Alþýðublaðið - 26.02.1987, Síða 1
alþýðu-
Fimmtudagur 26. febrúar 1987 39. tbl. 68. árg.
Ingólfur Margeirsson
ráðinn ritstjóri
Ingólfur Margeirsson hefur
nú verið ráðinn ritstjórin Al-
þýðublaðsins frá og með 1. mars
n.k. Hann verður ritstjóri sam-
hliða Árna Gunnarssyni, sem
mun formlega láta af ritstjóra-
starfi í vor.
Ingólfur Margeirsson hefur
stundað blaðamennsku og rit-
störf um langt árabil, og m.a.
verið ritstjóri Sunnudagsblaðs
Þjóðviljans og Helgarpóstsins.
Ingólfur Margeirsson mun
m.a. vinna að undirbúningi að
aukinni útgáfu Alþýðublaðsins.
„Margfaldur
misskilningur
hjá Þorsteini“
— segir Kjartan Jóhannsson m.a. um gagnrýni
Þorsteins Pálssonar á tillögur Alþýðuflokksins um sam-
eiginlegan lífeyrissjóð fyrir
„Árásir Þorsteins Pálssonar á
hugmyndir Alþýðuflokksins um
sameiginlegan lífeyrissjóð eru
margfaldur misskilningur hjá Þor-
steini,“ sagði Kjartan Jóhannsson í
samtali við Aiþýðublaðið í gær.
„Þorsteinn segist vilja hafa sjóðjna
marga og ólíka en það er einmitt
það sem við búum við í dag. Við er-
landsmenn.
um með 90 lífeyrissjóði og utan
sjóða eru 25 þúsund manns. Um
7.300 manns eru í 6 sjóðum eða
fleiri og 48 lífeyrissjóðir eru með
færri en 1000 sjóðfélaga. Hjá fá-
mennari sjóðum má ekkert útaf
bera svo þeir lendi ekki í vandræð-
um og greiðsluþroti."
Framhald á bls. 2
Frá höfninni í Ólafsvík. Þar þykir mönnutn ekki mikið til koma þótt höfuðborgin œtti 200 afmœli á síðasta ári,
því sjálfir œtla þeir að halda upp á 300 ára afmœli í ár. Sjá nánarí umfjöllun á bls. 5.
Félagsmálaráðherra ber
að ósannmdum á Alþingi!
eftir að hafa lýst sig heilagan mann ^
Furðuleg endaleysa kom upp
á Alþingi í fyrrakvöld í uinræð-
um um nýju húsnæðislögin. Fé-
lagsmálaráðherra sté í stólinn á
eftir Jóni Baldvin og lýsti þvi
margsinnis yfir að hann hefði
2°7o hækkun
Launancfnd ASÍ, VSÍ og VMSÍ
hefur úrskurðað að launahækkun
hinn 1. mars ’87, skal vera 2%, sam-
anber ákvæði kjarasamninganna
frá 6. desember.
Launanefnd var sammála uin
þennan úrskurð og vísar til þess, að
vísitala framfærslukostnaðar
reyndist í febrúarbyrjun nánast á
viömiðunarmörkum kjarasamn-
ingsins eða 187.77 stig, en í samn-
ingunum í desember var miöaö við
187.7 stig.
birt allar skýrslur sem máli
skiptu um nýja húsnæðiskerfið.
Stuttu síðar viðurkennir ráð-
herrann að til sé plagg í Hús-
næðisstofnun sem ekki hafi ver-
ið birt. Var það eftir að Jóhanna
Sigurðardóttir hafði spurt ráð-
herra um þetta plagg sérstak-
lega. Fer brot úr þessum undr-
um hér á eftir.
Jón Baldvin:
„Félagsmálaráðherra
leyndi upplýsingum"
Jón Baldvin Hannibalsson fu1l-
yrti á Alþingi í fyrrakvöld aö áður
en nýju húsnæðislögin voru sett,
hefðu legiö fyrir upplýsingar um að
stórfé hefði vantað í húsnæðiskerf-
ið til að sinna þörfinni. Jón Baldvin
sagði m.a.:
„Þær upplýsingar sem fram
koma í skýrslunum frá milliþinga-
nefnd um ofmat á aukningu láns-
fjár í nýja kerfinu og vanmat á eftir-
Framhald á bls. 2
Verðbólguglíman:
Niðurstaðan íhendi
— segir m.a. í greinargerð launanefndar. Al-
þýðublaðið ræddi við Björn Björnsson, hag-
fræðing Alþýðusambands íslands.
„Það er í sjálfu sér hægt að
taka undir það sem fram kemur
hjá Þjóðhagsstofnun um hættu-
merkin. Þau eru fyrst og fremst á
þeirri hliðinni sem snýr að pen-
ingamálunum. Það eru ákveðin
merki um það að stjórn peninga-
málanna séu ekki með þeim hætti
sem heppilegust er til að draga úr
þenslunni. Þetta ásamt erlcndu
lántökunum er það sem menn
hafa mestar áhyggjur af“, sagði
Björn Björnsson, hagfræðingur
ASÍ, í samtali við Alþýðublaðið í
gær um nýútkomna þjóðhagsspá
og nýjan úrskurð launanefndar.
Launanefnd úrskurðaði í gær
að launahækkun hinn 1. mars
skuli vera 2%, samanber ákvæði
jólaföstusamninganna.
í greinargerð er talið að spá
Þjóðhagsstofnunar um verðlags-
breytingar á árinu sé í hærra lagi.
Miðað við þær forsendur sem
staðið er frammi fyrir í dag. „Það
kann að vera að þær forsendur
breytist eitthvað”, sagði Björn,
„en okkur sýnist ekki ástæða til
að reikna með því fyrr en það ligg-
ur fyrir“
Launanefnd fær töluvert aðrar
niðurstöður í sínum útreikningum
en Þjóðhagssofnun. Reiknað er
með 8—9% hækkun framfærslu-
vísitölu frá 1. janúar 1987 til 1.
janúar 1988 í stað 10,5% í spá
ÞHS. Meðalhækkun vísitölunnar
frá 1986 til 1987 er um 12,5—
13,5%, en í spá ÞHS er reiknað
með 14,5% hækkun milli ára.
— En, er það ekki Ijóst að það
má lítið út af bregða og að e.t.v.
hafi ekki nœgilega verið brugðist
við?
„Það hafa ekki nein sérstök
viðbrögð verið höfð uppi að hálfu
stjórnvalda til að vega t.d. upp á
móti þeim mikla halla sem menn
standa frammi fyrir á ríkisbú-
skapnum. — Það verður ekki gert
með neinum örðum hætti en að-
haldi á sviði peningamála. Eftir
því sem lengra líður fram á árið
verður auðvitað meiri hætta á því
að peningaþenslan segi til sín og
birtist okkur þá í verðbólgu"
— Má kannski álíta eftir allt
saman, að jólaföstusamningarnir
hafi falið í sér verðbólgu?
„Nei, þetta voru hiklaust ekki
verðbólgusamningar. Þetta voru
samningar sem fólu það í sér, mið-
að við þær forsendur sem þar
voru lagðar og tekið var undir, að
við gátum reiknað með því í lok
ársins að verðbólga yðri hér kom-
in niður á svipað stig og í ná-
grannalöndunum. Mönnum þyk-
ir auðvitað miður ef það á að
okkar
glutra niður því tækifæri sem
menn höfðu til að ná sér niður á
það ról. Þessu tækifæri hafa
menn ekki látið sig dreyma um að
ná árum saman“
— Því hefur verið haldið fram
að hvorki á nœstunni, né í fyrir-
sjáanlegri framtíð, gefist tœkifœri
til að taka á þessum vanda. Erum
við þá e.t.v. búin að tapa verð-
bólguglímunni?
— „Nei, við erum alls ekki bú-
in að tapa þessu. Eins og fram
kemur í niðurlagsorðum í greinar-
gerð launanefndar, þá er það full-
komlega i hendi okkar sjálfra hver
niðurstaðan verður. Við getum
náð þessu markmiði sem fólst i
forsendum og verðlagsspá síðustu
kjarasamninga og það erum við
sjálf sem ráðum því hvort við ná-
um takmarkinu eða ekki.“
— Þegar talað er um aðhald í
ríkisbúskapnum og að dregið
verði úr þenslu, sjá menn stund-
umfyrir sér að dregið verði úr op-
sjálfra
inberri þjónustu og að atvinnu-
leysi blasi við?
„í fyrsta lagi er búið að ganga
frá fjárlögum fyrir árið 1987,
þannig að það er ekkert verið að
tala um að skera neitt niður í ríkis-
búskapnum. Spurningin er hins
vegar sú að menn reyni að vega
upp á móti þessum halla og
þensluáhrifum í ríkisbúskapnum,
með stjórn á peningamálum. Með
því að draga úr útlánum, þannig
að þau verði vel innan marka inn-
lánsaukningar. Með þvi að sjá svo
til að erlendar lántökur sem ráðist
er í á árinu umfram afborganir,
þær verði þá til þess að bæta
skammtímastöðu okkar gagnvart
útlöndum. Það er að segja, að við
leggjum þá peninga inn á banka í
útlöndum, eða á annan hátt, en
dælum ekki peningum inn í land-
ið. — Menn þurfa ekki annað en
líta á atvinnuauglýsingar í blöð-
unum til að sjá að engin hætta er
á atvinnuleysi hér á næstunni",
sagði Björn Björnsson.
alþýóu-
i n FT'jT'
SKAGINN —
VESTURLAND
I Alþýðublaðinu eru í dag 8 síður
helgaðar Vesturlandi og er blaðinu
dreift inn á hvert heimili á Vesturlandi