Alþýðublaðið - 24.10.1985, Qupperneq 11

Alþýðublaðið - 24.10.1985, Qupperneq 11
Fimmtudagur 24. október 1985 11 Bílvangur Opelinn rennur út Kadett að verða uppseldur Hjá Bílvangi sf. hittum við Árna Omar Bentson, sölustjóra nýrra bíla, og inntum hann eftir því helsta frá þeim í bílainnflutningnum. Árni sagði söluna núna í Opel- bifreiðum mjög mikla enda væri verðið mjög hagstætt. Núna væri til dæmis sérstakur afsláttur á Opel- bílunum til þess að rýma fyrir nýrri árgerð, sem væri að koma. Afslátt- urinn gilti til 10. nóvember nk. og vildi Árni koma því á framfæri, að þeir sem væru að huga að nýjum Opel núna, hefðu samband við þá sem fyrst því sumir bílarnir væru að verða uppseldir, t. d. hinn sívinsæli Opel Kadett. Sala á Opel Ascona og Opel Corsa gengi einnig mjög vel, enda væri boðin sérstaklega hagstæð lánakjör á þessum bílum. Árni sagði Opel Kadett núna með vinsælustu bílum i Evrópu og hefðu verksmiðjurnar í Þýskalandi vart undan að framleiða hann. T. d. væri langur biðlisti eftir nýjum Árni Ómar Bentsson sölustjóri á skrifstofu sinni. Kadett á Norðurlöndunum og sjálf- sagt yrði einnig svo hér á Iandi á næsta ári. Opel Rekord væri sívinsæll bíll til leigubílstjóra en undanfarið hefðu vinsældir hans sem einkabíls stór- aukist. Þá væri eftir að nefna flaggskip- ið í Opel-flotanum en það væri „límósínan" Opel Senator. Hann hefði fyrst komið á markaðinn hér á landi í vor og hefðu viðtökurnar hér verið mjög góðar, — en Sena- torinn væri algjör lúxusbill, — í flokki þeirra bestu í Evrópu. T. d. hefði hann komið mjög vel út úr rannsókn bílablaðsins Auto- sport en þar var hann borin saman við Benz, Audi og BMW. Almennt taldi Árni að hin stór- aukna sala hjá Bílvangi væri að þakka mikilli markaðsherferð hjá þeirn til þess að kynna kosti Opel- bifreiðanna fyrir íslendingum og nú streymdu pantanirnar inn hjá þeim, einnig fyrir 1986-árgerðun- um. Bílvangur væri einnig með lsuzu- Troper jeppa og hefði salan einnig farið ört vaxandi á þeim. Það væri nokkur sérstakt að Bílvangur gæti núna afgreitt 1986-árgerðirnar Framh. á bls. 2 Saumaðu ekki að pyngjunni SINGER Enn einu sinni spori framar Hvers vegna að sattma að pyngjunni þegar þú getur verið að sauma á Singer Magic sem er létt og þægileg, ótrúlega einföld í notkun og mun ódýrari en sambærilegar vélar. Singer hefur alltaf verið spori framar og jafnhliða tækninýjungum hafa þeir þróað saumavélar sem auðvelt er að læra á og eru einfaldari í notkun en flestar vélar. E Tæknilegar upplýsingar • Ff jáls armur • Zikk-zakk • Overlock • Rafeinda fótstiq • Blindfaldur • Vötflusaumur • Lárétt spóla •Stunqu-zikk-zakk • Tvöfalt overlock • Sjálfvirk hnappagötun •Styrktarsaumur • Fjöldi nytja oq • Beinn saumur • Teygjusaumur skrautsauma Singer Magic og þú þarft ekki að hafa áhyggjur af saumaskapnum útborgun og greiðsluskilmála — og komumst örugglega að samkomulagi. MIMfl IU ww $ SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 681910-81266

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.