Alþýðublaðið - 22.08.1984, Blaðsíða 23
Miövikudagur 22. ágúst 1984
23
Fanny og
Alexander
Framhald af bls. 11
verk er að ræða. T.d. er Harriet
Andersson ógleymanleg í hlutverki
þjónustustúlku á biskupssetrinu.
Það er einna helst að börnin séu
ekki mjög tilþrifaleg í túlkun sinni,
enda er þeim ekki ætlað að vera það
því myndin Iýsir heimi fullorðinna
einsog börnin upplifa hann.
Hvað kvikmyndatökunni viðvík-
ur þá er hún í höndum Sven Ny-
kvist, og sem við var að búast skilar
hann öruggu og hárnákvæmu
handverki. Búningar og umhverfi
eru stórkostleg. Manni ofbýður
kannski íburðurinn á heimili Ek-
dahlfjölskyldunnar, en þó hann sé
mikill þá er hann aldrei yfirþyrm-
andi. Andstæðan er svo gerilsneytt
umhverfið á biskupssetrinu. Ekki
má heldur gleyma þvi hvernig Berg-
man notar litina. í eldri myndum
sínum hafði hann meistaraleg tök á
svart/hvítu ræmunni og voru fáir
jafnokar hans í samspili ljóss og
skugga. í Fanny og Alexander sýnir
hann að hann er líka meistari lit-
anna.
Það er endalaust hægt að grafa
sig ofan í þessa síðustu kvikmynd
Bergmans og rekast þar á ný og
gömul sannindi. Þetta er kvikmynd
um hinar miklu andstæður, gott og
illt, ást og hatur, líf og dauða. En
kannski eru þetta ekki svo miklar
andstæður þegar allt kemur til alls.
Hinir dauðu hverfa ekki og biskup-
inn segir mömmu barnanna, sem þá
er nýorðin kona hans: að hann sé
ekki einsog þau sem hafi margar
grímur, til að bregða upp við mis-
munandi tækifæri, hann sé bara
með eina grímu og hún er samvaxin
holdi hans.
Bergman hefur lýst því yfir að
þetta sé siðasta kvikmynd hans. Ef
svo er hefur hann flutt okkur ótrú-
lega hrífandi svanasöng. Undirrit-
aður rakst þó á grein í sænsku dag-
blaði þar sem sagt var að Bergman
væri alls ekki sestur í helgan stein
og hygðist nú ráðast í kvikmyndun
Sumarferð
Alþýðuflokksfólks
á laugardag
Sumarferð jafnaðarmanna á suðvesturhorni landsins verður nœstkomandi laugardag, 25. ágúst,
eins og sjá má í auglýsingu annars staðar í blaðinu. Ferðast verður um Suðurnesin.
Alþýðublaðið hvetur alla Alþýðuflokksmenn, unga sem aldna, tilþátttöku íferðinni. Upplýsingar
má fá í síma 81866.
Til upprifjunar látum við hér fylgja myndir frá ferðalagi Alþýðuflokksfólks fyrir allmörgum
árum. Þar má sjá mörg kunnugleg andlit.
á einni af sögum Astrid Lindgren.
Ekki fylgdi sögunni hvaða bók
Lindgren það væri. En eigi frétt
þessi við einhver rök að styðjast,
verður það að teljast eðlilegt áfram-
hald hjá Bergman, því í Fanny og
Alexander hefur hann sett sig í spor
barnanna og lýst veröldinni út frá
sjónarhóli þeirra.
Að lokum smá aðfinnsla. Loks-
ins þegar þetta listaverk, sem alls-
staðar hefur hlotið mjög góða að-
sókn, og að söng sýningarstjórans í
Regnboganum, mun betri aðsókn
en þeir þorðu að vonast eftir, er sýnt
hér á landi, hefur kvikmyndahúsið
ekki tímt að láta setja íslenskan
texta við myndina, heldur sýnir
hana með dönskum skýringartexta.
Sáf.
Endurskoða
þarf.....
Framhald af bls. 4
galdrastafinn. Ríkið segir, það
eru svona margir nemendur í
sveitarfélaginu og þeim ber að
skipta í svona margar deildir.
Þessi skipting er gerð á vorin og
alveg án tillits til aldursdreifingar
í sveitarfélaginu hvað þá að horft
sé á hvar í sveitarfélaginu nem-
endurnir búa. Þannig getur í
sumum aldurshópum verið um
að ræða mjög fjölmenna bekki
og aðra fámenna.
Á höfuðborgarsvæðinu er mjög
mikill flutningur á fólki, og oft á
tíðum hefur orðið veruleg fjölg-
un frá vori til hausts og bókstaf-
lega sprengt þann ramma sem
gerður var um vorið. Allt að einu,
ríkið hefur ákveðið þennan
deildarfjölda og mun greiða
samkvæmt því, en ef nauðsyn-
legt reynist að fjölga deildum, þá
kemur allur sá kostnaður á sveit-
arfélagið. Hér getur oft verið um
verulegar fjárhæðir að ræða.
Það er alveg augljóst, af þeim
dæmum sem hér hafa verið tekin,
að mikil þörf er á að endurskoða
alla tekju- og verkaskiptingu ríkis
og sveitarfélaga. Allt samkrull eins
og nú er í þessum málum veldur ein-
ungis ruglingi og leiða sem auðveld-
lega mætt komast hjá með breyttri
skipan. Ég er raunar þeirrar skoð-
unar, að sveitarfélögin ættu að fá
miklu fleiri verkefni alfarið heim í
hérað, en þá verður að sjálfsögðu
að tryggja þeim meiri tekjustofna.
Hvað er til ráða?
Alþýðuflokkurinn hefur um ára-
bil barist fyrir skýrari línum í þess-
um málum og hefur bent á ýmis
atriði sem betur mættu fara, þó eru
það einkum þrjú grundvallaratriði
sem Alþýðuflokksmenn hafa lagt
höfuðáhersluna á:
1. Auka sjálfsforræði sveitarfélaga
og virka valddreifingu á öllum
sviðum.
2. Endurskoða tekjur- og verkefna-
skiptingu ríkis og sveitarfélaga
með það m.a. að markmiði að
færa fleiri verkefni ásamt fjár-
munum og ábyrgð frá ríki til
sveitarfélaga.
3. Aukinn umráðarétt sveitarfélaga
yfir gjaldskrám þjónustustofn-
ana sinna.
Eins og málum er háttað í dag
hafa sveitarfélögin afar takmarkað-
ar heimildir til að ákveða sínar tekj-
ur því ríkisvaldið tekur fyrst sinn
skatt af þegnunum og segir síðan
við sveitarfélögin: Nú megið þið.
■_■_■_
*_■_■!
_■_■_
ii
OTRÚLEGT
en
SATT
stendur til
BOÐA
I IJ
þessarar AUGLÝSINGAR íí
vorulofxjð
SIGTÚNI 3
■ ■
RÍKISSKIP Sírni:28822
BROTTFARARDAGAR
FRÁ REYKJAVÍK:
Alla fimmtudaga austur,
alla þriðjudaga vestur og norður,
annan hvern laugardag vestur og norður.