Tíminn - 20.01.1967, Síða 7
FÖSTUDAGUR 20. janúar 1967
SIGRUN H. WIUM
Draumalandi, Höfn, Hornafirði
Föstudaginn 9. desember síð-
ast liðinn andaðist í Höfn í
Hornafirði Sigrún Hansdóttir
Wíum. Hun var fædd 15. 7. 1904
á Sléttaleiti í Suðursveit í Austur-
Skaftafellssýslu. Foreldrar hennar
voro hjónin Lúcía Þorsteinsdóttir,
þá ljósmóðir í Suðursveit, og
Hahs H. Wíum, bæði af ágætum
skaftfellskum ættum. Lúcía var
fædd og uppalin í Suðursveit.
Hans var fæddur í Vestur-Skafta-
fellssýslu, en fluttist austur í
Suðursveit um fermingaraldur.
Þegar Sigrún var á fjórða ári,
fluttu foreldrar hennar frá S'létta-
leiti að Gerði í sömu sveit. Þar
bjuggu þau í 30 ár, en keyptu þá
hús í Höfn á Hornafirði, sem þau
nefndu Draumaland. Sérstakar
orsakir voru fyrir því að húsið
fékk þetta nafn, en þær verða
\ ekki tilgreindar hér.
Lífssaga Sigrúnar varð nokkuð
ólík flestra annarra .vegna þess
að hún hafði sérstæða aðstöðu
gagnvart tilverunni. Þegar hún
var tæplega ársgömui, fékk hún
lömunarveiki og bar þess minjar
allt sitt líf. Hún náði aldrei fui-1-
um líkamlegum þroska og fékk
örkuml af veikindum sínum. En
andlegur þroski hennar var eðli-
legur, og á því sviði var hún laus
við örkuml. Hún hafði góða greind
og notaði hana vel eftjr því sem
aðstæður leyfðu. Sjálf sagðist hún
ekki vera mikið fyrir bækur, en
ég veit að varla leið sá dagur að
hún liti ekki í blað eða bók, og
þá oftast til að fræðast, þvi að
hún var mjög fróðleiksfús.
Kannski tók hún vinnu fram yfir
lestur. Hún var alla tið starfsglöð
og tók þátt í öllum störfum sem
ekki voru henni um megn hvað
átök snerti, og oft' undraðist fólk
áræði hennar og hugkvæmni við
vinnu. Hún var fljótvirk og vel-
virk og hafði útsjónarsemi lil að
vinna sér létt.
Aldrei kvartaði Sigrún eða gerði
vanlíðan sína að umtalsefni, held
ur ekki eftir að heilsu hennar fór
að hraka að verulegu leyti og
aðrir sjúkdómar að gera vart við
sig. I
Þau voru fjögur sem fluttu frá
Gerði 1938 að Draumalandi. Stuttu
eftir að Sigrún fæddist fengu for
eldrar hennar stúlku, Snjólaugu
Jónsdóttur, sem þá var á tólfta
ári, til að líta eftir henni 0o gera
önnur verk. Eftir það voru þær
Sigrún alltaf saman, þar til dauð
inn skildi þær.
Eftir að foreldrar Sigrúnar dóu
bjuggu þær einar í húsinu. Snjó-
laug og hún. Ekkert samband gat
verið einlægara en þeirra.
í haust sem leið dvaldi ég, sem
er uppeldisdóttir Lúcíu og Hans,
hjá þeim í eina viku ásamt yngri
dóttur minni. Þar var friður og
ró og litla stúlkan mín 11 ára
sagði, að hérna væri yndislegt að
vera. Gott fannst mér að vera með
þeim aftur Sigrúnu og Snjólaugu,
og allt var í sama anda og þegar
ég var barn á Gerði, þótt nú séu
breyttir tímar. Samband þeirra
fóstursystra minna var einlægt og
skilningsríkt, og, þær húgsuðu
hvor fyrir sig um að hinni liði
sem beat.
í fjórtán ár hefur verið í fæði
hjá þeim fóstursystrum Valdimar
Filippusson. Hann er þeim þakk
látur fyrir það og segir, að þær
hafi haft mikið fyrir sér. Þær litu
á málið frá annarri hlið, þeim
var skemmtun að því að' hann
kom, svo þessi ráðstöfun var þeim
öllum til ánægju.
„Það verður tómlegt að fá aldr-
ei meira bréf frá Sigrúnu", sagði
HaMur Jónsdóttir
hjúkrunarkona, Sauðárkróki
F2.0. maí 1893. D. 24. okt. 1965.
Kveðja frá vinkonu,
Helgu Jónsdóttur frá Goðdölum
Þegar vetur gekk til valda ,
varmi hvarf og fölt stóð lyng.
Fól þinn nökkva feigðaralda
fannst þá glöggt að syrti í kring
Msétrar konu margir sakna,
mynd þín geymist sfcír og hrein
þekkra minja þræðir rakna
þinni af menning birtan skein.
Þú varst til þess fædd að fórna
fyrir veika þreki og dáð,
þín var höndin styrk að stjórna
stöðugt veita hjálparráð.
Mundir þínar margan græddu,
mörg var nætur vakan ströng,
þegar sárin bræðra blæddu
og blöstu við hin myrku göng.
Verk þín oft úr böli bættu,
báru mörgum líkn þín völd.
Ef þeir allir mæla mættu
myndi þökkin hundraðföld.
Göfgrar konu geyma sporin
gróður þann, sem lifa kannK
þó að falli föl á vorin
—frostið aldrei nístir hann.
Ástarkveðju ég vil færa,
en"an skugga á kynnin ber.
eldri dóttir mín, þegar hún frétti
lát hennar. Þær hafa oft skrifazt
á, unnu báðar blómum og áttu
fleiri sameiginleg áhugamál. Bréf
Sigrúnar voru lífleg og skemmti-
leg. Þannig var líka að tala við
hana. Hún var ræðin og kunni
vel að koma orðum að því, sem
hún vildi segja.
Fjölskyldan á Draumalandi eign
aðist marga vini og kunningja í
Höfn. Einlæg og haldgóð vinátta
tókst með þeim og hjónunum
Júlíusi Sigfússyni og Guðnýju
Magnúsdóttur, börnum þeirra og
tengdafólki, einkum var það þó
Eiríkur sonur þeirra og kona hans
Inga Hálfdanardóttir, sem bundust
traustum vináttuböndum við Sig-
rúnu og létu dóttur sína heita
nafni hennar. Þannig gáfu þau
henni hlutdeild í þessu litla barni,
og gladdi það Sigrúnu mjög. Litla
stúlkan er nú 12 ára gömul, og
þær munu hafa sézt daglega nöfn-
urnar, báðum til óblandinnar
ánægju.
Fjölskyldan á Draumalandi var
mjög trúuð og hafði mikinn áhuga
fyrir að byggð yrði kirkja í Höfn.
Nú er komin þar faHeg kirkja,
sem vígð var í júlí í sumar. Út-
för Sigrúnar var sú fyrsta, sem
fram . fór frp þessari kijrkju. At-
höfniri-var^mjög hátíðíeg" Kirkjan
var full af fólki, sem kom til að
kveðja Sigrúnu í liinzta” sirini.
Ræða séra Skarphéðins Pétursson-
ar var sérstæð og eftirminnileg,
og hvelfing kirkjunnar ómaði af
fallegum söng karlakórs Ilafnar-
kirkju undir stjórn Eyjólfs Stef-
ánssonar söngstjóra.
Veðrið var svo fagurt þennan
dag, að manni fannst tilveran nú
vilja bæta fyrir hvað lífið hafði
verið hart við hana, sem var að
kveðja.
Þau hvíla öll þrjú í kirkjugarð-
inum í Bjarnanesi, Sigrún og for
eldrar hennar. Þau skildu aldrei
á meðan þau lifðu og eru nú
saman aftur til þess að skilja
aldrei framar.
Rósa Þorsteinsdótlir.
FRA VISINDASJOBS
Vísindasjóður hefur auglýst
styrki ársins 1967 lausa til um-
sóknar og er umsóknarfrestur til
1. marz næstkomandi.
Sjóðurinn skiptist í tvær deild-
ir: Raunvísindadeild og Hugvís-
indadeild.
Raunvísindadeild annast styrk-
veitingar á sviði náttúruvísinda,
þar með taldar eðlisfræði og kjarn
orkuvísindi, efnafræði, stærðfræði,
læknisfræði, iíffræði, lífeðlisfræði,
jarðfræði, jarðeðlisfræði, dýra-
fræði, grasafræði, búvísindi. fiski-
fræði, verkfræði og tæknifræði.
Formaður stjórnar Raunvísinda
deildar er dr. Sigurður Þórains-
son jarðfræðingur.
Hugvísindadeild annast styrk-
veitingu á sviði sagnfræði, bók-
enntafræði, inálvísinda, félags-
fræði, lögfræði, hagfræði, heim-
speki guðfræði, sálfræði og upp-
eldisfræði.
Formaður stjórnar Hugvísinda-
deildar er dr. Sigurður Þórarins-
bankastjóri.
Formaður yfirstjórnar sjóðsins
er dr. Snorri Hallgifímsson pró-
fessor.
Varðliðarnir
ráðast inn á
flokksskrif-
stofur í Kína
! NTB-Peking, fimmtudag.
Rauðu varðliðarnir í Peking
réðust í dag inn í aðalskrifstofur
kínverska kommúnistaflokksii,.. í
Péking og settu - upp auglýsinga-
skilti þess efnis, að þeir hefðu nú
tögl 'og hagldir í miðstjórn flokks
ins. Samtímis voru birtar harðar
ásakanir í garð Wu Te, núverandi
borgarstjóra Peking. Rauðu varð-
liðamir opnúðu síðan alla glugga
á hinni sex hæða byggingu og
köstuðu út drerfibréfum með alJs
konar hnjóðsyrðum um ýmsa eft-
iriitsmenn og aðra stárfsmenn
borgarstjórnarinar.
Samtímis birtust þær fréttir á
veggspjöldum, að til blóðugra
átaka hefði komið milli stuðnings
manna og andstæðinga Mao for-
formanns víðs vegar í landinu.
Segir á einu skiltinu, að um 8000
manns hafi barizt. Fullyrt er, að
nokkrir menn hafi látið lífið.
Hlutverk Vísindasjóðs er að efla
íslenzkar vísindarannsóknir og
í þeim tilgangi styrkir hann:
1. Einstaklinga og vísindastofn-
anir vegna tiltekinna rannsóknar-
verkeína.
2. Kandidata til vísindalegs sér-
náms og þjálfunar. Kandídat verð
ur að vinna að tilteknum sérfræði
legum rannsóknum eða afla sér
vísindaþjálfunar til þess að koma
til greina við styrkveitingu.
3. Ranr.sóknarstofnanir til
kaupa á tækjum. ritum eða til
greiðslu a oörum kostnaði i áam-
bandi við starr ♦ i. er sjóðurinn
styrkir.
Umsóknareyðublöð, ásamt upp-
lýsingum, fást hjá deildarriturum,
í skrifstofu Háskóla íslands og
hjá sendiráðum íslands erlendis.
Deiidarritarar eru Guðm •nd'ir
Arnlaugsson, rektor, fyrir Raun-
vísindadeild, og Bjarni Vill. :ms-
son skjalavörður, fyrir Hug\ 'sinda
deild.
SVERTINGI -
Frétt frá mennta-
málaráðuneytinu
Andann víst mun endurnæra
allt — sem reyndi ég af þér.
Þína minning því skal blessa,
þú munt lifa í huga mér.
Klökk fram ber ég kveðju
þessa,
kólnað finnst mér hafi hér.
Vetraríkið hverfur kalda j
kemur vor og fögnuð ljær.
Og að baki tímans tjalda
tendrar eilífð ijósin skær.
J.Ó.
Matvæla- og landbúnaðarstofn-
ún Sameinuðu þjóðanna (Fao)
rveitir árlega nokkra rannsóknar-
•styrki, sem kenndir eru við André
Í Mayer. Hefur nú verið auglýst eft-
*ir 'umsóknum um styrki þá, sem
|ítil úthlutunar kom á árinu 1967.
iStyrkirnir eru bundnir við það
fsvið, sem starfsemi stofnunarinn-
iar tekur til, þ.e. ýmsar greinar
‘landbúnaðar, skógrækt, fiskveiðar
’-og matvælafræði, svo og hagfræði
‘legar rannsóknir á þeim vettvangi.
1 Styrkirnir eru veittir til allt að
‘tveggja ára, og til greina getur
'komið að framlengja það tímabil
'um 6 mánaða hið lengsta. Fjárhæð
'styrkjanna er breytileg eftir fram
'færslukostnaði i hverju dvalar-
landi, eða frá 150—360 dollarar á
'mánuði, og er þá við það miðað,
'að styrkUrinn nægi fyrir fæði,
'húsnæði og öðrum nauðsynlegum
’útgjöldum. Ferðakostnað fær
styrkþegi og greiddan. Taki
hann með sér fjölskyldu sína,
Verður hann hins vegar að standa
straum af öllum kostnaði henn-
ar vegna, bæði ferða- og dvalar-
'kostnaði.
' Umsóknum um styrki þessa
skal komið til menntamálaráðu
neytisins, Stjórnarráðshúsinu við
'Lækjartorg, fyrir 15. febrúar næst
komandi. Sérstök umsóknareyðu-
0100 fást i menntamálaráðuneyt-
'inu. Þar fást einnig nánari upp-
'lýsingar um styrkina ásamt skrá
um rannsóknarverkefni, sem FAO
'hefur lýst sérstökum áhuga á í
sambandi við styrkveitingar að
'þessu sinni. Umsókn skulu fylgja
staðfest afrit af prófskírteinum,
'svo og þrenn meðmæli.
Það skal að lokuni tekið fram,
'að ekki er vitað fyrir fram, hvort
nokkur framangreindra styrkja
kemur í hlut íslands að þessu
sinni. Endanleg ákvörðun um val
styrkþega verður tekin í aðal-
stöðvum FAO og tilkynnt í vor.
'Menntamálaráðuneytið,
'13. janúar 1967.
Framhatd aí bls 9
eyju út af Cape Cod, þar sem
ríkir og háttsettir menn dvöldu
gjarna.
Dætur hans tvær heita Remi,
17 ára, ljóshærð með græn afigu
og Edwina, 14 ára, dökkhærð með
brún augu. ,,Eg held. að dætur
mínar hafi ekki neina mine.imatt
arkennd vegna þess að bær - -u
svertingjar“, segir frú Brooke.
Við tölum ekki mikið um það.
Þær leita sjálfar vina sinna eg
þeir eru bæði hvítir og svartir.
Við verðum ekki fyrir neinum
erfiðleikum vegna litarháttarins."
Árið 1962 bauð Brooke sig
fram til embættis ríkissaksóknara
og hlaut kosningu með miklum
tyfirbúrðum. Mikið orð fór af
starfi hans og 100 manna starfs-
lið hans á skrifstofunum þótti sér
staklega hæft til sinna starfa.
Hann var endurkjörinn til starfs-
ins tveim árum seinna með gíf-
Urlegum yfirburðum. Var þess þá
getið, að margir hefðu kosið
hann án þess að hafa hugmynd
um, að hann var svertingi.
f forsetakosningunum neitaði
hann að styðja Barry Goldwater.
Hann hafnaði samstarfi við hærgi
arm repúblikanaflokksins, cn tók
ekki heldur upp fasta samvinnu
við þann vinstri. „Fólki skjátla-t
hrapalega, ef það heldur. að ég
sé blindur frjálslyndismaður. Eg
er fhaldssamur innst inni og sé
ekki neitt undarlegt við það,“ seg
!r Brooke.
Byooke höfðar mjög til ungra
menntamanna, ýmissa stuðnings-
manna minnihluta flokka og hv t
ur þá til þess að „ryðja sér braut
inn í Repúblikanaflokkinn." Mik-
ill hluti stuðningsmanna hans eru
óánægðir demókratar, sem farnir
eru að kalla sig „Brooke-repúblik
ana.“
Nóttina, sem kosningaúrslit
voru kunn, söfnuðust saman
meira en 1500 kjósendur, flestir
hvítir. í aðalstöðvum Brookes
stóra danssalnum í Sheraton
Plaza Hotel. í ofsagleð; þrnnaí''
Brooke: „Eg þakka fólkinu í hinu
mikla sambandsríki Massachus
etts fyrir að hafa fært mér þenn.
an sigur, stærstu s-tund lífs míns.'
Fagnaðarlátum ætlaði aldrei að
linna og annað eins hafði ekki
sézt síðan Kennedy vann sigur
sinni.
Afstaða -Brookes til baráttu
blökkumaria fyrir ’ borgararétt
indum hefur ætíð sætt gagnrýni
í þeirra hópi. Það er langt síðan
blökkumannaklíkan í Roxbury af
fekrifaði hann með nafngiftinni:
„Hvíti negrinn“. Þegar Brooke
láði þingkosningu sögðu þeir:
lÞarna misstum við einn.“