Tíminn - 07.04.1967, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 7. apríl 1967
TÍMINN
í SPEGLITIMANS
Bobby Kennedy yngri, sem
er 13 ára gamall og næstelzti
sonur Roiberts Kennedys er
ásamt Midhael bróður sínum,
sem er 8 ára að skrifa bók
um grimmd mannanna við dýr
in. Bókin á að heita „Slátrun
in mikla".
Japanska ríkið gerir ýmislegt
til þess að fá Japani til þess
að ferðast með járnbrautalest-
um. Nú hefur verið komið á fót
svokallaðri hveitibrauðshrað-
lest, sem fer á milli Kyoto til
hins vinsæla baðstaðar Beppu.
Er þessi lest útbúin öllum þæg
indum og allt gert til þess að
þóknast brúðhjónum, sem með
henni fara. Er þetta uppátaeki
þegar orðið mjög vinsælt og
upppantað marga mánuði fyrir
fram.
Það slys varð á fjöileikasýn-
ingu í Syracuse í New York
fylki fyrir nokkrum dögum, að
rifilskot lenti í auga ungrar
konu, sem var aðstoðankona
eiginmanns sins í skotsýning-
aratriði. 'betta eru þekktir
skemmtikraftar á sínu sviði,
kallaðir „The Great Gaudhos,"
og voru hundruð áhorfenda
vitni að afiburðinum, þegar
hinn 58 ára gamli Fredrick
Gray hleypti af riffli sínum en
■jc geigaði illilega með fyrrgreind
- um afleiðingum. Kona hans,
Elaine, sem er 31 árs að aldri,
var þegar flutt á sjúkrahús í
Syracuse mjög hættulega særð.
Á myndinni til vinstri sj'ást
hjónin á æifingu og var hún
tekin fyxr sama dag og slysið
varð, en á myndiimi til hægri
er hjúknunarmaður með hina
særðu konu á börum á leið tii
sjúkrahússins.
Brezka flugfélagið, British
European Airways, hefur kom
izt að þeirri niðurstöðu, að
flugfreyjum þess hafi gengið
í búningum sínum allt of lengi.
Þess vegna hefur það farið þess
á leit við Hardy Aimes, tisku
teiknara Elísabetar drottningar
að gera tillögur að nýjum bún
ingi. Núverandi búningur BEA
hefur verið í notkun síðan 1960
og hinar 1500 flugfreyjur fé-
lagsins hafa hug á að sjá eitt-
hvað nýtt. Hinn nýi búningur
verður tekin í notkun á næsta
ári. Félgaið hefur spurzt fyrir
meðal flugfreyjanna til að fá
hugmyndir að útliti búningsins
og þá kom í ljós, að flestum
stúlkunum fannst að pilsins,
sem nú eru í noktun væru of
síð.
Nú á að fara að gera kvik-
mynd um ævi frönsku söng-
konunnar frægu Edith Piaf og
á,myndin að heita Life with
no End. Verður kvikmyndin
tekin á Ítalíu og hefur eigin-
maður Edith, Theo Sarapo, sem
var tuttugu árum yngri en
hún, verið á Ítalíu og valið
þar fólk til þess að leika í
kvikmyndinni. Aðalleikendurn-
ir tveir verða ítalskir og eru
það hvort tveggja óþekktir leik
arar. Marias Solinas á að leika
Edith o'i' Armando Stula leik-
ur Theo. Þykir það undravert
hve Armando og Theo eru
líkir hvor öðrum í sjón.
Gina Lollobrigida var við-
stödd frumsýninguna á Shakes-
pearebvikmynd þeirra Richards
Burton og Elizabeth Taylor í
London. Kom hún til sýning-
arinnar í vernd tveggja iög-
regluþjóna og þótti það nokkr-
um tíðindum sæta að hún
skyldi þurfa lögregluvemd.
Oharlie CJhaplin er ekki á
því að gefast upp þótt hann
hafi ekki fengið góða dóma fyr-
ir síðustu kvikmynd sína,
Greifafrúin í Hongkong. Hefur
hann sagt, að hann ætli að gera
nýja mynd í Englandi og skrifa
sjólfur handritið að henni, en
hann hefur fram að þessu neit-
að að segja frá því um hvað
myndin fjallar.
Brezka dægurlagasöngkonan
Sandie Shaw, hefur bland-
azt inn í hjónaskilnaðarmál í
London. Var hún skelfingu lost
in, þegar hún var kölluð fyrir
rétt í London fyrir skemmstu
vegna hjónaskilnaðar sjónvarps
starfsmannsins Duncan Mur-
doch. Sagðist hún hafa haldið
alit væri gleymt og grafið, þar
sem hún hafi ekki séð mann-
inn í tvö ár. Höfðu þau kynnzt
þegar hún var 17 ára og hún
ekki vitað að hann væri gift-
ur, en nú væri allur hennar á-
hugi á manninum horfinn.
Víst er það spennandi að
vera brúðarmær! Maður fær
fínan kjól, blóm í hárið hvíta
hanzka og fleira. En sennilega
kemur að því augnabliki að
brúðarmærin verður ósköp
srfjuð og þá er stundum erfitt
að leyna geyspa-num. Hér sjá-
um við Nicola, sem var brúð-
armær ensku dansmærinnar
Fortine Ohimus og hún virð-
ist ekki hafa getað leynt geysp-
anum.
Á VÍÐAVANGI
Velur sér hlutverk
Það er ekki „hugmyndalaus
ieiðarahöfundur" sem skrifar
pistla' Austra i Þjóðviljann.
Hann hefur nú valið sér hlut-
verk við leikarahæfi sitt eftir
kosningar, enda mur hann nú
íelja, að hann megi djarft úr
flokki tala, þar sem skipað
hafi verið í aðalhlutverk. Hann
segir í gær:
„Fái Alþýðubandalagið þá
tylgisaukningu, sem það verð-
skuidai, munu Bjarni Bene-
diktsson og Eysteinn Jónsson
keppast um það, hvor fyrri
verði til að bregða sér í biðils-
buxurnar og berja upp á hjá
Alþýðubandalaginu. Hins vegar
verða það málefni, sem skera
úr um það, hvorum eljaranna
kann að vegna betur".
Austri þykist því báðum fót-
um í pilsum standa og eiga
uægra kosta völ — eftir kosn-
ingar — og hugsar gott til
glóðarinnar — að geta valið
úr „eljurum", og koma allir
tii greina. Og um eftirspurnina
efast Austri ekki. Nú leikur
lífið við hann, og hann er ekki
í vafa um í hverju gervi hann
á að vera, þegar „eljararnir“
þvrpast að.
Orsökin: Almennur
húsnæðisskortur.
Það vekur nokkra athygli
manna, að þessa dagana, þegar
allir tala um íbúðaverðið eftir
upplýsingar Vísis um hinar
sérlega ódýru íbúðir Bygginga
féiags verkamanna og sjó-
manna, stritar Moggi við að
þegja sem fastast. Þessu máli
vill hann aiis ekki hreyfa, þó
að öll önnur blöð ræði málið.
Bitur sök sekan?
Vísir ræðir við fasteignasala
í gær og leitar skýringa á hinu
háa íbúðaverði á markaði. Þar
segir:
„Einn fasieignasalinn taldi
íbúðaverðið allt of hátt miðað
við raunverulega getu manna.
Fólk, sem er að kaupa íbúðir í
fyrsta sinn, verður að leggja
mjög hart að sér. Menn leggja
sig alla fran og verða að fá
aðsioð ættingja og vina. Þetta
er óeðlilegt, *sagði hann. Hann
var þeirrar skoðunar, að hið
háa íbúðaverð ætti rætur sínar
að rekja til almenns skorts á
húsnæði. Einn taldi, að fast-
eignasalar gætu mjög oft haft
það í hendi sér, hvort íbúð yrði
100 þús. kr. dýrari eða ódýr-
ari“ o.s.frv.
Fasteignasalar, sem hnútum
eru kunnugir, vita því vel —
og segja það meira að segja
f Vísi — að meginovsök upp-
sprengiverðsins á íb V'um og
nýbyggingum er einmitt sú, að
ríkisstjórn og borgarstjórn
lækkuðu íbúðabyggingar úr
810 að meðaltali á ári á vinstri
stjórnarárunum niður i 630
íbúðir á „viðreisnar“-árunum
1960—’66 og bjuggu þannig til
íbúðaskort me« því að láta
vanta a.m.>.. 300 íbúðir á ári
til þess að þörfin um húsnæðis
viðbót væri fullnægt.
267 nauðunaaruppboð
Vmsir voru að velta því fyrir
sér fyrir þremur dögum, hver
væii orsök þess, að Morgun-
blaðið sá ástæðu til þess að
birti upphafinn leiðara um það,
hve einstaklingar og fyrirtæki
væru vel á végi stödd eftir
ágætisstjórn „viðreisnar“ í sjö
Framhald á bls. 11.
I