Tíminn - 06.12.1966, Blaðsíða 12
ÍÞRÓTTIR
12
TÍMINN
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikurinn um helgina:
Fram og Valur berj-
ast um Rvíkurtitilinn
Hinrik Einarsson skorar af línu fyrir Fram í leiknum gegn KR á sunnudag-
inn. (Tímamynd: Róberf)
Alf-Reykjavík. — Það verða
Fram og Valur, sem berjast nm
Rvíkurmeistaratitiliim í handknatt
leik 1966. Liðin eiga að leika n.k.
sunnudag og nægir Fram jafn-
tefli til að hljóta sigur. Sigri Val-
ur hins vegar, verða Iiðin að leika
nýjan úrslitaleik, þar sem Fram
hefur nú 2ja stiga forskot eftir
auðveldan sigur gegn KR á sunnu-
dag, 23:14.
Margir bjuggust við því, að HR-
ingar myndu veita Fram verðuiga
keppni, en sú varð ekki raunin.
Fram tryggði sér 6 marka forskot
KR og ÍR
nú efst
Tveir leikir fóru fram í Rvíkur-
mótinu í körfuknattleik á sunnu-
daginn. ÍR-ingar unnu Áiunann
með 56:52, og KFR vann stúdenta
með 61:40. KR og ÍR eru nú efst
í mótinu, hafa hlotið 6 stig, og
munu því leika hreinan úrslita-
leik.
Staðan í mótinu er annars þessi:
KR 3 3 0 295:167 6
ÍR 3 3 0 194:116 6
Ármann 3 12 158:191 2
KFR 3 12 155:212 2
ÍS 4 0 4 154:270 0
í fyrri hálíleik, 10:4, og sigraði
með 9 marka mun, 23:14. Hefði
sá sigur getað orðið mun stærii,
en Fram skipti landsliðsmarkverð
inum Þorsteini Bjömssyni út af
í síðari háitfleik fyiir HaMdór Sig-
urðsson, sem átti slæman dag og
fékk á sig mörg klaufamörk. Fram
liðið nýtti völlinn mjög vel, sýndi
ágætt línuspil og varð vel ágengt
í hraðaupplilaupum. Þá var vörn-
in með skárra móti í fyrri hálf-
leik. Mörk Fram: GUnnlaugur 7,
Ingólfur 5, Sigurður E. 3, Guð-
jón og Hinrik 2 hvor, Gylfi, Pétur,
Arnar og Tómas 1 hver.
í undjanfömum leikjum hefur
Ingólfur Óskarsson stjórnað KR-
liðinu eins og herforingi utan
vallar. í þetta skipti nutu KR-ing-
ar ekki tilsagnar hans, þar sem
Ingólfur lék í andstæðingaliðinu
og gat ekki þjónað tiveimur herr-
um. Fyrir bragðið var KR-liðið
ekki eins öruggt. Mörkin: Sig-
mundur 5, Gísli 4, Hilmar 2, Stef-
án, Björn og Gunnar Hjaltalín 1
hver. — Leikinn dæmdi Valur
Benediktsson og dæmdi mjög vel,
a.m.k., þegar miðað er við fyrri
leiki.
ÍR-Ármann 13:11.
Leikur ÍR og Ármanns var
frekar slakur og markaðist mjög af
'þýðingarleyBÍ hans, þar sem hvor-
ugt liðið háfði möguleika á sigri
í mótinu. Til að byrja með náðu
ÍR-ingar góðu forskoti, 6:1, en Ár-
menningar náðu að minnka bilið
fyrir hlé í 8:6, og fljótlega í síð_-
ari hálfleik jöfnuðu þeir 8:8. í
síðari hálfleik voru ÍR-ingar betri
aðilinn_ og unnu leikinn 13:11.
Mörk ÍR: Þórarinn 5, Ásgeir og
Ólafur 2 hvor, Brynjólfur, Vil-
hjálmur og Hermann 1 hver.
Mörk Ármanns: Hreinn 4, 01-
fert og Davíð 2 hvor, Ragnar,
Bergur og Jakob 1 hver. — Jón
Friðsteinsson dæmdi leikinn eftir
atvikum vel.
Víkingur—Þróttur 13:8.
Víkingur — með alla sína efni-
legustu leikmenn — átti í mikl-
um erfiðleikum með Þrótt, sem
virðist senda lið til keppni meira
af skyldurækni en getu. Samt fór
það svo, að Þróttur hafði frum-
kvæði allan fyrri hálfleik og hafði
þá náð 3ja marka forskoti, 7:4.
í síðari hálfleik vöknuðu Víking-
ar til lífsins og skoruðu nvert
markið á fætur öðru, en Þróttur
Framhald á bls. 15.
ÞRIÐJUDAGUR 6. desember 1966
Ekki
von á
góðu
„Það gekk ekki vel hjá
ykkur í leiknum?
„Nei, ekki nógu vel.
Hvernig átti annað aS vera
maður. Þrír af strákunum
voru á „fylliríi" til klukk-
an 7 í morgun, og léku
í dag.“
Ofangreint samtal átti
sér stað á milli tveggja hand
knattleiksmanna í Laugar-
dalshöllinni á sunnudag og
þarf víst ekki nánari skýr-
ingar. Nöfn viðkomandi
pilta verða ekki birt hér,
né heldur skýrt frá því í
hvaða félagi þeir eru, en
dæmið sýnir hve mikið virð-
ingarleysi sumir sýna íþrótt
sinni.
Því miður er þetta ekki
einsdæmi. Ekki er langt sið-
an að stúlka úr einu meist-
araflokksliðanna í hand-
knattleiks mætti í seinna
lagi tíl leiks á sunnudags-
eftirmiðdegi, og tilkynnti
stöllum sínum í búnings-
klefanum, að hún gæti varla
spilað, því að hún væri svo
„timbruð.“ Ekki mun það
liafa verið ætlun stúlkukind
arinnar að draga sig í hlé.
Nei, hún vildi elnfaldlega
sýna hinum stúlkunum hve
tnikil manneskja hún væri.
Framhald á bls. 15.
HÚNVETNINGAR
JÓLA VÖRURNAR ERU K0MNAR
ÚVENJU MIKID VÖRUÚRVAL
KOMIÐ SEM FYRST, MEÐAN ÚRVALIÐ ER MEST
OG FORÐIST ÖSINA SÍÐUSTU DAGANA FYRIR JÓL
KAUPFÉLAG HÚNVETNINGA
BLÖNDUÓSI