Tíminn - 20.01.1967, Side 8
mm
ilillll
;! -íííi
jlg|:p
P»Í|»PpÍ
jfc
<1 :;í: p 1 pppt-::;
SSS<S.<y ■.
W${ |
wL
■Íiííi:
||
■ ■ ■■ ' :: ý ' 'y
^>4Í.^iSí
fcl i
••
FÖSTUDAGUR 20. janúar 1967
ti! Mallorca
Hálfsmánaðardvöl í sólinni ásamt fæði,
ferðum og dvöl á 1. flokks lúxushóteli
fyrir 10 þúsund krónur
Hér á landi dvaldi um hríð
Juan Canals hóteleigandi á
Mallorca ásamt þýzkri konu
sinni. Erindi hans hingað var
að ganga frá samningum við
Guðna Þórðarson eiganda
Ferðaskrifstofunnar Sunnu
um föst afnot af 80 rúmum í
1. flokks hótelum á Mallorca
allt árið.
hótelið sitt á Mallorca
Fréttamaður Tímans hitti Juan
Canals og konu hans að máli fyrir
skömmu ásamt Guðna Þórðar-
syni. Juan Canals á 8 1. flokks
’hótel á Mallorca og eru Alexandra
og Luxor þeirra kunnust. Guðni
'skýrði svo frá, að hann væri að
'hefja reglulegar ferðir til Mall-
orka annan hvem sunnudag með
'leiguflugvél, sem tæki 85 manns
og myndu farþegar dveljast á
Mallorca á Luxor eða Aiexandra
fhótelunum í hólfan mánuð og
stanza einn dag í Loridon á heim-
leið. Með þeim samningum, sem
'hann væri nú að gera við Juan
Canals gæti Sunna nú lækkað verð
á ferðum um þriðjung eða mður
í 9.600.----- 11.800.— krónur fyrir
manninn. í þessu verði væri inni-
falið auk ferða og gistingar fullt
fæði alla dagana á Mallorca og
það fullkomið fæði, morgunverð-
ur og fjórréttaðir hádegisverðir
og kvöldverðir, einn fiskréttur og
þrír kjötréttir.
Sunna hefur ráðið mann til að
reka fyrirgreiðsluskrifstofu fyrir
ferðaskrifstofuna í sumar. Verður
það Njörður P. Njarðvík, sem
mun dveljast þar með fjölskyidu
sinni í sumar og verður fóiki er
ferðast á vegum Sunnu til aðstoð-
ar auk fararstjó-anna, sem veröa
með hverjum hópi. Fá íslending-
ar kort frá Sunnu, sem þeir bera
á sér og ef þeir lenda í erfið-
leikum sýna þeir kortið og láta
hringja í^Njörð. Sagði Guðni að af
þessu yrði mikil öryggl fyrir ferða
langa Sunnu, því margir væru mál
lausir á önnur mál en ísl. og gætu
íslenzkur ferSamannahópur á Mallorca.
lent í erfiðleikum af þeim sök-
um. Annars geta menn bjargað
sér vel á ensku,"'frönsku eða þýzku
— jafnvel væri auglýst í gluggum
sumra verzlana í Mallorca að þar
væri töluð sænska.
Auk þessara samninga við Juan
Canals hefur Guðni tekið á leigu
fyrir Sunnu fjórar íbúðir, ætlað-
ar fjölskyldum, í nýtízku fjölbýl-
ishúsi í Palma, nálægt . miðborg-
inni. í þessum íbúðum er fullkom-
ið eldh'ús og gætu því þeir sem
þesskr íbúðir notuðu matreitt sjálf
ir. Auk þess geta fjölskyldurnar
haft á leigu bíl. Yrði kostnaður
um 12 þús. krónur á mann í tvær
vikur að meðtöldum ferðum.
Juan Canals sagði að spænska
ríkið hefði mjög strangt eftirlit
með rekstri hótela og þyrfti að
uppfylla miklar kröfur til að fá
hótel í 1. flokk og lúxusflokk að
auki, til þess þyrfti að vera full-
komin loftræsti og hita og kæli-
kerfi, sérstakt bað í hverju her
bergi og allstór veröpd. Öll hótel
hans væru í fyrsta flokki. íslend-
ingar hefðu dvalið töluvert á hótel
Alexandra og Lúxor og líkað vel
og honum hefði líkað vel að hafa
islenzka gesti. Juan Canals sagði,
að um þrjár og hálf milijón ferða-
manna kæmu nú árlega til Mall-
orca og nú færi í vöxt að menn
kæmu til Mallorca á vetrum. Eink-
um væri það fullorðið fólk, sem
ekki væri störfum bundið og
dveldi í hlýjunni yfir vetrarmán-
uðina og svo færðist það stöðugt
í aukana að fólk tæki frí frá störf-
um að vetrarlagi. Vetrarmánuðim
ir á Mallorca væru svipaðir og sum
armánuðirnir hér norður frá, hlýtt
og,notalegt og mikið sólskin en
þó ékki hægt að reikna með sjó-
böðum. 1500 hótel væru á Mall-
orca; vmörg þeirra þó léleg og að-
eins opin yfir sumarmánuðina.
Mjög mikilvægt væri fyrir Mall-
orca sem ferðamannastað að hafa
góðar baðstrendur og því hefðu
hótelin gert með sér félag, sem
tryggir öllum gestum jafnan að-
gang að ströndinni og ennfrem-
ur sjá þau svo um, að hún sé ætíð
vel hirt.
Auk hins góða loftlags, sagði
Canals, hefur Mallorca upp á ým-
islegt annað að bjóða, sem ferða-
mannaland. Þar er afar fjölbreytt
og ^allegt landslag og þar er unnt
að stunda tennis, útreiðar, sjó-
skíðaferðir, froskköfun og fl. Auk
þess er þar nautaat í hverri viku,
6 fyrsta flokks næturklúbbar og
tugir annars flokks. Þar væri sigl-
ingaíþróttin stunduð af kappi. Þar
væri unnt að leigja seglbáta og
skemmtisnekkjur og í rauninni
væri hægt að fá allt milli himins
og jarðar leigt á Mallorka. í höfn-
inni í Palma væru aldrei færri
en 2—300 snekkjur og þar væri
t.d. enn hin glæsilega og íburðar-
mikla snekkja Errols heitins
Flynns. Hún hefði legið þar síðan
hann lézt og væri víst til sölu
en ekki kvaðst hann vita verðið.
Nú væri verið að byggja nýja
hraðbraut til Palma.og lægi hún
um Arenal-ströndina, þar sem hót-
el hans væm, og myndi það ekki
,taka gesti sína nema um 5 minút-
ur að komast inn til Palma, þegar
hún hefði verið tekin í notkun.
Og nú væri verið að reisa nýja
flugstöðvarbyggingu, þá þriðju,
sem reist hefur verið á 10 árum.
Umferðaraukningin um flugvöll-
inn hefur orðið miklu meiri en
menn óraði fyrir. Menn, sem einu
sinni hafa dvalið á Mallorca xoma
aftur, já aftur og aftur, sagði Can-
als.
Guðni Þórðarson sagði að Mall-
orcabúar væru sérlega elskulegt
fólk og orðlagt fyrir hjáingemi
sína, gestrisni og lipurð. Hann
hefði nú sent samtals um 2000
ferðamenn til Mallorca frá íslandi
og aldrei fengið eina einustu kvört
un um að nokkrum hlut hefði ver-
ið stolið. Það væri nokkuð önnur
saga en frá hópferðum um ítalíu
t.d.
Tjeká.
tuxor-hótelið eitt af hótelum Juan Canals.
I