Alþýðublaðið - 04.10.1986, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. október 1986
3
Hvað segja þeir
um pólitíkina?
Rætt við nokkra fulltrúa, sem sitjaflokksþing Alþýðuflokksins
Hallsteinn
Friöþjófsson,
Seyðisfiröi:
„Flokksþingið leggst ágætlega í
mig. Ætli helstu mál þingsins verði
ekki pólitíkin eins og hún liggur i
dag, Bandalag jafnaðarmanna hef-
ur nú gengið til liðs við Alþýðu-
flokkinn og það líst mér vel á. Það
hefði mátt gerast fyrrí'
„Kjördæmisþinginu hjá okkur
var frestað og ekki enn búið að taka
ákvörðun um hvenær það verður
haldið, en það verður örugglega
fljótlega eftir flokksþingið. Hér er
hugur í mönnum og allir tilbúnir í
slaginn. Hér er mönnum auðvitað
efst í huga að losna sem allra fyrst
við þessa ríkisstjórn og allt sem
henni fylgir út í hafsauga. Þar að
auki brennur á mönnum að ganga
frá framboðsmálum"
„Það má geta þess að það hrikti
allmyndarlega í pólitikinni hjá okk-
ur þegar það kom til tals að Jón
Baldvin færi fram hérna fyrir aust-
an. Það mundi okkur líka stórvelí1
Jón
Karlsson,
Sauöárkróki:
„Ætli helstu mál þessa þings
verði ekki atvinnu-, efnahags- og
launamál. Ég gæti trúað því. Einnig
almenn stefnumótun fyrir flokkinn
vegna komandi kosninga. En það er
mín skoðun að það verði fyrst og
fremst að taka á launa- og skatta-
málum, einmitt í tengslum við und-
irbúning kosninga. Þau mál hljóta
að verða í brennidepli.
Flokksstarf hér á Sauðárkróki
hefur verið með líflegra móti. Við
komum að bæjarfulltrúa í vor og
það er þannig hér úti á landi að
raunverulegt flokksstarf byggist
meira eða minna í kringum sveitar-
stjórnarmálin og þá bæjarfulltrúa
sem þar starfa. Og í tengslum við
þetta allt höfum við fundað þó
nokkrum sinnum svo að flokks-
starf er með fullu lífi hér á Sauðár-
króki. Nýtt fólk er komið til starfa
og greinilegur kraftur í liðinu. Ég
get sagt með sanni að hér er mikil
og góð samstaða.
í 'sambandi við þá ákvörðun
nokkurra þingmanna Bandalags
jafnaðarmanna að ganga til liðs við
Alþýðuflokkinn, þá held ég að allir
fagni því að þessum smáflokkum
fækkar og ég held að þetta sé ávinn-
ingur fyrir báða aðila og ætti að
geta gefið verkalýðsöflunum meiri
kraft. Annars bárust þær fréttir í
morgun (2/10) að Bandalag jafnað-
armanna ætlaði að halda áfram.
En við erum stálhressir hérna fyr-
ir norðan og ég er á leiðinni suður á
flokksþingið að sjálfsögðu. Það
eru auðvitað stundum brekkur upp
í móti, en við höfum marga gíra
Sauðkræklingar og getum skipt
niður ef að á móti blæs!
Emil Þór
Guðbjörnsson,
Stykkishólmi:
„Undirbúningur undir komandi
alþingiskosningar verður örugglega
aðalmálið á flokksþinginu í Hvera-
gerði um helgina. Það virðist vera
gífurleg samstaða meðal allra Al-
þýðuflokksmanna allstaðar á land-
inu og flokkurinn í stórsókn víðast
hvar. Þannig að það er greinilegt að
þau málefni sem við höfum sett á
oddinn hafa fengið góðan hljóm-
grunn hjá fólki um allt land. Er
auðvitað ekkert nema gott um það
að segja.
Bandalag jafnaðarmanna, eða
hluti þess, hefur nú gengið til liðs
við okkur og ber að fagna því. Þetta
hefði auðvitað átt að gerast ntiklu
fyrr. Ef svo heldur fram sem horfir,
þá fáum við 12—14 þingmenn
kjörna í næstu alþingiskosningum.
Af flokksstarfinu er það að
segja, að það er búið að halda tvo
fundi með viku miilibili og að því
leytinu til er allt í blóma. Fyrri
fundurinn var kjördæmaráðsfund-
ur, þar sem kosnir voru fulltrúar á
flokksþingið sem verður í Hvera-
gerði nú um helgina. Við verðum
fjórir héðan úr Stykkishólmi sem
mætum á þingið.
Annars er frekar dauft yfir
stjórnmálunum almennt hér ennþá.
Þetta er ekki komið í gang, en það
er nú kvilli sem lagast.
Það er rétt að nefna það að þótt
samgöngur séu hér nokkuð góðar,
þá er vegakerfið afar slæmt og verð-
ur að gera eitthvað í því máli sent
fyrst.
Aðalmálið hér í kring um síðustu
sveitarstjórnarkosningar var bygg-
ing íþróttahúss og smábátahafnar.
Þau mál eru bæði í undirbúningi og
eru að fara í gang. Nýr skóli er hér
risinn og ég held að allir séu mjög
ánægðir með hann. Og þér að
segja, þá er gott að búa á Stykkis-
hólmi. „Og ég spái því að þingmenn
kjördæmisins verði tveir frá Al-
þýðuflokki eftir næstu kosningar.
Mundu það!“
Freyr
Ófeigsson,
Akureyri:
„Mér finnst sennilegt að á
flokksþinginu verði mörkuð heild-
arstefna fyrir komandi kosningar,
þannig að kjósendur fái sem skýr-
astar línur í því fyrir hverju við vilj-
um berjast. Sameining Bandalags
jafnaðarmanna við Alþýðuflokk-
inn er að mínu viti mjög skynsam-
leg ákvörðun hjá þeim, án þess að
ég geri mér grein fyrir því á þessari
stundu hversu mikið Alþýðuflokk-
urinn fitnar af því! En þessi litlu
flokksbrot virðast ekki skynsam-
leg. Þau dreifa kröftunum of mikið.
Það er allt ágætt að frétta af
flokksstarfinu á Akureyri.
Það er auðvitað i daufara lagi yf-
ir sumarmánuðina, en við höfum
farið nokkuð myndarlega af stað
núna í september. Mikið hefur verið
um fundahöld, bæði út af bæjar-
málum og öðru.
„Það sem við höfum lagt mesta
áherslu á, er hvernig bærinn getur
best komið inn í atvinnumálin, en
verkefnin eru óþrjótandi hér á Ak-
ureyri. Dægurmálin eru auðvitað
fjölmörg, en við leggjum mesta
áherslu á að ijúka því sem er þegar
í gangi eins og skólabyggingum,
íþróttamannvirkjum og fleiru.
Fyrsta fjárhagsáætlun þessa árs
verður samin núna fyrir áramótin
væntanlega. Þá kemur það fram
hvað verður ofarlega eða efst í röð-
inni.
Þess má geta að það er alveg nýtt
munstur í bæjarmálapólitíkinni hér
á Akureyri, sem núlifandi bæjarbú-
ar hafa ekki þekkt áður. Mér vitan-
lega hefur sú staða ekki komið upp
áður hér að Framsóknarmenn hafi
ekki verið í meirihlutastjórn, en
maður veit ekki hvort það breytir
einhverju og þá í hvaða átt.
En það er gott hljóð í okkur
norðanmönnum. Mér finnst vera
vaxandi bjartsýni hér á öllum svið-
um. Hér er óneitanlega orðin mikil
svartsýni og deyfð og sumir vildu
kenna stjórnmálamönnum um það,
— allt of mikið gráthljóð og þess
háttar, en þeir sem vinna þau störf
endurspegla fyrst og fremst al-
menningsálitið. Menn eru hér að
gera sér háar hugmyndir um bæjar-
stjórn og ef til vill allt of háar, því
að á þeim vettvangi er ekki hægt að
gera nein kraftaverk, en það er hægt
að stuðla að ýmsu. En mér virðist
vera bjartsýni ríkjandi í bænum
núna.
Því miður kemst ég ekki sjálfur
suður á flokksþingið, en ég er þess
fullviss að þar gengur allt saman
vel“
Kristján K.
Jónasson,
ísafiröi:
„Umræður vegna komandi kosn-
inga hljóta að verða nokkuð miklar
á flokksþinginu og undirbúnings-
starf vegna þeirra. Sjálfsagt verður
líka rætt um síðustu viðburði og þar
á ég við liðsaukann frá Bandalagi
jafnaðarmanna. Það tel ég mjög
gott mál og að þessir menn hafi gert
rétt. Vonandi er þetta upphafið að
því að allt Iandið verði losað við
þessa smáflokkasamkeppni, sem er
algerlega ónauðsynleg að mínu viti.
Þetta minnir okkur Vestfirðinga á
það tímabil þegar Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna voru og
hétu, en þá voru sömu sjónarmiðin
í tveimur flokkum. Það gerði auð-
vitað ekkert annað en að sundra
kröftunum.
Flokksstarfið hjá okkur er að
komast í gang aftur eftir sumarfrí-
in. Félagsfundur er nýafstaðinn og
kjördæmisþingið, en þar voru sam-
þykktar reglur um prófkjör eins og
við höfum verið með hér.
Það sem brýnast er að kippa í lag
fyrir okkur Vestfirðinga eru tví-
mælalaust samgöngumálin. Og þar
á ég við á sjó og í lofti og einnig alla
hafnaraðstöðu. Einnig þarf að stór-
laga vegakerfið. Allra brýnast er þó
að laga samgöngurnar innan Vest-
fjarðanna sjálfra. Hafnirnar verða
aftur á móti að vera í sem allra besta
lagi, sérstaklega vegna þess mikil-
vægis sem fiskveiðar Vestfirðinga
eru fyrir alla landsmenn og þjóðar-
búið í heild.
Tveir bæjarstjórnarfundir hafa
verið haldnir síðan sumarfríum
lauk, þannig að starfið er rétt að
byrja og nóg framundan. Mikil
vinna er til dæmis framundan hjá
bæjarstjórn og bæjarráði í sam-
bandi við fjármálin og fjárhags-
áætlun til þriggja ára, en það er
samkvæmt nýjum lögum. Hingað
til hafa menn verið að rembast við
að gera fjárhagsáætlun til eins árs
og gengið misjafnlega. En þetta er
vonandi að lagast.
Sveitarstjórnarkosningar hér á
Vestfjörðum komu mjög vel út fyrir
Alþýðuflokkinn. Þetta hefur verið
sígandi lukka hjá okkur alveg frá
árinu 1974. Það ár náðum við aftur
inn þingmanni, að vísu uppbótar-
sæti, en síðan þá hefur þetta allt
farið batnandi. Og við höfum ekki
lent í neinum stórsveiflum, hvorki
upp eða niður, síðan 1974. Við Al-
þýðuflokksmenn erum þess vegna
bjartsýnir hér á Vestfjörðum.
Magnús H.
Magnússon,
Vestmanna-
eyjum:
„Jú jú, ég mæti á flokksþingið,
þú mátt vera viss um það. Lífeyris-
sjóðsmál, skattamál og húsnæðis-
mál verða örugglega til umfjöllunar
á þinginu ásamt fleiru. Einnig verð-
ur stjórnmálaályktun samin. Svo er
eins gott að fara að huga að kom-
andi kosningum, því ekki er ráð
nema í tínia sé tekið.
Flokkurinn verður að ítreka sér-
staklega samstöðu sína með Iág-
launafólki og neytendum í landinu.
Alþýðuflokkurinn hefur vissulega
alltaf haldið þeim málum mjög
fram, en þetta þarf að ítreka enn
frekar núna. Leggja þarf áherslu á
að Alþýðuflokkurinn er flokkur
láglaunafólksins, lítilmagnans og
neytandans.
í sambandi við alla þessa þróun á
launamarkaðinum, þá segja samn-
ingar orðið sáralítið. Það liggur við
að segja megi að engir tveir menn á
landinu séu á sama kaupi! Enn er-
um við að pukrast með sífelldar yf-
irborganir og þar með erum við
komnir í gamla farið, að það er at-
Framhald á bls. 21