Tíminn - 20.01.1967, Síða 5
FÖSTUDAGUR 20. janúar 1967
TÍMINN
5
(Jtgefandl: FRAMSÚKNARIFLOKKURINN
Framkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Pórarinn
Þórarinsson (áb>. Andrés Kristjánsson, Jón Helsason og indriði
G. Þorsteinsson Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson Aug-
lýsingastj.: Steingrimur Gíslasón Ritstj.skrifstofur ■ Bddu-
húsinu, slmar 18300—18305 Skrifstofur Bankastræt) I Af.
greiBslusimi 12323. Auglýsingasími 19523 Aðrar skrifstofur,
siml 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán lnnanlands. — 1
lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. f.
Athyglisverðar tölur
um húsnæðismál
Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur nýlega birt yfir-
lit um byggingar í borginni á síðastl. ári. Samkvæmt yfir-
liti hans hafa verið fullgerðar í Reykjavík 765 íbúðir á
árinu 1966.
Samkvæmt þessu og hliðstæðum eldri skýrslum hefur
tala fullgerðra íbúða í Reykjavík seinustu 11 árin numið
árlega sem hér segir:
Árið 1956 ^ . 705 íbúðir
— 1957 . . 935 —
— 1958 . 865 —
— 1959 . 740 —
— 1960 . 642 —
— 1961 . . 541 —
— 1962 . 598 —
— 1963 . 665 —
— 1964 . 576 —
— 1965 . . 624 —
— 1966 . 765
Samkvæmt þessu yfirliti nam tala fullg.erðra íbúða í
Reykjavík seinustu fjögur árin fyrir „viðreisn", árin
1956—59, 3245 eða 810 til jafnaðar á ári.
Á umræddum fjórum • árum fyrir „viðreisn“ stefndi
óðum í það horf að húsnæðisskortinurrf í höfuðborginni
yrði útrýmt og þannig skapað jafnvægi 1 framboði og
eftirspurn eftir húsnæði, en það er vafalítið mikilvægara
atriði til að hafa taumhald á verðbólgu og dýrtíð en
nokkuð annað. Iiúsnæðisskorturinn hefur ver>ð mesti
dýrtíðarvaldurinn á íslandi.
Með tilkomu „viðreisnarinnar“ er hér alveg breytt um.
eins og framangreint yfirlit sýnir. Á „viðreisnar“-árunum
sjö eða 1960—66 eru byggðar 4411 íbúðir í Reykjavík
eða 630 til jafnaðar á ári.
Þessi mikli samdráttur í íbúðabyggingum í höfuðborg-
inni, hefur orðið til þess, að húsnæðisskorturinn hefur
stóraukizt að nýju og húsnæði orðið dýrara að sama
skapi. Þetta er ein af meginorsökum þeirrar dýrtíðar,
sem nú er glímt við.
Núv. stjórnarflokkar hafa verið sinnulausir um raun-
hæfar aðgerðir í húsnæðismálum almennings, þótt þeir
tali fagurlega og birti miklar áætlanir fyrir kosningar.
Þeir hafa látið byggingar stórfyrirtækja og gróðamánna
hafa algeran forgangsrétt. íbúðabyggingar fvrir almenn
ing hafa mætt afgangi. Það mun haldast áfram eftir þing
kosningarnar, ef þessir flokkar verða í meirihluta áfram.
Waymouth aðmíráil
Út af fyrir sig, ættu það ekki að þykja tíðindi, þótt
skipt væri um yfirmenn varnarliðsins á Keflavíkurflug
velli, en það er gert á tveggja ára fresti. Þó er ástæða
fyrir íslenzk blöð að geta þess, þegar Weymouth aðmír
áll lætur af störfum- Hann reyndist sérstaklega skilnings
glöggur á afstöðu þjóðlegra fslendinga í deilu þeirri, sem
hefur risið út af Köflavíkursjónvarpinu. Vegna atbeina
hans og annarra skilningsgóðra Bandaríkjamanna, er
það ekki sök varnarliðsins, þótt enn hafi ekki verið gerð
^r ráðstafanir til að leiða það mál til sómasamlegra lykta.
Walter Uppmann ritar um alþjéðamál:
Hvorugur aöilinn getur farið
með sigur af hólmi i Vietnam
Blekking* sem báðir aðilar þurfa jafnt að losna við
HORFURNAR væru sýnu
bjartari á hinu nýja ári, ef við
gætum losað okkur við það við
hori í umræðum um styrjöldina,
að þjóðin standi andspænis á-
kveðnu vali milli sigurs eða ó-
sigurs, annað hvort verðum við
að draga okkur skilyrðislaust í
hlé eða óvinurinn að gefast skil
yrðislaust upp. Auðvelt er að
tala um val milli þessarra and-
stæðua, en þær umræður leiða
aðeins í ljós. að þeir, sem
þannig tala, hafa blátt áfram lát
ið undir höfuð leggjast að
hugsa. Þessir tveir tilnefndu
kostir breiða aðeins blæju yfir
hinn raunverulega vanda og
gera hann óviðráðanlegan.
Hinn raunverulegi vandi er
í því fólginn að finna einhvern
meðalveg, einhvern annan kost
Suður-Vietnam til handa en ann
að hvort hersetu Bandaríkja-
manna um óákveðna framtíð
eða beina yfirdrottnun Norð-
ur Vietnama. Engin von er til,
að hin virku andstöðuöfl, hvorki
í sunnanverðu né norðanverðu
Vietnam, ljái nokkurn tjma sam
þykki sitt til varanlegrar hern
aðarnærveru Bandaríkjamanna
í Suður-Vietnam. Norður-Viet-
namar geta hins vegar ekki gert
sér neinar vonir um að Banda-
ríkjamenn fari á burt með her-
afla sinn og fleygi ríkisstjórn
Suður-Vietnam fyrir fætur
þeirra. Von felst ekki í neinu
öðru en umsömdu samkomulagi.
SAMKOMULAG er hins veg
ar ekki unnt að ræða meðan for
setinn er í hinni tilbúnu
klemmu vals milli sigurs og ó-
sigurs, vinnings eða taps, yfir
þyrmingar eða brottfarar, frá
hvarfs eða jöfnunar við jörðu.
Að eiga að velja milli þessarra
einstefnuöfga, er sama og að
vera skyldaður til að velja hið
ómögulega, óraunverulega, —
hreina vitleysu.
Annars vegar eru öfgar þess
skilnings,' að unnt sé að knýja
her Bandaríkjamanna til brott-
hvaris, annað hvort vegna þess,
að hann bíði ósigur í orrustu,
eða vegna hins, að bandaríska
þjóðin þreytist á baráttunni.
Jean Sainteny, sem hefir þekkt
Ho Chi Minh lengur og rætt
við hann fyrir skemmri tíma en
nokkur annar vestrænn maður,
heldur fram, að Norður-Vietnam
ar kunni feð vera haldnir þeirri
blekkingu, að enda þótt að'
bandaríski herinn í Indókína sé
Öflugri en franski herinn þar
var á árunum upp úr 1950, þá
hljóti hann að feta hina sömu
braut til endanlegs ósigurs.
Sé þetta skoðun Ho Chi Minhs
elur hann með sér háskalega
blekkingu. Ekki er unnt að
kveðja saman eða vopna neinn
Asíuher, sem orðið geti ofjari
hernaðarafls Bandaríkjanna.
Bandaríski herinn hefur óum-
deilanlega mátt til að halda ,
kyrru fyrir í Suður-Vietnam þar
til hann er kvaddur buri; að yf-
irlögðu ráði, samkvæmt um-
iömdu samkomulagi.
HO CHI MINH
EN ENDA þótt- að ekki sé
unnt að sigra bandaríska her-
inn er ekki þar með sagt, að
hann geti borig ótvíræðan sigur
úr býtum. Þeir. sem geta brotið
niður hús og jafnað það fullkom
lega við jörðu, eru oft og ein-
att ekki menn til að byggja nýtt
hús í staðinn.
Mendel Rivers, formaður her-
nefndar fulltrúadeildar þings-
ins,, vill ,,jafna Hanoi við jörðu
og láta álit umheimsins lönd og
leið“. Hann er ágætur fulltrúi
stríðshaukanna, öfganna til ann
arrar handarinnar. Verði menn
eins og hann yfirstferkarii — og
þeim hefir því miður stöðugt
aukizt ásmegin^ síðan 1965, —
lendum við í enn meiri vandræð
Um en við eigum nú við að
stríða.
Þetta viðhojf. Mendel Rivers
og skoðanabrírðra hans er einn
ig viðhórf flughersins. Þétta við
horf er mjög mikilvægt, þar
sem forsetinn hefur hvað eftir
annað hneigzt . til ' undanhalds-
semi við það, enda þótt að hann
hafi andmælt og veitt viðnám.
Við höfum ekki ráð á að blekkja
sjálfa okkur að því varðar þær
afleiðingar, sem það hefði óhjá-
kvæimilega í för með sér að
framkvæma þessar öfgar. Telji
þjóðin sig ómótmælanlega til
þess kjörna að beita takmarka-
lausum hernaðarmætti í Viet-
nam og sýni það í verki, hlýtur
hún að verða að standa ein sér,
einangruð frá öllum öðrum þjýð
um-
RIVERS nefndarformaður
heldur að þetta. leiddi ekki til
annars en þess, að framámenn
annarra þjóða flyttu ræður,
skrifuðu forustugreinar og
gengust fyrir mótmælagöngum.
Það sé allt og sumt. Rivers virð
ist þekkja heiminn illa. Sagan
sannar okkur, ag þegar öflug
asta herveldi heims hefir sýnt
og sannað, að það sé viljugt og
reiðubúið að beita takmarkalaus
um hernðarmætti til að tryggja
framgang sinna mála, er undir
eins hafin myndun bandalags
til þess að hamla gegn hemað-
arstefnu þess. í þessa átt hefir
stefnt síðan 1965. Og úr þessu
verður í framkvæmd, ef við
höldum að við getum beitt vopn
um okkar án alls tillits til skoð
ana umheimsins.
Sjálfumglöð beiting skefjá-
laúss hervalds verður Banda
rikjamönnum alveg jafn háska
leg og hún hefir áður reynst
öðrum í sögu þjóðanna. Ein-
strengingsleg, takmarkalaus
beiting hervalds sameinar aðrar
þjóðir til andstöðu gegn því
veldi, sem henni beitir
Hinir herskáu meðal okkar,
sem ekki eiga nógu sterk orð
til að lýsa fyrirlitningu sinni á
þeim, sem vilja sýna skoðunum
mannkynsins tilhlýðilega virð-
ingu, eru fávísir menn og
heimskir. Þeir kunna ekki
mannkynssoguna og eru fáfróð
ir um þann heim, sem þeir eru
að tala um. Hafi þeir sitt fram
hljótum við, engu síður en aðr
ir hernaðarsinnar á undan okk
ur, að komast að raun um, að
óttinn við mátt okkar og tor-
tryggnin á markmið okkar leið
ir til sameinmgar annarra þjóða
gegn okkur.
I
[