Lesbók Morgunblaðsins - 09.12.2000, Síða 16
Morgunblaðið/Kristínn
EG ER SOGUMALARI
Silfurþeysirinn, keramikverlc eftir Erró, hefurverið
reist í Kringl lunni. í tilefni af því var listamaðurinn í
stuttri heimsókn og ræddi SÚSANNA SVAVARS-
DOTTIR við hann um Silfurþeysinn og tilvonandi
sýningu hans í Listasafni Re; /kjavíkur í Hafnarhúsi.
MARC Augé segir í bók
sinni um Erró, að við
fyrstu sýn virðist list
hans dæmigerð fyrir
þijú svið ofgnóttar sem
hann hafi eitt sinn not-
að til þess að skilgreina
„ofumútíma" á vorum
dögum. Hann bendir á ofgnótt frétta sem dynja
á okkur daglega og vekja þá tilfinningu að tíð-
indi gærdagsins heyri þegar sögunni til.
í öðru lagi sé um að ræða ofgnótt mynd og
aagir Augé: „Við sitjum frammi fyir öllu, sjáum
sitt lítið af hverju, ruglum öllu saman. Og sjáum
ekki lengur neitt úr fjarlægð. Flugvélar eru
hraðskreiðar, myndir eru hraðskreiðari. Plán-
etan fer minnkandi og fjarlægir heimshlutar
eru ekki lengur hjúpaðir dýrðarljóma. Verk
Errós eru einnig vitnisburður um þetta.
Hann gengur oft út frá ákveðinni mynd,
blandar myndum saman, endurgerir þær,
breytir þeim, tengir þær saman og eftir stór-
fenglega myndlistarlega raflostsmeðferð fáum
við sterka tilfinningu fyrir skilyrðislausum
tengslum allra heimshluta, allra ímyndaheima,
milli manna og drauma þeirra, milli drauma og
martraða."
Þiðju ofgnóttina velur Augé að kalla einstakl-
ingsbundna ofgnótt sem er „sérstæð einsemd
sem vekur þá kennd hjá hverjum einstökum að
hann ráði engu um framrás sögunnar en sé
íShnt sífellt kallaður til vitnis um hana með
myndum sem troðið er upp á hann. Frétta-
myndunum fylgja notkunarreglur, túlkunarað-
ferðir og ofgnótt fréttaskýringa þannig að
geysilega fjölbreytileg samsuða lita og forma
þessarar áttavitalausu veraldar sogast sjálf inn
í hringiðu staðlaðra skilaboða, yfirskrifta og
slagorða sem er ætlað að leika hlutverk merk-
ingar.“
Ánægður með Hafnarhúsið
Erró átti stutta dvöl hér á landi í vikunni og
var viðstaddur afhjúpun á listaverki sínu „Silf-
urþeysir" í Kringlunni, risastóru keramikflísa-
verki sem þekur heilan vegg og hver flís er
15x15 cm. Hann átti líka það erindi að skoða vel
húsnæði Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi,
þar sem sýning verður á verkum hans í júní og
{Jfegar hann er spurður hvemig honum þyki til
hafa tekist með húsið, lýsir hann yfir ánægju
sinni með það og segir: „Það hefur tekist mjög
vel til með húsið. Eg fór í gær til þess að hlusta
á finnska öskurkórinn og mér fannst mjög gam-
an að sjá hvað hægt er að nýta húsið á margan
hátt, til dæmis portið sem hægt er að nota í alls
kyns uppákomur vegna þess að áhorfendur
geta staðið á svölunum allt í kring.
í þessari heimsókn hef ég líka skoðað óhemju
mildð af íslenskri myndlist, bæði gömlum og
nýjum málverkum og það hefur komið mér á
óvart hvað hér er mikið af góðum rnálverkum.
Ég er búinn að sjá að minnsta kosti hundrað og
fjrpmtíu góð málverk í þessari heimsókn - og
þau eru á almennilegum stöðum; hanga uppi í
opinberum byggingum, stofnunum og fyrir-
tækjum og í heimahúsum.
Þegar þú ferð til New York og annarra stór-
borga ertu heppinn að finna eitt gott málverk í
viku, hvort sem um er að ræða opinberar bygg-
ingar eða heimahús.“
Erró segist ennfremur mjög ánægður með
uppsetninguna á „Silfurþeysinum" í Kringl-
unni. Veggurinn sé fallegur; hæfilega grófur og
laus við að vera heilagur. Þetta sé verk sem þoli
mikla umgengni og með tíð og tíma eigi það eft-
ir að veðrast af snertingu.
Erró byggir verk sín á tilvísunum í myndir
annarra sem hann klippir saman og flytur yfir á
léreftið. Hann segir frá með myndmáli ofur-
raunsæis og teiknimynda og frásögn hans er
ýmist einfold og kyrrstæð eða flókin og yfir-
gengiieg. Hann klippir og sundurgreinir, límir
og endurbyggir flóknar sögur innan sagnanna
þar sem viðfangsefnið er ýmist pólitík, erótík,
listasagan, ævisögur, skáldsagnapersónur,
teiknimyndahetjur og vísindaskáldskapur eða
eigin listaverk. Silfurþeysirinn á sér forsögu í
tveimur þekktum klippimyndum og málverk-
um Errós; annars vegar í Facescape (Andlits-
víðáttu), hins vegar í The Saga of Silver Surfer
(Sagan af Silfurþeysi), en báðar myndimar eru
úr samnefndum seríum. Silfurþeysir er af-
sprengi tólf sagna myndasyrpu.
I myndinni eru 126 litir og er verkið er unnið
í keramikverkstæðinu Sindra í Asuelos í Port-
úgal. Eftir að litir og áferð hafa verið valin, ger-
ir Erró nákvæma hugmynd að verkinu sem er
100x100 cm. á stærð. Síðan er verkið stækkað
og flísamar handmálaðar áður en þær em
brenndar. Erró segist ákaflega ánægður með
samvinnuna við þetta verkstæði enda sé Silfur-
þeysirinn sjötta verkið hans sem sé unnið þar
og í bígerð séu sex verk til viðbótar.
En hvar em hin verkin staðsett?
Neðaniarðarstöð
orðin að listasafni
Fyrsta verkið vann ég fyrir heimssýninguna
í Lissabon. Borgarstjómin ákvað að fá lista-
menn til að skreyta allar neðanjarðarstöðvam-
ar í borginni. Ég fékk vegg sem er fjórir metrar
á hæð og fjöratíu metrar á breidd. Myndin átti
að fjalla um landkönnunarsögu Portúgal, stöðin
heitir „Hafið“ og ég var beðinn um að vinna út
frá því þema. Þetta var virkilega skemmtilegt
verkefni og þú getur ímyndað þér hversu mikið
þessi listaverk í neðanjarðaijámbrautarstöðv-
unum breyta ásýnd borgarinnar. í stað þess að
vera bara einhver staður þar sem fólk kemur og
fer, er þetta orðið að heilu listasafni út af fyrir
sig.
Þriðja verkið vann ég líka fyrir Lissabon.
Það er verið að byija að setja það upp vegna
þess að það sést frá götunni og það þurfti leyfi
borgarstjómar til þess að setja það upp. Þegar
um svona útiiistaverk er að ræða, þarf jú auð-
vitað að meta hvort það veldur einhverjum
glundroða í umferðinni.
Síðan er eitt verk eftir mig í París. Það er í
húsi eftir Bartholome sem gerði skissu af
Kjarvalsstöðum. í þessu húsi em skóli, íbúðir
og íþróttahús og það stendur rétt hjá Mitterand
bókasafninu. Til gamans má geta þess að
Frakkar em skyldugir tii þess að veija einu
prósenti af fjárlögum sínum á hveiju ári til
skreytinga á byggingum - og þeir standa við
það.
Fjögur af keramikverkum Errós era síðan í
nýja Sonihúsinu í Lissabon. En hvers vegna
ákvað hann að vinna Silfurþeysinn fyrir Kringl-
una?
Hugmyndin er sú að þetta sé hluti af röð þar
sem myndimar kallast á.
Málverkið „Facescape," eða Andlitsvíðátta
er til hér og er í eigu Listasafns Reykjavíkur og
ég tek tvær línur úr því verki til að nota í Siifur-
þeysinn til að tengja veridn. Silfurþeysirinn er
hins vegar úr tólf málverka syrpu sem er unnin
upp úr teiknimyndasögunni um samnefnda
hetju.“
Teiknimyndasögur og skreytingar í íslensk-
um fomsögum Er þetta ekki teiknimyndaper-
sóna?
„Jú, ég hef í mörg undanfarin ár verið að
vinna úr amerískum teiknimyndasögum og hef
gert syrpur um Wonderwoman, Captain Amer-
ica, Red Sonia, Thor, Silver Surfer og Green
Arrow. Ég hef safnað teiknimyndasögum í tutt-
ugu ár og sumar af þessum hetjum hafa horfið á
þeim tíma og þær sem hafa lifað, era því miður
orðnar svo illa teiknaðar að það er ekki lengur
spennandi að fylgjast með þeim. Flest af þess-
um teiknimyndamálverkum era saga hverrar
seríu; segja hvemig þær hófust og hvemig þær
þróuðust - í teikningunni. Sú tækni sem ég beiti
í þessum málverkum er mjög nálægt tækninni
sem er notuð í skreytingum í handritum ís-
lenskra fomsagna."
En þótt Erró noti teiknimyndahetjur til þess
að segja sögur sínar að þessu sinni, er baksvið
þeirra svo miklu, miklu stærra. Segja má að
verk hans séu svipmyndir af tuttugustu öldinni.
Hann hefur skoðað og endurskoðað allar lista-
stefnur aldarinnar, unnið úr verkum annarra
listamanna og er núna kominn hringinn og far-
inn að vinna úr sínum eigin verkum. „Málverkin
er hráefni sem keramikverkin eru unnin upp
úr,“ segir Erró, „en þau era sjálfstæð verk.“
í október 1999 var opnuð fyrsta yiirlitssýn-
ingin á verkum hans í Jeu de Paume listasafn-
inu í París en safnið stendur við Concordtorgið
og hýsti áður impressjónistasafið í París. Sýn-
ingin hefur síðan farið til Belgíu og Marseille,
fer næst tii Helsinki og síðan til Riga. í haust
var einnig sýning á verkum Errós í Hong Kong
og sýndi hann þar pólitísk verk sem segja má að
spanni pólitíska sögu heimsins á 20. öld og
segja frá Nixon og Kastró og Stalín og Maó og
öllum hinum strákunum sem hafa ráðið og búið
til stríð, eða ótta, eða blekkingar, eða fallega
hugmyndafræði sem gerði heiminn ljótan.
Gott verð á málverkauppboði
Sem stendur er Erró að vinna syrpu sem
heitir „E-mail Breakfast“ og samanstendur af
tuttugu „litlum“ myndum, eins og hann segir,
en hver þeirra er 114 x 114 og verða þær á FIAC
sýningunni í París á næsta ári en það er lista-
messan í París, eða stórmarkaðui- listagallería
og verður spennandi að sjá hver framvinda fer-
ils hans verður eftir það. Nú nýlega keypti nýja
Nútímalistasafnið í Lúxembúrg verk eftir Erró
frá 7. áratugnum. Málverkið var keypt á lista-
verkauppboði og ásett verð var 200-300 þúsund
frankar en það fór að lokum á 500 þúsund
franka - eða um sjö milljómr króna. Erró er að
vonum ánægður með þessa upphæð og segist á
sínum tíma hafa selt verkið á tvö þúsund
franka. En ánægðastur er hann með að verkið
skuli fara í þetta nýja listasafn sem teiknað er
af I.M. Pei sem einnig hannaði Nútímalista-
safnið í Washington - og pýramídana í Louvre
safninu í París.“
Sem fyrr segir verður næsta sýning á verk-
um Errós hér á landi í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsi og opnuð 23. júní á næsta ári. Allt
safnið verður lagt undir sýninguna þar sem
fyrst og fremst verða verk í eigu safnsins en þar
sem mikið af stóra verkum Errós hefur verið
lánað í sýninguna sem er á ferð um Evrópu,
verður nokkram nýjum verkum bætt við. A
sýningunni verður talsvert af verkum sem ekki
hafa sést áður, til dæmis frá námsáranum á 6.
áratugnum - og æskuverk Errós, allt frá fjór-
tán ára aldri, þannig að fólk fái að sjá þróunina
og samhengið í verkum hans frá upphafi. Þar
verða einnig kvikmyndir hans og þrívíð verk,
grafísk og emalerað verk. En hvað skyldi Erró
hafa verið að mála, íjórtán ára gamall, heima í
sveitinni á Kirkjubæjarklaustri?
Fréttamaðurinn og málarinn
„Verk um stríðið,“ segir hann og sýnir blaða-
manni mynd frá 1946 - sem verður á sýning-
unni í sumar. Þar era hermenn og stríðsvélar,
atómsprengja og hnötturinn og ótal margt ann-
að. En hvers vegna var hann svona upptekinn
af stríðinu svona langt úti i kyrrlátri, fallegri
náttúranni?
„Það flugu alltaf þýskar flugvélar yfir
Kirkjubæjarklaustur á stríðsáranum.
I kjallaranum hjá okkur bjuggu fimm her-
menn á þessum áram, fyrst enskir, síðan amer-
ískir, og þeir höfðu það verkefni að fylgjast með
þessum flugvélum. Á veggnum hjá þeim vora
myndir af vélunum og við krakkamir á bænum
lærðum fljótt að þekkja þær.“
Varstu mjög upptekinn af fréttum af stríð-
inu?
„Ég komst ekki hjá því. Þannig var að Magn-
ús Bjarnfreðsson var með mér í bekk og áður
en hann kom í skólann á morgnana hlustaði
hann á fréttir og eftir skólann fór hann upp á
hól og þramaði yfir okkur, sinni miklu, djúpu
röddu, öllu því sem var að gerast í heiminum.
Hann sá um að upplýsa okkur og við vorum
virkilega ánægð með það. Síðan fór ég heim og
teiknaði með tússpennum það sem helst var í
fréttum.“
Heilu sögumar, strax þá?
„Já, ég er sögumálari.”
■1”....................................""
1 6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS - MENNING/USTIR 9. DESEMBER 2000