Vísir - 29.05.1975, Síða 1
65. árg. —Fimmtudagur 29. mai 1975 — 118.tbl.
Karl Svíakóngur
veitti Yikuritstjóra
blaðaviðtal — baksíða
ÁBURÐUR TIL BÆNDA - BYGGINGAFRAMKVÆMDIR
HEFJAST AFTUR - SIGÖLDUVIRKJUN Á FULLT
BRÁÐABIRGÐALÖG í MORGUN
Hjólin fara að snúast
þar, sem verkföllin i
rikisverksmiðjunum
hafa stöðvað þau. Fél-
agsmálaráðherra setti i
morgun bráðabirgðalög.
Hæstiréttur skal tilnefna
þrjá menn i kjaradóm,
sem ákveði kaup og kjör
þeirra starfsmanna Á-
burðarverksmiðju rikis-
ins, Sementsverksmiðju
rikisins og Kisiliðjunnar
h.f., sem i verkfalli eiga.
Ákvarðanir kjaradómsins
skulu taka gildi frá deginum i
dag, þegar lögin taka gildi. Unz
kjaradómur fellur skal fylgt
ákvæðum siðustu samninga aðila
um kaup og kjör, en launagreiðsl-
ur skulu leiðréttar i samræmi við
hann.
Verði almennar kauphækkanir,
meðan bráðabirgðalögin gilda,
skulu þessir starfsmenn verða
þeirra aðnjótandi, að þvi er
kjaradómur segir til um.
Verkföll, þar á meðal samúðar-
verkföll, i þvi skyni að knýja fram
aðra skipan kjaramála, þar á
meðal framhald á verkfalli nú i
rikisfyrirtækjunum, eru bönnuð.
Verkföll þessi hafa staðið frá
12. mai. Sáttatilraunir hafa ekki
borið árangur, segir i tilkynningu
um bráðabirgðalögin laust fyrir
hádegið. Verkföllin hafa valdið
mikilli röskun i atvi.nnulifi. Vá
væri fyrir dyrum i landbúnaði, ef
verkfall i Aburðarverksmiðju
héldi áfram, þar sem siðustu for-
vöð eru til áburðardreifingar. Se-
mentsskorturinn hefur stöðvað
byggingarframkvæmdir að
mestu og valdið alvarlegum töf-
um á framkvæmdum við Sigöldu-
virkjun, hafnarframkvæmdum i
Þorlákshöfn og viðar. Fram-
leiðsla Kisiliðjunnar hefur stöðv-
azt og öflun hráefnis til fram-
leiðslu á næsta vetri, sem stofnar
afurðasölu verksmiðjunnar i tvi-
sýnu. Þvi áleit rikisstjörnin, að
verkfallið þyrfti aö stöðva með
bráðabirgðalögum.
Ekki var alveg ljóst i morgun,
hvenær kjaradómur yrði felldur.
— HH
Fargjaldafrum-
skógurinn:
DÝRARA HÉÐAN
TIL AMERÍKU
EN FRÁ
LUXEMBURG TIL
AMERÍKU!
— bls. 3
•
Deilt um
40 milljónir
— bls. 3
•
Skrif sjónvarps-
manns um
Lénharð óstœða
fyrir uppsögn
hans?
— baksíða
íslandsmet
Ragnhildar í Osló
og heimsmet
í stangarstökki!
— Sjá íþróttir i opnu
Spilið sem gaf
fimm Lancia-bíla
— sjá bridge
á bls. 16
Þúsundir jurta í grasgarðinum
Hún Helga Lilja Björnsdóttir
er afar hress yfir blómunum
sinum og að vonum, þvi að það
eru ekki margir, sem geta stát-
að af að hafa fleiri þúsundir
jurta undir höndum.
Hún vinnur nefniiega I Gras-
garðinum i Laugardalnum, og
er raunar nýbyrjuð þar. Hún
lærði i Garðyrkjuskólanum og
vann áður I Ræktunarstöðinni.
Sú stöð er raunar aðeins stein-
snar frá, svo að ekki er hægt að
segja, aðHelga hafi komið langt
að eða hún hafi ekki verið
kunnug staðháttum.
— EVI — Ljósm. Bj.Bj.
SJABLS. 12
„Tilbúnir að byrja ó
sama klukkutíma"
segja steypustöðvamenn um bráðabirgðalögin
,,Það er ijóst, að þetta verk-
fail þarf að lcysa. Þjóðin hefur
ekki efni á, að það haldi áfram,”
sagði Viglundur Þorsteinsson,
forstjóri i Steypustöð BIVI Vallá i
inorgun um lausn verkfailsins i
Seinentsverksmiðjunni með
bráðabirgðalögum.
,,Það hefur verið alger stöðv-
un hér siðan 14. mai,” sagði
Vfglundur. ,,Ekki er vafi á, að
gifurlegt magn af mótum stend-
ur tilbúið til steypu. Við erum
tilbúnir að hefja starfrækslu á
sama klukkuti'manum og við fá-
um sement afgreitt.”
„Verkfallið skapar óeðlilega
spennu,” sagði hann ennfrem-
ur. Viglundur benti á, að meðan
stöðvunin isé hefði fastur
kostnaður safnazt á fyrirtækið
og ýmis reksturkostnaður held-
ur ekki fengizt greiddur. Hins
vegar væri erfitt að reikna tapið
nákvæmlega.
— HH
„FRÁLEIT LAUSN"
segir Björn Jónsson um bráðabirgðalög í
deilu í ríkisverksmiðjunum
„Mér mundi finnast þetta
vera fráleit lausn, og hún mundi
mælast mjög illa fyrir hjá
verkalýðshreyfingunni, nú i
upphafi almennra átaka.”
Björn sagði, að hann vildi
helztekki trúa, að þessi leið yrði
farin. Hann kvaðst hafa heyrt
sögusagnir um þennan mögu-
leika en ekki vilja trúa, fremur
en öðrum sögusögnum.
í hinni almennu kjaradeilu
ASl og vinnuveitenda hefur það
helzt gerzt að sáttanefnd verður
sennilega skipuð til að auðvelda
samningaviðræðurnar. ASl-
menn hafa lýst sig andviga hug-
myndum um að leysa þá vinnu-
deilu, með bráðabirgðalögum.
Litið sem ekkert hefur þokazt á
samningafundum.
— HH
UM ANNAÐ GAT EKKI
VERIÐ AÐ RÆÐA
— segir Hjalti Gestsson hjá Búnaðarsambandi
Suðurlands
Vísir hafði saniband við verið um annað að ræða.”
Hjalta Gestsson, hjá Búnaðar- Eins og fram hefur komið i
samhandi Suðurlands, á Sel- fréttum Visis að undanförnu
fossi. Ilann sagði: hafa bændur verið mjög ugg-
„Þetta var að komast i óefni andi um sinn hag vegna
og þótt ég viti að samkomulag áburðarleysis. llafa sumir jafn-
sé alltaf betra en dómur, tel ég vel haft á orði að bregða búi, ef
að svo nauðsj nlegt hafi verið að verkfallið leystist ekki.
koma þessu a f stað að ekki hafi —ÓT —
TIL HAFNAR FYRIR
FJÓRÐUNG FARGJALDS
— Baksíða