Tíminn - 19.08.1967, Síða 8
8
TIMINN
LAUGARDAGUR 19. ágúst 1967
8 Kulusuk
á Grænlandi
Það var einn sunnudaginn í
sumar að fréttamaður Tímans tók
sér far með Flugfélaginu til Kulu-
suk á Austurströnd Grænlands,
en Flugfélagið heldur uppi ferð-
um yfir sumarið til Kulusuk og
Narrassua-k. Ferðimar til Kulusuk
taka einr dag, og er farið frá
Reykjavík um hádegisbil á sunnu
dögum. Að þessu sinni voru um
fimmtíu manns í ferðinni, og allt
að því helmingur útlendingar. Far
arstjórar voru þau Kristján Árna
son og Kerdís Viggósdóttir.
Flogið var með DC-6B vél, stefn
an tekin svo til beint í NV frá
Reykjavík. Eftir um klukkutima
flug í 12 þúsund feta bæð sjást
þess greinilega merki að við erum
að nálgast Grænland — við erum
nefiiilega komin yfir rekísinn,
sem hefur verið óvenjumikill við
Grœidandsstrendur í sumar.
Flúgvöllurinn við Kulusuk, er
byggður af Bandaríkjamönnum,
vegna radarstöðvar sem er þarna
á eyjunni Kulusuk. Danir hafa
umsjósn með vellinum. Aðftogið að
flugvéllinum er mjög einkennilegt.
Er fLogið inn fjörð, milli fjalla
þar sem hæstu tindar eru upp und
ix tvö þúsund fet, og síðan er
flugið smálækkað þangað til kom
ið er að flugivePúnum sjálfum.
Flugifreyjumar ÞóaMldur Sand
holt og Ásdís Þórðardóttdr fram
reiddu ágætis hádegisverð á ieið
inni norður, og áður en við yfir
giáifum vélina fékk hver sinn nest
ispoka, áður en lagt var upp í
gönguferðina til þorpsins. Frá flug
veílinum er rúmlega klukkutíma
gangur, en börnin í þorpinu fylgj
ast greinilega með því hvena-r
ferðafólksins er von og koma
á móti því á leiðinni. Þá komj á
mótd ferðafólkinu minjagripasalar
með litlar átnúnaðarstyttur sem
nefndar eru Tubilak (skrifað eftir
framburði). íslenzkir bændur
myndu kalla- umhverfi þoriisins
hrjóstugt, og lítt falið tiJ rækt-
unar, enda er það svo að þarna
fyrirfinnst hvorki búfénaður né
kálgarðar, en þrátt fyrir það lít-
Framhaid a 15 <iðu
; .........................................................
>essir grænlenzku strákar komu á mótl ferðafólkinu, og höfðu ekkert á móti því að fá svona einn og einn
arjóstsykurmola.
Sú gamla hafði þann hátt á að hún bar barnið í poka á bakinu. þegor
ferðamennirnir komu. Þetta er að verða sjaldgæf sjón á Grænlandi,
þar sem „menningin“ hefur haidið innreið sfna. (Tímamyndlr—Kárt)
:ortíð og nútið værl hægt að kalla þessa mynd. Grænlenzka stúlkan fór
þjóðbúninginn sinn fyrir ferðamennlna, en búningar sem þessi gerast
iú æ sjaldgæfari, og það er -isskilningur ef einhver hefur haldið að
íetta séu hversdagsflíkur stúlknanna. Við hlið grænlenzku stúlkunnar
ir Ásdf Þórðardóttir, fiugfreyja, i fyrsta utaniandsfluginu sinu.
Frá þorpinu á Kulusuk-eynni. Þarna má sjá gamla og nýja tímann í íbúðarhúsum staðarins. Lengst til vinstri
má sjá í stafninn á nýbyggðu húsi, en undir stafninum er gamalt hús og heldur hrörlegt — eins og húsin
voru þarna fyrir nokkrum árum. fsjakarnir sigla um fjörðinn, en í baksýn sjást tignarleg grænlenzk fjöll.