Tíminn - 20.01.1967, Side 1
BIÐJA RAÐ
HERRA UM
VIÐRÆDUR
EJ-Reykjavík, fimmtudag.
Nefnd sú, sem fundur útvegs-
manna í Reykjavík og Hafnarfirði
kaus á sunnudaginn til þess að
fylgja eftir ályktunum fundarins
um málefni bátaútvegsins, liefur
óskað eftir viðræðum við fulltrúa
ríkisstjórnarinnar, og þá sérstak-
lega við sjávarútvegsmálaráðherj-a
og viðskiptamálaráðherra. Síðdeg-
is í dag hafði ekki borizt svar
við þessari beiðni, en þess vænzt
innan skamms.
í nefndinni eiga sæti Þórður
Stefánsson, Hafnarfirði, Andrés
Finnbogason, Reykjavík, Guðni
Sigurðsson, Reykjavík og Jón Héð
insson Hafnarfirði.
Svo sem frá hefur verið sagt
í blaðinu, samþykkti fundurinn á
Framhald á bls. 14.
Ný málshöfðun vegna
bókar Manchesters!
,LOOK'
sm
,STERN'
NTBjHamburg, fimmtudag.
Á morgun leggur bandaríska
tímaritið Look deiluna við þýzka
vikuritið Stern fyrir borgaraleg-
an dómstól í Hamborg og mun
gera þá kröfu, að kveðinn verði
upp bráðabirgðaúrskurður um það
að Stern sé óheimilit að birta
óstytta kafla úr liinni umdeildu
bók William Manchester, Dauði
forsetans.
Framhald ^ bls. 14.
isser t*
SMJÖRLEYSIÁ AUSTURLANDI!
FBJReykjavík, fimmtudag.
Smjörlaust cr nú um mestan
liluta Austurlands, að því er
Svavar Stefánsson, mjólkurbús-
stjóri á Egilsstöðum skýrði blað
inu frá í dag. Aðalástæðurnar
eru þær, að minna mjólkur-
magn berst nú til mjólkurbús-
ins en verið hefur og meiri eft
irspurn er eftir neyzlumjólk
vegna hins stóra síldarflota,
sem stöðugt kemur til Aust-
fjarðahafna og þarf að fá vistir
þar.
í viðtali við Tímann í dag
sagði Svavar, að smjörlaust
væri á Egilsstöðum, Reyðar-
firði, Eskifirði og Seyðisfirði,
og lítið væri til af smjöri á
Norðfirði. Mjólkurbúið, sem
sér þessum stöðum fyrir smjöri
og neyzlumjólk, er á Egilsstöð
um, og verður það að iáta alla
sína mjólk til neyzlu og hef-
ur ekki getað framleitt smjör
af þeim sökum að undanförnu.
— Hálfgert neyðarástand er
hér ríkjandi af smjörleysinu og
vegna þess hve skipaferðir eru
strjálar hefur ekki verið hægt,
að flytja nægilega mikið smjör
hingað austur annars staðar að
af landinu, sagði Svavar.
Mánaðariega selur búið á
Egilsstöðum um 100 þúsund
lítra af mjólk og er hún öll
pökkuð í plastpoka, en það hef
ur verið gert síðan í ágústmán
uði s. 1., og sagði Svavar, að
kaupendur væru einstaklega
ánægðir með þessar umbúðir,
og ef eitthvað væri hefðu þær
heldur orðið til þess að auka
söluna á mjólk. Mjólkinni er
pakkað í 1 lítfa poka, en síðan
er tíu pokum pakkað saman í
Framhait .
Pekingútvarpið ákærir andstæðinga Maos:
Reyndu aö
tæma banka
í Shanghai!
A myndinni sjást Rauðir varðliðar frá skóla í Kirin-héraði í norð-vestur
hluta Kína syngja byltingarsöngva, á leið sinni til þátttöku í menningar-
byltingunni í Peking.
NTB-Tokíó, fimmtudag.
Byltingasinnaðir verkamcnn í
Shanghai, stuðningsmenn Maos,
formanns og menningarbyltingar-
innar brutu niður samsæri, sem
miðaði að því að tæma banka borg
arinnar og hvetja fólk til að
hamstra vörur í þeim tilgangi að
eyðileggja viðskiptalífið, sagði
Peking-útvarpið í kvöld.
Sagði útvarpið, að hópur and-
stæðinga Maos hefði hvatt verka-
menn til að krefjast hærri launa,
en það hefði leitt til mikilla út-
tekta á reiðufé í bönkunum. Starfs
menn bankanna ráðfærðu sig þá
við yfirmann fjármálaskipulags-
nefndar borgarinnar, sem hefði
sagt, að afhenda skyldi verka-
mönnunum peningana, ef þeir
kæmu til að sækja þá.
Þjóðbankinn í Shaghai setti þá
upp skilti þess efnis, að allir tékk-
ar yrðu innleystir í reiðufé. Fyrst
er ekki væru lengur neinir pen-
ingar fyrir hendi skyldi hætta
greiðslum. Sams konar skipanir
fengu aðrir bankar í Shanghai.
| Á þennan hátt komst mikill
hluti peningiaeignar ríkisins í um-
ferð og það leiddi til aukinna
kaupa á lúxusvörum. Samtímis út-
breiddu jarðeigendur, ríkir bænd-
ur og andbyltingarmenn út logn-
Framhaid á bls. 14
VID ERUM FUSIR TIL SAMNINGA-
VIDRÆDNA VID DANDARÍKJAMENN
- segir utanríkisráðherra þjóðfrelsishreyfingarinnar í Suður-Vietnam
NTB-Lundúnum, fimmtudag. I
Utanríkisráðherra frelsishreyf-
ingarinnar í Suður-Vietnam, pró-
fessor Nguyen van Hieu, segir í
viðtali við brezka tímaritið New
Statesman, að frelsishreyfingin sé
fú.s til samningaviðræðna við
Bandaríkjastjórn án sérstakra skil
yrða.
Eins og kunnugt er’hefur viet-
namska þjóðfrelsishreyfingin, FL
N, verið kölluð Vietcong, a.m.k.
á Vesturlöndum.
Greinin í New Statesman hefur
vakið mikla athygli. Viðtalið átti
Gloria Stewart, blaðamaður New
Statesman, við prófessorinn, ein-
hvers staðar á Mekong-frumskóg-
arsvæðinu. Segir prófessorinn, að
þjóðfrelsishreyfingin sé fús til við
ræðna við Bandaríkjastjóm um
Vietnam, án þess að setja sérstök
skilyrði fyrir þeim viðræðum. Brýt
ur þessi yfirlýsing algerlega í bág.a
við þá kröfu stjórnarinnar í Hanoi
að Bandaríkin verði að uppfýlla
viss skilyrði áður en viðræður
gætu hafizt.
— Við viljum, að Vietnam verði
frjáist og óháð ríki, en Norður-
Vietnam er sem stendur fast bund
ið hinni kommúnistí:ku blokk.
Við erum hlynntir efnahagskerfi,
þar sem blandast saman ríkisrekst
ur og einkaframtak, og erum and-
stæðir einokunarkerfinu í Norður-
Vietnam, sagði prófessorinn, og
bætti við, að frelsishreyfingin væri
fús til að-<taka þátt í samsteypu-
Framhald á bls. 14.
Lögreglan
lokar næt-
urklúbbi
í Reykjavík
Alf-Reykjavík, finimtudag.
f kvöld stöðvaði lögreglan
í Reykjavík starfsemi ólög-
legs „næturklúbbs" hér í
borg. Forsvarsmaður klúbbs
ins er fransk-kanadiskur
landshornafiakkari, sem kom
til landsins skömmi fyrir
áramó*. „Ííæturklúbburinn“
var starfræktur í kjallara
hússins í Hafnarstræti L jg
þegar lögreglan kom á stað
inn í kvöld, voru allmargir
unglingar þar saman komn
ir. Stöðvaði lögreglan „gleð
ina“ og var forsvarsmaður
klúbbsins færður til yfir-
heyrslu.
,,Næturkiúbburinn“ hefur
verið í unpsiglingu um
nokkurt skeií, eftir því sem
Tíminn hefur fregnað eftir
einum unglinganna. Engin
hijómsveit var til staðar, en
danslög leikin af segulbandi
í gegnum hátalara, sem stað
settir voru i húsinu.
Þess má geta, að forsvars
maður klúbbsins hefur feng
izt við ,,málaralist“ og unnið
sér m. a. til frægðar að
mála úr kúablófii!