Alþýðublaðið - 22.08.1984, Blaðsíða 20

Alþýðublaðið - 22.08.1984, Blaðsíða 20
20 Miðvikudagur 22. ágúst 1984 Einstaklingar/lndividuals Annaö/Others Opinberir aóilar/Public institutions Sjávarútvegur/Fisheries and Processing 41% lónaóur/lndustry % 12% Verslun/Commerce 4J3 12% ¥ 10% Landbúnaóur/Agriculture Á meðfylgjandi töflu má sjá skiptingu útlána í stœrsta bankanum, Landsbankanum. Einstaklingar fá 11% í sinn hlut af heildarútlánum. banki, Alþýðubanki, Samvinnu- banki. Allar þessar bankastofnanir hafa síðan mismunandi fjölda úti- búa um allt land. Þess utan er til staðar álitlegur fjöldi sparisjóða víðs vegar um landið. Þeir stærstu í þeirra hópi, eru Sparisjóðurinn í Keflavík, Sparisjóðurinn í Hafnar- firði, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis og Sparisjóður vélstjóra. Það er því alveg ljóst að nægilega eru bankastofnanir i landinu marg- ar til að tryggja megi eðlilega sam- keppni þeirra á milli — samkeppni um fjármagnið. Hinu verður þó að fylgjast vel með að samtryggingin ráði ekki ríkjum þar sem vaxtafrels- ið er annars vegar. Svo er það spurningin hvort stofnanir af þessu tagi séu ekki óþarflega margar hér á landi miðað við íbúafjölda — hvort ekki sé verið að gera einföld mál flókin með of miklum fjölda pen- ingastofnana. Það er hins vegar önnur saga, sem ekki verður farið út í á þessum vettvangi. Til glöggvunar verður hér farið nokkrum orðum um vaxtaákvörð- un einstakra banka. Landsbankinn í Landsbankanum eru vextir af þriggja mánaða sparireikningum 19%; það þýðir árs ávöxtun upp á 19,9%. Svokölluð Landsbanka- skírteini bera hæstu innlánsvexti í bankanum, 24,3% miðað við heilt ár. Venjulegar sparisjóðsbækur bera 17% vexti, en verðtryggðir sparireikningar með þriggja mán- aða bindingu bera 4% vexti um- fram verðbólgu og 6,5% ef reikn- ingarnir eru bundnir til sex mán- aða. Vextir af ávísana- og hlaupa- reikningum eru 9%. Hvað útlánin varðar, þá eru for- vextir af víxlum í Landsbankanum 24,86% á ári, vextir almennra skuldabréfalána eru 24%, sem þýð- ir ársvexti upp á 25,44%. Verð- tryggð lán miðuð við lánskjaravísi- tölu hafa 7% vexti, en þeir vextir hækka upp í 9% ef lánað er til lengri tíma en 2 og /2 ár. Verslunarbankinn í Verslunarbankanum eru vextir af almennum sparisjóðsbókum 17% eins og raunar í öllum banka- Aukið frelsi viðskiptabankanna til vaxtaákvarðana liefur leitt til þess, að bæði innláns- og útláns- vextir eru allnokkuð mismunandi eftir lánaflokk og einstökum pen- ingastofnunum. Bankarnir hafa flestir hverjir auglýst rækilega þá vexti er þeir bjóða upp á og i þessu tölublaði Alþýðublaðsins má sjá til- kynningar þess efnis frá, Búnaðar- bankanum, Alþýðubankanum, Iðnaðarbankanum og Landsbank- anum. Nauðsynlegt er að lántak- endur og sparifjáreigendur geri sér glögga grein fyrir stöðu þessara mála: það hefur orðið veruleg breyting á þessum málum síðustu misseri, eða frá því að vextir voru þeir sömu í öllu bankakerfinu og það lá tiltölulega Ijóst fyrir hvernig sparifjáreigendur gætu best ávaxt- að sitt pund. Hér á eftir verður farið nokkrum orðum um þessa nýskipan vaxta- mála og nokkrir fróðleiksmolar um skipan mála hjá einstökum pen- ingastofnunum látnir fljóta með. Ýmsir hafa spáð því að ekki líði að löngu þar til ákveðin samræming komist á innan bankakerfisins þrátt fyrir frelsi einstakra stofnana til ákvarðana, þannig að bankarnir laðist hver að öðrum í sínum vaxta- ákvörðunum og ekki verði teljandi munur þar á. Vel má það vera, en engu að síður hefur vaxtafrelsið þau áhrif, að viðskiptavinir bank- anna verða í ríkari mæli en fyrr að fylgjast með hræringum í þessum efnum. Breytingar á vöxtum geta orðið fyrirvaralítið og kúnnarnir verða því að bregðast snöggt við breyttum aðstæðum, ef þeir ætla að njóta þeirra bestu kjara sem boðið er hverju sinni. Fyrirséð er að', samkeppni milli bankanna mun aukast til muna með tilkomu vaxtafrelsisins. Þó er vert að geta þess, að frelsið er þeim takmörkunum háð, að Seðlabank- inn hefur stöðvunarvald í þessum efnum. Hann þarf að gefa grænt ljós á vaxtaákvarðanir einstakra bankastofnana. Þessu neitunar- valdi beitti Seðlabankinn ekki í neinu tilfelli við þær ákvarðanir sem bankarnir tóku um og eftir síð- ustu helgi. Samkeppni Samkeppni um sparifé lands- manna hefur aukist hjá bönkum og sparisjóðum. Eins og kunnugt er voru innlánsvextir á ákveðnum nýj- um innlánsformum hækkaðir all- verulega fyrir nokkrum mánuðum. Þá reið Landsbankinn á vaðið, en aðrir bankar fylgdu á eftir og buðu samsvarandi kjör fyrir,sparifjáreig- endur. Sennilegt má telja að með tíð og tíma fjölgi þeim sparnaðarform- um sem til staðar eru í bönkum og sparisjóðum og að möguleikar við- skiptavina til sparnaðar verði fleiri. Það verður því aldrei nægilega vel undirstrikað að sparifjáreigendur fylgist náið með þróun þessara mála og þeim möguleikum sem kunna að opnast til betri ávöxtunar sparifjár. Það er hins vegar ekkert laun- ungarmál að vaxtaákvörðun bank- anna hefur leitt til þess að bilið milli innlána- og útlána hefur aukist. Út- lánsvextir hækkuðu yfir línuna meira en innlánsvextir. Það er þessi munur sem grundvallar í aðalatfið- um rekstur og afkomu bankastofn- ana. Bankafjöldi I landinu er að finna talsverðan fjölda banka — of marga að ýmissa áliti. Þeir eru: Landsbanki, Útvegs- banki, Iðnaðarbanki, Verslunar'- Nýskipan vaxtamála kallar á aukna athygli lántakenda og sparifjáreigenda

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.