Tíminn - 19.08.1967, Page 2
LAUGARDAGUR 19. ágúst 19CT
TÍMINN
REITINGSAFLI HJÁ
HÓLMAVÍKURBÁTUM
JAHólmavík, miðivikudag.
Reytings íiskaíli hefiur verið
hér undanfarið. Að staðaldri
róa nú 3 bátar frá Hólmavík
og 3 frá Drangsnesi. Eru þeir
úti í þrjá daga í einu og hafa
komið að með frá 5 og upp
í 12 tonn. Er- það öllu skárri
afli en verið hef-ur síðustu ír-
in. Bátarnir eru eingöngu á
handfærum og er acflinn þorsk
ur. Sækja þeir norður á
Drangaskörð og Hornkamba,
en þangað er 8—10 tíma
keynsla.
Hér er voðalegt grasleysi,
mjög mikið kal í túnum og
lítið sprottið. Er útlit fynr,
að bændur verði að fækka bú
fé í haust, Tíðin hefur verið
sæmileg, frekar lítið um
þurrka og kalt, en þó aefur
verið sæmileg nýting á heyi-
um.
Mikið hefur verið um ferða
fólk í surnar, og fer það allt
norður í Árneshrepp. Er það
alls staðar að af landinu.
MIKIÐ GRASLEYSI
ÓE-Bitrufirði, miðvikudag.
Bilvelta varð hér í yikunni
sem leið. Flutningabíll frá
kaupfélaginu á Hólmavik valt
út af veginum við Krossárbrú,
og fór hann heila veltu og
kom niður á hjólin aftur.
Bíllinn er mikið skemmdur eft
ir veltuna, og sömuleiðis farm t
urinn, en búið er að ná hon
um upp aftur. Bílstjórinn og
farþegi hlutu lítils háttar
skrámur, en sluppu annars
ómeiddir.
Hér er mikið grasleysi, en
góð táð, og munu bændur yfir
leitt vera hálfnaðir með tún
sín. Grasið er Mtið, og fer ekki
hjá því, að fóður vanti í haust.
Hér hafa verið haldnir fundir
undanfarið um heyskaparmiál
in á vegum búnaðarsamfeands
ins, og vona menn, að kal-
nefndin getd eitthvað gert.
Ekki hefur enn verið atfeugað
um heyskap, enda er að skilja
á fréttum, að erfitt verði að
fá hey keypt í haust.
Töluverð umferð hefur ver-
ið hér undanfarið, og um verzl
unarmannafeelgina var hún
talsvert mikil, enda hafa orð-
ið stórbrcytingar til bóta á á-
standi vega hér í sýslunni frá
því sem áður var. Mest eru
þetta Reykvíkingar, en annars
víðs vegar að af landinu.
DJÁKNINN SEGIR UPP
GJ-Grímsey, fimmtudag.
Djákninn hér, Einar Einars
son, hefur nú sagt starfi sínu
lausu ,og flutzt til Akureyrar.
Er embætti hans laust, og vit
um við Grímseyingar ekki, .
hvort við fáum nýjan sálusore
ara í hans stað.
Héðan róa nú að staðaldri
10—12 trillur, og' einnig hafa
Eyjafjarðarfeátar haft viðlegu
hér í höfninni. Aflinn hefur
verið sæmilegur undanfarið.
Síðustu dagana hefur verið sól
skin, en annars hefur verið Mt
ið um þurrka það sem af er
sumrinu. Menn eru nýbyrjað-
ir að slá, og er sprettan með
alversta móti og mikið mm
kal. Heyið er mest verkað í
vofhey.
KiÐA er núna að setja hér
upp frystihús, en félagið rek-
ur hér útilbú eins og kunnugt
er. Húsnæðið var fyrir hendi.
en verið er að setja vélamar
niður, og verður því verki lok
ið fyrdr haustið. Verður fiskur
inn þá heilfrjistur hér og síð
an sendur á Akureyrarmarkað.
Ifér var ekkert frystifeús fyr-
ir, heldur var aflinn saltaður,
en með þessu móti myndast
hér aðstaða fyrir línuútgerð,
sem ekki hefur verið fyrir
hendi áður.
Þá er hér í smíðum félags-
heimili, sem jafnframt verður
notað sem skóli. Er bygging
in vel á vég komin, og var
kennt í henni í fyrraivetur.
Biskupinn vísiterar í Húnavatns- og
Skagafj.prófastsdæmum um helgina.
r
ES-Rvík, föstudag.
Kartaflan á meðfylgjandi
mynd kom upp úr garði
suður í Kópavogi um síð-
ustu helgi og er hvorki
meira né minna en 230 gr-
að þyngd. Hún er út af út-
sæði, sem sett var niður í
kassa um mánaðamótin
marz—apríl, en sett út viku
af maí, og voru grösin þá
orðin um 25 cm. há. f frost
unura í maí féllu grösin
alveg, en spruttu aftur, og
hefur það sýnilega ekki háð
undirvextinum. Eigandi
garðsins er Heiðbjört Pét-
ursdóttir, Álffeólsveg 58,
Kópavogi, en kartöflurnar
eru af dönsku aftorigði.
Biskupinn herra Sigurfejörn
Einarsson vísiterar í Húnavatns
og Skagafjarðarprófastsdæm-
um dagana 19.—21. ágúst. Vísi-
tasíunni verður hagað sem hér
segir. Laugardaginn 19. ágúst
klukkan tvö. Efra-Núpskirkja kl.
fimm Hvammstangakirkja. Sunnu
daginn 20. ágúst kl. tvö, Mel-
staðarkirkja, klukkan fimm Stað-
arbakkakirkja. Mánudaginn 21.
ágúst klukkan tvö, Silfrastaða-
kirkja, klukkan fimm Flugumýr-
arkirkja, og klukkan níu Mikla-
bæjarkirkja.
(Frá Biskupsskrifstofu)
NYTT FRIMERKI
í tilefni af 50 ára afmæli Verzl
unarráðs fslands verður gefið út
nýtt frímerki að verðgildi 5 kr.
Útgáfudagur merkisins er 14. sept
emfeer næstkomandi. Gísli B.
Björnsson auglýsingateiknari hef
ur teiknað merkið, en það verð-
ur prentað hjá Courvoisier A.S.
í La Chaux-de-Fonds í Sviss.
HLAUT STYRK
Á afmæMsdegi dr. Rögnvalds
Péturssonar hinn 14. ágúst 1967
var í fjórða skipti útlhlutað styrk
úr minninigarsjóði hans til efling
ar íslenzkum frœðum. Styrkinn,
sem er að uppfeæð 35.000 krónur
hlaut cand. mag. Svavar Sig-
mundsson til að kynna sér ör-
nefnarannsóknir erlendis og til
rannsókna á íslenzkum örnefn-
um .
Stjórn sjóðsins skipa Ármann
Snævarr, háskólarektor og pró-
fessoramir dr. H^lldór Halldórs-
son og dr. Steingrimur J. Þor-
steinsson.
Styrktarfélag van-
gefinna fær minn-
ingargjöf
í tilefni af 100 ára afmælis
Halldórs heitins Högnasonar frá
Skálmárhrauni, gáfu börn hans
og tengdabörn Styrktarfélagi van-
gefinna rausnarlega gjöf til minn-
ingar um hann og konu hans,
Andreu Kayrínu Guðmundsdótt-
ur. Gjöfin var afihent á skrifstofu
félagsins 4. þessa mán. Félagið
færir gefendunum hugfeeilar þakk
ir og árnaðaróskir.
SHsýniráhaustkaup
stefnunni í Leipzig
Haustsýning Kaupstefnunnar
í Leipzig verður dagana 3.—10.
sept. næstkomandi. — Eins og
venjulega er haustsýningin aðal
lega fyrir neyzluvörur og verða
sýnlngardeildir frá meir en 50
löndum í öllum heimsálfum.
Matvörur verða sýndar frá 40
þjóðlöndum og er meðal þeirra
sýningardeild frá íslandi. Er það
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna
sem sýnir afurðir sínar í aðalsýn-
ingarbyggingunni fyrir matvör-
ur. Sölumiðistöðiin hafði einnig
sýningardedld á voreýningunni í
marz sl.
Alls sýna í Leipzig að þessu
sinni yfir 6000 framleiðendur frá
meira en 50 löndum. Nær sýning
in yfir meira en 130 þúsund fer-
metra svæðd. — Gert er ráð fyr-
ir að um 200.000 kaupsýslumenn
frá 75 löndum muni heimsækja
sýninguna í haust.
Eins og áður er getið sýna 40
lönd matvörur. Efnavörur, snyrti
vörur og iyfijavöruv verða sýndar
frá 20 löndum. Um 30 lönd
sýna vefnaðarvörur. — Húsgögn
og húsgagnaspón sýna fram-
leiðendrar frá 15 löndum, svo
nokkuð sé upptatoð.
Tólf sosíalistaríki taka þátt 1
sýningunni og verður sýning Sov
étríkjanna í neyzluvamingi sér
staiklega mikU í sambandi við 50
ána byltingarafmælið. — f Leip-
zig verða sýningar, margar þeirra
samsýningar, frá 20 þróunarlönd
um í Asíu' og Aifráku.
20 vestræn lönd hafa sýningar
deiWir á haustsýningunni í sept
ember. Eru stærstu sýningardeild
imar frá Frakklandi og Austur-
ríki. Frakkar sýna m.a. SECAM
liitsjómvörp sán. — Holland, íta-
Ma, Svfþjóð og Danmörk hafa
stórar sýningar og þátttakan frá
Sviss, Belgíu og Finnlandi hefur
enn aukizt. — Vestur-Þýzkaland
og V. Berlín hafa margar sýning-
ardeildir og loks má nefina sýn-
ingar frá Bandarákjunum og Jap-
an.
Eins og ávalt er þátttakan mest
frá Þýzika Allþýðulýðveldinu, sem
sýnir í öllum vöruflokkum
kaupstefnunnar og eru þær marg
ar nýjungar á boðstólum.
íslenzkir kaupsýslumenn munu
að venju leggja leið sána til Leip
zig nú eftir mánaðarmótin, en
einnig fyrir aðra er fróðlegt og
skemmtilegt að dvelja í Leipzig
sýningardagana. í leik- og hljóm
listarlffi er mifcið um að vera,
daglegar óperu- og ballett-sýning
ar í nýja óperufeúsinu og í leik-
húsum ber mikið á nýrri leik-
list nú í haust. — Mar.gir þekktir
hljómlistamenn koma fram á tón
leikum.
Ferðir til Leipzig eru hentugar
og ódýrar. FlugfélagW Interflug
hefur daglegar þotuferðir frá
Kaupmannahöfn beint til Leip
zig, en hraðlestir fara tvisvar á
dag. Gott er einnig að fljúga
yfir London eða Amsterdam.
Kaupstefnan í Reykjavik veitir
allar upplýsingar um sýninguna
BÍL STOLIÐ
Aðfaranótt s.t. priðjudags vai
stolið bíl af bílastæði Bílasölu
Matthíasar, Höfðatúni 2 Hér er
um að ræða ljósbrúnan Oldsmo
bile R-19868 árgerð 1949. Þeir
sem kynnu að hafa orðið varir
við þennan bíl frá bví aðfaranótt
þriðjudagríns, eru vinsamlegast
beðnir að tilkynna það til rann-
arlögreglunnar.
1 og gefur út sýningarskírteini,
sem um leið gilda fyrir vegabréfs
I áritun.
Kviknaði í
Fjarðakletti
á veiðum
ES-Reykjavík, föstudag.
f gærkvöldi kom upp eld
ur í vélbátnum Fjarðar-
kletti frá Hafnarfirði GK—
210, þar sem hann var að
veiðum vestur af Eldey.
Urðu talsverðar skemmdir
á bátnum, áður en eldur-
inn varð slökktur, en eng-
an mann sakaði um borð.
Eldurinn kom qpp um
kl. 20.30 aftast í vélarrúm
inu, og varð fljótlega svo
miikill reykur þar niðri, að
ekki varð komizt niður til
slökkvistarfa, svo að áfeöfn
in tók það til bragðs að
byrgja vélarrúmið og reyna
að bæfa eldinn. Nærstödd
skip og bátar komu fljót-
lega á vettvang, þ.á.m. vél
báturinn Elding, og varð
eldurinn loks slökktur með
kolsýrutæki og kraftmik-
illi sjóslöngu, sem þar var
um borð. Tók Eldingin
Fjarðarklett síðan í tog
og kom með hann inn til
Hafnarfjarðar á ellefta tím
anum í morgun. Talsverðar
skemmdir urðu um borð
í Fjarðarklettinum af eldi
og reyk, m.a. komst eldur-
inn út í síðu skipsins öðru
megin, og einnig brann
mikið aftast í vélarrúminu
og í káetu skipverja 'aftur
í.
Fjarðarklettur er í eigu
fyrirtækisins Jón Gáslason
sf. í Haifnarfirði, og hefur
hann verið á humarveið-
um undanfarið.
SUMARHÁ-
TÍÐ VIÐ
EYJAFJÖRÐ
Sumarhátíð Framsóknarmanna
við Evjafjörð verður haldin
i dag. laugardag, í Sjálf-
stæðisfeúsinu á Akureyri og
hefst kl 21. Ingvar Gísla-
son alþingismaður og Jón
Baldvlnsson menntaskólanemi
flytja ávörp. Leikaramir
Eyvindur Erlendsson og Karl
Guðmundsson skemmta. Magn
ús Jónsson óperusöngvari
syngur og hljómveit Ingimar
Eydal leikur fyrir dansi. Söngv
arar með hljómsveitinni eru
Þorvaldur og Helena.
Ingvar Jón