Alþýðublaðið - 26.02.1987, Síða 6
t
6
Fimmtudagur 26. febrúar 1987
i
Skólameistarinn, Þórir Ólafsson, býður gesti velkomna.
Fyrrum skólameistari, Ólafur Ásgeirsson, nú þjóðskjalavörður, rifjaði
upp ýmis atriði úr sögu skólans.
Menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, se
FJÖLBRAUTASKÓLI VESTURI
Fjölbrautaskóli Vestur-
lands á Akranesi var settur
í fyrsta sinn föstudaginn 6.
febrúar, við hátíðlega at-
höfn. Skólinn er nú sam-
eiginlegur framhaldsskóli
alls Vesturlands. Við-
staddir athöfnina voru
meðal annarra, Sverrir
Hermannsson, mennta-
málaráðherra, alþingis-
menn Vesturlands, sveitar-
stjórnarmenn af Vestur-
landi, skólanefndarfull-
trúar, kennarar og nem-
endur.
Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra setti
skólann og lýsti formlega
yfir stofnun hans. Hann
Hérsést menntamálaráðherra afhenda Gunnari Má Kristinssyni, formanni
Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, samning um stofnun skólans.
Glæsileg sveifla sem greinilega vekur aðdáun, — eða a.m.k. athygli.
afhenti einnig Gunnari Má
Kristóferssyni, formanni
Samtaka sveitarfélaga á
Vesturlandi, samning um
stofnun skólans, en Gunn-
ar afhenti samninginn síð-
an skólameistaranum,
Þóri Ólafssyni.
Fjölbrautaskóli Vestur-
lands er nýr skóli á göml-
um grunni. Með formlegu
samstarfi sveitarfélaga í
kjördæminu um rekstur
hans, tekur hann við af
Fjölbrautaskólanum á
Akranesi, sem stofnaður
var 1977.
Nokkur aðdragandi var
að stofnun skólans og hafa
viðræður milli sveitarfé-
laganna staðið alllengi yf-
ir. Þess ber þó að geta að
samstarf skóla á fram-
haldsskólastigi hefur stað-
ið í mörg ár og verið með
miklum ágætum.
AHmargar ræður voru
fluttar við athöfnina og
eru myndir af nokkrum
ræðumönnum að finna
Ppíj|*
|. ■ : ^ r - . ■ |
.
■J ■ II |{ J WHIm /v - ' m
:C/
Séð yfir salinn. í rœðustólnum er Sverrir Hermannsson.