Alþýðublaðið - 26.02.1987, Page 4

Alþýðublaðið - 26.02.1987, Page 4
4 Fimmtudagur 26. febrúar 1987 í vor verður geng- ið til alþingiskosn- inga. Frambjóðend- ur flokkanna flykkjast um kjör- dæmi sín og kynna stefnumál síns flokks fyrir vænt- anlegum kjósend- um. Þeir spyrja kjósendur um hvað verði kosið og svara síðan spurningunni — Hrönn Ríkharðs- dóttir, Akranesi, sem skipar 3. sœtið á lista A Iþýðuflokksins, skrifar: Verð- trygging: Réttlæti eða ánauð? ...en ráðamönnum hugkvœmdist ekki að um leið bœri þeim að sjálfsögðu siðferðileg skylda til að skerða jafnmikið vísitölu á lánsfé. Fyrir það fyrsta getur það hvorki selt né leigt húsnœði sitt, og í öðru lagi er spurning hvort það á nokk- uð í húsnœðinu lengur... Hún hefur ekki aðeins gert fjöl- marga að öreigum, heldur einnig að ómerkingum og vanskilamönn- um. sjálfir og segja gjarnan að kosið verði um skattamál- ið, eða byggða- stefnu, jafnvel kvótakerfi í land- búnaði og sjávar- útvegi. Sjálfsagt er þetta allt rétt, en mín skoðun er sú að stór hluti þjóðar- innar vilji fá lausn á öðrum málum ekki síður. Nefni ég þar fyrst spurninguna um verðtryggingu lánsfjár og leiðrétt- ingu til handa al- menningi hennar vegna. í upphafi var... Árið 1978 tók ríkisvaldið þá ákvörðun að verðtryggja skyidi inn- og útlán. Taiað var um að koma þyrfti á raunvöxtum, greiðsluþyrði yrði að jafna og einnig að greiðslu- byrði þyrfti að vera jöfn, þannig að lántakendur vissu hvar þeir stæðu. Vísað var til tímabils óðaverðbólgu, þegar skuldir fólks „hurfu á verð- bólgubálinu", og sýnt fram á hvern- ig „sumum“ hafði tekist að maka krókinn á kostnað samborgaranna. Fjárfest var í steinsteypu og engum datt til hugar að leggja peninga inn á banka, þar logaði verðbólgubálið einna glaðast. Meðal þess sem al- menningi var bent á var að greiðslu- byrði lána samkvæmt nýja kerfinu yrði minnst fyrst, en færi síðan stig- hækkandi þegar fjárhagur færi batnandi. Síðast en ekki síst var lögð áhersla á tengsl launa og láns- kjara, þar sem launþegar fengju leiðréttingu ársfjórðungslega með svokölluðum vísitölubótum. Og svo komu hinir... Á vordögum 1980 tók ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen við völdum eftir snubbóttan valdatíma vinstri stjórnar Ólafs Jóhannessonar. Eitt af verkum þessarar ríkisstjórnar var að skerða vísitölubætur á laun á þriggja mánaða fresti, en ráða- mönnunum hugkvæmdist ekki að um leið bæri þeim að sjálfsögðu siðferðileg skylda til að skerða jafn- mikið vísitölu á lánsfé. Þannig byrj- aði að síga á ógæfuhliðina, en ástandið átti eftir að versna til muna. Sú ríkisstjórn sem við tók 1983 og nú situr afnain kaupgjalds- vísitöluna með öllu og kom heldur ekki til hugar að leiðrétta lánskjara- vísitölu samtímis. Nú er svo komið að alls engin tengsl eru milli launa og lánskjara eins og talað var um í upphafi, en víst er um það að greiðslubyrðin fer stighækkandi eða öllu heldur stökkhækkandi. Hvar á landinu? Það skiptir miklu máli í þessu samhengi hvar á landinu fólk býr. Þeir sem búa á höfuðborgarsvæð- inu eru mun betur settir en hinir sem byggja dreifbýli landsins. Vandamál vegna þessa eru auðvitað til á Stór-Reykjavíkursvæðinu, en þar hækka fasteignir þó að minnsta kosti í verði. Hækkun á einu ári er um 40%. Þetta þýðir einfaldlega að eignahluti fólks helst nokkurn veg- inn þótt lánin hækki. Úti á landi hefur fasteignaverð staðið i stað mjög lengi og sífellt ést af þeim hluta sem fólk átti um stundarsakir i byrjun. íbúar dreifbýlisins sem vilja flytja sig um set, ýmist til Reykjavíkursvæðisins eða annað getur ekki gert það. Fyrir það fyrsta getur það hvorki selt né leigt hús- næði sitt, og í öðru lagi er spurning hvort það á nokkuð í húsnæðinu lengur, hvort það stendur ekki hreinlega uppi eignalaust. Fyrirtæki... íbúðareigendur eru ekki þeir einu sem eru að sligast undan órétt- látum og ómannúðlegum lánakjör- um. Eigendur fyrirtækja búa við sömu kjör. Á svipaðan hátt og tala má um tvær þjóðir, þar sem önnur býr á Stór-Reykjavíkursvæðinu og hin á Iandsbyggðinni, má einnig tala um tvær tegundir fyrirtækja. Annars vegar eru gömul og gróin fyrirtæki sem ef til vill voru byggð upp fyrir verðbólgugróðann og svo hin sem urðu til eftir að verðtrygg- ingartímabilið hófst. Það er mér hulin ráðgáta hvernig síðarnefndu fyrirtækin geta staðist samkeppni. Ef til vill má skýra hátt verð á ís- landi með tilvísun í þessa stað- reynd. Er til lausn? Hvað er til ráða? Er til einhver lausn á vandamálinu? Ég held það. Hærri lánveitingar til húsbyggjenda eru ekki lausn, í öllu falli ekki á meðan lántakendur geta á engan hátt treyst því að þær forsendur sem gefnar eru við lántökuna standist. Þeir fjölmörgu sem treystu stjórn- málamönnum til að standa við orð sín og standa nú uppi nær eigna- lausir eru til vitnis um það. Það sem hægt er að gera er til að mynda tvennt. Annars vegar að koma á nú þegar einni vísitölu launa og láns- kjara, endurreikna greiðslubyrðina í samræmi við það og lengja láns- tíma. Hins vegar að veita fjármagri til að fella niður að minnsta kosti helming þess misgengis Iauna og lánskjara sem orðið hefur vegna að- gerða ríkisvaldsins. Að lokum Verðtryggingu lánsfjár var meðal annars ætlað að bæta kjör almenn- ings, auðvelda fólki að eignast hús- næði og standa við skuldbindingar sínar. Hún hefur snúist upp í and- hverfu sína. Fólki er gert ókleift að eignast þak yfir höfuðið og jafn- framt að standa í skilum. Hún hef- ur ekki aðeins gert fjölmarga að öreigum, heldur einnig að ómerk- ingum og vanskilamönnum. Hún gerir venjulegu fólki ómögulegt að skipta um húsnæði eða flytja sig um set á landinu. Hún bindur fólk í fjötra líkt og ánauð forðum tíð. Hún verður að víkja í núverandi mynd. Tak hf. Verktakar — vinnuvélaleiga 370 Búöardalur — sími 93—4229 u 1 1 Félagsmálafulltrúi Dlafsvíkurkaupstaöur auglýsir starf félagsmála- ulltrúa laust til umsóknar. Um er að ræöa nýja stöðu ávegum bæjarins og er um hálfs dags starf ið ræöa. _aun eru samkvæmt kjarasamningum BSRB. .eitað ör eftir einstaklingi meö reynslu á sviöi fé- agsmála. Allar nánari upplýsingar veitir bæjar- jtjóri í síma 93—6153. Bæjarstjórinn í Ólafsvík c c \ c / C Afgreiðslugjaldkeri í)skum aö ráða starfskraft í stöðu afgreiðslu- jjaldkera á bæjarskrifstofu Ólafsvíkurkaupstaö- ir. Um er aö ræða heils dags stööu og eru laun .amkvæmt kjarasamningi BSRB. 1 ið leitum aö dugiegum starfskrafti með viö- kiptamenntun og reynslu í skrifstofustörfum. \llar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri í síma 13—6153. Bæjarstjórinn í Ólafsvík alþýöu- I rTFT.lt. SKAGINN — VESTURLAND Alþýðublaðið á Vesturlandi fer inn á hvert heimili í kjördæminu. Auglýsing þín kemur því fyrir sjónir allra íbúa Vesturlands ef hún birtist í Alþýðublaðinu

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.