Vísir - 29.05.1975, Side 11
mmmm
10
Visir. Fimmtudagur 29. mai 1975
Visir. Fimmtudagur 29. mai 1975
■
3^
11
Magdeburg
sigurvegari
Austur-þýzka meistaralibiö Magdeburg, sem
fyrra miövikudag sigraöi 11. deildinni þýzku annaö
áriö i röö, lauk deildaleikjunum meö jafntefli 1-1 á
útivelii gegn Dynamo Dresden. Magdeburg hlaut 41
stig i keppninni — þremur meira en Carl Zeiss Jena,
sem varö i ööru sæti. 1 siöasta leik sinum sl. sunnu-
dag sigraöi Jena Karl-Marz-Stadt meö 3-0. 1 næstu
sætum uröu Dynamo Dresden, meö 32 stig, og
Dynamo Austur-Berlin meö 30 stig og komast þvi i
UEFA-keppnina næsta leiktimabil.
Niöur i 2. deild féllu Vorwaerts Stralsund og
Hansa Rostock, en hinn kunni leikmaöur siöar-
nefnda liösins, landsiiösmiöherjinn Joachim
Streich, var settur úr liöinu i nokkrum leikjum um
miöbik keppnistimabilsins vegna deilu viö félags-
stjórnina. Rostock náöi stigi á útivelli i siöasta leik
sinum gegn Stralsund, sem þegar var falliö, en þaö
nægði ekki. Þriöja liöiö i fallbaráttunni, Wismut
Aue, sigraöi á sunnudag Rot-Weiss Erfurt 2-1 og
bjargaöi sér meö þvi.
Ezzard Charles
lézt í gœr
Ezzard Charles, fyrrum heimsmeistari i þunga-
vigt i hnefaleiknum, lézt I gær á sjúkrahúsi i Chi-
cago — 53 ára aö aldri. Ilann :iaföi vcriö veikur i
mörg ár — lamaöur og var i hjólastúl. Ezzard
Charles varö heimsmeistari 1948, þegar hann sigr-
aði Joe Wolcott og hélt heimsmeistaratitlinum I tvö
ár. Meöal þeirra, sem hann sigraði, var Joe Louis.
íslandsmet
Ragnhildar
Ragnhildur Pálsdóttir Stjörnunni Garöahreppi
tók þátt I kvennamóti BUL á Bislett leikvanginum i
ósló I gærkvöldi og sigraöi I 3000 m hlaupi á nýju ts-
landsmeti, 10.21.8 min. Eldra met hennar á vega-
lengdinni var 10.28.2 min. önnur varö Björg Moen
BUL á 10.23.6 min og þriöja Berit Hansen á 10.26.2
min. .
Ragnhildur var fyrst allan timann en 5 stúlkur
tóku þátt I hlaupinu. Dálitiö var fariö aö kólna I gær-
kvöldi, þegar hlaupiö fór fram.
Þetta islandsmet Ragnhildar er jafnframt nýtt
félagsmet i norska félaginu BUL, sem Ragnhildur
hefur keppt meö undanfariö.
Ragnhildur keppti á mánudaginn 26. mai i 400 m
hlaupi I smábæ nálægt Viborg I Danmörku og sigr-
aöi á sinum næstbezta tima 61.8 sek. Hlaupabrautir
voru þar ekki uppá þaö bezta.
Peter Lorimer, lengst til vinstri, sendir knöttinn framhjá George Schwarzenbeck og i markið hjá Sepp Maier Islöari hálfleiknum — en dómarinn dæmdi markiö af vegna rangstööu Billy Bremner, lengst til hægri — og hann er greinilega fyrir innan Franz
Beckenbauer — aö falla I völlinn. Simamynd AP I morgun.
LEIKAÐFIRÐ BAYERN HEPPNADIST ALVEG
Bayern Munchen varð
Evrópumeistari félagsliða
í Paris i gærkvöldi — annað
árið i röð — þegar liðið
sigraði Leeds i úrslitaleik
Evrópubikarsins 2-0. En
þessi 20. úrslitaleikur
keppninnar var slakur —
einn hinn slakasti sem um
getur — og enskir
áhorfendur settu svartan
blett á knattspyrnuna með
framkomu sinni. En fyrir
þjálfara Bayern/ Dettmar
Cramer, var leikurinn
mikill sigur. Hann sannaði
svo ekki verður um villzt
að í skipulagningu stendur
honum enginn framar —
leikaðferð Bayern Munch-
en heppnaðist fullkomlega.
Cramer vissi, að lið hans var
lakara en Leeds og hagaði leik-
skipulaginu eftirþvi —já, Bayern
Munchen er ekki sama lið og hér
áður fyrr og þó það léki oft á tið-
um eins og 2. deildarlið i gær-
kvöldi stóð það uppi sem sigur-
vegari i lokin.
Bayern lék varnarleik — fyrst
og siðast — og treysti á
snögg upphlaup, sem gætu komið
leikmönnum Leeds úr jafnvægi.
Miðjan var algjörlega gefin eftir
— og þar gat Leeds leikið sér aö
vild, en þegar upp að vitateignum
kom rann flest út i sandinn hjá
enska liðinu. Þar var til staðar
sjö-til átta manna varnarveggur
þýzkra, — og fyrir aftan hann lék
Franz Beckenbauer sem „sweep-
er” ef einhvern leikmaður Leeds
skyldi komast i gegn. Þeirri stöðu
Ahangendur Leeds urðu sér til
mikillar skammar I Paris I gær —
settu ljótan blett á knattspyrnuna
meö framkomu sinni. Myndin til
hliöar var tekin rétt á eftir aö
Bayern haföi skoraö annaö mark
sitt I leiknum — og öllu lauslegu
var þá kastaö niöur á völlinn.
gerði Franz „keisari” góð skil —
var bezti maður Bayern, þó hann
léki mest allan leikinn með djúp-
an skurö yfir öðru auganu. Keis-
arinn var góður þó hann að áliti
Cramers sé orðinn of gamall og
hinn gamli maðurinn I liðinu,
Sepp Maier, markvörður, stakk
ekki rangt niður fæti i leiknum.
Að visu þurfti hann ekki að verja
mikiö — skot Leeds á markið
lentu yfirleitt „hárfint” framhjá
eöa yfir. Þessi sterki varnarleik-
ur Bayern varð til þess, að leik-
menn Leeds reyndu mjög lang-
skot i leiknum og þau heppnuöust
ekki — þó oft væri flug knattarins
iskyggilega nærri marki Maiers.
Vegna leikaðferðar Bayern var
Leeds miklu meira með knöttinn i
leiknum — en tókst illa að nýta
það, þó svo i tveimur tilfellum
yrðv mistök franska dómarans til
að halda Bayern á floti. Hann
sleppti augljósri vitaspyrnu — að
áliti nær allra fréttamanna á
leiknum — þegar Beckenbauer
felldi Alan Clarke i lok fyrri hálf-
leiks — og dæmdi svo „gott”
mark af Leeds, þegar staöan var
0-0 um miðjan siðari hálfleik.
Peter Lorimer skoraði — en rang-
staöa var dæmd á Billy Bremner.
Þessi atvik hleyptu illu blóði i
leikmenn Leeds — liðið beinlinis
brotnaði niður, þegar mark Lori-
mers var dæmt af. Ekki bætti úr
skák þá að vart var leikandi á
vellinum vegna óláta ensku
áhorfendanna, sem misstu alveg
stjórn á skapi sinu. Bremner varð
meira að segja að fara aftur fyrir
mark Maiers og biðja áhorfendur
að haga sér eins og manneskjur.
Og svo kom að þvi, sem leik-
menn Bayern biðu eftir. Vörn
skyndilega breytt i sókn — sjálfur
Muller, sem oft var varnarhlekk-
ur við vitateig Þjóðverja, náði
knettinum þar — gaf langt fram
til Svians Thorstensson, sem
brunaði upp. Hann sendi siðan á
Franz Roth, sem skoraöi. Það
var á 71. min. og i annað skipti i
leiknum, sem leikmenn Bayern
komust upp i vitateig Leeds. EÍl-
efu min. siðar léku leikmenn Bay-
ern sama leikinn og nú var það
Muller, sem varla hafði sézt i
sóknarleiknum áður, sem skoraöi
annað mark Bayern — Leeds var
sigrað lið! Já, Leeds er eins og
Paul Keres i skákinni —■ alltaf nr.
2!
Evrópumeistarar Bayern —
myndin var tekin eftir sigur liðs-
ins 1974. Efri röö frá vinstri Beck-
enbauer, sem tók i gær viö 3ja
„stórbikarnum” á einu ári, Zobel,
Rorh, Torstensson, Mamajewski,
Viggo Jensen, Hoeness, Schwarz-
enbeck, Roth, Muller og Breitner
(nú Real Madrid). Fremri röö:
Hadewicz, Durnburger, Kapell-
mann, Wunder, Johnny Hansen,
Maier, Robl, Weiss, Rummenigge
og Michelberger.
Bayern varð fyrir tveimur
áföllum i leiknum. A fjórðu min.
slasaðist sænski bakvörðurinn
Björn Andersson, eftir samstuð
við Frank Gray og var borinn af
leikvelli. Sepp Weiss, sem leikið
hefur 5 leiki i aðalliði Bayern,
kom i hans stað — og rétt fyrir hlé
varð leikmaðurinn frægi, Uvi
Hoeness að yfirgefa völlinn. Hann
snérist illa á hné á mjúkum vell-
inum i Paris — og Klaus Wunder
kom i hans stað. Leeds geröi eina
breytingu á liði sinu eftir að Þjóð-
verjar höfðu skorað fyrra mark
sitt — Eddie Gray kom inn á i stað
Terry Yorath. Leikurinn var
grófur — Paul Reaney og George
Schwarzenbeck voru bókaðir
snemma i leiknum — og siðan
Norman Hunter.
Eftir leikinn sagði sigurvegar-
inn mikli, Dettmar Cramer. „Ég
er ánægður með sigurinn — en
ekki ánægður með frammistöðu
liðs mins i leiknum. 1 minum bók-
um var Leeds sigurstranglegra
liöið — og það sáuð þið greinilega
i leiknum. Pressa Leeds var
gifurleg og leikmenn liðsins unnu
nær hvert einasta einvigi. Vegna
meiðsla tveggja leikmanna
minna varð ég aðeins að breyta
fyrirhugaðri leikaðferð — og ef
þessi meiðsli heföu ekki komið til
heföi lið mitt áreiðanlega leikið
betur.”
Aðspurður hvernig hann heföi
breytt leikaðferöinni sagði Cram-
er. „Ég sá fram á að viö yröum að
styrkja vörnina og treysta á
skyndisóknir. Mér uíðu aðeins á
ein mistök i sambandi viö mat
mittá Leeds-liðinu fyrirfram. Ég
bjóst ekki við þvi, að Terry
Yorath mundi leika eins framar-
lega og hann gerði i leiknum — og
varð þvi að breyta uppdekkning-
unni. Þegar Seipp Weiss kom inn
á i stað Anderssons lét ég fara i að
elta Bremner. Þeir voru eins og
faðir og sonur”.
Og Cramer hélt áfram. „Beck-
enbauer var bezti leikmaður Bay-
ern i leiknum, þrátt fyrir
meiðsli,” en áhorfendur voru ekki
beint hrifnir að sjá keisarann i al-
gjöru varnarhlutverki. Honum
lætur bezt aö leika stöðu sóknar-
framvarðar.
Jimmy Armfield sagði á blaöa-
mannafundinum. „Leikmenn
minir hafa staðið sig virkilega vel
— klifrað af botni 1. deildarinnar
ensku og leikið mikiö. Þeir hafa
leikiö eins vel og nokkur fram-
kvæmdastjóri getur óskað sér”,
en Armfield tókst illa að leyna
vonbrigðum sinum. — hsim.
Þú ert fyrirliði
okkar, Bommi,
skipaðu fyrir!)
Jæja, förum þá að
,V sofa. Sjáum hvað^
^mæuiumiiii i imin rwnrmr*~*~~~
Heimsmet
innanhúss
á stðnai
Bandarlkjamaöurinn Steve Smith bætti heims-
met sitt i stangarstökki innanhúss á miklu móti at-
vinnumanna i frjálsum iþróttum seint i gærkvöldi i
Madison Square Garden I New York —stökk 5.61 m.
Eldra met hans var 5.59 m og þetta er i þriöja sinn
á árinu, sem Smith setur heimsmet I stangarstökki.
Hann geröist atvinnumaöur fyrir 16 mánuöum. Eft-
ir heimsmetiö reyndi Smith næst viö 5.68 m., en
mistókst i ölluin þrem tilraununum.
Þessi árangur hans er hinn þriöji bezti I stangar-
stökki — innan- og utanhúss — frá upphafi. Heims-
mctið utanhúss á Dave Roberts, sem I marz stökk
5.65 metra. Hcimsmet áhugamanna innanhúss á
Dan Ripley 5,51 m.
A mótinu sigraöi Ben Jipcho, Kenýa, i miluhlaupi
á 4:02.7 min. og aöeins klukkustund siöar sigraöi
hann i 2ja milna hlaupi á 8:40.6.
Franski dómarinn
óheillamaður hjó
leikmönnum
Leikmenn Leeds fljúga heim frá Paris siöar I dag
— og mjög miður sin vegna þess á hvern hátt þeim
mistóks aö ná Evrópumeistaratitlinum frá Bayern
Munchen. Leeds átti 80% af leiknum, þar til 19. min.
voru til leiksloka, aö Franz Roth skoraöi. Og til aö
strá enn meira salti i sárið skoraöi Gerd Muller
annaö mark 11 min. fyrir leikslok.
„Þaö var aöeins i annaö skiptiö i leiknum, sem
þeir komust inn i vltateig okkar, þegar Roth
skoraði,” sagöi Jimmy Armfield bitur eftir
lcikinn.Leikmenn Leeds voru mjög sárir út i
franska dómarann, Michael Kitabdjian. Aö þeirra
áliti sleppti hann augljósri vitaspyrnu. þegar Franz
Beckenbauer felldi Alan Clarke innan vitateigs
siöast i fyrri hálfleik — og tók svo gott mark af
þeim, þegar Peter Lorimer sendi knöttinn I markiö
hjá Bayern.
„Þessi atvik breyttu gangi leiksins,” sagöi
Armfield. Þetta er þriöji lcikurinn, sem þessi
franski dómari dæmir leik Leeds I Evrópukeppni —
og hann viröist færa liöinu allt annaö en heppni.
Fyrra skiptiö var I Torino fyrir 10 árum, þegar
Leeds tapaöi og fyrirliöi liösins, Bobby Collins, var
borinn af velli, fótbrotinn —en siöara skiptiö fimm
árum siöar, þegar Celtic sigraöi Leeds I undanúr-
slitum keppninnar.
Pólverjar unnu
Austur-Þjóðverja
Pólverjar, sem uröu I 3ja sæti á HM i fyrrasumar
i knattspyrnunni, sigruöu Austur-Þjóöverja I lands-
leik I Hallc I A-Þýzkalandi i gærkvöldi. Lokatölur
2-1 og öll mörkin voru skoruð siöustu 20 minúturnar.
Pólverjar náðu þarna hefndum fyrir tap gegn
A-Þjóöverjum i Varsjá skömmu eftir heims-
meistarakeppnina, 1-3. Þeir skoruðu fyrsta mark
leiksins I gær á 75. min., þegar Joachim Marx og
Grezogorz Lato léku gegnum þýzku vörnina og
Lato skoraði. Sjö min. siöar jöfnuðu heimamenn.
Eberhard Vogel, sem hafði komið inn sem vara-
maður i siðari hálfleik, skallaöi glæsilega framhjá
Jan Tomaszewski. Vogel lék þarna sinn 68. lands-
leik — met. En þegar þrjár min. voru til leiksloka
tryggði Marx sigur Póllands með þrumufleyg af 20
metra færi, sem Jurgen Croy hafði ekki möguleika
á að verja.
Næsti leikur Austur-Þjóöverja veröur hér á
Laugardalsvellinum 5. júni i Evrópukeppni lands-
liöa.