Alþýðublaðið - 19.05.1982, Blaðsíða 4
4
Miðvikudagur 19. maí 1982
Jón Þorsteinsson:
Um fjármálasnilli og reiknimeistara
t 4. tölublaði Seltirnings 1982,
málgagni sjáifstæðismanna á
Seltjarnarnesi, er varpað fram
spurningunni: Hvers vegna er
það 9 þúsund krónum ódýrara
að vera Seltirningur en Kópa-
vogsbúi? Svarið lætur ekki á sér
standa i biaðinu. Á Seltjarnar-
nesi eru sjálfstæðismenn i
meirihluta en í Kópavogi eru
það vinstri menn. Fjármála-
snillingarnir hér á nesinu, sem
setja einstaklinginn i öndvegi að
eigin sögn, lita á spurninguna og
svarið sem táknrænt afrek.
1 Seltirningi er gerð grein
fyrir þvi hvernig þessi niu
þúsund króna mismunur er
fenginn. Er þá miðað við annars
vegar að fasteignagjöld á
nesinu séu 0,41% af fasteigna-
mati ibúðarhúsnæðis en i Kópa-
vogi 0,625%. Hins vegar að út-
svör á Seltjarnarnesi nemi
10,5% af tekjum en i Kópavogi
12,1%. bá er ennfremur gert ráð
fyrir þvi i samanburöinum að i
báðum tiivikum sé um að ræða
hjón með 360 þúsund króna árs-
tekjur 1981, en búið i einbýlis-
húsi að fasteignamati 900
þúsund krónur. Miöað við
þessar forsendur er um aö tefla
mjög auðvelt reikningsdæmi
þar sem nota þarf einfalda
margföldun, samlagningu og
frádrátt betta dæmi teystu þó
fjármálasnillingarnir sér ekki
til að reikna og leituðu til lög-
gilts endurskoöanda I staö þess
að biðja börnin i Mýrarhúsa-
skóla að reikna dæmið. Otreikn-
ingurinn er svo birtur i Sel-
tirningi að sjálfsögðu á ábyrgö
þeirra, sem eiga frumkvæðið að
reikningsdæminu og nota þaö i
hinni pólitisku baráttu. Er þar
skemmst frá aö segja að út-
reikningurinn er meira og
minna rangur og gefur þvi
ranga niðurstööu.
1 blaöinu segir:
1. 10,5% af kr. 360.000,00 er kr.
36.260,00 en hið rétta er kr.
37.800,00.
2. 12,1% af kr. 360.000,00 er kr.
42.380,00, en hið rétta er kr.
43.560,00.
3. 0,41% af kr. 900.000,00 er kr.
3.280,00, en hið rétta er kr.
3.690,00.
4. 0,625% af kr. 900.000,00 er kr.
6.270,00, en hið rétta er kr.
5.625,00.
begar allar reikningsskekkj-
ur hafa verið leiöréttar lækkar
mismunurinn á Seltjarnarnesi
og Kópavogi úr kr. 9.110,00 i kr.
7.695,00. En þess er að gæta að
Seltirningur fer einnig rangt
með staðreyndir. Alagningar-
prósentan á ibúöarhúsnæöi i
Kópavogi er ekki 0,625% heldur
0,55%. begar þetta hefir verið
leiðrétt verður munurinn kr.
7.020,00.
Nú má að sjálfsögðu spyrja
hvort forsendur þessa saman-
burðar séu sanngjarnar. For-
sendurnar eru sýnilega of ein-
hæfar, þar mætti mörgu við
bæta. Hér skal þó aðeins drepið
á tvennt. Meðaltekjur á gjald-
anda eru mun hærri á Sel-
tjarnarnesi en i Kópavogi sam-
kvæmt siðustu skýrslum um það
efni. bá er fasteignagjaldastofn
ibúðarhúsnæðis á hvern ibúa á
Seltjarnarnesi litið eitt hærri en
i Kópavogi. bessi atriði gera
forráðamönnum Seltjarnar-
nesskaupstaðar fært að nota
lægri álagningarprósentur.
begar þetta er tekið inn i dæmið
álit ég að raunhæfur mismunur
sé um það bil kr. 2.000.00. Minni
getur munurinn ekki verið til
þess að fjármálasnillingarnir
standi undir nafni og sýni betri
frammistöðu heldur en þessir
vinstri sinnuðu aular i Kópa-
vogi.
Sjálfstæðismenn hér á nesinu
segja að þeir berjist gegn
skattahækkunum. bað er góðra
gjalda vert einkum þegar hinir
þungbæru rikisskattar eru
hafðir i huga, en á þeim ber
hluti af Sjálfstæðisflokknum
fulla ábyrgð. Alþýðuflokkurinn
er eins og kunnugt er eini
stjórnmálaflokkurinn, sem er
heill og óskiptur i andstööu við
rikisstjórnina. bess ættu kjós-
endur að minnast á kjördegi. En
Jón borsteinsson
það er stefnumál fiokksins að
eigi skuli lagður tekjuskattur á
almennar launatekjur.
bað er heilbrigt, lýðræðislegt
viðhorf að sami meirihluti sitji
ekki of lengi að völdum. Er ekki
kominn timi til umskipta hér á
Seltjarnarnesi, þótt vissulega sé
nokkur eftirsjá að reiknimeist-
urunum?
Alþýðuflokkurinn er næststærsti bæjar-
og sveitarstjórnarflokkur landsins
Auglýsing um Oæjarstjórnarkosningar á Seltjarnarnesi laugardaginn 22. mai 1982
A Þessir listar eru í kjöri B D G
Listi Alþýðuflokksins Listi Framsóknarflokksins Listi Sjálfstæðisflokksins Listi Alþýðubandalagsins
I.Gunnlaugur Árnason, verkstjóri I.Guðmundur Einarsson, forstjóri, I.Sigurgeir Sigurðsson, bæjarstjóri, 1. Guðrún K. Þorbergsdóttir, framkv -
Fornuströnd 8 Tjarnarbóli 4 Miðbraut 29 stj. Barðaströnd 5
2. Erna borgeirsd., bankastarfsm. 2. Sigurður Kr. Árnason, húsasm. 2. Magnús Erlendsson, fulltrúi, 2. Þórhallur Sigurðsson, leikari,
Melabraut49 meist. Miðbraut 12 Sævargörðum 7 Tjarnarbóli 6
3. Njáll Ingjaldsson, skrifst.stj. Vallar- 3. Þorbjörn Karlsson, prófessor, 3. Júlíus Sólnes, prófessor, Miðbraut 3. Helga H. Þórhallsdóttir, læknir Sel-
braut 14 Barðaströnd 13 31 braut 34
4. Rose - Marie Christiansen, banka- 4. Ásta Sveinbjarnardóttir, húsmóðir 4. Guðmar E. Magnússon, verslun- 4. Björn Pétursson, kennari, Skóla-
starfsm. Melabraut43 Vesturströnd 27 arm. Barðaströnd 23 braut 15
5. Hróðný Pálsdóttir, húsmóðir Tjarn- 5. ÁsdísSigurðardóttir.húsmóðirSel- 5. Ásgeir S. Ásgeirsson, kaupmaður. 5. Guðmundur Hafsteinsson, sjómað-
arstíg 1 braut 14 Sefgörðum 12 ur Hofgörðum 25
6. Jón Þorsteinsson, fyrrv. alþingis- 6. Ómar Bjarnason, símaverkstjóri 6. Áslaug G. Harðardóttir, húsmóðir, 6. Ása Ragnarsdóttir, leikari Tjarnar-
maður, Selbraut 5 Nesbala 19 Látraströnd 6 bóli 12
7. Ólafur Stefánsson, lögfræðingur 7. Arnþór Helgason, kennari, Tjarnar- 7. Erna Nielsen, húsmóðir, Barða- 7. Ragnhildur Helgadóttir, skólasafn-
Vallarbraut 7 bóli 14 strönd 11 vörður, Sæbraut 6
8. Ágúst Einarsson, útgerðarmaður 8. Jóhannes Björnsson, bakarameist- 8. Jónatan Guðjónsson, vélvirkjam. 8. Egill Sigurðsson, Ijósmyndari
Barðaströnd 29 ari Selbraut 2 Vesturströnd 4a Bollagörðum 17
9. Sigurjón Kristinsson, framkvstj. 9. Erna Kristinsdóttir, húsmóðir,, 9. Anna Kristín Karlsdóttir, skrifst.m. 9. Ósk Magnúsdóttir, kennari Sæbóli
Fornuströnd 15 Tjarnarbóli 15 Unnarbraut 12 10. Sæunn Eiríksdóttir, fulltrúi Hof-
10. Sigurhans Þorbjörnsson, vélstj. 10. Elísabet Jónsdóttir, nemi í félags- 10. Skúli Ólafs, framkvæmdastjóri, görðum 7
Skólabraut 7 ráðgjöf við H.f., Melabraut 73 Vesturströnd 31 11.Jensey Stefánsdóttir, húsmóðir
11.Þorsteinn Halldórsson, rakara- H.Skúli Skúlason, bifvélavirki, Mið- 11. Anna Laufey Þórhallsdóttir, gjaldk. Vallarbraut 19
meistari, Vallarbraut 10 braut 22 Tjarnarbóli 6 12. Gísli Auðunsson, skipaskoðunarm.
12. Birgir Berndsen, vélstjóri Látra- 12.Vigdís Sverrisdóttir, verslunarm. 12. Gísli G. Jóhannsson, kennari Lindarbraut 2
strönd 54 Skólabraut37 Skerjabraut 9 13. Njöröur P. Njarðvík, dósent Skerja-
13. Guðjón Vigfússon, skipstjóri Mela- 13. Karl Óskar Hjaltason, skrifstofum. 13. Helga M. Einarsdóttir, húsmóðir braut 3
braut 30 Lindarbraut 10 Lindarbraut26 14. Auður Siguröardóttir, verslunarm.
14. Guðmundur lllugason, fyrrv. 14. Felix Þorsteinsson, trésmíðameist. 14. Snæbjörn Ásgeirsson, frmkv. stj. Bergi.
hreppstjóri, Melabraut 67 Lindarbraut 11 Lindarbraut 29
Kjörfundur hefst kl. 9 árdegis, í Mýrarhúsaskóla, og lýkur honum kl . 11 síðdegis.
Yfirkjörstjórnin á Seltjarnarnesi, Sigurður B. Haraldsson, Hörður Felixson, Njáll Þorsteinsson.