Tíminn - 15.07.1967, Blaðsíða 13

Tíminn - 15.07.1967, Blaðsíða 13
LAUCARDAGUR 15. júli 1961. ÍÞRÓTTIR ■ rlMINN ÍÞRÓTTIR 13 ****** \ • -» JT ^ « 13 íþróttakenn- arar útskrifaðir Sagt frá skólaslitum íþróttakennaraskólans á Laugarvatni. Þerstelnn Þorsteinsson, KR, varð sigurvegari í 200 m. hlaupi á meistara- móti Rvfkur í fyrrakvöld. Hlaut hann tímann 22,7 sek. Valbjörn Þor- láksson, KR, hafði lengst af forustu, en Þorsteinn tók hann á góðum endaspretti. En mjóu munaði, því báðir hlutu þeir sama tíma. Greint verö ur frá úrslitum í mótinu í blaðinu eftir helgina. íþróttakennaraskóla íslands var slitið 30. júní s. 1. eftir 9 mánaða starf. í upphafi skólaslitaræðu minnt ist skólastjóri tveggja nýlátinna manna, þeirra Benedikts Jakobs sonar íþróttakennara, er verið hafði stundakennari við skólann s.I. 6 ár, og Jóhanns Vilhjálms- sonar frá Laugarvatni. Vdðstaddir skólasldt voru all- margir gestir, þeirra á meðal iþróttakennarar, er brautskráðust fyrir 25 árum. Færðu þeir skól- anum að gjöf vönduð tjöld til notkunar í fjallferðum. Þá voru einnig viðstaddir íþróttakennarar er brauitskráðust fyrir 10 árum síðan. Þeir færðu skólanum að gjöf afsteypu af mynd eftir Ásmund Sveinsson. Skólastjóri þakkaði íþróttakennurunum góðar gjafir, ræktarsemi og hlýhug, er þeir bera í brjósti til skólans. Skólastjóri greindi frá starfi liðins vetrar. Rom þar m.a. fram að hinn stutti námstími, setur verulegar hömlur á íþróttakenn- aranámið, þótt reynt hafi verið A VITATEIG Margir landsleikir. Landsleikjaprógrammið í knattspyrnu er með stærra móti í ár. Núj þegar hafa ver- ið leiknir margir leikir, bæði a-leikir og unglingaleikir. Og enn eru eftir a.m.k. þrír lands leikir. í þættinum í dag verð- ur rætt um frammistöðu lands liðanna okkar. Úr Olympíukeppninni, en góð frammistaða samt. A-landsliðdð féll úr Olym- píukeppninni í fyrstu umferð en þó held ég, að enginn sé óánægður með frammistöðu ís lenzka liðsins, hún var jafn- vel betri, en menn höfðu átt von á. Fyrri leiknum við Spánverja lauk með jafntefli, 1:1 en síðari leiknum tapaði ís- land með fcveggja marka mun, 5:3, sem er alls ekki slæm frammistaða á útivelli við erfið skilyrði. Enginn vafi^ er á því, að sú nýbreytni KSÍ að skipa lands liðsþjálfarara löngu áður en keppnistímíabilið hófst og láta hann hefja æfingar um vetrar- tímann, hefur haft góð áhrif. En einkennilegt, að þetta skyldi ekfci hafa verið gert fyrr. En þrátt fyrir góðan árangur, verður að skapa lands liðinu ennþá betri æfinga- skilyrði. Reynir Karlsson, landsliðsþjálfari, var örugg- lega ekki allt of ánægður með hinn lélega aðúnað landsliðs- ins á s.l. vetri, þegar hvað eft- ir annað þurfti að fresta lands liðsæfingum ýmissa orsaka vegna. Og hvernig hafa æfinga skilyrðin verið í sumar? Lands liðinu hefur jafnvel verið mein að að æfa á Laugardalsvellin- um, þegar smágluía myndað- is-t í hinu þrönga leikjapró- grammi. Megininntakið er, að þrátt fyrir góða raun af starfi Reyn is Karlssonar, verður að gera enn stærra átak í landsliðsmál unum. Á ég þar við, að lands liðið verði að fá ákveðna æfingadaga yfir sumartímann á góðum grasvelli. Jafnframt verður að haga málunum þann ig, að fél'ög skaðist sem minnst af landsliðinu. Þetta geta aðr ar þjóðir — og þetta getum við einnig. Góð frammistaða á afmæl móti. íslenzka u.nglingalandsliðið skipað leikmönnum 23ja ára og yngri, stóð sig vel á af- mælismóti KSÍ. Sætur sigur gegn Norðmönnum og naumt tap fyrir Svíum. Því miður gat ég ekki sé$ l.eikina, en allir keppast við að hrósa íslenzka liðinu. Fljótlega eft'ir að afmæ’l'is- mótinu lauk, kom fram sú til- laga að halda þessu unglinga ’liði óbreyttu og tefla því fram sem a landsliði. Fyrir ýmsar sakir er þessi* tillaga athyglis- verð, en stenzt þó tæ-plega, þegar betur er að gætt. Það er þannig með flest unglingalið, að þau eru „óstabíl“. Þannig geta þau átt góðan leik í dag, en slæman á morgun. Hvers virði er okki leikreynslan? Ef eitthvað bregður út af, þá eru það leikreyndu mennirnir, sem skapa jafnvægi. Og þegar tillit er tekið til þess. að í sænska liðinu, sem við töpuð- um fyrir 2:0, voru aðeíns 2 a-liðsmenn sænskir, þá gefur það tii kynna, að sænska a- landsliðið hljóti að vera mun sterkara, svo ekki sé tekið dýpra í árinni. Og berum svo saman sænska landsliðið og danska liðið, sem við eigum að mæta í a-landsleik í næsta mánuði. Svíar eru að vísu á- litnir sterkari, en munurinn er ekki mikill. Er þá þorandi að tefla unglingaliðinu óbreyttu fram? Það er vissuiega rétt, að æskilegt er að halda góðum unglingaliðum sem mest ó- breyttum. Þanniig er t- d. mjög æskilegt, að unglingaliðið frá 18 ára fái að halda saman og fái verkefni við hæfi, allt þar til, að 23ja ára aldri er náð. Upp úr því er sjálfsagt að btanda yngri og eldri , leik- mönnum saman eftir efnum og ástæðum- , Slæm frammistaða unglinga- liðsins í NM. Eftir hina ágætu frammi stöðu unglingalandsliðsins, skipað leikmönnum 23ja ára og yngri, var það reiðarslag fyrir marga, þegar fréttist um 10:0 ósigur fsl. unglingalands- liðsins (18 ára og yngri) fyrir Svíum í Norðurlandsmótinu. Hvað er á seyði?, spurðu menn. Fljótt kvisaðist, að „klíkuskapur" hefði ráðið • um val liðsins. Ákveðið félag þótti eiga of marga fulltrúa í lið- inu, sérstaklega með tilliti til þess, að félaginu hafði ekki gengið of vel í 2. flokks móti a í sumar. Sá, sem þessar línur ritar, á sæti i unglinganefnd KSÍ og telur sig að miklu léyti ábyrg- an fyrir vali liðsins, eins og undanfarin 2 ár, m.a. þegar íslenzka liðið gerði jafntefli við Svía i fyrra, 0:0, og tap- að bæta úr því með mjög löng-1 verði lengdur og starfsaðstaðan um vinnudegi nemenda og kenn- bætt. ara. Verður þvf vonandi ekki Undanfarin ár hefur oft reynzt langt að bíða þess að skólinn I Framhald á bls. 12 Þrír þýðingarmikl- ir leikir í 7. deild Alf — Reykjavík. — I- deildar keppninni í knattspyrnu verður haldið áfram um helgina. Á Ak ureyri mætast heimamenn og Kefl víkingar á sunnudag kl. 16 og á sunnudagskvöld mætast KR og Akranes á Laugardalsvellinum kl. 20.30. Þriðji leikurinn verður háður á mánudagskvöld á Laugar dalsvellinum kl. 2030 en þá mæt ast Valur og Fram. Allir þessir lei'kir eru þýð ingiarmiklir. Akureyri og Keflaviik hafa bæði enn möguleika til sig- urs, en það liðið, sem tapar stigi, eða sti'gum á sunnudag, er ekki lengur með í kapphlaupmu. Sennilega verður um hörku'bar áttu að ræða hjá KR og Akranesi Möguleikar Skagamanna á áð halda sæti sínu í deildinni eru sáralitlir — og verða nær engir, takist þeim ekki að krœkja í stig á sunnudaginn. KR-ingar mættu illa við að tapa fleiri stig um. Leikur Vals og Fram á mánu dagskvöld verður án efa jafn og spennandi, en síðast skildu liðin jöfn, 2-2. aði einungis 1:2 fyrir Rússum árið þar á undan. En það verð ég að segja, að aldrei hefur mér fundizt rikja jafn almenn ur áhugi á málefnum unglinga landsliðsins og nú. Stöðugar símhringingar frá alls konar fólfci, sem er með fáránlegustu hugmyndir um val liðsins, eru daglegt brauð og allt hefur þetta fólk skýringar á reiðum höndum: „Beztu mennirnir voru ekki valdir, þess vegna fór sem fór.“ Sjálfur man ég ekki eftir, að nokkur hafi hringt eftir jafnteflisleikinn í fyrra. Voru þó ekki færri full- trúar úr „klíku-félaginu“ í því en nú. Sannleikurinn er sá, að ná kvæmlega sömu starfsaðferðir voru viðhafðar við val ung- lingalandsliðsins í ár og 2 und anfarin ár. Það, sem einfald- lega átti sér stað, var það, að íslenzka liðið var lakari nú en áður. Qg það stafar af því, að 18 ára árgangurinn í ár er ekki eins sterkur. Það hefði engu breytt þótt Pétur eða Páll úr einhverjum öðrum fé löguni hefðu verið valdir í lið- ið í stað einhverra, sem voru valdir. Útkoman hefði ekkert orðið betri. Til fróðleiks skal ég t.d. upplýsa, að mikill hörg- ull var á góðum varnarmönn- um. Varnarmennirnir, sem voru valdir nú, hefðu tæplega komizt að sem varamenn í lið ið í fyrra. Segir það sína sögu. Stórþjóðir eins og Svíar og Pólverjar — og aðrar milljóna þjóðir, sem þátt tóku í Norð- urlandsmótinu, velja li^j sín úr hópi drengja, sem skipta tug- um þúsunda á hverju ári — á meðan við hér á íslandi veljum úr 100 til 200 manna hópi, ef sú tala er þá ekki of hátt reiknuð. Það þarf því engum að koma á óvart, þótt slæðist slakur 18 ára árgang ur inn í hjá okkur. Annars gefur allt þetta um- tal um unglingalandsliðið nú, mér kærkomið tækifæri til að benda á ýmsa erfiðleika, sem samfara eru' því að velja ungl- ingalandslið skipað piltum 18 ára og yngri. Hér á landi er 2. flokkur skipaður piltum 19 ára og yngri, en í nágranna- löndunum er aldurinn miðað- ur við 18 ár. Þess vegna er það út í hött að miða valið við frammistöðu 2. flokks a liðanna eingöngu, því að 18 ára piltarnir komast oft og tíðum ekki í a-liðin vegna 19 ára piltanna. Tökum smádæmi. KR átti engan fulltrúa í ungl- ingalapds'liðinu nú, þrátt fyr- ir ágæta frammistöðu' í 2. flokki. Það er vegna þess, að kjarninn í KRliðinu er skip- aður 19 ára piltum. Á árs- þingi KSŒ fyrir 2 árum flutti ég tillögu um það, að aldurs takmörkin í 2. flokki hér yrðu samræmdar við Norðurlönd, bæði til þess að auðvelda val- ið á unglingalandsliði og enn fremur til þess, að gera sam- skipti okkar við norræn ungl- ingalið raunveru'legri. Allir tala um góða frammistöðu fé lagsliða okkar í 2. flokki við erlend lið, en það er ekki jafn \dst, að fólk hafi vitað um, að liðiri pkkar eru skipuð eldri leikmöhnum. En hvernig fór um tillöguna á KSÍ-þinginu? Hún var auðvitað kolfelld. Á hvaða forsendum? Spyrjið mig ekki að því. Við ýmsa aðra örðugleika er að etja í sambandi við val á unglingalandsliði T.d er mjög erfitt að atta sig á getu utan- bæjarmanna vegna þess, hve seint þeir byrja að leika. Verð ur þá að miða við getu á síð- asta ári —og á það auðvit- að lika við um Reykjavíkur félögin. Ég ætla ekki að fjölyrða meira um unglingalandsliðið, en fróðlegt væri, ef einhver af hinum mörgu óánægðu kæmi fram á sjónarsviðið með gagnrýni sína. Það er nóg rúm á íþróttasíðunni eða í þessum þaetti. —alf.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.