Alþýðublaðið - 14.02.1987, Síða 9
Laugardagur 14. febrúar 1987
9
Skilji hver sem getur
Mörgum þykir margt torskil-
ið í málefnum landbúnaðar. Ef
einhver skilur t.d. þessa grein úr
reglugerð „um stjórn mjólkur-
framleiðslunnar verðlagsárið
1985—1986“, þætti ritstjórn
vænt um upplýsingar um þann
gáfumann.
a) Heildarbúmarki hvers svæð-
is í mjólk og sauðfjárafurð-
um 31. desember 1980 skal
skipt á milli mjólkur og
sauðfjárafurða í hlutföllum
sem giltu á milli þessara bú-
greina í búmarki eins og það
var 31. ágúst 1985.
b) Sú tala ærgildisafurða í
mjólk sem reiknast á þennan
hátt, er tvígild á móti meðal-
framleiðslu mjólkur innan
búmarks á svæðinu verð-
Iagsárin 1982/1983, 1983/
1984 og 1984/1985, sem
reiknast eingild. Meðaltal
þessara tveggja þátta, svo
sem segir hér að framan,
myndar fullvirðisrétt hvers
svæðis, sem þó getur ekki
orðið meiri en mjólkurfram-
Silfur á Selfossi
Knattspyrnumenn frá Sel-
fossi gerðu garðinn frægan um
næst síðustu helgi. Þeir léku í 1.
deild og urðu í öðru sæti eftir
úrslitaleik við Fram.
Leikir Selfoss fóru þannig:
Selfoss — Grótta 3—3.
Selfoss — Fram 5—5.
Selfoss — IK 6—5.
Selfoss — Valur 6—5 eftir fram-
lengingu.
í undanúrslitum sigruðu þeir
Fylki 7—5 og léku við Fram í úr-
slitaleiknum. Selfoss byrjaði
betur og komust þeir í 3—1.
Framarar jöfnuðu 3—3 og
þannig var staðan í hálfleik.
Framarar sigruðu svo 6—4. Það
má segja að þessi árangur lofi
góðu og má vænta mikils af lið-
inu í baráttunni um 1. deildar
sæti í sumar. Þessir léku fyrir
Selfoss:
Páll Guðmundsson, Þórarinn
Ingólfsson, Elías Guðmunds-
son, Gylfi Sigurjónsson, Hall-
dór Róbertsson, Einar Jónsson,
Hilmar Hólmgeirsson, Gunnar
Garðarsson, Þórarinn Guðna-
son.
Þjálfari Selfoss er Magnús
Jónatansson.
Til hamingju Selfyssing-
ar .. .
leiðsla á svæðinu innan bú-
marks verðlagsárið 1984/
1985, sbr. þó ákvæði 1. og 2.
töluliðar þessarar greinar.
Þann fullvirðisrétt sem
reiknast hverju svæði og er
umfram mjólkurframleiðslu
þess verðlagsárið 1984/1985
skal færatil þeirra svæða þar
sem samdráttur framleiðslu
er mestur, með hliðstæðum
hætti og segir í b-lið 2. tl.
þessarar greinar.
Áður en heildarfullvirðisrétti
skv. 2. gr. er skipt á milli ein-
stakra búmarkssvæða, skal
DqO i lúsnæðisstofnun ríkisins
Auglýsing
um dráttarvexti
Af lánum, sem verðtiyggð eru
með lánskjaravísitölu, eru
reiknaðir dráttarvextir á 15. degi
frá g'alddaga.
Af lánum, sem verðtryggð eru
með byggingarvísitölu, verða
reiknaðir dráttarvextir einum
mánuði eftir g'alddaga.
TÍÐINDI
F erðamálaráð á Selfossi sam-
þykkti á fundi sínum um dag-
inn að leigja Gistiþjónustunni
tjaldsvæðið við Engjaveg
næsta sumar. Tillaga Kvenna-
lista og Alþýðubandalags um
að reksturinn yrði boðinn út
var felld. Kemur nokkuð
spánskt fyrir sjónir, að hægri
menn skyldu fella tillögu um
útboð, sem sannarlega var í
anda frjálsra viðskipta. Verða
Sjálfstæðismenn að huga
frekar að orðabók frjálshyggj-
unnar. Það gengur ekki til
lengdar að menn séu svona illa
að sér í fræðunum.
Ríkispeyjar Sjálfstæðis-
flokksins vilja ólmir koma
sjúkrahúsum á föst fjárlög (og
afnema daggjaldakerfið).
Borgarsjúkrahúsið í Reykjavík
verður selt næstu daga. Úti á
landi hafa forráðamenn
sjúkrahúsanna áhyggjur af
gangi mála. Óttast þeir, að
breytingin hafi í för með sér
skerta þjónustu úti á landi. í
fyrstunni muni þetta koma
fram sem aukinn útgjöld fyrir
sveitarfélögin, sem eigi ekki
annarra úrkosta völ en að
draga úr þjónustunni. Stefnir
þegar í stór göt víða. í Vest-
mannaeyjum vantar t.d.
a.m.k. 14 milljónir til að endar
náist saman í fjárhagsáætlun
nýhafins árs. Sjúkrahúsið í
Eyjum fór einmitt á föst fjár-
lög 1986.
ooo
Veistu,
að...
— líklega munu um 3 mill-
jaröar króna fara úr lífeyris-
sjóðum í húsnæðiskerfið. En
hvar er byggt? Jú, 83 af hverjum
100 íbúðum eru á Stór-Reykja-
víkursvæðinu. Með öðrum orð-
um, peningar streyma af lands-
byggðinni til uppbyggingar í
Reykjavík.
— um 25 þúsund manns
njóta ekki lífeyrisréttinda, þar
af eru húsmæður 17 þúsund.
Veitir sannanlega ekki af að
koma lífeyrismálum á hreint í
landinu. Alþýðuflokkurinn
hefur lagt til, að einn verði lif-
eyrissjóður fyrir landið og mið-
— 13% gjaldenda greiða
67% tekjuskattsins. Hin 83%
greiða sem sé aðeins 33%
skattsins. Vitað er að gjaldend-
urnir eru fyrst og fremst venju-
Iegt launafólk. Veitir sannarlega
ekki af að koma skattamálum í
réttlátari farveg.
o
— 6500 ársverk eru í ferða-
þjónustu og 4500 milljónir
koma í þjóðarbúið undan þess-
ari atvinnugrein. í tillögum um
virðisaukaskatt, sem ríkis-
stjórnin hefur lagt fram, er gert
ráð fyrir, að hann verði lagður á
ferðaþjónustuna, eina allra út-
flutningsgreina. Þetta telja
ferðafrömuðir mikla fásinnu.
Viftureimar, platínur, kveikju-
hamar og þéttir, bremsuvðkvi,
varahjólbarði, tjakkur og
nokkur verkfæri. Sjúkrakassi
og slökkvitæki hafa hjálpað
mörgum á neyðarstundum.
Félög —
félagasamtök
Inghóll á Selfossi er kjörinn staður fyrir ykkar árshátlðir og þorrablót.
Matur og veitingar í glæsilegum húsakynnum.
Getum annast rútuferðir á milli og gert föst verðtilboð ef óskað er.
Vinsamlegast hafið samband við þjón í síma 99—2585 daglega milli kl. 10 og 12 f.h.
eða skrifstofu í síma 99—1356 á öðrum tlmum, og leitið frekari upplýsinga.
SELFOSSI
Reykjavík, 7. nóvember 1986.
Húsnæðisstofnun ríkisins
Byggingariðnaðarmenn
Suðurlandi
Námskeið um endurbáetur húsa með tilliti til
orkusparnaðar verður haldið við Fjölbrautaskóla
Suðurlands dagana 19.-20.-21. febrúar kl.
9.00 — 1 7.00alladagana. Námskeiðiðerá vegum
Fræðslumiðstöðvar iðnaðarins og einkum ætlað
iðnaðarmönnum. Námskeiðsgjald er kr. 5.000 og
eru námsgögn innifalin. Þátttaka tilkynnist til
skrifstofu F.Su. sími 2111, eigi síðar en mánu-
daginn 16. febrúar.
GLETTINGUR HF.
Glettingur hf. Þorlákshöfn óskar að ráða
fólk í fiskvinnu. Ferðir á milli Þorlákshafnar
og Selfoss kvölds og morgna.
Glettingur hf. s: 3757 og 3957.
Orðsending til
hundaeigenda á Selfossi
Hér með eru eigendur hunda, sem ganga
lausir á almanna færi varaðir við hertum
aðgerðum gegn slíkum brotum á reglugerð
um hundahald á Selfossi.
Verði hundur handsamaður verður eigandi
hans krafinn um greiðslu, kr. 2.500,- að
öðrum kosti verður hundinum lógað.
Hundaeftirlitsmaður.
Árnesingar — Selfossbúar
Aðalfundur
Krabbameinsfélags Árnessýslu verður
haldinn í Hótel Selfoss laugardaginn 14.
febrúar kl. 14.00.
Baldur Sigfússon yfirlæknir flytur erindi
um röntgenmyndatökur af brjóstum.
Krabbameinsfélag Árnessýslu.