Alþýðublaðið - 19.05.1982, Side 1
alþýðu-
blaöið
étltm.
.^'|í
CJj
Miðvikudagur 19. maí 1982
72. tbl. 63. árg.
Lygaáróður íhaldsins í Hafnarfirði
um málefni Bæjarútgerðarinnar:
Bæjarfulltrúi
íhaídsins sakar
forstjóra Bæjar-
útgerðarinnar
um skjalafals
íhaldið þolir ekki
sannleikann
um Bæjarútgerðina
Bæjarfulltrúi ihaldsins i Hafn-
arfirði, Arni Grétar Finnsson,
sakar forstjóra Bæjarútgeröar
Hafnarfjarðar, Björn ólafsson,
um skjalafals i D og V i gær. Segir
Árni Grétar lika i þessu maka-
lausa viðtali, að bæjarendurskoð-
andi hafi aldrei látið neinar tölur
frá sér fara um stöðu Bæjarút-
gerðarinnar, eins og Hörður
Zóphaniasson, bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins, liafi greint frá i
sjónvarpinu s.l. sunnudag.
Þessi makalausi þvættingur
Arna Grétars Finnssonar er fyrir
neðan allar hellur. 1 fyrsta lagi er
það marg staðfest, að niðurstöðu-
tölur um stöðu Bæjarútgerðar-
innar eru frá bæjarendurskoð-
mda i Hafnarfirði, Helga Núma-
syni, og það var staðfest á útgerð-
arráðsfundi s.l. mánudag. 1 ann-
an stað varðar það við meiðyrði,
að Arni Grétar skuli ýja að þvi að
forstjóri Bæjarútgerðarinnar sé
skjalafalsari. Lengra verður ekki
komist i ósvifni.
Sannleikurinn er sá, að ihaldið i
Hafnarfirði þorir ekki að heyra
sannleikann um Bæjarútgerðina.
Þessar nýju tölur eru hagstæðari
en þeir höfðu vonað og nú finnst
ihaldinu, sem vopnum sé kippt úr
höndum þeirra. Þess vegna reyna
þeir að þyrla upp moldviðri með
þessum hætti og ata forstjórann
og aðra auri.
Sárindi ihaldsins eru einnig
þau, að á fundi i sjónvarpinu á
sunnudag kom Hörður Zóphan-
iasson fram með þessar nýju upp-
lýsingar, en fulltrúar ihaldsins
höfðu ekki hugmynd um þær og
ekki heyrt frá fulltrúum sinum i
útgerðarráöi. Höföu fulltrúar
ihaldsins ekki hirt um að gefa
bæjarfulltrúum sinum hinar nýju
upplýsingar og komu þvi bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
fram i sjónvarpinu með autt borð
og án þessarar mikilvægu vitn-
eskju.
Sjálfstæðisflokkurinn i Hafnar-
firði hefur i gegnum árin ævin-
lega barist gegn Bæjarútgerðinni
og starfsfólki hennar og notaö til
þess óvönduð meðöl. Þessi
ósvifna árás Arna Grétars nú,
fjórum dögum fyrir kosningar, á
að vera kosningabomba ihalds-
ins, en kemur til með aö snúast i
höndunum á honum. Hafnfirðing-
ar vilja Bæjarútgerðinni og
starfsfólki hennar hið besta og
munu svara þessum hatrömmu
og ósanngjörnu árásum á viðeig-
andi hátt á kjördag.
Lygavaðall hafnfirska ihalds-
ins mun hefna sin næstkomandi
laugardag.
t framhjáhlaupi má geta þess,
aö fréttamennska Dagblaðsins og
Visis i þessu máli er hreint ekki til
fyrirmyndar. t forsiðufréttinni i
gær eru ósannindi Arna Grétars
tekin upp hrá og ómelt og ekki
leitað svara hjá forstjóra Bæjar-
útgerðarinnar eða neinum öðr-
um, sem þetta mál þekkja mun
betur en bæjarfulltrúi ihaldsins.
Þess i stað slær D og V lygum
Arna Grétars upp sem stóra
sannleik. Slik fréttamennska er
ekki samboðin „frjálsu og óháðu
blaöi”.
Víð kynnum framboð Alþýðuflokksins á SeKjamamesi
I dag kynnum við í
fjögurra síðna aukablaði
framboð Alþýðuflokksins
á Selt jarnarnesi. Á
undanförnum árum hafa
vinstri flokkarnir á Nes-
inu boðJð fram sameigin-
lega, en Framsóknar-
flokkurinn ákvað um ára-
mótin síðustu að bjóða
fram sérstakan lista.
Tóku þá hinir flokkarnir
sem stóðu að minnihlut-
anum þá ákvörðun að
fara fram með sérstaka
flokkslista einnig.
I viðtali við Gunnlaug
Árnason, efsta mann á
lista Alþýðuf lokksins,
kemur fram margháttuð
gagnrýni á störf meiri-
hlutans, sem hneigst
hefur til gerræðislegra
vinnubragða á síðari
árum. Sjálfstæðismenn á
Nesinu hafa nú fimm
bæjarf ulltrúa af sjö. Lík-
legt er að bæði Alþýðu-
bandalag og Framsóknan
f lokkur séu inni með sina
menn, þannig að ef fólk
vill aukið lýðræði á Nes-
inu, aukið vald minnihlut-
ans,þá ætti það að leggja
lista Alþýðuf lokksins
lið—segir Gunnlaugur
Árnason.
Sjá bls 3, 4, 5 og 6
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. ósvifnar árásir íhaldsins á fyrirtækið og starfsfólk þess færast nú i auk
ana.
Sigurður E. Guðmundsson:
Vinstra samstarf
kemur til greina eins
og aðrir kostir
íhaldið óttast uppgang
Alþýðuflokksins í borginni
,,Það er sérstök ástæða til að
endurtaka það sem ég hef áður
sagt um samstarf vinstri flokk-
anna i borgarstjórn Reykja-
víkur, að það samstarf hefur
gengið vel og engin ástæða er til
að draga dul á þaö nú”, sagði
Sigurður E. Guömundsson i við-
tali við Alþýðublaðið i gær
vegna skrifa Morgunblaðsins
um að Alþýöuflokkurinn i
Reykjavik stefni að vinstri
stjórn. „Hins vegar er það alveg
ljóst”, bætti hann við, „að við
göngum algerlega óbundnir til
kosninga — af öðru en verkum
okkar á siðasta kjörtimabili og
stefnuskrá sem við höfum lagt
fyrir kjósendur”.
„Ég vona að kjósendur hér i
Reykjavik geri sér grein fyrir
þeim áróðri sem Morgunblaðiö
stundar nú grimmt i leiðurum
og fréttaskrifum svokölluðum,
þ.e. að við Alþýðuflokksmenn
séum hækjur kommúnista og
stefnum eingöngu aö nýrri
vinstri stjórn. Þessa tækni
þekkjum viö hvaðanæva frá
ihalds og öfgaflokkum erlendis,
að bendla jafnaðarmenn við
öfgaflokka til vinstri til þess að
reyna að hræða þá með komma-
grýlunni frá flokknum. Við jafn-
aðarmenn munum láta mál-
efnin ráða að afloknum kosn-
ingum, þegar við tökum afstööu
til meirihlutamyndunar”, sagði
Sigurður E. Guömundsson.
„Þaö er ekkert nýtt að reynt
sé að setja kommastimpilinn á
okkur jafnaðarmenn. Nú erum
við öll sett undir þennan stimpil
i Morgunblaðinu, ég, Bjarni P.
Magnússon og Sjöfn Sigur-
Sigurður E. Guðmundsson
björnsdóttir. Þetta eru sömu
starfsaðferðir og hægri öfgaöfl
alls staðar i heiminum nota til
að hræða almenning frá stuðn-
ingi við jafnaðarmannaflokka.
Þessi áróöur sem minnir
einna helst á McCarthy“tíma-
bilið i Bandarikjunum á sér þær
skýringar, að þeir Morgun-
blaösmenn óttast fátt meira en
uppgang Alþýðuflokksins i
borginni og reyna nú á örvænt-
ingarfullan hátt að hræða al-
menning. En fólk er miklu betur
uppfrætt og fylgist betur með en
svo, að það láti fylla sig af svona
ómerkilegum áróðri. Almenn-
ingur i Reykjavik mun svara
þessum áróðri Morgunblaðsins
á viöeigandi hátt á kjördag”,
sagði Sigurður E. Guðmundsson
að lokum.