Alþýðublaðið - 14.02.1987, Blaðsíða 3
Laugardagur 14. febrúar 1987
3
SELFOSS
40 ÁRA
„Engin pólitík í
fyrstu hreppsnefndinni
U
En var ekki pólitískur ágrein-
ingur um sameininguna?
Nei alls ekki, segir Diðrik.
Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sókn höfðu komið sér saman
um Sigurð Óla úr Sjálfstæðis-
flokki sem oddvita, og þá kus-
um við Ingólfur hann líka.
Björn Sigurbjarnarson sem var
oddviti í Sandvíkurhreppi skil-
aði hins vegar auðu. Það var
enginn pólitískur ágreiningur í
þessari fyrstu hreppsnefnd.
Þess hefur verið minnst, að
28. janúar sl. voru liðin 40 ár frá
því að fyrsti hreppsnefndar-
fundur var haldinn á Selfossi.
Selfosshreppur var byggður
upp úr 3 hreppum: Sandvíkur-
hreppi, Ölfushreppi og Hraun-
gerðishreppi.
Diðrik Diðriksson var einn
þeirra sem sátu í 1. hrepps-
nefndinni. Sagði hann, að meg-
inástæða sameiningar í einn
hrepp hefði verið sú, að fólk var
óánægt með að greiða sveitar-
gjöld til 3 hreppa. Fólk bjó t.d.
fyrir „utan á“ (í Ölfushreppi) en
vann svo kannski í Mjólkurbú-
inu (í Hraungerðishreppi).
— segir Diðrik Diðriksson,
sem átti sœti í fyrstu hrepps-
nefndinni á Selfossi.
Fossness. Hreppurinn býr enn semnúfyrsterveriðaðflytjaúr.
að þessum kaupum, og svo er Verð á landi var þá ekkert í lík-
líka um skrifstofuhúsnæðið, ingu við það sem síðar gerðist.
Ég held að þetta hafi verið af-
færasælast.
Hvað finnst þér mest hafa
breyst á umliðnum árum?
Þetta eru svo stórkostlegar
breytingar að engu er líkt. T.d.
gjaldaliðir hreppsnefndar. Þá
var niðurjöfnunarnefnd, sem
lagði útsvör á menn. Menn gátu
gengið beint að okkur nefndar-
mönnum og skammað okkur
beint. Nú kemur þetta frá 3.
manni.
Vegagerð og skolpræsi voru
mikil mál og gerð göngubrauta.
í fyrstunni voru aðeins málaðir
steinar til þess að afmarka.
Við Eyjagos urðu mikil skipti
og mikið byggt. Það leiddi líka
til enn meiri byggingarfram-
kvæmda, því að margt ungt fólk
fluttist hingað.
Hver voru helstu málin, sem
var glímt við í fyrstunni?
Ja, ég sat í hreppsnefndinni 2
kjörtímabil samtals í 7 ár, og ég
held, að landakaupin hafi verið
mikilvægust. Það var búið að
kaupa nokkurt land fyrir sam-
eininguna, en svo var keypt
austan vegar (Eyrarbakkavegar)
og fyrir utan á i Hellislandi og
Fyrsta hreppsnefnd í Selfosshreppi 1947—1950. Fremri röð fv.: Jón Púlsson, Sigurður Óli Ólafsson, oddviti, Egill Thorarensen.
Aftari röðf.v.:
Ingólfur Þorsteinsson, Diðrik Diðriksson, Björn Sigurbjarnarson og Guðmundur Á. Böðvarsson, sem kom inn í nefndina fyrir Jón Ingvarsson.
Vandi bæjarfélaga er ekki lítill. Þessi bílafloti mátti þó una við vegi
og vegleysur. Myndin er tekin í núverandi Fagurgerði á Selfossi. En
hvenær er myndin tekin? Og er þetta bílafloti Kaupfélagsins eða
MBF?