Alþýðublaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 16.08.1986, Blaðsíða 14
14 Skatttekjur sveitaféiaga: Laugardagur 16. ágúst 1986 ■ ■ Meirihluti til grunnskólanna Sveitafélögin á íslandi þurfa aö verja misstórum hluta tekna sinna til aö greiða kostnaö við grunn- skólahald. Eins og í svo mörgum öörum tilvikum er það Reykjavik sem sleppur billegast, en sveita- sjóöir í hinum dreifðari byggðar- lögum úti á landi þurfa oft að reiða af höndum meirihluta allra tekna sinna í þessum tilgangi. Þess cr jafnvel dæmi að þrír fjórðu hlutar af skatttekjum sveitafélags renni til skólahalds- ins. Ofan á þetta bætist að mörg sveitafélög greiða með kennurum til þess aö fá kennara við skóiana. I þessu sambandi er ástæða til að vekja athygli á því að vegna flutninga úr dreifbýli skapast nýr vandi, sem er erfiðleikar við að halda uppi eðlilegri félagslegri þjónustu s.s. skólahaldi-Því meiri sem fluti.ingarnir verða þeim mun óhagstæðari verður aldursskipt- ingin í sveitarfélaginu. ÞAÐ LEIÐIR SÍÐAN oft á tíðum til erfiðleika við rekstur skóla og við aðra félagslega þjónustu. Óhags- stæð aldursskipting leiðir einnig til þess að skatttekjur sveitafélags- ins minnka. Á sama tíma og að í vöxt fara skylduútgjöld sveitafélaganna, virðast álagningamöguleikar sveitafélaganna fara minnkandi. Hér er áhrifamest samdráttur í sveitum og ekki síst breyttar skatt- reglur um auknar afskriftir bænda. Það alvarlega er að þrátt fyrir að hin minni sveitarfélög fullnýti tekjustofna, er það ekki nægjanlegt til þess að hækka tekjustaðalinn nægjanlega til að hlutfall grunnskólakostnaðar miðað við skatttekjur verði við- unandi. Framlög ríkisins til skólakerfis- ins má flokka í tvo meginþætti. Greiðslu kennslukostnaðar til að tryggja jafna aðstöðu allra til að njóta grunnskólanáms og almenn þátttaka í vissum kostnaðarlið- um, auk framlaga til að jafna að- stöðu nemenda til að sækja grunnskóla. í þessum kostnaðar- liðum er greiðsla aksturs skóla- barna, gæsla í heimavistum og mötuneytiskostnaður. Hjá sveitafélögum í strjálbýli með 200 íbúa o.fl. er grunnskóla- kostnaður að meðaltali 31,7% skatttekna. í þéttbýlissveitafélög- um með 1000 íbúa, utan Reykja- víkur, er hlutfallið 11.7%. Því er haldið fram að með þátt- töku í akstri, allt að 85% kostnað- ar, gæslu og mötuneyti sé sveitar- félögunum lögð til gífurleg að- stoð til að jafna aðstöðumun eftir búsetu í landinu. Þrátt fyrir þetta þurfa sveitarfélög í dreifbýli með akstur að leggja fram kr. 2.645,- á nemanda. Við þetta bætist að fólk í dreifbýlinu þarf að standa undir matarkostnaði nemenda sinna í heimavistum, sem er fátítt í þétt- býli. Meðfylgjandi súlurit sýnir í prósentum hversu stóran hluta af skatttekjum sínum sveitafélög í hinum ýmsu landshlutum þurfa að greiða í kostnað vegna grunn- skóla. Ofan á þetta bætist síðan að sveitarfélögin eru tilneydd að borga með kennurum til þess að fá þá til starfa við skólana. Þessar greiðslur eru í formi niðurgreiðslu á húsnæði, Ijósi og hita, flutn- ingsstyrkjum, bílastyrk og upp- bót á laun. Það er ljóst að mikill hluti skatttekna einstakra sveita- félaga rennur óskiptur til skóla- halds. Það er spurning hvort ríkið ætti ekki að greiða sveitarfélögun- um auka tekjustofn til að mæta þessum útgjöldum. ,°«ÍVl Aöo, brci. Ke °Uir> >á v,u 'ðr Ursk,íi!I _ va/>fi “k-ilin,, <ÖiU'U>n W, °g ,a'° H e,u^har ‘>ln'enna 1 flu,n. 'Hg, «6 Ennþá eru lausar f á fea. Saápar' I, ^ «*?**<*» n'aav'7>^rnfa''veiu, °' é i Ef einhver alvara er hjá stjórn- völdum að viðhalda byggð í dreif- býlinu verða þau að koma til móts við þau byggðarlög sem verst fara út úr því að halda uppi eðlilegri fé- lagslegri þjónustu. Því að vegna fámennis geta litlu sveitafélögin ekki veitt þá þjónustu og samfé- lagslegan styrk sem íbúarnir gera kröfu til og vænta. Það ýtir síðan undir frekari brottflutning og sveitarfélagið veikist enn. 3 nætur \ fyrir aöeins 4.800 kr. Það er ekki á hverjum degisem hægt verðurað gista á Hótel Örk í þrjár nætur fyrir aðeins 4.800. krónur. fiú gefst þeim sem vilja kynnast afeigin raun þessu umtalaða hóteli tækifæri til að gista þar á sérstöku kynningarverði Eskifjörður: Hátíðadagskrá Dagskrá afmælishátiðarinnar fer hér á eftir: Laugardagur 16.8.86. kl. 14.00 Úti- tónleikar: Skriðjöklar og Dúkkulís- urnar KI. 16.00 Hljómsveitakeppni. Kl. 22.00 Dansleikur í Valhöll — Skriðjöklar leika fyrir dansi. Sunnudagur 17.8.86. Kl. 22.00 Brenna, inni í dal. Mánudagur 18.8.86. Kl. 14.00 Há- tíðarguðþjónusta í Eskifjarðar- kirkju. Gengið til hátíðafundar Bæjarstjórnar í Valhöll. Kl. 16.00 Opnun sýninga í skólanum: mál- verkasýning frá ASÍ. Málverkasýn- ing Einar Helgsonar. Málverkasýn- ing Steinþórs Eiríkssonar. Mynda- sýning Byggðasögunefndar (mynd- ir frá Eskifirði). Bókasýning í bóka- safni (bækur skrifaðar af Eskfirð- ingum, blöð gefin hér út, o.fl.). Sýn- ing á handunnu postulíni. Kl. 20.30 Kvöldvaka í Valhöll. Lúðrasveit Neskaupsstaðar. Sögudagskrá Byggðasögunefndar. Ávörp gesta. Eskjukórinn syngur undir stjórn " Violettu Smidova og undirleik Pavels Smid. Þennan dag munu einnig hefjast útsendingar frá „Útvarp Eskifjörð- ur“ frá kl. 15.00—20.00 alla daga hátíðarvikunnar og útgáfa dag- blaðs sem gefið verður út fimm sinnum þessa viku. Tekið skal fram að opnunartími sýninga í skólanum mun verða milli kl. 16.00 og 21.00 til laugardags. Starfrækt verður „barnahorn“ fyrir yngstu gestina og barnagæsla á afmælisdaginn sjálfan. Þriðjudagur 19.8.86. Kl. 20.30 Jazz-tónleikar í Valhöll. Miðvikudagur 20.8.86. Kl. 14.00 Knattspyrnumót. Lið Austra Eski- firði, Völsunga Húsavík, Þróttar Neskaupstað og Hattar Egilsstöð- um mætast í 4 flokki. KI. 16.00 Víðavangshlaup — Eskifjarðar- hlaupið. Keppt verður í öllum ald- ursflokkum. Kl. 20.30 Útitónleikar. Hljómsveitirnar Appolon og Píka- píkapimpom frá Eskifirði leika. Fimmtudagur 21.8.86. Kl. 11.00 Móttaka forseta íslands. Kl. 14.00 Forseti íslands heimsækir: — sýn- ingar í skólanum — Dagheimili Eskifjarðar — Gömlu Rafstöðina. Kl. 18.00 Kvöldverður í hátíðarsal skólans. Kl. 20.30 Kvöldvaka í Val- höll. — Lúðrasveit Neskaupsstaðar — Ávarp bæjarstjóra — Píanóleik- ur Rögnvaldar Sigurjónssonar — Upplestur Róberts Arnfinnssonar og Ásdísar Skúladóttur — Ávarp Forseta íslands — Píanóleikur Gísla Magnússonar — Ávarp Ein- ars Braga Eskjukórinn syngur und- ir stjórn Ágústar Ármanns. Föstudagur 22.8.86. Kl. 10.00 Helgistund í Eskifjarðarkirkju með forseta íslands. Kl. 17.00 Útimark- aður við Valhöll. Slysavarnarfélag- ið, Kvenfélagið og Geislinn standa fyrir sölu- og skemmtimarkaði. Laugardagur 23.8.86. Kl. 9.00 Golf- mót á vegum Golfklúbbs Eskifjarð- ar „Opna Mazda mótið“. Kl. 23.00 Dansleikur í Valhöll. — BUMBURNAR leika fyrir dansi — Sérstaklega skal tekið fram að Byggðasafnið í Gömlu Búðinni er opið alla virka daga milli kl. 13.00 og 16.00 og steinasafn Sigurborgar og Sörens að Lambeyrarbraut 5, verður opið milli kl. 14.00 og 18.00. Innifalið í verðinu er gisting fyrir einn ásamt morgunverði (continental). Aðgangur að sundlaug og gufubaði ásamt aðstöðu til að leika golf eða tennis. Þá er einnig sparkvöllur og hlaupabrautir fyrir þá sem vilja trimma. Frítt fyrir böra sem ekki taafa náð 12 ára aldri. Allar frekari upplýsingar lyá Hótel Örk Hveragerði í síma 99-4700 eða á staðnum. TILVIÐSKIPTAVINA Aðalskrifstofur okkar verða lokaðar frá kl. 12:00 á hádegi mánudaginn 18. ágúst vegna 200 ára afmælis Reykjavíkurborgar. SAMVINNU TRYGGINGAR ÁRMÚLA3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.