Tíminn - 06.12.1966, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 6. desember 1966
TÍMINN
'W&'
JOHNSON
Framhald af bls. 1
viljaða afstöðu til póiitískrar for-
ustu Johnsons.
Segir í niðurstöðunum, að von
in um friðsamlega lausn Vietnam- j
deilunnar hafi aukizt, þegar for- i
setinn lagði upp í hina miklu Asíu
ferð sína, en nú séu aðeins von- j
brigðin eftir.
Aðeins 42% Bandaríkjamanna j
eru fyi'ijandi aðgerðum forsetans
í Vietnam-deilunni.
En vantraustið á Johnson í sam j
bandi við Vietnam er þó smá-
munir í samanburði við minnkandi
álit hans meðal þjóðarinnar varð-
andi innanríkismál.
Aðeins 35% telja Johnson hafa
vel gert í baráttunni við að halda
fjárhag landsins í traustum skorð
um, og er það 20% lækkun frá
skoðanakönnun í júlí s.l-
Einnig í kynþáttamálunum fer
fylgi Johnsons dvínandi. Aðeins
41% þjóðarinnar veitir stefnu
Johnsons á því sviði fulltingi sitt.
í skýrslu Harris segir þó, að
■Johnson sé nú staddur í „eins kon-
ar vetrarsólhvörfum" á forseta-
ferli sínum, og muni hann senni
lega auka vinsældir sínar meðal
bjóðarinnar síðar.
DÆMDIR
Framhald af bls. 2.
þessu og hann dæmdur í 8 mán-
aða fangelsi, þannig að refsing
hans nam alls 1 árs fangelsi fyrir
öll brotin. I>á var hann sviptur
rétti til að öðlast ökuleytfi ævi-
langt, gert að greiða skaðabætur
og allan sakarkostnað.
Síðargreindi maðurinn hlaut 4
mánaða fangelsi fyrir þjófnað, föls
un á 2 tékkum og 1 lytfseðli. Þá
var hann dæmdur til skaðabóta-
greiðslu og greiðslu sakarkostn-
aðar að háifu sameiginlega með
hinum fyrrgreinda.
Menn þessir höfðu áður hlotið
refsidóma fyrir hegninarlagabrot.
Þá var 2. þ.m. kveðinn upp dóm
ur í máli 19 ára manns, sem sak-
aður var um 4 innbrotsþjófnaði
seinni partinn í sumar og haust
og fölsun á 19 tékkum samtals
að fjárhæð kr. 49.700.-, sem hann
seldi hér í borginni í bönkum og
verzlunum. Hafði maðurinn fund-
ið tékkhefti á tveimur stöðum, þar
sem hann brauzt inn og notað
eyðublöð úr þeim til að faisa.
Maður þessi hiaut 6 mánaða
fangelsi fyrir brot þessi, enda
hafði hann á s.l. ári orðið upp-
vís að skjalafalsi, en ákæru verið
þá frestað á hann. Þá var hann
dæmdur til greiðslu skaðabóta og
alls sakarkostnaðar.
Tveir framangreindra manna
sátu í gæzluvarðhaldi á meðan á
rannsókn málsins stóð og skyldi
það koma til frádráttar refsing-
unni.
í málum þessum kom fram, að
við sölu tékkanna í bönkum og
verzlunum og áritun framsals á
þá í því sambandi, en þess var
ekki alitaf farið á leit, vom dóm-
felldu ekki beðnir um að sýna
nafnskírteini né önnur persónu-
skilríki.
Gunnlaugur Briem sakadómari,
kvað upp dórna í málum þessuin.
Frá Sakadómi Reykjavíkur).
BRETAR KREFJAST
Framhald at bls. 1
um drög þau að samkomulagi, sem
hann og Smith gerðu á fundi sín-
um um borð í brezka beitiskipinu
Tiger. Því hafði og verið lýst yf-
ir, að þetta væri síðasta tilraun af
Breta hálfu til lausnar deilunni,
sem nú hefur staðið yfir í meira en
eitt ár. — Og svarið var nei frá
stjórninni í Salisbury.
Ásunnudag sagði Wilson, að
ekki hefði náðst samkomulag um
nokkur atriði, en bætti því við,
að frekari samkomul.umleitanir um
þau væru þýðingarlausar. Áður hef
ur Wilson tekið skýrt fram, að
Bretland muni nú krefjast aðgerða
gegn stjórn Rhodesíu, af hálfu
Sameinuðu þjóðanna. Tiilögur
brezku stjórnarinnar voru ræddar
á stjórnarfundi í Salisbury í sam
tals níu klukkustundir, áður en
neikvætt svar var ákveðið. Tan
Smith sagði, að pað álit brézku
stjórnarinnar. «ð Rhodesíustjórn
félli frá sjálfstæfisyfirlýsingu
sinni frá þvi í fyrra. áður eri ný
stjórnarskrá væri tryggð og satn
þykkt af þjóðinni. væf aijvrlega
ábyrgðarlaust.
Til ákvörðunar smnar í dag fékk
minnihlutastjórn Ian Smith átta
tíma viðbótarfrest við þann, sem
Wilson hafði upphaflega sett. Seg
ir brezka útvarpið, »ð Smith muni
hafa lagt hart að ráðherrum sínum
að staðfesta drögin að samkomu-
laginu milli hans og Wilsons.
Refsiaðgerðanefnd brezka þings
ins hélt þriggja klukkustunda fund
í dag um málið og var samþykkt
að krefjast þess af aðildarríkjum
S.Þ., að þau tækju þátt í efnahags
legum refsiaðgerðum gegn stjórn
Rhodesíu. Nefndin heldur annan
fund á miðvikudag.
Wilson skýrði frá því seint i
kvöld, að hann myndi halda ræðu
í sjónvarpinu annað kvöld. í dag
voru áheyrendapallarnir í brezka
þinginu yfirfullir af fólki sem
bjóst við, að Wilson myndi gefa
einhverja yfirlýsingu um málið
Framkvæmdastjóri
Fiskiðjusamlag Húsavíkur h.f. vill ráða framkvæmda-
stjóra frá 1. janúar n.k.
Umsækjendur þurfa að hafa góða reynslu í frystihúsa-
rekstri; en hraðfrystihús félagsins er nýuppbyggt og i
fremstu röð með fullkominn tæknilegan útbúnað og arð-
bæran rekstur.
Húsavík er bær í örum vexti; samgöngu- og verzlunarmið-
stöð héraðs, sem viðfrægt er fyrir nátt.úrufegurð í bæn-
um eru góðar aðstæður til menntunar barna og hvers kon-
ar útiveru, og þar er fjölbreytt félagslíf Beint flugsam-
band er við Reykjavík, og góðar samgöngur við Akur-
eyri.
Umsækjendur hafi samband við bæjarstjórann t Húsa-
vík eða Vernharð Bjarnason hjá Fiskiðiusamlagi Húsa-
víkur h.f. sem gefa allar nánari upplýsingar.
Stjórn Fiskiðjusamlags Húsavílrur h.f.
I