. 1110) sem var mikill merk-
ismaður. Teitur var helsti heimildarmaður
Ara fróða um kristnitöku, enda kallar Ari
hann þann mann „er eg kunni spakastan."
Frásögn Ara af hinum fornu siðaskiptum
þjóðarinnar klykkir út með svofelldum orð-
um: „Þenna atburð sagði Teitur oss að því
er kristni kom á ísland.“
Snorri Sturluson getur ekki orða bundist
«m snilld Teits meistara: „Teitur lærði Ara
prest og marga fræði sagði hann honum, þá
er Ari ritaði síðan.“ f slíku sambandi lýtur
orðið fræði að sögulegum fróðleik, enda er
freistandi að telja Teit fyrsta skólamann á
íslandi sem kennir nemanda sínum sögu
þjóðar sinnar, sem var þó langtum skemmri
þá en nú er orðið. Af Teiti nam Ari einnig
fróðleik um hin heiðnu lög þjóðarinnar, og
..........................
þá útlendu biskupa sem störfuðu hér áður
en ísleifur Gissurarson, faðir Teits, varð
biskup í Skálholti.
Nú er það athygli vert um íslendingabók
að Ari minnist þar ekki á annan útlendan
trúboða í heiðni en Þangbrand; hins vegar
er Friðrekur biskup sem kom hingað með
Þorvaldi víðförla árið 981 talinn í hópi
þeirra biskupa „er verið hafa á íslandi út-
lendir að sögu Teits.“ Ari birtir engan fróð-
leik um trúboð þeirra Friðreks og Þorvalds,
og þó hlýtur Teitur að hafa þekkt hún-
vetnska heimildarmenn. Isleifs þáttur bisk-
ups telur að Dalla Þorvaldsdóttir, móðir
Teits, væri frá Ásgeirsá í Víðidal, og þaðan
er enginn óravegur að Giljá í Þingi, né held-
ur frá Ási í Vatnsdal þar sem Hungurvaka
segir að Þorvaldur afi Teits hafi búið.
Grettla lætur Þorvald búa fyrst á Ásgeirsá
og síðan á Ási. Og vitaskuld er örstutt frá
Ásgeirsá að Lækjamóti þar sem þeir Þor-
valdur og Friðrekur biskup bjuggu þrjá vet-
ur að tali Þorvalds þáttar víðförla, sem sé
,árin 982-85. Hvernig sem því máli er háttað
hlýtur Teiti að hafa verið kunnugt um
kristniboð þeirra Friðreks og Þorvalds víð-
förla, þótt það ætti sér að vísu stað um það
leyti sem ah Döllu síðar biskupsfrúar í Skál-
holti var í broddi lífsins. Bæði Grettia og
Kristni saga minnast þess að Þorkell krafla,
helsti höfðingi í Húnavatnsþingi á síðustu
áratugum tíundu aldar og upphafi hinnar el-
leftu, léti prímsignast af trúboði þeirra
Friðreks. Löngu síðar urðu tengsl með Teiti
og Húnvetningum; Rannveig dóttir hans
varð síðari kona Hafliða Mássonar (d. 1130)
og húsfreyja á Breiðabólstað í Vesturhópi,
þar sem Vígslóði og margt annað í lögum
var fært í letur veturinn 1117-18.
Teitur ísleifsson hafði einstaka aðstöðu til
að kynnast sögu íslenskrar kristni. Gissur
bróðir hans (1042-1118) var annar innfædd-
ur biskup þjóðarinnar (frá 1082) og ísleifur
Gissurarson faðir þeirra (1006-80) hinn
fyrsti (frá 1056); þeir feðgar Isleifur og
Gissur stunduðu báðir nám í Þýskalandi, en
slík reynsla mun hafa skerpt skilning þeirra
og áhuga í íslenskri sögu, rétt eins og kynni
af útlendum sagnaritum varpaði ljósi á eðli
íslenskra atburða. Faðir ísleifs og afi þeirra
Teits var Gissur hvíti, sem flutti kristniboð
af Lögbergi að tilskipan Ólafs Tryggvasonar
ásamt með Hjalta Skeggjasyni tengdasyni
sínum.
Þegar betur er að gáð kemur í ljós að ein
af formæðrum Teits var kristin. Gissur hvíti
var sonarsonur Ketilbjarnar gamla land-
1 4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/LISTIR 9. DESEMBER 2000