Tíminn - 15.07.1967, Page 9
LAUGARDAGUR 15. júlí 1967.
TÍIVIINN 9
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvœmdastjóri: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSi
G Þorstoinsson, Fulitrúi ritstjómar: Tómas Karlsson Aug-
lýsingastjóri: Steingrímur Gíslason Ritstj.skrifstofur t Eddu-
húsinu, símar 18300—18305 Skrifstofur: Bankastræti 7 Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingasimi 19523 Aðrar skrifstofur,
sími 18300 Askriftargjald kr 105.00 á mán innaniands — t
lausasölu kr. 7.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h. t.
ning 1
í umr num um bakreikning borgarstjórans á
reykvíska utsvarsgreiðendur, útsvarshækkunina, sem
samþykkt var í borgarstjórn örfáum dögum áður en
útsvarsskráin var birt, hafa komið fram kynleg atvik,
nú virðast hafa leitt til þess, að borgarstjórinn og
tnblaðið játa blekkingasekt sína með algerri þögn
— uauðahljóði — þrátt fyrir endurtekningar spurningar
Tímans þrjá daga í röð.
í umræðunum í borgarstjórn var það meginefni gagn-
rýni fulltrúa Framsóknarflokksms á borgarstjóra, að
hann hefði neitað að taka skmdabagga Bæjarútgerðar-
innar inn í fjárhagsáætlunina í desember s.l. til þess að
geta sýnt borgarbúum lægri aætlun útsvara og verið
þannig góður dáti í blekkingastríði ríkisstjórnarinnar
fyrir svonefndri „stöðvunarstefnu“. Eftir kosningar voru
svo útsvörin hækkuð í fullan dyrtíðarhraða. Þetta væri
að koma aftan að borgurunum og alveg óheimil vinnu-
brögð við gerð fjárhagsáætlunar.
Borgarstjóri las þá upp eigin ummæli er hann kvaðst
hafa haft í ræðu í borgarstjórn 1. des. s.l. þar sem fram
kom fyrirvari hans um það, að nækkun útsvarsupphæðar
gæti komið til mála vegna skulda BÚR, ef unnt reyndist.
Þess vegna kæmi hann á engan hátt aftan að borgurunum,
þar sem þeir hfefðu vitað um þessa afstöðu hans. Mbl.
birti þessa tilvitnun og fór hörðum orðum um tal Tímans
um að borgarstjóri hefði komið aftan að borgarbúum með
útsvarshækkunina.
Þegar flett var upp í Morgunblaðinu 2. des. s.l. sést
að þar eru að vísu birt ummæli borgarstjóra um BÚR
feitletruð og innan gæsalappa, og sést að þar er um
sama ræðupóst að ræða. En þessi yfirlýsing er allt öðru
vísi en sú, sem borgarstjóri las nú, og þar enginn fyrir-
vari um útsvarshækkun vegna BÚR. Síðan hefur Tíminn
þráspurt um skýringar borgarstjóra eða Mbl. á því,
hvernig standi á muninum á þessum tveimur útgáfum,
en eina svarið er þögnin, og hún er líka svar.
Augljóst er því, að borgarbúar fengu enga vitneskju
um fyrirvara borgarstjóra, hvað sem hann hefur sagt
í borgarstjórn, og því var komið aftan að borgarbúum
með útsvarshækkunina.
Frammistaða kommúnista í bakreikningsmáli íhalds-
ins er með þeim endemum, að fxestir eiga bágt að skilja
slíka hörmung. Þjóðviljinn ræðst á Framsóknarmenn
í gær fyrir afstöðu þeirra í málinu og kallar skömm.
íhaldsverkfærið má trútt um tala. Kommúnistar heimt-
uðu réttilega á sínum tíma, að skuldabaggi BÚR væri
með í fjárhagsáætlun Reykjavíkur, töldu þó útsvars-
bogann á einstaklingum snenntan til hins ýtrasta, en
fluttu tillögu um hækkun á fyrjrtækjum. íhaldið neitaði
hvoru tveggja og hélt áfram feluleiknum — fyrir kosning-
ar. Eftir kosningar þakka svo kommúnistar fyrir sig með
því að standa með íhaldinu að stórhækkun útsvara þvert
ofan í löglega gerða fjárhagsáærlun, og sá baggi lendir
allur á einstaklingum Það er von að fhaldið telji sér
fært að níðast pannig á borgurunum aftur og aftur,
þegar hægt er að hengja sektarbagga á burðarklára frá
andstæðingunúm.
Ihaldsverkfæri
Þagnarját
Litið inn á heim-
ili framtíðarinnar
Grein úr bandaríska tímaritinu News & World Report
Æ FLEIRI bandarískar fjöl
skyidur geta átt náðuga daga
heima fyrir innan tíðar. Ýimis-
konar tilbúinn matur, sem ekki
þarf annað en hita upp og bera
síðan fram, er þegar kominn
á markað'inn og á vaxandi vin-
sæidum að fagna. Auk þess má
nefna pappírskjóla, sima þar
sem aðeins þarf að ýta á hnapp
föt, sem ekki þarf að pressa,
ofnas, sem halda sér heitum, og
útvarpstæki, sem eru minni að
fyrirferð en vindlapakki.
En þetta er aðeins upphaf
annars meira. Þróunin í bygg-
ingu íbúða er ákaflega ör. Nýj-
uin efnum er tekið betur en
áður, svo og nýrri byggingar-
iækni og nýju fyrirkomulagi.
Framleiðslu ýmisskonar nota-
muna og búnaðar innanlhúss
tekur einnig örum breytingum.
Meðal þess, sem þegar er á boð
stóium, má nefna: Límborið
veggfóður, sem eigandi íbúðar-
innar getur sjálfur komið fyrir
og tekið niður aftur ef hann
verður leiður á lit og gerð.
Baðker og sturtuklefi í einu
lagi í baðherberginu, búið til
úr trefjagleri. Á klefanum eru
engin samskeyti, þar sem hætta
er á að óhreinindi safnisf, og
yfirborðið virðist hlýtt við-
komu.
Ofn og ikæligeymisla í einu
lagi. Þar helzt maturinn kald
ur unz að því kemur að elda.
Þá teikur ofninn að hitna, sýð
ur eða bakar og heldur matn
um hæfilega heitum þar til
hann er borinn fram.
Teppi úr sterkum plastdúk
til notkunar úti, ýmist á pali
tennisvöll, bátaþilfar eða sund
laugarbakka.
„Þvottaihús" til 'heimilis-
nota í baðherberginu. Þar má
þvo lítið í senn af nœrfötum,
sokk'um, skyrtum og kjólum.
Rúðugler, sean lagar sig
sjálfkrafa eftir birtunni, dreg
ur úr henni þegar sólskin er,
en hleypir henni allri í gegn
þegar dimmt er yfir.
Efni í fatnað, sem tengt er
saman með efnablöndu og
hita, svo að ekkert þarf að
sauma. Fóðri má til dæmis
íesba beint inn f flíkina. Þeg
ar þetta efni er notað í kven
kjóla þarf til dæmis eikki sér-
staka svuntu.
Ryksugur, sem hvíla á loft
oúðum, til þess að þær séu
auðveldari í meðförum.
Meðfærilegir kæliskápar,
sem ganga fyrir rafhlöðu og
auðvelt er að hafa með sér
þegar fjölskyldan fer í stutta
ferð eða útilegu.
Endiurbættur, skjótvirkur
örbylgjuofn í eldhúsið. Verð
ið er frá 400—450 dalir (17,
200—19.770 krónur).
Gluggatjöld, sem ekki taka
í sig ólhreinindi eða ryk, þar
sem þeim er komið fyrir inni
í tvöfalda glerinu í gluggun-
um;
Ýmis litil málmá'höld, svo
sem ristar og síur o. fl., sem
notandinn getur gert við
heima verkfæralaust. Hver
smáhlutur fæst út af fyrir
sig pg er því aúðvelt að endur
nýja það, sem úr sér gengur.
Veggfóður, sem hægt er að
fletta af þegar maður vill breyta
um. Límið harðnar ekki.
Æ fjölbreyttari tegundir til
búdns matar, sem grípa má til,
þar á meðal frosið brauðmeti,
kjöt og fiskréttir. svo og ýmis
konar lostæti.
Um það, sem hér hefir ver
ið talið, og fjölmargt annað,
sem væntanlegt er, komst sér-
fræðingur einn í vörudreif-
ingu svo að orði:
„Neytandinn hefir aldrei áð
ur átt kost á jafn fjölbreyttu
úrvali tií no'/i. skrauts og
vinnusparnaðar. Fæst af þessu
er langt undan, flest er komið
eða að koma á mankaðinn og
fjöibreytnin eykst í sífellú1.
Lítum til dæmis á nýjung-
arnar í eldhúsinu:
Þar má nefna potta með sjálf
virkum hræritækjum, til
þess að maturinn brenni ekki
við þegar eldað er. Húsmóðir-
FYRRI GREIN
in, sem vil'l halda matnum í
kvöldveizluna heitum og til-
búnum til framreiðslu, á
völ á tæki, sem gerir þetta
auðvelt. Það er geymir, sem
varðveitir margs konar mat
og getur haldið hverjum rétti
fyrir sig hæfilega heitum allt
að sex klukkustundum.
Firamleiðendur gastækja
eru farnir að selja ofna, sem
hreinsa sig sjálfir, og gefa að
því leyti ekikert eftir þeim ofn
um, sem raftækjaframleiðend-
ur hafa selt. Þá er ný upp-
þvottavél, sem ekki þarf raf
magn. Hún gengur fyrir vatns
þrýstingnum einum, vegur um
8 fcíló og verðið er minna en
100 dalir (4300 krónur).
Meðal nýjunga í eldlhúsinn
réttingum má nefna hurðir,
sem hægt er að kippa spjöld
unum úr, og húsmóðirin á þá
auðvelt með að breyta lita-
samsetndngunni í eldbúsinu án
þess að innréttingunni sjálfri
þurfi að breyta. Kæliskápar
ir eru orðnir „færanlegir"
Flestir hinna nýrri skápa eru
á hjólum, svo að unnt sé að
draga þá frá veggnum °S g«ra
þannig hægara uim vik við
hreinsun. Sumum skápum má
aka út úr eldhúsinu og inn í
önnur herbergi. Hið nýjasta
er að haga kæliskápnum eftir
ýmsum hlutum hússins. Til
dæmis má hafa þá í laginu
einis og borð, eða koma þeim
fyrir á vegg í borðstofunni
eða leikstofu.
Bráðlega kemur á markað
inn vatnshitari, sem er ekfci
stærri en vindlakassi. Hann
leysir venjulegu vatnshitunar
tækin af hólmi. Þá má nefna
vatnssíu, sem komið er fyrir
í vatnshananum í eldhúsinu.
Með því að ýta á hnapp má
iáta enddngarg'óða kolasíu
nema burtu „óbragð“ að klóri
og öðrum ísblöndunarefnum í
dryikkjarvatn. Sían endist um
það bil hálft ár.
Til og frá um íbúðina eru
hvers konar tæki, sem draiga
úr fyrirhöfn húsmóðurinnar.
Til dæmis birtir Edison Electr
ic Institute sfcrá yfir 166 ýmiss
konar tæki, sem fáanleg eru
á markaðnum.
Notkun ljósbreyta í sam-
bandi við rofa fer mjög í
vöxt. Með þeim er auðvelt ým
ist að auka birtu í herbergj-
um eða að draga úr henni.
Rafmagnsupphitun var í
þremur af hverjum tíu íbúð
um, sem byggðar voru í Banda
ríikjunum árið sem ledð. Notk
un rafmagns til hitunar eykst
verulega í sumum landshlut-
uim. Þar sem ný hverfi eru
reist tíðkast mjög að koma
rafleiðslum úti fyrir neðan
jarðar til þess að draga úr
lýtum utan húss.
Gentgið er frá meiri'hluta
nýrra íbúða á þann hátt, að
sími er lagður í hvert her-
bergi um leið og byggt er.
Víða er fullko.minn innanhús
sími, svo að unnt sé að tala
milli herbergja og jafnvel að
svara dyrabjöllunni í síimann.
Ef litið er inn í fataskáipa
í nýrri íbúð blasa sennilega
við margir pappírskjólar á
húsmóðurina. Þessir kjólar
komu á markaðinn fyrir tæp
um tveimur árum, þegar
Scott Paper Company fór að
selja tvær gerðir kjóla til
reynslu. Kjólunum var tekið
svo vel að nýjum iðnaði v.'ir
hrundið af stökkunum.
Meðal nýjunga í pappírs-
klæðnaði má nefna:
Pappírskjólar, gerðir úr
trjákvoðu með nælonþráðum.
Þeir eru seldir á einn dal og
29 sent (rúmar 55 krónur)
og er auðvelt að breyta þeim
og jafnvel að skipta að
nokkru um snið með skærun-
um einum.
Prjónaföt úr pappdr, úr
snúnum paippírsþræði með
næloni til styriktar. Efnið er
litað og þannig úr garði gert,
að það brennur ekki. Sagt er
að þessi klæði endist jafnvel
misserið.
Barnaföt, sem má fleygja
þegar þau eru orðin óhrein,
en þau voru upphaflega gerð
til þæginda á ferðalögum.
Þá er metravara úr pappír
handa þeim konum, sem vilja
sjálfar sníða og sauma sinn
Framhald á bls. 15.