Alþýðublaðið - 19.05.1982, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 19.05.1982, Blaðsíða 2
2 RITSTJÓRN ARGREIN------------------- „Dauð atkvæði” á Ö-lista? Morgunblaðið segir í leiðara að borgarstjórnarkosn- ingarnar snúist um það, hvort Reykvíkingar vilji endurreisa flokkseinræði Siálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Það er rétt. Kosningarnar snúast m.a. um það. Um fyrirætlanir flokkseigendafélags Sjálf- stæðisflokksins í borgarmálum veit hins vegar eng- inn. Flokkeigendafélagið hefur ekki virt kjósendur svo mikils að birta þeim stefnuskrá i borgarmálum. í staðinn er bara boðið upp á pólitíska jarðfræði um ,,vindrassa og veðravíti". En hvað gerist, ef Reykvíkingar hafna flokksein- ræðinu? Hvaðætla Sjálfstæðismenn að gera þá? Mar- kús örn Antonsson lýsti því yfir í Sjónvarpi, f.h. þeirra Sjálfstæðismanna, að fái flokkurinn ekki al- ræðisvald, verði hann ekki til viðtals við aðra flokka eða borgarfulltrúa um stjórn borgarinnar. Það jafngildir yfirlýsingu um, að nái Sjálfstæðismenn ekki hreinum meirihluta, muni öll atkvæði greidd Sjálfstæðisflokknum „falla dauð" i kosningunum. Þannig virðist takmarkalaus valdahroki flokkseig- endafélagsins ætla að bera alla pólitíska ábyrgðartil- finningu gagnvart kjósendum flokksins ofurliði. Morgunblaðið segir líka, ranglega, að hvert atkvæði greitt Alþýðuf lokknum sé atkvæði greitt nýrri vinstri stjórn í Reykjavík. Þetta er rangt. I stefnuskrá Al- þýðuflokksins — því Alþýðuf lokkurinn hefur stefnu- skrá, þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi enga — segir orðrétt: „Alþýðuflokkurinn er reiðubúinn til sam- starfs á jafnréttisgrundvelli við aðra stjórnmála- flokka og stjórnmálahreyfingar um stjórn borgar- innar á næsta kjörtímabili". Þessi upphafsorð stefnu- skrár Alþýðuf lokksins, ásamt með endurteknum um- mælum frambjóðenda flokksins, taka af tvfmæli um það, að Alþýðuf lokkurinn gengur til kosninga, óbund- inn um samstarf við aðra flokka. Ölíkt Sjálfstæðis- flokknum er Alþýðuf lokkurinn hins vegar reiðubúinn til samstarfs við aðra, ef samkomulag tekst um mál- efnin. Ölíkt Sjálfstæðisf lokknum hafa frambjóðendur Alþýðuflokksins ekki lýst atkvæði greidd Alþýðu- flokknum fyrir fram dauð, ef flokknum fellur ekki við kosningaúrslitin — við dóm kjósenda. Sannleikurinn er sá, að líkurnar á óbreyttu borgar- málasamstarfi eftir kosningar verða að teljast harla litlar. Ástæðurnar eru margar. í kosningunum 1978 vann Alþýðubandalagið stórsigur. Það hlaut tæplega þriðjung atkvæða og f imm borgarf ulltrúa. Nú benda f lest sólarmerki til þess, að Alþýðubanda- lagið verði fyrir fylgishruni. Það er ekki vegna þess að samstarfið i meirihluta borgarstjórnar hafi gefizt svo illa. Ástæðan er sú, að Alþýðubandalagið geldur nú þátttöku sinnar í misheppnaðri rikisstjórn. Það geldur líka ráðvilltrar og úrræðalausrar verkalýðs- forystu sinnar, sem þorri launþega ber ekki lengur neitt traust til. Kosningabaráttan núna er nefnilega öðrum þræði kjarabarátta gegn ríkisstjórninni og ráð- herrum Alþýðubandalagsins sérstaklega, en fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins kallar um- mæli þeirra um kjaramál nú „eins og töluð út úr sínu hjarta". Það er m.a. kosið gegn þessu nýja Fóst- bræðralagi ráðherra AB og Vinnuveitendasambands- ins. Auk þess er nýtt afl komið til sögunnar, þar sem Kvennaframboðið er. Kvennaframboðið er Alþýðu- bandalaginu einkum sár þyrnir í holdi. í f yrstu reyndu kommar að eigna sér það. Þeir töluðu um „gamal- kunnug andlit" á kvennalistanum og stolnar f jaðrir í stefnuskrá. Nú hafa kommarnir snúizt af þvílíkri heiftgegn Kvennaf ramboðinu, aðekki dugir minna en f jórar níðgreinar í einu og sama tbl. Þjóðviljans því til höf uðs. Vera má, að þar grói seint um heilt. Bjarni P. Magnússon, frambjóðandi Alþýðuflokks- ins, hefur hins vegar lýst hrifningu sinni yfir hug- sjónagrundvelli Kvennaframboðsins og sagt að jafn- aðarmenn geti vel hugsað sé samstarf við fulltrúa kvenna í borgarstjórn. Það verða því fyrirfram að teljast litlar líkur á óbreyttu meirihlutasamstarfi eftir kosningar. Kosningaúrslitin sjálf skera fyrst og fremst úr um samstarfsgrundvöll að kosningum loknum. Nái enginn einn flokkur hreinum meirihluta hljóta því næst að koma til hleypidómalausar samn- ingaviðræður um málefnagrundvöll. Þótt Sjálfstæðisflokkurinn vilji í valdahroka sínum dæma atkvæði greidd D-listanum dauð fyrirfram, hef ur slík fásinna aldrei hvarf lað að f rambjóðendum A-listans. Hins vegar leggja jafnaðarmenn áherzlu á, að þeir séu reiðubúnir til forystu í nýjum meirihluta, þar sem efnt er til heiðarlegs samstarfs á jafnréttis- grundvelli. __ Kosningahátíðin í Reykjavik — Sjá einnig bls. 8 Sjöfn Sigurbjörnsdóttir ávarpar fundarmenn. Kosningastjórinn i Reykjavik, Höskuldur I)ungal„ ræftir viö þá Gunnar Eyjólfsson og Geir A. Gunnlaugsson. Fjölmenni var á samkomunni. tjj ÚTBOÐ Tilboð óskast i múrviðgerð og málun á Laugardalshöll að utan. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Frikirkjuvegi 3.Reykjavik. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginnl. júnin.k. kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirl«iuv«gi 3 — Sirm 2S800 Aldarafmæli Flensborgarskóla Flensborgarskóla verður slitið i íþrótta- húsinu i Hafnarfirði fimmtudaginn 20. mai kl. 13.30. Að skólaslitum loknum verður afmælis- kaffi og afmælissýning i skólahúsinu. Sunnudaginn 23. mai kl. 14 verður hátiðar- messa i Garðakirkju þar sem heiðruð verður minning stofnenda skólans, pró- fastshjónanna séra Þórarins Böðvars- sonar og Þórunnar Jónsdóttur. Allir velunnarar skólans eru hjartanlega velkomnir. Skólameistari Kosninga- skrifstofa Alþýðuflokksins í Reykjavik Bankastræti 11 2. hæð er opin alla daga frá klukkan 9 — 22. Simar skrifstofunnar eru: 27846 — 27860. Simi utankjörstaða- kosningar er 29583. Hafið samband við kosningaskrifstof- una sem allra fyrst. Komið eða hringið. Munið, að margar hendur vinna létt verk. Kosningastjórn

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.