Tíminn - 22.04.1967, Blaðsíða 7
7
LAUGARDAGUR 22. apríl 1967.
TÍMINN
Hið glæsilega þinghús í Helsinki.
Norðurlandaráð eyddi tíma sín
um um of til að ræða ýmis
aukaatriði og formsatriði, sem
emibættismenn stjórnanna ættu
að geta leyst á fundum sínum.
f staðinn ættu þingfulltrúamir,
stjórnmálamennirnir, að snúa
sér að því að ræða stærstu mál
in, sem hugsanlegt væri að ná
samvinnu um á milli landanna.
Auk þessa létu fulltrúar ein-
stakra landa í ljósi álit sitt á
vandamálinu, sem upp hafði
komið á fundi Norðurlandaráðs
varðandi Færeyjar, og lét ég í
Ijósi, að þar vildu íslendingar
ákveðið standa með Færeying
um og Dönum. Auk þess drap
ég sérstaklega á nauðsyn þess
fyrir okkur fslendinga að nor-
ræn samvinna um sjónvarpsmál
ykist. Daginn eftir kom svo
grein í Huvudstadsbladet með
mynd af þremur yngri mann
anna á þessum fundi, og voru
þar ýmis ummæli okkar til-
færð.
Traustvekjandi þjóð
í hópi Norðurlandaþjóða hafa
Finnar talsverða sérstöðu, eink
um vegna tungumálsins, en
íinnskan er gjörsamlega óskyld
öðrum tungumálum sem við
þekkjum, eins og kunnugt er,
og Finnum reynist mjög erfitt
að læra germönsk mál. Raunar
segja þeir, að séu þeir búnir að
læra t. d. sænsku, sé sáralítill
vandi að læra ensku og þýzlcu
til viðbótar, því að þau mál
séu svo lík. Mikil stéttaskipt
i.ng er i Finnlandi, líklega meiri
en á nokkru hinna Norður-
landanna og allavega miklu
meiri en hér, og lægri stéttir,
t. d. leigubílstjórar og þjónar,
hafa yfirleitt ekki fengið neina
teljandi menntun í öðrum mál
Riistjóri:
Björn Teitsson
um. Táknrænt dæmi um mála
kunnáttu Finna er forsætisráð
herrann, Rafael Paasio, sem að-
eins getur talað finnsku, enda
tók hann aldrei til máls á fund
unum. Sænskumælandi Finnum
fækkar stöðugt hlutfallslega og
eru nú ekki meira en 7% þjóðar
innar.
Finnar eru að ýmsu leyti líkir
fsiendingum, fremur þungir
við fyrstu kynni, en síðan mjög
tyaustir. Þeir taka mjög vel á
móti íslendingum og vita mikið
um ísland, enda teija þeir sig
lrafa um margt líka aðstöðu
gagnvart Rússum og fslending
ar hafi gagnvart Bandaríkja-
mönnum. Yfirleitt eru Finnar
því hinir beztu heim að sækja,
og á norrænni samvinnu hafa
þeir hinn mesta áhuga, ' tala
jafnvel um að stofna eigi eitt
sa.Tibandsríki úr Norðurlöndun
um, þótt slíkar raddir heyrist
kannski ekki opinberlega.
Beízkjan er aS hverfa
Frá samtökum ungra mið-
flnitksmanna í Finnlandi, en sá
flokkur þar er að mörgu leyti
sambærilegur við Framsóknar-
tiokkinn, sat umrætt seminar
Erkki Himanen, sem er fonmað
ur samtaka ungra miðflokks-
manna í Nyiandshéraði, en það
er Helsinki og umhverfi borg-
annnar. Hann er ættaðúr frá
stab um 100 km. norður af borg
inni. Hann tók því vel að svara
ráeinum spurningum varðandi
iand sitt og þjóð, og ekki sízt
sinn eigin flokk, tii fróðleiks
fyrir lesendur Tímans.
— Gætir ekki enn beizkj-
unar frá borgarastyrjöldinni
1917—18 hér í Finnlandi?
— Þessi styrjöld var auðvit-
að grimmileg og fólk hennar
lengi minnugt, eins og yfirleitt
á vib um borgarastyrjaldir. Þið
sáuð nú hér í Svenska Teater
í Helsinki leikritið eftir sögu
Váinö Linna, Upp tralar
(* Áfram, kúgaða stétt), og
þar eru ógnir styrjaldarinnar
ailvel dregnar fram, þó að leik-
;-itið sé tvímælalaust mun betra
í hínni upphaflegu finnsku gerð
en 1 sænsku þýðingunni. Óhætt
ætti að vera að segja, að Finn-
ar séu nú farnir að gera sér
hh'tlægari hugmyndir um eðli
þessarar styrjaldar en á^ir var,
er skemmra var liðið frá henni.
Sagnfræðingar okkar hafa auð-
vitað mikii rannsóknarefni á
pessu sviði, og þeir eru að
vinna úr þeim. Fimmtíu ára
sjálfstæðisafmælis okkar er
minnzt á þessu ári, og verða
hátíðahöld um land allt. Rétt
er að benda á, að varðandi
styrjöldina 1917—18 eru enn
skiptar skoðanir að því leyti
m.a., að vinstri menn kalla hana
borgarastyrjöld, en hægri menn
tala um frelsisstríð. Þrátt fyrir
þetta er þó beizkjan vegna þess
ara atburða mjög að hverfa
einmitt nú, og varðar það auð-
rítað mestu.
— Svo að vikið sé að öðru,
hvað viltu segja um kjaramál
almennt í Finnlandi?
— Nú er 40 tíma vinnuvika
að komast á. Venjulegt verka-
mannakaup er um þrjú mörk
a klst. (eitt mark = kr. 13,42),
en i.d. hér ' Helsinki er mikið
um yfirborganir. Bændur hafa
þó lægri laun og einnig t.d.
þeir sem vinna við skógarhögg.
Mikið atvinnuleysi
— Mér skilst, að víða sé
mikið atvinnuleysi, þegar norð
ar dregur?
— Á veturna er nú staðbund-
ið atvinnuieysi í Austur- og
Norður-Finnlandi. Gallinn er sá
að okkur vantar mjög faglærða
menn og alls konar sérfræð-
inga, en stöðugt er unnið að
úrbótum á þessu sviði, og ég
hef trú á því, að eftir 5—10
ár verði atvinnuleysið úr sög-
unni og gæti jafnvel búizt við,
að þá myndi vanta menn á
sumum sviðum.
— Hvert fara atvinnuleys-
ingjarnir?
— Þeir fara mjög margir
til Svíþjóðar, og er þar raunar
um nokkurt vandamál að ræða,
m.a. vegna málsins. Á það hefur
verið bent, að undir lok ára-
tugsins eða um 1970 kunni Finn
a-- : Svíþjóð að verða upp undir
hálf milljón, eða svo segði Uusi
Suomi nú í yikunni (Uusi
Suomi er eitt stærsta dagblaðið
1 Helsinki, fremur hægri sinn-
að) Ég held samt, segir Erkki
Himanen, að þetta hafi verið of
djöpt tekið í árinni en nú eru
100—200 þúsund finnskumæi-
andi manna 1 Svíþjóð, og Finn-
ar telja, ao úr því að Svíar
taka við þessu fólki, eigi þeir
að sjá börnunum fyrir finnsku
mæiandi skólum. Svo mun ekki
hafc verið gert í teljandi mæli
til þessa, en hlýtur auðvitað að
verða nauösynlegt á næstunni.
Til samanburðar má geta þess,
að í Finnlandi eru ca. 360 þús.
manns sænskumælandi, og þeir
hafa að sjálfsögðu sænskumæl
andi skóla.
Flekkurinn skipti um nafn
— Hvað er langt síðan
Bændaflokkurinn hér í Finn-
Jandi skipti um nafn?
— Miðflokkurinn, sem ég til-
hejrri, hét Bændaflokkur þar
til fyrir tveimur árum. Sukse-
laiuen, sem þá var flokksformað
ur og hefur tvisvar verið for-
sætisráðherra, var á móti nafn
breytingunn,, og er nú formað-
ur þ-ingflokksins, en Virolainen
tók við ílokksformennskunni.
Hann hefur oft verið ráðherra,
t.d. var hann forsætisráðherra
sFramhald a bls. 12
Sókn og sigrar
SA'GA FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Ég undlrritaður óska eftir að gerast kaupandi að
SÓKN OG SIGRUM, sógu Framsóknarflokksins,
fyrra Oindi. Verð kr. 500,00.
NAFN
x ' •L .................
HEIMILI ..........................
Sendist til Skrifstofu F*amsóknarflokksins,
Hringbraut 30, Reykjavik.
LÖGTAKSÚRSKURDUR
Samkvæmt ósk bæjaivitarans í Kópavogi, úr-
skurðast hér með lögtak fyrir ógreiddum fyrir-
framgreiðslum útsvara 1967, til Bæjarsjóðs Kópa-
vogs, sem fallin eru 1 gjaiddaga samkvæmt 47. gr.
iaga nr. 51 ’64. Fari lögtök fram að 8 dögum
liðnum frá birtingu þessa úrskurðar.
Bæjarfógetinn i Kópavogi, 10. apríl 1967.
FERMINGARSKEYTI
SUMARSTARFSINS
Hin íallegu litprentuCo fermingarskeyti Sumar-
búðanna í Vatnaskógi og' Vindáshlíð, fást á morgun
á eftirtöldum stöðum, milii kl. 10 og 12 og 1—5:
Amtmannsstíg 2 b, — Melaskólanum, — Drafnar-
borg, — ísaksskólanum — Kirkjuteigi 33, — Fé-
lagsheimilinu við Holtaveg, — Langagerði 1. —
Upplýsingar í símum 17536 og 23310.
VATNASKÓGUR — VINDÁSHLÍÐ,
Kjorskra
til alþingiskosninga í Reykjavík, sem fram eiga
að fara 11. júní 1967, liggur frammi almenningi
til sýnis í Manntalsskrifstofunni, Pósthússtræti 9,
5. hæð, aila virka daga frá 25. apríl til 20. maí
n.k. frá kl. 9—17, nem-« iaugardaga frá kl. 9—12.
Kærur yfir kjörskránní skulu komnar til skrif-
stofu borgarstjóra eigi síðar en 20. maí n.k.
21. aprli 1967.
BORGARSTJÓRiNN í RÉYKJAVÍK
TRÉSMIÐUR ÚSKAST
til vinnu í sumar. Upplýsingar í síma 34383.