Tíminn - 22.02.1967, Side 3

Tíminn - 22.02.1967, Side 3
MIÐVIKUDAGUK 22. febrúar 1967 TÍMINN í SPEGLITIMANS Julie Andrews sést hér ásamt Margrét prinsessa, ríkisarfi Dana, kom til Parísar fyrir skemmstu. Erindið var að opna sendiráð Dana í nýrri byggingu í París og auðvitað að hitta væntanlegan eigin- mann sinn. Kom prinsessan til Parísar í flugvél frá SAS og þegar til Parísar kom, flýtti prinsessan sér svo mikið út úr vélinni að hún rak hofuðið upp undir í dyrunum. Við land- ganginn beið Henri greifi með blómvönd handa prinsessunni og héldu þau síðan til sendi- ráðsins þar sem prinsessa hélt ræðu með miklum glæsibrag og í hvert skipti sem hún nefndi nafnið Henri, kom, að sögn, sérstakur hljómur í rödd henn ar. Hrærði þetta auðvitað hjörtu hinna viðkvæmu kvenna sem þar yoru viðstaddar og að sögn var augnaháralitur farinn að renna niður kinnarnar á margi hefðarkonunni. Undanfarna daga hafa rott- ur gert innrás í sænska bæ- inn Nynashamn, rétt austan Stokkhólms. Hefur fjöldinn allur af rottum drepizt við það, að bílar hafa ekið yfir þær á vegunum, sem liggja inn í bæ- inn. Það voru ökumenn, sem óku fram á hóp grárra rotta, sem tilkynntu lögreglu o? heil- brigðisyfirvöldum innrás þessa. Ástæða þessarar innrásar er /alin sú, að nú fyrir skemmstu ’ar hætt að nota ösku'haug fyr- ír utan bæinn og misstu þá "otturnar heimkynni sín. Rock Hudson, sem afhenti henni „Golden Globe“ veið- launin sem beztu kvikmynda- leikkona ársins 1966, að áliti Sambands erlendra frétta- manna í Hollywood. Fyrir nokkru voru gefin sam an í hjónaband í sjö alda gam- alli kirkju í Englandi, Daily Dimbleby og Ronald Travers. Það, sem er sögulegt við þessa hj'ónavígslu er, að brúðurin er fimmtíu ára gömul ekkja, en brúðguminn hins vegar aðeins 33 ára, og gamall vinur fyrri eiginmanns brúðarinnar. Brúð- urin mætti þrem mínútum of seint til vígslunnar og leiddi elzti sonur hennar, sem er 27 ára, hana upp að altarinu. Kínverska menningarbylting in breiðir sig nú sem cðast út, og það virðist kveðsicapur Maos Tse Tung einnig gera. Fyrir skömmu gaf franska ut- gá'fufyrirtækið Edition de Seuil út safn tilvitnana og skáldskapar Maos, og á einni viku seldust hvorki fleiri né færri en 30.000 eintök og verð- ur prentsmiðja fyrirtækirins nú að hafa sig alla við til þess að anna eftirspurninni. Kirkjumálaráðuneytið danska hefur nú fyrir skömmu ákveð- ið að halda fund þar sem rætt verður um tónlist í kirkjum. Verður aðallega rætt um það, hvort einungis eigi að spila kirkjutónlist í kirkjum eða hvort leyfa eigi allar tegundir tónlistar. Sovézka stjórnarmáigagmð Izvestia birti fyrir skemnistu harða ádeilu á bandaríska gam anleikarann Bob Hope. Fann blaðið það honum helzt til for- áttu að hann væri að fara til Viet-Nam til þess að skemmta bandaríiskum hermönnum, cn að sögn blaðsins var það ein ungis yfirskin. Hinn raunveru- legi tilgangur ferða leikarans væri að flytja áróður fyrir bandaríska varnarmálaráðu- neytið, (Pentagon) oa sr.r ðið í Vietnam og kallaði blaðið hann ,,Pentagonsfífl“. Og Penta gonsfíflinu er ekkert heilagt. Hann myndi jafnvel gera grín að sinni eigin móður, ef hann fengi borgað fyrir það,“ sagði blaðið. 11= Hassan II konungur r Mar- okko er um þessar mundir í New York. Meðal þeirra, sem hann heimsótti þar í Dorg var Jacqueline Kennedy og dvald- ist hann á heimili hennar í rúma klukkustund. Tveir þjófar í London töldu sig heldur betur 'hafa borið eiít- hvað úr býtum, þegar þeir höfðu stolið vörubíl fullum af skóm og það án þess að nokk- ur sæi. Þe'gar þeir fóru hins vegar að skoða feng sinn, kom- ust þeir að því, þeim til mik- illar gremju, að skórnir, sem á bílnum voru, voru allir vinstri fótar skór, og skildu þeir því eftir feng sinn. Við nánari athugun kom í ljós, að skófyr- irtæ'ki það, sem átti skóna hafði gert þær varúðarráðstaf- anir að senda einn vörubíl með vin I rifótar skó og annan með hægri fótar skó. — Á þennan hátt verður tapið minna, segir eigandinn, og lét það fylgja með að þjófarnir hefðu getað grætt um það bil eina milljón ef þeir hefðu fund ið nógu marga einfætta við- skiptamenn. Og Golden Globe verðlaun- McQueen, sem sést hér ásamt honum verðlaunin. in í karlhlutverki fékk Steve Natqlie Wood, sem aíhenti Á VÍÐÁVANGI Nato og herinn f ræðu, sem Bjarni Benedikts son, forsætisráðherra, flutti á Alþingi í fyrri viku, fór hann háðulegum orðum um tillögur ungra Framsóknarmanna í varnarmálum jafnframt því, sem hann tók undir með komm únistum um það að dvöl liers ins liér og aðild íslands að Nato yrðu að skoðast í sam- hengi, þótt hann viðurkenndi, að aðild íslands að Nato og varnarsamningurinn við Banda ríkin væru sitt hvort málið. For sætisráðherrann sagði: „Það er út af fyrir sig rétt, að Atlants hafsbandalagið og varnarsamn- ingurinn við Bandaríkin eru að nokkru leyti sitt hvort málið- En eins og hv. þm. tók fram (Einar Olgeirsson) verða þau að skoðast í samhengi og verð ur ekki hjá því komizt að svo sé gert.“ Þá lagði Bjarni Ben. áherzlu á það, að bandaríska herliðið væri hér tii að verja íslanjd fyrst og fremst, og má af því álykta, að hann leggi þá minna nú upp úr því, að ísland er hlekkur í vamarkeðju Nato og þá fyrst og fremst þáttur í að- vörunarkerfinu. Ráðherrann sagði: „Það, sem við verðum að gera okkur ljóst er: Viijum við hafa vamir? Teljum við, að varnir séu nauðsynlegar, ekki vegna annarra, heldur vegna okkar sjálfra?" Ar.nað hljóð í strokknum f Reykjavíkurbréfi, sem Bjami Benediktsson skrifaði í Morgunhlaðið í júní 1965 svar ar hann þessari spurningu, sem hann leggur fyrir sjálfan sig, þ. e. er herinn hér okkar sjálfra vegna, nokkuð á aðra leið, enda hefur ráðherrann þá nokkuð önnur sjónarmið í huga, og ekki að deila við uppáhalds andstæðing sinn Einar Olgeirs son, heldur svara íslenzkum fyr irlesara, sem haldið hafði fyrir lestur meðal íslendinga vestan hafs og látið að því iiggja, að fslendingar hefðu mikinn efna- hagslegan ávinning af því að hafa hér amerískan her og gætu þeir ekki haldið uppi blóm legu menningarþjóðfélagi án hjálpar Bandaríkjamanna. Um þetta sagði forsætisráðherrann: „Verra er samt, að hinn unei fyrirlesari segir frá því, að fs leniingar njóti styrks frá Bandaríkjunum. Þessi fullyrð- ing hvílir á algerum misskiln- ingi. Nú eru liðin allmörg ár frá því, að Bandaríkjamenn veittu okkur siíka aðstoð. Út- gjöld þeirra vegna varna lands ins verða ekki í þessu sambandi talinn styrkur við okkur þegar af því, að Bandaríkjamcnn inna þau af hendi vegna síns eigin jiryggis.“ Landhelgisgæzia og ísl sérfræðingar Þama dró forsætisráðherrann fram merg málsins. Nú vili hann vísa þessari skoðun á bug. Jafnframt heldur hann því fram, að sérfræðingar sem rækju ratsjárstöðvar hér á iandi hlytu að verða hermenn, hvað sem hver segði, og vísar tillögum ungra Framsóknar- manna í varnarmálum á bug á þeirri forsendu, að með þeim Pram-ftaio a dis lo

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.