Tíminn - 19.03.1967, Blaðsíða 10
TÍMINN
SUNNUDAGUR 19. marz 1967
K%.
■J#"
4
4
Siglið til móts
við sumarið
Nú er tækifærið til að láta óskadrauminn rætast og sigla
með stóru og glæsilegu skemmtiferðaskipi til stórborga
Norður-Evrópu á yndislegum og blómríkum árstíma þeg-
ar veður er hlýtt en ekki of heitt.
Farkosturinn er þýzka skemmtiferðaskipið Fritz Heckert
á níunda þúsund smálestir að ^kerð, þar sem 190 manna
áhöfn veitir 350 manns fullkœmna þjónustu. Á hverju
kvöldi eru fjölbreyttar skemmtanir. f skipinu eru öll
þægindi nýtízku skemmtiferðaskipa, danssalir, hljómsveit-
ir margir barir, verzlanir með tollfrjálsan varnig, margar
setustofur, spilastofur og bókasafn, tvær sundlaugar, hár-
greiðslustofa og margt fleira.
15 daga skemmj-isigling méð Fritz Heckert.
18. apríl — 2. maí, verð frá kr. 11.800,00.
Bergen—Osló—Kaupmannahöfn—Amsterdam—London.
Stanzað 1—3 daga í hverri borg. Skipið sem hótel fyrir
gestina á viðbomustöðunum. Fjölbreyttar skemmtanir
um borð. Lengsta sigling án viðkomu London—Reykja-
vík aðeins 68 klst.
Siglt út — flogið heim
2__14. maí 12 dagar, verð frá kr. 8.400,00.
Gautaborg—Kaupmannahöfn—(Hamborg).
»Siglt út til Svíþjóðar með Frifz Heckert.
utanlandsferð, sem veitir ótal tækifæri.
þæginda og skemmtunar um borð í lúxusskemmtiferða-
skipi, eyðið glöðum vordögum í Kaupmannahöfn og
Hamborg og fáið fljóta og þægilega flugferð heim.
Stutt ódýr
Þér njótið
2__16. maí — 14 dagar. Verð frá kr. 8.800,00.
Gautaborg—Kaupmannahöfn—Ilamborg—Amsterdam.
f þessari ódýru ferð gefst tækifæri til að sigla til út-
landa með glæsilegu skemmtiferðaskipi og njóta lífsins
þar um borð. Aka skemmtilegar leiðir milli stórborg-
anna, þar sem dvalið er nokkra daga. Þetta er róleg og
fjölbreytt ferð. Þér njótið glaðværðar Kaupmanna-
hafnar ævintýra, Hamborgar, blómaskrúðsins í Hollandi
og getið gert hagkvæm inr.kaup í Amsterdam og fengið
að lokum þægilega flugferð heim þaðan.
2__25. maí, 23 dagar. Verð kr. 14.200,00.
Gautaborg—Kaupmannahöfn—Hamborg—Rínarlönd—
París—Amsterdam.
Þessi sérlega ódýra ferð býður upp á fjölbreytta ferða-
möguleika. Þið siglið nokkra dýrðlega daga með glæsi-
legu skemmtiferðaskipi il Svíþjóðar. Akið um mörg
fegurstu héruð Evrópu og gistið ýmsar eftirsóttustu
stórborgir álfunnar, án þes? að flýta ykkur um of, og
njótið dýrðlegra daga ;i: giaðværum og sögufrægum
Rínarbyggðum, auk Parísar
Páskaferðin til Portúgal.
Nú eru síðustu forvöð að tilkynna þátttöku í hinni ódýru
14 daga páskaferð okkar til Portúgal og London. Flogið
með íslenzkri flugvél beint til Lissabon á skírdagsmorg-
un, og flvalið 10 daga í hinni heimsfrægu skemmtana-
og baðstrandarborg Estoril, við Lissabon. Þar hefir hit-
inn komizt upp í 24 stig að undanförnu. Þrír dagar í
London á heimleiðinni.
Páskaferðin til Mallorca, Kanaríeyja og London
Vegna forfalla losnuðu í gær tvö sæt í þessa vinsælu
ferð. Flogið er næsta miðvikudagskvöld beint til Mall-
orca. *
Ferðaskrifstofan SUNNA
Bankastræti 7. Símar: 16400 og 12070
Árnað heiila
70 ára verður í dag Stefán Stef-
ánsson Vík í Mýrdal. Hann dvelur
í dag á Holtsgötu 30, Ytri-Njarð-
vík.
PRESSUBALL
Framhald af bls. 24
félaginu beztu árnaðaróskir
frá forsetanum, er hann bauð
alla viðstadda vglkomna með
fáum en velvöldum orðum.
Þá var matur framreiddur.
Fyrst var fram borinn humar í
skel, þá kom uxahalasúpa, með
viðeigandi svínamörbráð og að
lokum báru þjónar fram ís, en
höfðu áður farið blysför um
rökkvaðan salinn. Heiðursgest
urinn Edward Heath hélt ræðu
undir borðum, og var hnyttinn
vel og mælskur. Var máli
heiðursgestsins mjög vel tekið,
on hann kryddaði kafla
ræðunnar með skemmtilegheit
um. Bjarni Guðmundsson blaða
fulltrúi var veizlustjóri. Fjórtán
Fóstbræður skemmtu gestum
með söng við góðar undirtektir
að venju, en síðar tróð Ómar
Ragnarsson upp með frumsam
ið efni, sérstaklega ætlað þessu
kvöldi, og var það mál manna
að sjaldan eða aldrei hafi Óm-
ar staðið sig betur. Hann
tvinnaði saman gamanyrðum á
íslenzku og ensku, svo allir við
staddir gætu notið þo.ss vel j
sem fram fór.
Að lokum var svo
MINNING
Ingimar M.
F. 5.7. 1904. — D. 14.2. 1967
Kveðja frá ástvinum.
Nú er brugðið birtu
burt er vinur farinn.
Geymir margar myndir
minninganna arinn.
Eins og leiftur logi
lífið framlhjá streymir.
Þótt að dagur dvíni
Drottinn engum gleymir.
Þegar sorgin sára
svellur innst í barmi.
Þá er trúartraustið
tryggt, að létta harmi.
Margt er þér að þakka,
það ei túlkað getum.
Þó til æfienda-
elskum þig og metum.
Vinur: Guð þig geymi.
Góður faðir varstu,
fórn og fyrinhyggju
fram til gjafa barstu.
Sár var sjúkdómsþrautin
sem þú líða máttir.
Þrek í reynslu og raunum
ríkan mæli áttir.
Kveðjustund er komin
hvílurúmi yfir.
Er það örugg vissa
andinn glaður lifir.
Vertu sæll að sinni,
sigri fagna eigum.
Öll í eilífðinni
aftur hittast megum.
F.K.
dans fram eftir nóttu, með j
takast ætti að sinna síauknum
verkefnum, er hlóðust á bankann.
Hinn nýi afgreiðslusalur, sem
nú er tekinn í notkun, tekur yfir
svo til alla fyrstu hæð hinnar
nýju byggingar, sem er um 250
ferm. að flatarmáli. Efri hæðir
eru um 350 ferm. hver, nema
u.sta hæðin, sem er nokkru uúnni.
Öll myndar byggingin, bæði
eldri og nýrri hluti, eina heild að
tliti og innra skipulagi.
Á fyrstu hæð hússins eru af-
greiðslusalir. í eldri sal munu eft
irleiðis fara fram allar almennar
afgreiðslur, er lúta að viðskiptum
við útlönd, en í nýrri sal allar inn
lendar afgreiðslur, svo sem spari-
jsjóðs- og hlaupareikningsviðskipti,
stiginn ; víxlar og verðbréfavarzla.
annarri hæð hússins fer
undirleik og söng Ragnars £ram hluti af starfsemi útibúsins
Bjarnasonar og félaga.
LANDSBANKINN
Framhald af bls. 24
baníkaþjónustu i pessum
borgarinnar.
Með stækkun Austurbæjarútibús
var ráð fyrir því gert, að létta
myndi til muna á störfum aðal-
bankans og auka mætti þjónustu
við viðskiptamenn. Jafnframt var
ákveðið að gera útibúið þannig
úr garði, að það veitti alhliða
bankaþjónustu og gæti tekið við
nýjum verkefnum.
Sú varð og raunin á, enda jókst
starfsemi útibúsins það ört, að
eftir nokkur ár voru húsalcvnni
afgreiðslunnar þar orðin of lítil
og þvi sýnt, að ekki yrði hjá því
komizt, að auka húsakynnin, ef
sjálfs auk bókhalds fyrir önnur
! útibú bankans í Reykjavík og ná-
igrenni. Þar er ennfremur aðsetur
i aðstoðarbankastjóra, útibússtjóra
TIL SÖLU
íbúð við Kleppsveg, 4ra herb.
— Félagsmenn, sem vilja nota
forkaupsrétt að íbúðinni, snúi
ser til skrifstofunnar. Hevrfis-
götn 39, fyrir 24. marz n.k.
K.S.S.R. ;
hluta og skipulagsstjóra Landsbankans.
Veðdeild Landsbanikans er á
þriðju hæð. Þar er og Rafreikni-
deild bankans í þann veginn að
h«fja starf sitt.
Á þriðju hæð er gjaldeyrisdeild
bankanna og Atvinnujöfnunarsjóð-
ur. Auk þess eru þar sem leigj-
endur, Húsnæðismálastofnun rík-
isins, sem hefur um 350 fermatra.
Á fimmtu hæð hússins er eld-
hús, matsalur og setustofa. Félag
starfsmanna Landsbankans mun
fá þar aðsetur.
í kjallara hússins eru öflugar
peninga- og verðbréfageymslur og
geymsluhólf.
Byggingu þessa að Laugavegi 77
og innréttingar hefur Skarphéðinn
Jóhannsson arkitekt teiknað.
í hinum nýja afgreiðslusal hefur
verið komið fyrir málverki eftir
Jón Engilberts listmálara.
Umsjónarmaður með síðari hluta
verksins hefur verið Jón Berg-
steinsson, múrarameistari, en Sig
urbjörn Sigtryggsson hefur haft
með höndum stjórn framkvæmda
af hálfu bankans.
Útibússtj óri Austurbæjarútibús
er Jóhann Ágústsson, skrifstofu
stjóri Þorkell Magnússon og yfir
gjaldkeri Sigurður Eiríksson.
SKÁKÞINO
KÚPAVOGS
Á skákþingi Kópavogs hafa verið
tefldar 6 umferðir. Þrír keppend
ur, Guðmundur Þórðarson, Björn
Sigurjónsson og Þorkell Guð-
mundsson eru efstir og jafnir
með 5 vinninga hver.
Einnig er teflt í unglingaflokki
og eru þeir Róbert Eyjólfsson og
Helgi Sigurðsson efstir með 6V2
vinning hvor.
7.—8. umferð verður tefld á
þriðjudagskvöldið og hefst fyrri
umferð kl. 20,00.
Teflt er í Gagnfræðaskólanum
við Digranesveg.
TAKA BÁTA
Á LEIGU
HS-Stokkseyri, laugardag.
Allir Stokkseyrarbátar eru nú
ósjófærir og ^lítur illa út með
vetrarvertíð. Ákveðið hefur verið
að taka tvo báta á leigu, annan
frá Þingeyri og hinn frá Hafnar-
firði.
Tveir af fjórum bátum Stokks-
eyringa eru ónýtir og tveir þurfa
að fara í viðgerð eftir brimrótið
í fyrrinótt.
COLFTEPPI
WILTON
TEPPADREGLAP
■ M f ly
Dhl A ífl TEPPALACNIR
Ul U2il EFTIR MÁLI
Laugavegi 31 - Simi 11822.