Alþýðublaðið - 14.02.1987, Page 1
alþýðu-
IH hT'jT'M
Laugardagur 14. febrúar 1987 31. tbl. 68. árg.
Vangreiddir tollar og söluskattur:
Milljarðar
útistandandi
Um síóustu áramót átti ríkissjóð-
ur um 2,5 milljarða króna útistand-
andi hjá fyrirtækjum og ein-
staklingum i skuldaviðurkenning-
um vegna söluskatts og tolla vegna
innflutnings á árinu. Þetta kemur
m.a. fram í svari fjármálaráðherra á
Alþingi við fyrirspurn Kjartans Jó-
hannssonar um söluskatts- og toll-
skil og meðferð slíkra mála i ráðu-
neytinu. Ríkið á milljarða króna
útistandandi frá síðustu árum
vegna þessa og samkvæmt heimild-
um Alþýðublaðsins er ekki um að
ræða verðtryggingarákvæði í stór-
um hluta þessara skuldaviðurkenn-
inga, þannig að í sumum tilfelium
er um að ræða tapað fé.
Fyrir rúmum þremur mánuðum
lagði Kjartan fyrirspurn sína fram
og nú þegar svarið liggur fyrir er
ljóst að ráðuneytið hefur nálgast
efnið sem köttur í kringum heitan
graut. Þrátt fyrir augljósa meiningu
Kjartans, að fá svör við söluskatts-
skilum jafnt vegna innflutnings
sem og sölu innanlands, nær svarið
eingöngu til söluskatts og tolla
vegna innflutnings. í svari sínu við-
urkennir ráðuneytið hins vegar af-
skipti sín af innheimtu og segir að
slík mál séu venjulega afgreidd með
óformlegum hætti í samráði við
innheimtumenn. í svarinu kemur
fram að ráðuneytið heldur engar
skrár yfir slík mál. í svari sínu birtir
ráðuneytið hins vegar skrá yfir
skuldaviðurkenningar vegna inn-
flutnings og verður ekki augljós-
lega séð hvers vegna komist er hjá
því að svara til um söluskatt vegna
sölu innanlands.
í haust upplýsti Alþýðublaðið að
fjármálaráðuneytið hefði komið
tugmilljóna króna skuldum vegna
söluskatts „í skil“ með því að taka
við skuldabréfum. Kom fram í við-
tölum við embættismenn að breyt-
ing hefði orðið á meðferð slíkra
mála í ráðuneytinu eftir að Albert
Guðmundsson tók við embætti.
Framhald á bls. 2
Opinn stjórn-
málafundur í
Gaflinum
í dag
Á laugardag, 14. febrúar boðar Alþýðuflokkurinn til opins fund-
ar í Gaflinum í Hafnarfirði. Fundurinn hefst klukkan 14. Aðalræð-
umaður verður Jón Sigurðsson og ávörp flytja Kjartan Jóhanns-
son, karl Steinar Guðnason, Rannveig Guðmundsdóttir og Guð-
mundur Oddsson.
Alín Alma Arthúrsdóttir í Vestmannaeyjum:
Fólkið styður
Alþýðuflokkinn
Spillinguna verður að uppræta
„Það er ljóst að Þorsteinn Páls-
son telur Alþýðuflokkinn vera aðal
keppinaut Sjálfstæðisflokksins í
komandi alþingiskosningum. Sem
dæmi um þetta þá ber Þorsteinn
það blákalt fram fyrir þjóðina að
Alþýðuflokkurinn sé á móti stað-
greiðslukerfi skatta! Hið rétta í þvi
máli vita hins vegar allir sem vilja
vita, að allsherjar uppstokkun á
skattakerfinu hefur verið eitt af
höfuð stefnumálum Alþýðuflokks-
ins lengi. Einn liður ,í þeirri upp-
stokkun er staðgreiðslukerfi skatta.
í „Suðurlandi“ málgagni sjálf-
stæðismanna, segir Þorsteinn einn-
ig í sambandi við lífeyrissjóðsmál,
að „Alþýðuflokkurinn vilji toga
allt fjármagn til Reykjavíkur.“
Þetta er alrangt og Þorsteinn hlýtur
að vita betur. Að bera svona augljós
ósannindi á borð fyrir Sunnlend-
inga er í meira lagi vafasamt upphaf
á kosningabaráttu“, sagði Elín
Alma Arthúrsdóttir i Vestmanna-
eyjum í samtali við Alþýðublaðið í
gær.
„Þorsteinn reynir hvað hann get-
ur til að rangtúlka allt sem Alþýðu-
flokkurinn heldur fram í sem flest-
um málum. Ég hef þó ekki trú á að
slíkur málflutningur dugi langt hér
á Suðurlandi. Hitt er annað að
þetta örvæntingarhjal mannsins
sýnir ótta hans við Alþýðuflokk-
Framhald á bls. 2
Albert Guðmunds. iðnaðarráðh. um ummœliÞjóðviljansfrá 12. febr. s.L
„Þjóðviljamenn þurfa
að laxera þetta úr sér“
— furðuleg kosningabarátta
„Ummæli Þjóðviljans 12. febrú-
ar eru ekkert verri en þau eru vön að
vera. Kommúnistarnir óttast engan
meira en mig. Og það sem vekur
furðu mína og ég hef reyndar svolít-
ið gaman af, er að þeir virðast ótt-
ast það mest að Sjálfstæðisflokkur-
inn tapi fylgi. Þeir ráðast auðvitað
helst á þann sem þeir óttast mest“,
sagði Albert Guðmuridsson, iðnað-
arráðherra, þegar Alþýðublaðið
spurði hann um álit hans á árásum
Þjóðviljans.
„Þjóðviljamenn fullyrða til
dæmis að Nissaferðin hafi verið tví-
borguð. Það er ákaflega furðuleg
fullyrðing. Þetta atriði er búið að
kanna ítarlega, svar er komið frá
Rannsóknarlögreglu og ég veit ekki
hvað væri hægt að gera meira. Þess-
ir menn sætta sig einfaldlega ekki
við staðreyndir. Þetta virðist verða
að hafa sinn gang. Þegar rógur er
kominn í gang þá eru öll meðul not-
uð, þá er ekki lengur spurt um stað-
reyndir.
Þegar menn eru í pólitík verða
þeir að vera við því búnir að skvett
sé á þá. Ef svona persónuníð á að
Alþýðuflokksmenn á Vesturlandi
eru þeir fyrstu sem fara af stað með
skipulagt starf og fundahald í kjör-
dæminu fyrir kosningar. „Það hef-
ur veriö góður andi á þessum fund-
um. Mér finnst fólk taka vel undir
okkar málflutning, og ég finn aö
menn eru komnir í kosningaham og
vilja fá fram raunverulegar breyt-
ingar“, sagði Sveinn G. Hálfdánar-
son í Borgarnesi í samtali við Al-
þýðublaðið í gær. Sveinn er í öðru
sæti á lista Alþýðuflokksins á Vest-
urlandi. Fjórir efstu menn á listan-
um hófu fundaferð um kjördæmið
í Logalandi um síðustu helgi.
Á mánudag var fjölsóttur fundur
vera innlegg Þjóðviljans í kosninga-
baráttuna þá er ég ansi hræddur um
að vopnin muni snúast í höndum
þeirra. Minn ferill frá barnæsku hér
í borginni er nægur til þe'ss að menn
þekki mig.
Þjóðviljamenn verða bara að fá
að laxera þetta úr sér. Það er líklega
eina ráðið. Ég get ósköp lítið um
þetta sagt, á sama hátt og þeir gætu
Framhald á bls. 2
á Akranesi. Gestir á þeim fundi
voru þingmennirnir Jóhanna Sig-
urðardóttir og Guðmundur Einars-
son. Á miðvikudag var fundur í
Borgarnesi og á fimmtudagskvöld í
Grundarfirði. í gærkvöldi var
fundur í Stykkishólmi og í dag
verður fundur í Búðardal sem hefst
klukkan 15:00. Fundaferðinni lýkur
síðan á sunnudag með fundum í
Ólafsvík klukkan 16:00 og á Hellis-
sandi klukkan 20:30.
Kosningamiðstöð í kjördæminu
verður fljótlega opnuð á Akranesi.
Ráðgert er að starfrækja skrifstof-
ur í öllum þéttbýlisstöðum á Vestur-
landi.
Fjölsóttir fundir
á Vesturlandi
jvö
NYÞREP
úrbeinhörðumpeningwn
Kjörbókin hefur tryggt sparifjáreigendum
hæstu ávöxtun sem fáanleg hefur verið
af óbundnu sparifé. Og nú bætum
við enn um betur. Þegar innstæða
hefur legið á Kjörbókinni í 16
mánuði hækka vextirnir allt frá
innleggsdegi í 20,9% og aftur að
loknum 24 mánuðum í 21,5%.
Vaxtaþrepin gildafrá 1. jan. 1987.
Við minnum á aðra helstu kosti
Kjörbókarinnar:
Háir vextir lagðir viö höfuðstól ’■ ■ i
tvisvar á ári.
Innstæðan er algjörlega óbundin.
Ársfjóðungslegur samanburður við
ávöxtun 6 mánaða verðtryggðra reikninga
tryggir hagstæðustu kjör. Ef ávöxtun
Verðtryggðu reikninganna reynist hærri
er greidd uppbót. Hún greiðist einnig
ofan á 16 og 24 mánaða vaxtaþrepin.
Vaxtaleiðrétting við úttekt reiknast
eingöngu af úttektarupphæðinni,
þó ekki af vöxtum síðustu
tveggja vaxtatímabila.-
Úttektir lækka ekki vextina
á þeirri fjárhæð sem eftir
stendur.
í Landsbankanum er stöðugt haft
Iauga með öllum hræringum á
vaxtamarkaðnum. því að Kjörbók-
inni er ætlað að vera í fararbroddi.
Ársávöxtun á Kjörbók varð 20,62%
árið 1986, sem jafngildir verðtryggð-
um reikningi með 5,51% nafnvöxtum.
Taktu næstu tvr^kref í beinhörðum
peningum. jr Landsbanki
/ íslands
Banki allra landsmanna