Tíminn - 01.07.1967, Page 14
TIMINN
LAUGARDAGUR 1. júlí 1967
SUMARHÁTÍÐ FRAMSÓKNARMANNA í ATLAVSK
Sumarhátíð Framsóknar-
manna á Austurlandi verður
haldin dagana 8. til 9. júli
næstkomandi í Atlavík. Dag-
skrá verður mjög fjöltíreytt
og vönduð eins og venja het
ur verið á þessari sumarhátíð,
og verður hcnnar getið í blað-
inu síðar-
SKIPUL AGSMÁL
Framnaid ai dis. á.
trúa í sameiginlegum kjördeild-
um.
Um sambandsstjórn.
Lagt er til, að sambandsstjórn
verði kosin til fjögurra ára í
senn. Hana skipi 15 manna mið-
stjórn auk 18 manna annarra, eða
alls 33 menn, sem kosniir verði á
regliulegu sambandsþingi AjS.1 í
18 imanna hópnum skal einn mað-
ur vera úr hiverju kjördæmi lands-
ins — 8 að tölu — o-g skulu þeir
eiga lögheimili og búsetu í því
kjördæmi, sem þeir eru kosnir
fyrir. Til viðlbótar iþeim 33 mönn
um, sem aiþýðusambandsiþing kýs
í samibandsstjóm, kjósi landssam-
böndin og þau núverandi sam-
bandsfélög, sem ekki verður skip
að í landissambönd, menn i sam
bandsstjórn með tilliti til félags-
mannaifjölda, en reglur þar um
eru skýrðar í tillögunni og vís-
ast því til þeirra. M vísast
einnig til fylgiskj als með tdllög-
unni um samibandsstjórn, en af
því má sjá að miðað við stærð
núverandi landssambanda myndi
þau skv. því sem lagt er til kjósa
samtals 17 menn í sam-
bandsstjóm til viðbótar þeim 33
mönnum, se.m alþýðusamibands-
þing kýs og samibandsstjórn þann
ig verða skipuð 50 mönnum.
Eins og fyrr greinir er gert
ráð fyrir, að sambandsþing komi
saman fjórða hvert ár og fær þá
sambandsstjóm í hendur meiri
verkefni en áður og er því nauð-
synlegt að hún sé það fjölmenn,
að unnt sé að koma þar á fram-
færi meginsjónarmiðum landssam
bandanna og aðildarfélaga þeirra.
Hér er um að ræða meginilrætti
skipulagsins og þau atriði sem erf
iðust reyndust til úrlausnar og
því nauðlsynlegt að fá afstöðu
sambandsfélaganna til þeirra, áð-
ur en gengið verður frá heildar
tillögum laga- og skipulagsnefnd
ar til framhaldsþings Alþýðusam-
bandsins næsta haust.
í laga og skipulagsnefnd eiga
sæti menn úr öllum landsfjórð-
ungum. Munu þeir sem og Al-
þýðusamibandið fúslega veita þá
aðstoð, sem einstök sambandsfé
lög kynnu að óska, verðandi frek-
ari skýringar á tillögum.
Með félagskveðju.
F. h. Laga- og skipulagsnefnd
AjSJÍ.
Eðvarð Sigurðsson, Jón Sn. f>or
leifsson, Pétur Sigurðsson, Óskar
Hallgrímsson Snorri Jónsson.
Hér fara á eftir tillögur skipu
lagsnefndar:
Um kosningu fulltrúa til allþýðu
sambandsþings.
Landssamband sem kýs 7 full-
trúa eða fleiri skal skipa aðildar
félögum sínum í kjördeildir og
skal það vera aðalregla, að félög
sem starifa í sama kjördæmi séu
í sörnu kjördeild. Ilver kjördeild
kýs þá tölu fulltrúa á þing A.S.Í.
sem sameiginleg félagsmannatala
félaganna í kjördeildinni gefur
rétt til, miðað við heildartölu fé-
1 lagsmanna viðkomandi sambands
og heildartölu fulltrúa, sem sam-
bandið á rétt til.
í landssamböndum, sem um
ræðir hér að ofan, er félögum
heimilt, sem hafa jafnmarga
eða fleiri félagismenn, en nemur
þeirri tölu, sem er að baiki hvers
fulltrúa viðkomandd sambands,
að mynda sérstaka kjördeild,
hvert um sig, og kjósa fulltrúa á
þing A.S.Œ. miðað við félags-
mannatölu sína.
Ennfremur geta félög, innan
sambands, sem ekki ná þeirri tölu
félagsmanna er um ræðir í 2.
máls'gr. skipað sér sarnan í kjör
deild og telst þá félagsmannataia
þeirra saman við útreikning full-
trúafjölda á þing A.S.Í.
Þau landssambönd, sem kjósa
sex fulltrúa eða færri skulu vera
ein óskipt kjördeild. Þó geta sam
bönd, sem byggð eru á aðild sér-
greinafélaga, skipað aðildarifélög
um í kjördeildir eftir sérgreinum,
enda séu eigi færri félagsmenn
en 250 í kjördeild, sbr. 3. mgr.
hér að framan.
Þau núverandi sambandsfélög
sem ekki verður skipað í lands-
sambönd, og hafa a.m.k. þá tölu
félagsmanna, sem standa að baki
fulltrúatölu landssambandanna,
kjósa fulltrúa með sama hætti og
landssamböndin. Þau verkalýðs
félög, sem hafa fœrri félags-
menn, kjósa fulltrúa í sameigin-
legri eða sameiginlegum kjör
deildum.
Nánari reglur um tilhögun
fulltrúakjÖEs á þing AjS.Í. setja
landssamböndin hvert fyrir sig,
en staðfestar sikulu þær af stjórn
A.S.Í., áður en þœr koma til fram
kvæmda.
Um sambandsstjórn.
Sam'bandsstjórn skal kosin til
'fjögurra ára í senn eins og hér
segir:
Á reglulegu samibandsþingi,
skuilu forseti og varaforseti
kosnir sérstaklega. M skal næst
kjósa 13 meðstjórnendur og
mynda þeir ásarnt forsetunum mið
stjórn Alþýðusamibands íslands.
Auk 15 miðstjórnarmanna kýs
samfoandsþing 18 menn í sam-
bandsstjórn. Af þessum mönnum
skal einn maður vera úr hverju
kjördæmi landsins — 8 að tölu. —
Skulu þeir eiga lögiheimiili og bú-
setu í því kjördæmi, sem þeir
eru kosnir fyrir.
Til viðbótar þeim mönnum sem
samfoandsþing kýs í sambands-
stjórn skulu landssambönd og
þau núverandi samibandsfélög,
sem ekiki verður skipað í lands
sambönd þau, er mynda Alþýðu-
sambandið kjósa menn í sam-
bandsstjórn eftir þeim reglum,
sem hér segdr, og er sambands
stjórn þá fullskipuð:
Landssambönd með 2500 félags
menn og færri skulu kjósa einn
mann hvert. Landssambönd með
2501 —5000 félagsmenn kjósa
tvo menn hvert. Landssambönd
með 5001—10.000 félagsmenn,
skulu kjósa þrjá menn hvert
og landssambönd sem hafa fleiri
en 10.000 félagsmenn skulu kjósa
fjóra menn bvert. Þau núverandi
sanrbands'félög, sem ekki verður
skipað í landssambönd, og hafa
jafnmarga eða fleiri fólagsmenn
en fámennasta landssamband-
ið skulu kjósa menn í sambands
stjórn eftir sömu reglum og lands
samiböndin.
Sambandsstjórn kýs úr sínum
hópi ritara og gjaldkera.
Hér fara á eftir tillögur þeirra
'Sveins og Péturs.
„Frumdrög að skipulagi AS.Í.
Breytingar á skipulagi A.S.Í. hef
•ur alllengi verið rætt u«i. Miki
ar og ítarlegar umræður hafa
oft farið fram um þetta mál, bæði
í nefndum, er Sambandss'tjórn
hefur kosið og á þingum samtak-
anna, en því miður án teljandi
árangurs. En tiltölulega lítill
áranigur af þessuim hugleiðingum
er sumpart ekki óeðlilegt, þar sem
allmikið af þeim hefur beinzt að
því, að veikja styrk, eða jafnvel
leggja niður einstök félög í nú-
verandi mynd, sem þó hafa unnið
gifturíkt starf á undanförnum
áraitugum í þágu meðlima sinna
og um leið verið styrkur hlekkur
í keðju heildarsamtakanna. Það
'hafa hins vegar lítið komið fram
opinfoerleg'a af tillögum um stæk'k
un félaga í þeirri mynd, sem þau
eru í dag, á hinum ýmsu stöð-
um.
Nú hefur hins vegar átt sér stað
sameining félaga á nokkrum stöð
um á landinu, að fúsum og frjáls-
um vilja, burtséð frá kynjum og
störfum eða sérstakrar skil-
greiningar um hvað maðurinn
eða konan vinni á viðkomandi fé-
lagssvæði. Einingarnar hafa stækk
að á viðkomandi stöðum. Þetta
er hin rétta þróun.
En þá kemur spurningin: Ilvað
á að stækka, hvað miikið og eftir
hvaða reglum, bæði landfræði-
lega og félagslega. Er það heppi-
legt, að það sé landið allt, og þá
miðað við starfsgreinar eins
og nú er inikið talað um og fram
kvæmt helúr verið í nokkrum
starfisgreinum, sbr. verzlunar
menn, vörutoílstjóra og að nokkru
leyti sjómenn og verkamenn, svo
að helztu dærni séu nefnd,
Nú erum við ekki komnir til
með að segja, að starfsgredna-
samtoönd, or ná yfir allt landið,
sé nokkur sigurbraut hinna vinn
andi stétta. Það mun að margra
áiiti vera hið gagnstæða, miðað
við þau samtoönd er stofnuð hafa
verið.
Er þá rétt að yfirvega þá helztu
annmarka, er við teljum á slíkri
skipulagsuppbyg'gmgu:
1. Núverandi stéttarfédög
myndu skiptast upp að meira eða
minna leyti, ættu meðlknir þeirra
að fara í hinar ýmsu hugsuðu
starfsgreinar.
2. Yfirstjörn myndi í fram-
kvæmd verða í tiltölulega fárra
manna höndum. Þá mundi og
verða erfitt að finna heppilegt
kosningafyrirkomulaig, er næði til
meðlima jafnt um landið allt.
3. Staðfaundnir kjarasamn-
ingar myndu verða erfiðari og þá
um leið hin harðari kjarabar-
átta.
4. Fámenn sérgreinasam-
bönd myndu haifa verri baráttu-
aðstöðu. Vinnuveitendur ættu auð
veldara með að eimangra þau
nema þá með fyrirframgerðu
samkomulagi við önnur stærri
samibönd.
M erum við komnir að því,
sem reynislan hefur sýnt okikur,
að er höfuðstyrkur samitakanna,
þegar á reynir, að þar standi stétt
með stétt og snúi bökum saman
til sóknar og varnar, í stærri fylk
ingum.
Fleira mætti minna á í sam-
bandi við landssambönd sér-
greina, þótt það verði ekki gert
hér.
í framhaldi af því, sem hér hef
ur verið sagt, og með tilliti til
reynslu þeirrar, sem fengizt hef-
ur af þeim sérgreinasamifoönd-
um, sem þegar haifa verið stofn
uð, teljum við fulla ástæðu tál að
yfirvega, hvort annað og ef til
vill betra fyrirkomulag hentaði
ekki íslenzkum staðháttum og
þessu félagsmálastarfi.
HU'gmyndir okkar um skipu-
lagsuippbyggingu A.S.Í. eru í
stuttu máli á eftirfarandi hátt.
1. Landinu verði skipt í 7 hér
aðasamibönd samkvæmt með-
fylgjandi skrá skipulagsnefnd
ar A.S.Í. um félög og félagstal
bls. 26—34.
2. Stjórnir héraðasamband-
anna taki við hlutverkum stjórna
núverandi fjórðungssambanda og
fulltrúaráða á viðkomandi svæð
um. Skipulagsuppbygging héraða-
sambandanna sé hin sama og ver-
ið hefnr hjá fjórðunigssamböndun-
um að svo miklu leyti sem við
verður komið.
3. Héraðasamböndin verði
beinir aðilar að A.S.Í. og verði
réttarstaða þeirra gagnvart A.S.Í.
eftir því sem við getur átt, hin
sama óg réttarstaða sambands
félaga sem beinna aðila að AS.Í.
'hefúr verið til þessa.
4. Á þingum hvers héraða
sambands skulu kosnir 2 menn
í sambandsstjórn er búsetu eiga
innan viðkomandi héraðasam-
bands. M skulu kosnir fulltrúar
á A.S.Í. þing þannig, að við-
komandi héraðasamband fái þá
tölu fulltrúa, sem sameiginleg
féla'g.smannatala félaganna gef-
ur rétt til, t.d. miðað við töl
una 150. Þó þannig, að hvert það
félag, er næ'r þessari tölu fær
einn fulltrúa og síðan tilsvarandi
eftir stærð viðkomandi félags.
En meðan það ástand varir, sem
nú er, að fél'ög eru með færri
tölu meðlima en þessu nemur verð
ur að gera í fullu samráði við
þau bráðafoirgðaráðstafanir, t.d.
með heimild um samkosningu
sikildra stairfshópa í einum og sama
kaupstað eða kauptúni eftir því
sem bezt þætti henta á viðkom-
andi sitöðum.
5. AlþýðusamibandSþing er
æðsta vald í málefnum samtak-
anna, það kiomi saman 4. hvert ár.
Þar eru kosnir 9 menn í mið-
stjórn og skipa þeir auk þeirra
14 manna, er héraðasamböndin
kjósa samkvæmt 4. lið hér að
framan samtoandsstjórn. Þing-
ið ák\».'ður skattgreiðslu til starf-
semi samtakanna með einföld
um meiribluta. Kosningafyr
irkomulag sé hið sama og nú er.
Nánara fyrirkomulag um allar
kosningar skulu settar í reglu
gerð.
í skipulagShugmyndum þekn
er hér að framan haifa verið nefnd
ar, felast me^inskoðanir okk-
ar í því, hvernig æskilegast sé
uppbygging A.S.Í. í framtíðinni
að vísu frumlhugmyndir í mjög
stuttu máli.
Ýmis framkvæmdastriði þess-
ara breytinga þurfa nánari út-
færslu með og teljum við,
að það þurfi að albugast í sam
ráði við stóttarfélögin um land
ið allt. T. d. hvernig skuli
fara þau sérgrein.asambönd sem
sem þegar hafa verið stofnuð,
hvort þau verði lögð niður í
áiföngum eða jafnvel hvort sum
þeirra geti rúmast innan þess
skipulags, er við leggjuim fram.
Hér er aðeins átt við þau sam
bönd, sem eru með mikinn meiri
hluta meðlima sinna innan sama
ihéraðasambandis.
Við viljum með þessum hug-
myndum okkar vekja a'thygli
hinna einstöku félagseiningia á
því, hvort staða þeirra væri ekki
betur komið innan þess ramma
er hér er nefndur, heldur en
sérgreinafélaga er næðu yfir land
ið allt.
Það er félaiganna sjálfra að velja
eða hafna, en aUtaf er betra að
liggi fyrir fleiri en ein hugmynd
í sama máli.
M er að sjálfsögðu auðvelt að
endurbæta þessi mannanna
verk sem önniur, eða önnur ný
komi í staðinn, og nýir stein-ar
verði lagðir í musterisbyggingu.
Sveinn Gamalíeilsson,
Pétur Kristjónsson.
Auglýsið í Tímanum
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar þakkir og kveðjur til allra sem glöddu
mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og skeytum
á sjötugsafmæli mínu 13. júní s.l. Ennfremur þakka ég
margvíslega hjálp í erfiðleikum og veikindum.
Sérstaklega þakka ég börnum mínum og tengdabörn-
um. Guð blessi ykkur öll.
GuSmundur GuSmundsson
Skipagergi, V-Landeyjum.
Systir okkar
Emelía Hjálmarsdóttir,
andaðist 21. júní s. 1. Jarðarförin hefur farið fram. Öllum þeim,
sem velttu hennl hjálp og hjúkrun, þökkum við af alhug.
Áróra Hjálmarsdóttir,
Karl Hjálmarsson.
Eiginmaður minn og faðir,
FriSbjörn Kristjánsson,
Hauksstöðum Vopnafirði,
lézt i Landsspítalanum þann 29. júní.
Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir
og börn.
FRAMSOKNARKONUR
Félag Framsóknarkvenna fer
lemmtiferð að Laugarvatni
iðí'.oaginn 4. júli. Lagt verður
eton fró T’iornerrrötii Irl 1
eftii nadegi.
Þátttaka tilkynnist í síma 24946
fyt-ir iaugardagskvöld Konur taki
með sér nesti. — Stjórnin.