Tíminn - 07.03.1967, Qupperneq 2
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 7. marz 1967
Að verja vondan málstað
Athugasemd frá Þorsteini Hannessyni
Fátt er jafn ömurlegt og það
þegar- heiðarlegur maður er
neyddur til að verja vondan
málstað.
Glöggt dæmi um þetta eru
skrif formanns útvarpsráðs um
útvarpsþáttinn ,,Þióðlíf“ í for-
síðuleiðara i Alþýðublaðinu s.l.
sunnudag. Formanninum verð-
ur það líka á að velja þann
kostinn, sem verstur verður að
teljast. Hann sleppir gjörsam-
lega að ræða það atriði, scm
er mergur málsins, sem sé til-
raun heilbrigðismálaráðherra
til þess að leggja hömlur á
frelsi útvarpsins af pólitískum
ástæðum, og lætur það auk þess
hcnda sig að fara rangt með
staðreyndir.
Það, að formaðurinn lciðir
hjá sér að ræða ótilhlýðileg af-
skipti heilbrigðismálaráðherra
af dagskrá útvarpsins kemur
engum á óvart. Það er alkunna
að frelsi útvarpsins er honum
það mikils virði, að ætti hann
að taka upp hanzkann fyrir
ráðherrann, yrði hann að tala
þvert um hug sér. Hitt að
formaðurinn skuli fara rangt
með staðrcyndir er meira
hryggðarefni. Honum er það
vel kunnugt, að breyting sú,
sem gerð var á þættinum ,,Þjóð
Iíf“ frá því sem Útvarpsráð
hafði ákveðið, var gerð með
fullu samþykki dagskrárstjórn-
ar útvarpsins. Þá er honum og
vel kunnugt að Ólafi Ragnari
Grímssyni var ekki veitt neins
konar „áminning“ á fundi út-
varpsráðs 21. febr. s.l., heldur
var þar aðeins rætt um að vax-
andi pólitískrar viðkvæmni
gætti nú orðið gagnvart þátt-
um slíkum sem ,,Þjóðlíf“, þar
sem kosningar til Alþingis
standa nú fyrir dyrum.
Framkoma formanns útvarps-
ráðs í máli þessu er honum
ekki til sóma. En vafalaust
verður hún þó fyrirgefin þar
sem vitað er að velferð og
ekki sízt frelsi Ríkisútvarpsins
er honum mikis hjartans mál,
þegar hann getur hagað orðum
sínum og gjörðum eins og frjáls
maður, en þarf ekki að taka
tillit til pólitískra ofbeldis-
seggja.
Þorstcinn Hannesson,
fulltrúi í útvarpsráði.
Undirskriftasöfnun á Suðurnesjum
gegn hægri
GS-Keflavík, ,mánudag.
Mikil óánægja er meðal bifreiða
stjóra á Suðumesjum vegna fyrir
hugaðar breytingar í hægri hand
ar akstri. Hafa undirskriftarlistar
Iegið víða frammi, og bifreiða-
stjórar almennt skrifað undir.
Undirskriftarlistarnir eru st.íl-
aðir til allra þingmanna í Reykja
. neskjördæmi, og hljóða ávarpsorð
in svo:
„Við undirritaðir bifreiðastjór-
ar á Suðurnesjum mótmælum
harðlega fyrirhugaðri breytingu
; á umferðalögum um að taka upp
hægri handar akstur. Við krefj-
umst þess, að Alþingi hlutist til
um að þjóðaratkvæðagreiðsia
verði látin fara fram um málið“.
ISINN FJARLÆGIST
Landhelgisgæzluflugvélin Sif fór í ískönnunarflug í gær og reyndist
ísröndin vera 30 sjómílur norð-vestur af Horni, þar sem hjn er
næst landinu. fsrek er út af Barða og norð-austur af Ströndum. —
íshraflið hefur rekið nokkuð frá landinu og er lítil hætta á að ísinn
nálgist ef sama vindátt helzt.
Frá Búnaðarþingi:
AUKIO VALFRELSI
f £
I ABURDARKAUPUM
í gær var haldinn 12. fundur
á Búnaðarþingi. Sex mál voru til
umræðu, þrjú þeirra voru af-
greidd:
Reikningar Búnaðarfélags ís-
lands fyrir árið 1966 voru sam
þykktir og afgreiddir. Þá var
ályktun um áburðarmál afgreidd
svohljóðandi:
1. Búnaðariþing leggur áherzlu
á, að fyririhuguðum breytingum
og stækkun Áburðarverksmiðjunn
ar h. f. verði hraðað svo sem
kostur er. Við þær framkvæmdir
verði ákveðið að korna áburðinn og
framleiða kalk — blandaðan á-
Ætluðu um borð
— fóru í höfnina
KJ-Reykjavík, mánudag.
í dag er maður og kona voru
á leið um borð í Björgvin frá
Dalvík sem lá í Akureyrarthöfn
datt konan i höfnina, og rnaður
inn skömmu á eftir. Skipverjurn
á Björgvin tókst að /eiða fólkið
upp úr höfninni, og héit að því
loknu frá Akureyri. Lögreglan á
Akureyri kom á staðinn um það
bil sem Björgvin var a3 leggja
frá og var sagt að manimum og
konunni myndi verða hlýjað um
borð, og við svo búið sigldi skipið
úr höfninni.
burð t. d. kalkammonsaltpétur á
samt blönduðum alihliða áburði.
2. Búnaðarlþing krefst þess, að
bændur fái aukið valfrelsi um
áburðarkaup, enda safni verk-
smiðjan áburðarpöntunum það
tímanlega, að þær liggi fyrir hjá
verksmiðjustjórn áður en ganga
þarf frá framleiðsluáætlun og
innkaupum.
3. Að áburður sömu tegunda
verði verðjafnaður og seldur á
sama verði á öllum verzlunarstöð
um.
4. Áburðarverksmiðjan h.f. verði
þjóðnýtt og í stað fulltrúa hlut-
hafa, sem nú eru, komi í stjórn
hennar tveir menn, annar tilnefnd
ur af Búnaðarfélagi íslands og
hinn af Stéttarsambandi bænda.
Þingið felur stjórn Búnaðarfé-
lags íslands að vinna að fram-
gangi framanskráðra atriða.
Verulegar umræður urðu um
þessa ályktun og voru þingfull
|trúar á eitt sáttir um að aukið
valfrelsi í áburðarkaupum væri
! nauðsynlegt.
j Ennfremur var afgreidd álykt
un varðandi breytingu á iögum
um tekju- og eignaskatt svohljóð
andi:
Búnaðarþing felur stjórn Bún
aðarféllags íslands að vinna að
jþví í samvinnu við stjórn Stéttar
I sambands bænda, að Alþingi geri
1 eftirgreindar breytingar á iögum
Framhald á bls. 14.
ÞJÚÐDANSAFELAGID KYNNIR
ÍSLENZKA DANSA OG LEIKI
EJ-Reykjavík, mánudag. Elín Sigurvinsdóttir. Unnur Ey-
Þjóðdansafélag Reykjavíkur fells og Guðmundur Guðbrands- 'l
heldur kynningu Jslenzkra dansa son. Á eftir fyrsta þætti sér i
og leikja í Þjóðleikhúsinn á morg Elsa Guðjónsson um kynningu ís
un, þriðjudaginn 7. marz, kl. 20 lenzkra búninga.
og langardaginn 11. marz kl. 15. Annar hlutinn kallast „Mars
Stjórnandi er Sigríður^ Valgeirs- og ýmsir þættir úr Marsi“ en
dóttir en Jón Gunnar Ásgeirsson þriðji hlutinn „þjóðlög, dansar
hefur séð um tónlistina. og vikivakaleikir".
Dagskráin er í þrem hlutum í 41 dansari kemur fram i dag
fyrsta hlutanum eru sýndir viki-j skránni og 16 hljóðfasraleikarar,
vakar og söngdansar, sem skráðirjen kór Kennaraskóla íslands að-
eða varðveizt hafa í dansi. Ein stoðar.
söngvarar eru Guðmundur Guð-, Þjóðleikhúsið annast alla þjón
jónsson, Hjálmar Kjartansson.l ustu varðandi aðgöngumiða.
ViS komuna til Reykjavíkur. F.v. Gunnar GuSjónsson,- flugmaSur; Magnús Jónsson, flugmaSur; Jóhann
Erlendsson, flugvirki; Ingimar Sveinbjörnsson, flugstjóri; Jón R. Steindórsson, flugstjóri og Siguröur
Ágústsson, flugvirki. — Á myndina vantar Halldór Sigurjónsson. (Tímamynd—GE.)
Óvíst um björgun
Glófaxa af ísnum
K-JReykjavík, mánudag.
Um klukkan fjögur á sunnu
daginn lenti skíðaflugvélin
Gljáfaxi á Reykjavíkurflugvelli
og innanborðs voru meðal
annarra áhöfnin af Glófaxa
sem yfirgefin hefur verlð norð
ur í Danmarkshavn á Græn
landi, en mjög erfitt og kostn
aðarsamt mun að bjarga þess
arí Doglas DC 3 vél sem um
tuttugu ára skeið hefur þjón-
að íslendingum vel.
Það voru skeggjaðir menn
og vel klæddir, áhöfnin á
Glófaxa sem kom út í blíðuna
á Reykjavíkurflugvelli og voru
þegar umkringdir frétta-
mönnum frá blöðum, útvarpi
og sjónvarpi. Konur og börn
urðu að láta sér nægja að
bíða álengdar á meðan frétta
menn spurðu áhöfnina sem var
teppt í nyrstu byggð Græn-
lands í 10 daga.
Jóhann Erlendsson var flug-
virki í þessari sögulegu fcrð
Glófaxa — kannski þeirri síð
ustu — og náði Tíminn tali
af honum.
— Við vorum að aka flug-
vélinni að farangrinum sem
við áttum að taka í Danmarks
havn þegar óhappið heníi.
Misfellur voru á ísnum, sem
skafið hafði í og því erfilt að
átta sig á þeim. Rakst /instra
skíðið í eina misfelluna, með
Framhald á bls 14.
HjólaútbúnaSurinn sem laskaSist. Vængurinn liggur ofan á hjólinu, og sjá má hvernig skíSiS hefur rek-
ist í misfelluna á isnum og brotnaS. (Ljósm. Jóhann Erlendsson).