Tíminn - 06.01.1967, Blaðsíða 1
4. tbl. — Föstudagur 6. janúar 1967 — 5
Fiskveiðar
seinka þing
kosningum
Aðils-Kaupmannalhöfn, fimmbu
dag.
Hákon Djurhuus, lögmaður,
tilkynnti í dag, að flestir fær-
eysku stjórnmálaflokkarnir
virtust vera á þeirri skoðun,
að ekki bæri að lialda kosn-
ingar til lögþings Færeyja á
næstunni. Mun aðalástæðain
vera, að mikill fjöldi færeyskra
sjómanna verður við veiðar
riæstu mánuði við ísland, Græn
land og Nýfundnaland.
Djuuiihus sagði þetta eftir,
að færeyskra lögþingið hafði
komið saman t;l fundar í gær-
kvöldi.
Djurhuus, sem er leiðtogi
stærsta fyrrverandi stjornar-
flokksins í Færeyjum, Þjóðar-
flokksins, vildi ekki neita því,
að enn væru viss sambönd
milli hans og stærsta fyrrver-
verandi stjórnarandstöðuflokiks'
ins, Sósíaldemókratanna með
það fyrir augum að -leysa það
vandræðaástand, sem skapað-
ist í síðustu lögþingskosning-
um 8. nóvember, þegar stjórn-
arflokkarnir og stjórnarand-
staðan fengu jafn marga þing-
menn hver, eða 13. Þó sagði
hann, að í því sambandi væri
ekki um neitt nýtt að ræða.
Það, sem mest áhrif hefur
á afstöðu flokkanna til nýrra'
kosninga í náinni framtíð, er
vafalaust, að næstu 2—3 mán-
uði verða um 4000 fiskimenn
við veiðar fjarri Færeyjum. eða
við ísland, Grænland og Ný-
fundnailand, en á kjörskrá í
Færeyjum eru aðfeins um-
20.000 manns.
Aftur á móti er ekki talið,
að hin litla kosningaþátttaka
í .síðustu þjóðþingskoSn *?um
13. desember, eða ótti við kosn
ingaþreytu meðal íbúanna, ef
halda á þrjár kosningar á
nokkrum mánuðum, hafi nein
veruleg áhrif á, hvort kosning-
ar verði á næstunni eða ekki.
RUSSAR REIKNA UT SILDAR
iSLAND 1967
Óhætt er aS fullyrða að árið 1967 byrji með mikilli frjósemi. Hér innan-
lands berast stöðugt fréttir af snemmbornum fénaði, og í Finnlandi bar
kýr fimm kálfum. En mestu skiptir að í París fæddust fimmburar, og
það aáeins tveim klukkustundum eftir áramót. Myndin af þeim hér til
hliðar var tekin skömmu eftir fæðinguna, tallð frá vinstri eru þetta
Philippe, Frederic, Catherine, Didier og Thierry. Þetta er mikilfenglegur
áramótahópur og skrifað hafði verið Vive 1967 á myndina. ^
Agnar Tryggvason, framkvæmdastjóri, um útflutning Búvörudeildar SlS:
Úfflutningur kindakjöts
1966 nam 2 þús. lestum
FB-Reykjavík, fimmtudag.
Blaðið sneri sér í dag til Agn-
ars Tryggvasonar framkvæmda-
stjóra Búvörudeildar Sambands ísl
samvinnufélaga og spurðist fyrir
um útflutning á kjöti, skinnavöru,
hrossum, ull og æðardúni og fleiri
landbúnaðarvörum á árinu sem
var að líða. Um útflutninginn og
verð á mörkuðum erlendis sagði
Agnar m.a.:
— Á árinu 1966 voru alls flutt-
ar úr landi 1818 lestir af frystu
og söltuðu dilkakjöti og 185 lestir
af frystu ærkjöti. Af þessym rúm-
lega 2000 lestum voru um 993
lestir af haustframleiðslunni 1966.
Bretland var sem hin fyrri ár
stærsti kaupandinn af frystu dilka
kjöti, en Norðmenn keyptu 1966
í fyrsta skipti í stórum stíl alis
350 lestir á árinu sem leið, auk
sama magns af söltuðu dilkakjöti.
Færeyjar auka kaup sín af frystulárið áður. Verðið fyrir þau reyndl seldust mest til Finniands, en etnn-
dilkakjöti ár frá ári, og seidust ist nokkuð iægra en 1965. Þá voru ig til Ungverjalands, Bretlands og
þangað af haustframleiðslunni til fluttar út saltaðar garnir alils 3501 fleiri landa.
áramóta um 250 lestir og útlit þús. stk. fyrir 7,8 millj. króna ogl — Alls voru fluttar úr landi um
fyrir áframhaldandi kaup í vetur|um 220 ]estir af tó]g Garnirnar| Pramhald á bls. 15
og sumar.
EJ—Reykjavík, fimmtudag.
Sovézkir vtsindamenn gerðu
í nóvember og fram í miðjan
desember s.l. ítarlegar rann*
sóknir á síldargöngum í Norð
ur-Atlantshafi í (jvi skyni að
geta reiknað út hversu mikið
' af síld verður á þeim veiðislóð
um á þessu ári. Munu niður-
stöður þessara rannsókna
; verða lagðar til grundvallar
I skipulagningu sovézkra síld-
veiða á þessu svæði.
í frétt- frá APN segir, að ieið
| angursskip og þyrlur hafi verið
j notaðar við þessa „sildartalningu“,
'en úrvinnsla þeirra iipplýsinga, er
fengizt hafa, fari fram í haffræði
stofnuninni í Leningrad.
Margvíslegt rann-
sóknarstarf
! í fregninni segir, að í lok árs
ins leiti fullorðna síldin til vestur
hluta Norður-Atlantshafsins og
dveljist hún að vetrarlagi nálægt
I íslandsströndum. í nóvember og
desember myndi hún þéttar torf
ur, sem haldi sig innan nokkuð af-
j markaðra svæða og það hafi mjög
; auðveldað allt rannsóknarstarf.
Með aðstoð ýmissa tegunda dýptar-
mæia sé fyrst ákvarðað í hvaða
átt torfurnar gangi, og síðan sé
stærð hverrar torfu mæld. Auk
þess séu sjálfvirkar neðansjávar
myndavélar notaðar til þess að
taka fjölda myndg af hverri torfu,
til að finna út hversu mikið af
síld sé í ákveðnu rúmmáli vatns.
Að lokum voru einnig framkvæmd
ar tilraunaveiðar tii þess að ákvarða
stærð og þyngd síldanna í hverri
torfu.
Rafreiknar notaðir
Hl úrvinnslu.
Reiknivélar í Leningrad munu nú
vinna úr öllum þessum upplýsing-
um á grundvelli fyrirliggjandi upp
lýsinga um hitastig, vindhraða og
strauma á þessu svæði, og síldveið
ar Rússa l'U7 hér um slóðir munu
grundvallast á þeim niðurstöðum,
sem af rannsókninni leiðir.
— Verðlag var lægra í haust
sem leið í Bretlandi en árið á
undan og eiga þar vafalaust hin-
ar ströngu efnahagsráðstafanir
brezku stjórnarinnar hlut að máli.
Á hinum mörfkuðuraum hefur verð
lag verið svipað og árið á undan.
— Nú er verið að afgreiða
fyrstu stóru sendinguna af salt-
kjöti á Noregsmarkað alls 210 lest
ir af 350, sem samið hefur verið
um á þessu ári. Seinna í vetur á
að afgreiða 350 lestir af frystu
dilkakjöti til Noregs, en ósamið
er enniþá um verðið. Af sauðfjár-
innýflum seldust úr landi 1966
aih 257 lestir, en 153 lestir alls
SJÓR BLANDAST SAMAN
V!Ð L ÝS/SFARM í SKIPI
EJ-Reykjavík, fimmbudag.
Þegar norska leiguskipið Hec
tor lestaði lýsi í Þorlákshöfn
í fyrrinótt, komst sjór inn á
dælukerfið og inn t lýsistank-
ana. Þegar upp komst um þetta
niunu nokkur liundruð lestir
af sjó hafa verið í tönkunum.
Kristján Jónsson, borgardóm-
ari, fór til Þorlákshafnar í gær
og hélt sjópróf í málinu.
Biaðið hafði »amband við
Kristján í dag, og sagði hann
Framhaid a bls. 15.
Gerizt áskrifendur að
Tímanum
Hringið í sima 12323
Auglýsmg t Timanum
kemur daglega fynr augu
80—100 þúsund lesenda