Tíminn - 11.08.1967, Blaðsíða 2
FÖSTUDAGUR 11. ágúst 19ffJ
(Tímamynd: Kárl)
og forsetinn aka frá Reykjavíkurflugvelll. Lögregluþjónar á mótorhjólum fara fyrir bifreiSunum, og mannfjöldi veifar tii hinna tignu gesta.
Mikill viöburður að fara í Vesturveg”
Framihals af bls. 1.
ist í dyTium vólarinnar heilsuðlu
þeir honum með heiðurs-
bveðju. Forseti íslands giekk
að landganginum oig heilsaði
ríkisartfanum, er hann steig á
íslenzka grund í fyrsta sinn,
en aðrir þeir, sem tóku á móti
Haraldi, stóðu í röð andspænis
flugvélinnL
Er forseti íslarids hafði
heilsað ríkisarfanum, lék
Liúðrasveit Reykjavíkur undir
stjórn Páls P. Pálssonar, þjóð-
söngva landanna. Fyrst hljóm
uðU fagrir tónar Ridh. Nord-
raaks, „Ja, vi elsker- dette
landet", en síðan var íslenzki
þjóðsöngurinn leikinn.
Að þvi loknu gengu forset-
inn og ríkisarfinn etftir rauða
dregLinum og heilsaði ríkisarf-
inn þar öðrum þeim, er á móti
honum tóku í Reykjavík, en
það voru Emil Jónsson, utan-
rí'kisráðherra, Geir Hallgrdms-
son, borgarstjóri, Sigurjón Sig
urðsson, lögreiglustjóri, Örn
Johnson, forstjóri Flugfélags
íslands, og fulltrúar úr mót-
tökuniefndinni, Þorleitfur
Thorlacius, forsetaritari og
Hörðuir Bjarnason, húsameist-
ari ríkisins. . .
Á meðan ók bitfreið forseta
íslands að enda dregilsins og
forsetinn vísaði ríkisarfanum
síðan inn í bifreiðina haegra
megin og settist síðan við hlið
ríkisarfans. Fylgdarlið ríMs-
artfans og íslenzkir fylgdar-
menn hans fóru inn í þrjár
aðrar bifreiðar en síðan hélt
bEalestin atf stað í fylgd með
lögreglumönntum í bitfreiðum
og á bitfhjólum. Var ekið rak-
leiðis til róðherrahústaðarins
við Tjarnargötu, þar sem ríkis
arfinn men dvelja meðan á
beimsókniinni stendur.
Kvöldverður að
Bessastöðum
Kilukkan 20 í kvöld hélt for-
seti íslands kvöldverðarboð að
Bessastöðum til heiðurs norska
ríkisarfanum. Mættu gestir þar
v n / - j ,
Ríkisarflnn heilsar embættismönnum og fulltrúum úr móttökunefndinni. Á myndinni er hann aS heilsa borgarstjóranum í Reykjavík, Geir
Hallgrímssyni, en til vinstri við þá er forseti íslands, herra Ásgeir Ásgeirsson, og utanríklsráðherra, Emil Jónsson. Þá koma Hörður Bjarna-
on, húsameistari ríkisins, Þorleifur Thorlacius forsetaritari, Sigurjón Sigurðsson lögregiustjóri, norska ambassadorsfrúin og fulltrúar úr norska
sendiráðinu. (Tímamynd: Kári)
í formlegium klæðnaði skreytt-
ir heiðursmerkjum.
Á matseðilinium var fyrst kjöt
seyði, þá reyktur lax með
spinati, hrærðum eggjum, asp-
as og ristuðu brauði. Síðan
varu rjúpur með gulrótum og
grænum baunum og að lokum
appelsín-tritffle.
Forseti íslands hélt ræðu
undir borðum og afhenti þá
ríkisartfanum gjötf — Ijósprent-
un atf handriti Landnámsbókar
skrautbundið og siKurbúið.
Haraldur ríkisarfi hélt einnig
ræðu, og fara báðar ræðiurnar
hér á etftir.
«... til góðs vinar
liggja gagnvegir"
Ræða Haralds ríkisarfa
i hljóðar syo:
' „Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson.
í minni fyrstu ferð til íslands
kemur fram í huga minn hinar
fögru Ijóðlínur Hávamála um
vináttuna:
„Veiztu ef þú vin átt
þanns þú vel trúir . • .
far at finna oft.
. . . til góðs vinar
liggja gagnvegir
þótt hann sé firr farinn."
Sérhver Norðmaður, sem nýtur
þess heiðurs að finna til gleðinn-
ar af heimsókn til íslands, sér iif-
andi fyrir sér í huga sínum þann
sameiginlega sögulega arf og þá
sameiginlegu menningu, sem á
margan hátt tengir ísland og Nor-
eg saman.
Hann er sér einnig meðvitandi,
þakklátum huga, að þessi arfur
hefur verið vel geymdur og haldið
á lofti af íslenzkum konum og
körlum allt frá tíma Ingólfs Arn-
arsonar.
í augum okkar Norðmanna rís
hæst meðal þessara höfðingja and
ans Snorri Sturluson — höfundur
Heimskringlu — verks, sem á af-
gerandi hátt hefur haldið við þjóð
legri meðvitund vorrar. Með end-
urlífgun sögu vorrar og feðraarfs,
vaknaði að nýju krafturinn í hug
um vorum til nýs þjóðlegs vaxtar
einmitt á mótgangstímum — þeg-
ar þörfin var mest.
Það er því mikill viðburð-
ur fyrir mig persónulega að
halda „í vesturveg" til vors gamla
ættar- og frændalands. Ég vil
þakka forseta fslands hlýjum hug
fyrir þann heiður, sem mér er með
því sýndur, og fyrir þær mótttök-
Framhald á bls. 14.
1