Tíminn - 25.07.1967, Qupperneq 12
12
ÍÞRÓTTiR TÍMINN ( ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. j«B 1067.
Unglingakeppnin í knattspyrnu:
9 Valsmenn unnu
mótií fyrir AB!
Alf.—Reykjavík. — Unglinga-
mótinn í knattspyrntt, sem
staoið hefur yfír í Reykjavík
og Keflavík síðttstu daga, lauk
á Melavellinum í gærkvöldi
með leik á milli Vals og Kefla-
víkur. Staðan í mótnra fyrir
þann leik var sú, að danska
liðið AB hafði hlotið 6 stig eftir
3 leiki, en Keflavík var með
4 stig eftir 2 leiki. MarkaWut-
fallið hjá AB var 9—2, en
7—1 hjá Keflavík.
Keflvíkingar höfðu því alla
möguleika á að sigra í mótinn
í gærkvöldi, og ekki sízt fyrir
það, að einungis 9 Valsmenn
mættu til leiks. En margt fer
öðru vísi en ætlað er. Hinir
9 Valsmeim reyndust sterkari
en 11 Keflvíkingar og unnu leik
inn 2—1, — og tryggðu AB
sigur. Voru dönskn piltarnir að
vonum kátir eftir leikinn, og
buðu Vals-piltunum upp á 9
Pepsi Cola flöskur!
.
...........sémmmmÁ......
Mark Aknreyrar að veruleika. Þrír af vamarmönnum Fram gera tilraun til að stöðva knöttinn, Anton,
Hrannar og Jóhannes, en án árangurs. (Tímamynd Róbert)
Fimmti sigurleikur Akureyrar í
röð, en fyrsti tapleikur Fram
• • •■••: • ••••• ■ • •
■ ■
Kári Ámason skoraði eina mark leiksins 15 mín. fyrir leiksl.
Alf — Reykjavík. — Öllum á
óvænt, ekld sízt móthexjum sín-
um, Fram, tefldu Akureyringar
íþróttir á
þjóðhátíð-
inni í Eyjum
Þjóðlhátáðin í Vestmanna-
eyjum verður ihaldin 4. og
5. ágúst n.k. og sér Knatt-
spyrnufélagið Týr uim hiátíð
ina að þessu sinni. Eins og
endranær mun verða mikið
um fþróttir á hátíðinni og
vill Týr sérstaklega • hvetja
alla íþróttamenn, sem verða
munu í Eyjum um þjóðlhátíð
ina, að taka þátt í 'þeim.
Þeim, sem Ihafa áhuga á að
koma til keppni, mun verða
séð fyrir ókeypis húsnæði og
fæði, ef þeir láta vita nógu'
tímanlega.
Vilji einhverjir íþrótta-
flokkar koma á hátíðina,
mun að sjálfsögðu verða tek
ið á móti þeim á sama hátt,
komi þeir fram í keppni eða
sýningu.
Þeir, sem áhuga hafa á því
að faeimsækja Eyjar í þessu
skyni, um þjóðhátíðina hafi
FTamhald S bls 15
fram sínu sterkasta liði á sunnu-
daginn í 1. deildar leiknum á
Laugardalsvelli. Aðeins tveim
ur dögum áður liöföu þrír af
leikmönnum liðsins ekki treyst
sér til að taka þátt í landsleikn-
um við Færeyinga. En fljótt skip
ast veður í lofti. Það voru hressir
og endurnærðir Akureyringar,
sem birtust á vellinum. Og þeir
komu sáu, og sigruðu.
Eftir þrjá fyrstu leikina í ís-
landsmótinu voru Akureyringar
orðaðir við fall. í dag eru þeir
orðaðir'við sigur í mótinu. Leik-
urinn við Fram var fimmti sigur
leikur þeirra í röð, en hins vegar
var þetta fyrsti tapleikur Fram
á kcppnistímabilinu. Það veikti
Fram-liðið óneitanlega, að lElmar
Geirsson gat ekki leikið með, en
hann lá heima fyrir með 40 stiga
faita. Hraðinn, hið beitta ‘ vopn
Fram, var ekki eins mikill fyrir
bragðið. Þar fyrir utan var eitt-
hvað slen yfir Fram-liðinu og má
e.t.v. leita orsakanna til þess, að
þmr af 1-cikmönm.m liðsins höfðu
tekið þátt í erfiðum leik tveimur
dögum áður.
Hári Árnason skioraði eina mark
lejksins á 30. mínútu, síðari hálif-
leiks. Fram-vörnin hafði haft gott
auga með Kára allan tímann, en
í þetta skipti var hún illa á verði.
Hári fékk kmöttinn á miðjum
ErienJur Einursson sigurvegurií
GR-keppninnium,0líubikurinn'
Laugardaginn 8. júlí hófst í
Graifarholti hin árlega keppni
GJR. um Olíuibikarinn. Keppni
þessi er tvíþætt þ.e. fyrst fer
frarn undirbúningskeppni, sem er
18 holu höggleikur með forgjöf,
en sdðan halda svo 16 beztu áfram
í útsláttarholukeppni, er stend-
ur út næst/u viku. Þeir tveir, er
standa eftir að lokinrn 3. umferð
heyja svo úrslitaleik um bikar-
inn réttri viku eftir undirlbún-
ingskeþpnina. Holukeppni er oft
mjög spennandi og harðvítugur
leikur, enda urðii sumir þátt-
takenda að leika 18 holur tvíveg
is, áður en sigur vannst. Til leiks
í undirtoúningskeppnina mættu 29
kylfingar. Árangur varð fremur
slakur, enda voru leikskilyrði
miður góð. Strax á sunnudag og
mánudag hófst svo 1. umferð. Að
lokinni 3. umferð stóðu eftir
tveir kylfingar þeir Erlendur Ein
arsson og Eirfkur Helgason. Þeir
léku síðan til úrslíta 18 faol-
ur laugardaginn Í5. júlí.Keppn-
in var alltvísýn framan af en er
síga fór á seinni hlutann, tryggði
Erlendur sér smám saman sigur
inn með öruggum og hnitmiðuð
um leki. Úrslit urðu sem sagt þau
að Erlendur Einarsson varð sigur
vegari í keppni GG. um Olíubik-
arinn 1967. Erlendur siigraði Erík
með nokknum mun þ.e. 43, (átti
4 holur vnnar þegar þrjár holur
eru eftir). Þetta er fyrsta stór-
keppnin, sem rlendur sigrar í, a.
m.k. sú stærsta ihingað til.
vallarihelmingi Fram og óð upp
miðjuna að marki. Hallkell í Fram
markinu reyndi úthlaup — kann-
ski of fljótt, því að varnarmenn
Frarn hefðu getað truflað Hára —
en Kári afgreiddi knöttinn í net-
ið fram fajá honum.
Á þessu eina marki vann Abur-
eyri leikinn og hlaut tvö dýrmæt
stig. Þrátt fyrir, að Fram-liðið hafi
verið lélegt í þessum leik, voru
Akureyringar þó sannarlega
heppnir að vinna. Þannig mun-
aði ekki nema hársbreidd, að
Frarn tækist að skora tvívegis í
fyrrí hálfleik. Á 16. mínútu sendi
Baldur Seheving fyrir markið á Er
lend Magnússon, sem stóð einn fyr
ir opnu marki aðeins tvo metra
frá marklín-u, en með einfaverjum
’hætti tókst Erlendi að skjóta ytfir.
Og á 39. mínútu skeður svipað
atvik, nema hvað nú var Hreinn
Elliðason að verki. Þannig hefði
Fram getað haít yfir í hálfleik,
2-0, en Akureyringar áttu engin
teljandi marktækifæri í fyrri hólf
leik.
Langbezti maður Akureyrar var
Jón Stefánsson, en í heild var
vörnin mjög góð. í framlínunni
var Kári virkastur, en Skúli lin-
ari en oft áður.
Hjó Fram var vörnin betri hlut
inn með Ant’on Rjarnason sem
sterkasta mann.
Baldur Þórðarson dæmdi
inn og gerði það nokfcuð vel.
leik-
Hafnarfjarðar-liðin
unnu fyrstu leikina
mótinu haldið áfram í kvöld.
fslandsmótið í handknattieik ut
húss héfst sl. föstudags-kvöld í
ifnarfirði með tveimur leikjum
raei.starailokki karla. FH, , ís-
ídsmeistararnir utanhúss, sigr-
i ÍR auðveldlega 30-23, en þrátt
rir stóran sigur vekur- athygli,
e mörg mörk FH tfær á sig. í
num leiknum sigruðu Haukar
Val með 27-21 og var þar um jafn
ari baráttu að ræða.
Mótinu verður haldið áfram í
kvöid og leika þá fyrst KR og ÍR,
en sáðan FH og Víkingar. Ættu
báðir leikirnir að geta orðið
skeimmtilegir. Þar næstu leikir
fara fram á föstudaginn og verð
ur þá bæði leikið í karla og kven-na
flokbum.
Hermann Samúelsson skorar iýrir ÍR gegn FII í fyrsta leik útíhandknattleiksniótsins. (Tímamynd ísak).