Tíminn - 06.12.1966, Side 5

Tíminn - 06.12.1966, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 6. desember 1966 Útgefandl: FRAMSÓKNARIFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltnii ritstjórnar: Tómas Karlsson Aug- Iýsingastj.: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur ' Eddu- húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastrætl 'l Af- greiðslusími 12323; Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur, sími 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán Innanlands. — 1 lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f. Játningar Geirs og Bjama Það hefur að vonum vakið mikla athygli að á sama tíma og forvígismenn stjórnarflokkanna þykjast vera að koma á verðstöðvun, leggja þeir fram fjárlagafrum- varp fyrir næsta ár, þar sem þeir gera ráð fyrir rúm- lega 22% hækkun álaga, og fjárhagsáætlun fyrir Reykja- víkurborg, þar sem gert er ráð fyrir rúmlega 18% hækk- un álaga. Þetta þýðir í reynd, að mönnum sé ætlað að greiða um 18—22% hærri álögur í krónutölu en þeir hafa greitt á þessu ári, enda þótt krónutala launanna, sem menn fá, eigi að verða nokkurn veginn hin sama á árinu 1967 og hún hefur verið á þessu ári. Þetta þýðir svo mikla útgjaldahækkun fyrir meðalfjölskyldu að það mun stórþrengja kjör hennar og þannig neyða launþegasam- tökin til að leggja út í nýja kaupgjaldsbaráttu. Ef um raunverulega stöðvun hefði átt að vera að ræða, hefðu álögur ríkis og borgar ekki mátt hækka í krónu- tölu frá því, sem þær hafa verið á þessu ári. Það er frum- forsenda þess, að hægt sé að halda óbreyttum launum 1 krónutölu. Ekkert sýnir betur en þessi verðbólgufjárlög og verð bólgufjárhagsáætlun, að ráðamenn stjórnarflokkanna stefna ekki að verðstöðvun, enda þótt þeir láti nú svo í veðri vaka. Verðstöðvunarhjal þeirra er ekkert annað en blekking, sem á að leyna hinum raunverulegu stað- reyndum fram yfir kosningar. Þetta hafa þeir Bjarni Benediktsson og Geir Hallgríms son líka óbeint játað. Bjarni Benediktsson sagði við 1. umr. í neðri deild um verðstöðvunarfrumvarpið svonefnda, að það ætti að gilda til 1. okt 1967 — og niðurborganirnar á fjárlaga- frumvarpinu væru einnig við það miðaðar — til þess að nýkjörið Alþingi fengi nægilegt ráðrúm til að taka málin til athugunar og ákveða þá stefnu, sem það vildi fylgja. Bjarni Benediktsson viðurkennir með öðrum orðum að ástandið sé þannig, að öll þessi mál verði tafarlaust að taka til gagngerðar endurskoðunar eftir kosningarnar og það verði að vera búið að ákveða nýjar ráðstafanir fyrir 1- október. Svo illt sé ástandið, að lengur megi það ekki dragast. Geir Hallgrímsson lýsti yfir því, þegar hann lagði fjárhagsáætlunina fram á borgarstjórnarfundi, að nægði sá útsvarsstigi ekki sem var fylgt á þessu ári, til að tryggja borginni þær tekjur, sem fjárhagsáætlunin gerði ráð fyrir, að taka þessi mál til nýrrar athugunar í borgar stjórn síðar á árinu, þ e. eftir alþingiskosningamar. Bæði forsætisráðherrann og borgarstjórinn játa þann- ig að fjárhagsmálin þarfnist alveg nýrrar athugunar og nýrra ráðstafana á síðari hluta ársins 1967 eða að aflokn- um þingkosningum. Fjárlögin og fjárhagsáætlunin sýna, að forkólfar stjórn arflokkanna er ekki horfnir frá verðbólgustefnunni, þótt nú sé reynt að blekkja með hinni svokölluðu verð- stöðvun. Verðbólgustefnan, sem fellst í fjárlögunum og fjárhagsáætluninni. mun skapa meiri dýrtíðarhækkanir en hér hafa áður átt sér stað, nema alveg ný stefna komi til eftir kosningar. Það gerist ekki nema kjósendur brevti um forustu. TÍMINN j Skúli Guðmundsson, alþingismaður RAFMAGNSMÁL SVEITANNA Raforkumálaskrifstofan tel- ur, að í árslok 1965 hafi um það bil 3100sveitabýli haft rafmagn frá almenningsveitum. Og skrif stofan áætlar, að um 200 bætist við á þessu ári. Hér að auki munu um 490 býli hafa raf magn frá sérstökum vatnsafls stöðvum. Má því ætla, að í árslok 1966 verði fjöldi þeirra sveitabýla, sem hafa rafmagn frá samveitum og sérstökum vatnsaflsstöðum, nálægt 3800- Af þeim upplýsingum, sem fyrir liggja um tölu byggðra jarða, má gera ráð fyrir að þau sveitabýli, sem hvorki liafa raf magn frá: almenningsveitum né sérstökum vatnsaflsstöðvum verði um næstu áramót ekki langt frá 1500. Er þá eftir að leggja raflínur til alluiargra sveitaheimila, sem voru á fram kvæmdaáætlun héraðsrafmagns veitna ríkisins árið 1966. Á miðju ári 1964 lauk raf- orkumálaskrifstofan við að gera áætlun um raflínulagnir á þeim landssvæðum, þar sem meðallínulengd milli býla er 1—2 km Var hér að sögn raf orkumálaskrifstofunnar, um frumdrög að ræða, En þótt slík áætlun hafi legið fyrir í meira en tvö ár, hafa núverandi stjómarflokkar ekki enn feng izt til að samþykkja heildar áætlun um framkvæmdir i raf orkumálum sveitanna. Þeir hafa ekkj viljað fallast á að sain- þykkja slíka áætlun og veita því fólki, sem enn vantar raf magnið vitneskju um hvers það megi vænta í þcssu þýðing armikla máli- Tillögur, sem Framsóknarmenn hafa flutt á undanförnum árum í Alþingi og raforkuráði, um að hraða ákvörðunum og framkvæmdum í málinu, hafa því miður ekki fengizt samþykktar. Fleira bendir til þess, að áhugi núverandi valdhafa fyrir því, að rafvæðingu sveitanna verði lokið sem allra fyrst, sé minni en vera ætti. Fjárfram lög ríkisins til þeirra fram- kvæmda eru nú hlutfallslega langtum minni en þau voru fjTÍr daga núverandi ríkisstjórn ar. Árið 1958 voru framlögin til raforkusjóðs og héraðsraf magnsveitna ríkisins fast að 4% af heildargjöldum á rekstr arreikninqi ríkissjóðs, en sam kvæmt fjárlagafrumvarpine, sem nú liggur fyrir £ þinginu, má ætla að þau verði fnnan Skúli Guðmundssqn við 1% af rekstrárgjöldunum ária 1967. Verkefnin, sem fyrir Iiggja, eru: 1- Ljúka þarf raflínulögnum frá héraðsrafmagnsveitum rík isins til allra heimila á þeim svæðum, þar sem meðalvega lengd milli býla er 2 km, eða minni. Þetta er auðyelt að framkvæma á 2—3 árum, ef vilji er til þess- 2. Nú þegar þarf að gera áætlanir um kostnað við að leggja raflínur frá samsveit- um um þau svæði, þar senj meðallinulengd. milli ' hejinila er 2—3 km. Amfengnum þeim áætlunum þarf að taka ákvarð anir um að hve miklu leyti raforkuþörf manna verður full nægt með línum frá samveitum, en sjálfsagt er að ganga svo langt. í því efni sem frekast er mögulegt, kostnaðar vegna, þar sem með þeim hætti fá menn beztn og öruggustu þjón ustuna, sem unnt er að veita á þessu sviði. 3. Veita þarf meiri aðstoð en nú er gert til að koma upp vatnsaflsstöðvum fyrir heímili, sem eru utan samveitusvæð- anna, en hafa möguleika til vatnsaflsvirkjunar, 4. Auka þarf mjög verulega aðstoð ríkisins, með einhverj- um Iiætti, til að koma upp mót orstöðvum til raforkufram- leiðslu fyrir þau heimili, sem eru §vo afskekkt, að ekki þykir fært að leggja raflínur til þeirra frá almenningsveitum og hafa ekki skilyrði til vatnsafls virkjunar Um þessar mundir er rætt um framkvæmdaáætlanir fyr ir einstaka landshluta. Unnið hefur verið að slíkri áætlun fyr ir Vestfirði, þótt aðeins hluti hennar liafi verið birtur opin berlega. Og nú mun fram- I kvæmdaáætlun fyrir Norður- land vera í undirbúningi. Eitt af því fyrsta, sem ætti að taka inn á slíkar áætlanir, er að Ijúka því nauðsynjaverki, að koma rafmagninu til allra heim ila í þcim landshlutum, sem áætlanirnar ná yfir og fram kvæmdunum þarf að hraða svo sem mögulegt er. Þetta er eitt af því, sem óhjákvæmilegt er 1 að gera, til þess að halda þar M við búsetu og atvinnurekstri. Mikill meiri hluti lands- manna hefur þegar fengið raf orku til heimilisþarfa og ann arra nota, að langmestu leyti frá virkjunum og orkuveitum, sem komið hefur verið upp af ríkinu eða með stuðningi þess Gera má ráð fyrir ,að nú séu ekki fleiri en fjórir af hverju hundraði landsmanna utan við Ijósið og ylinn frá rafmagninu. Það er skylda ríkisvaldsins að bæta úr raforkuþörf þessara fáu manna. Þeir eiga fullan rétt á því, að' eftir þeim sé munað og að þejr fái að vita, án óþarfr ar tafar, hvenær. rafmagnið verð ur flutt inn á heimili þeirra. Örugg vitneskja um þetta er mikils virði fyrir það fólk, sem bíður eftir rafmagninu, og ákvarðanir í málinu hafa dreg izt óhæfilega lengi. Fjármagnið, sem þarf til að veita rafmagninu til þeirra fáu manna, sem enn eru án þess, er mjög lítið, ef miðað er við þá peningaveltu, sem nú er í þjóðfélaginu. Framgangur máls ins strandar því ekki á fjár skorti. Að þessum nauðsynlegn framkvæmdum þarf að vinua með þeim hraða, sem mögulegt er að hafa á þeim, tii þess að allir landsmenn geti sem fyrst notið þeirra mikilsverðu hlunn inda, sem rafmagnif veitir. Ann að er ekki sæmilegt Þetta er eitt af þýðingar- mestu málunum, sem nú bíða úrlauen.ar. ÞRIÐJUDAGSGREININ I Fréttabréf frá starfsemi SÞ Blóðkrabbi færist i aukana Tala þeirra manna, sem lát- ast af blóðkrabba, hefur auk- izt um heim allan síðasta ára- tuginn, segir í skýrslu um ný- lega rannsókn Alþjóðaheilbirgð ismálastofnunarinnar (WHO)- Yfirelitt eru karlmenn næmari fyrir þessum ’sjúkdómi en kon- ur. Dauðsföll eru algengust fyr ir fertugsaldur og síðan unr 65 ára aldur og þaðan í frá.: í Evrópu létust 3 af hundr- aði þeirra, sem dóu af krabba- meini, úr blóðkrabba, en í Norður-Ameríku var hundr- aðstálan 4,5. WHO-rannsóknin leiðir í ljós hver sé áætluð dánartala af völdum blóðkrabba á hverja 100.000 íbúa. 1 Evrópu er hún hæst í Danmörku (8,3), Vestur- Berlín (8,2) og Svíþjóð (8,0), en lægst í Póllandi (3,9) og á Spáni (3,3) í Bandaríkjunum er talan 7,2 og í Kanda 6,1. : Dánartalan er yfirleitt lægst í aldursflokknum 15-24 ára. ijSftir 45 ára aldur hækkar hún ört og nær hámarki við 65 ára aldur og þar eftir. Öfugt við Norður-Ameriku er dánartalan i nokkrum Evrópulöndum hærri hjá stúlkum en drengj- um innan 4 ára a'ldurs. HEILSUSKÆÐAR ROTTUR ÉTA 13 KG Á ÁRI. Rottur, mýs og önnur nag- dýr hafa verið til umræðu hjá Alþ j óðaheilbrigðismálastofnun inni (WHO) í Genf. 30 vísinda- menn hafa skipzt á upplýsing- um um baráttuna gegn þess- um heilsuskæðu smitberum. Venjuleg litil húsamús getur t. d. flutt með sér salmonella (ákveðinn flokkur taugjveikis- Framhald á bls. 15.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.