Alþýðublaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 09.05.1987, Blaðsíða 7
Laugardagur 9. maí 1987 7 stefnu um framtíð fiskimjölsiðnað- ar á íslandi dagana 21r22. maí næstkomandi á Hótel Sögu. Fram- tíð fiskimjölsiðnaðarins er óviss um þessar mundir. Stafar það af lækk- andi afurðaverði, yfirvofandi verndartollum og hækkandi til- kostnaði. Búnaður bræðslanna er víða orðinn gamall og komið að endurnýjun hans. Þegar tækjabún- aður verksmiðjanna verður endur- Tilkynning til íbúa Háleitis- og Laugarneshverfis Heilsuverndarstöð Reykjavíkurhefurfalið Heimil- islæknastöðinni h.f. Alftamýri 5, að annast alla heimahjúkrun, mæðra-og barnavernd í Háaleitis- og Laugarneshverfi. Heimilislæknastöðin mun ennfremur veita þeim hverfisbúum, sem þess óska almenna læknis- þjónustu. Nánari upplýsingar, ásamt uppdrætti af mörkum hverfisins, verðasendar í dreifibréfi á næstu dög- um’ Heilsuverdarstöð Reykjavíkur Heimilislæknastöðin h.f. Álftamýri 5. STRÆTiSVACNAR REYKJAVÍKUR - lO'j Rl.VK )AViK ■'WlSíííSS SVR auglýsir eftir Vagnstjórum til sumarafleysinga við akstur strætisvagna á tímabilinu júní/ágúst. Umsækjendureru beðniraðsnúasérsem fyrsttil eftirlitsmanna í stjórnstöð SVR að Hverfisgötu 115. Strætisvagnar Reykjavíkur Ráðstefna um framtíð fiskimjölsiðnaðar Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins og Félag íslenskra fiskimjöls- framieiðenda gangast fyrir ráð- Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar fyrir hönd byggingardeildar óskar eftir tilboðum í ýmsa þætti viðhalds á steyptum útveggjum þvotta- stöðvar Strætisvagna Reykjavíkur Borgartúni 35 f Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fri- kirkjuvegi 3, Reykjavlk gegn kr. 5.000,- skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku- daginn 27. mai n.k. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Póstholf 878 — 101 Reykjavik Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Gatnamálastjóra ( Reykjavík óskar eftir tilboðum I steyptar gangstéttir og ræktun vlðsvegar í Reykjavík. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík gegn kr. 5.000, skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðviku- daginn 20. maí n.k. kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Pósthólf 878 — 101 Reykjavik IAUSAR STÖÐUR HJÁ REYKJAVÍKURBORG Matreiðslumaður óskast til sumarafleysinga á dvalar- heimili aldraðra, Dalbraut 27. Laun skv. kjarasamningum Reykjavlkurborgar. Upplýsingar gefur forstöðumaður mötuneytis í slma 685377. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- vlkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð sem fyrst á sér- stökum eyðublöðum sem þar fást. nýjaöur þarf að huga að því hvort stefna eigi að framleiðslu á svo- nefndu gæðamjöli sem selst fyrir betra verð en það mjöl er framleitt er í dag. Á ráðstefnunni verður fjallað um helstu mál er fiskimjölsiðnaðinn varðar, úttekt á núverandi stöðu mála, líklega þróun markaðs- og tæknimála á næstu árum, æskilega framtíðaruppbyggingu greinarinn- ar hér á landi, hagkvæmni veiða og vinnslu, orkumál og stýritækni. Tveir erlendir fyrirlesarar munu halda erindi á ráðstefnunni, Nils Urdahl forstjóri Rannsóknarstofn- unar fiskimjölsiðnaðarins (SSF) í Noregi sem ætlar að fjalla um framtíð norsks fiskimjölsiðnaðar og Dr. Ian Pike frá Alþjóðasamtök- um fiskimjölsframleiðenda að fjalla um markaðshorfur fyrir fiskimjöl í nánustu framtíð og nýja markaði sem eru að opnast. Einnig verða fyrirlesarar frá Félagi ís- lenskra fiskimjölsframleiðenda, Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins, Þjóðhagsstofnun, Landssambandi islenskra útgerðarmanna ofl. Ráð- stefnan er öllum opin meðan hús- rúm leyfir en þátttaka tilkynnist í síma 20240 fyrir 20. maí. Heildarsala lceland Seafood fyrstu fjóra mánuöi ársins: 10 milljónir sterlingspunda Á aðalfundi Iceland Seafood Limited, sem haldinn var á Hótel Sögu s.l. miðvikudag, kom fram að heildarsala fyrirtækisins fyrstu fjóra mánuði ársins nam tæpum 10 milljónum sterlingspunda, sem er svipuð upphæð og á sama tímabili í fyrra. I magni talið var salan um 6.100 lestir. Á árinu 1986 seldi fyrirtækið frystar sjávarafurðir fyrir 31 millj. sterlingspunda og var það 62.8% meira en árið áður. í magni var sal- an 16.800 lestir, eða 30.8% meiri en árið 1985. Þess má geta, að á árinu 1981, sem var fyrsta starfsár Iceland Sea- food Ltd., var heildarsala fyrirtæk- isins rúmar 3 millj. sterlingspunda og lætur því nærri að sala hafa tí- faldast á sex árum. Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs var 5% aukning á sölu afurða á Bretlandsmarkaði en á móti nokk- ur samdráttur á sölu til Frakklands. Umsetning á söluskrifstofu Ice- land Seafood Ltd. í Hamborg jókst um tæp 13% í verðmæti og 17% i magni talið. Markaðssvæði fyrirtækisins nær yfir Bretland og meginland Evrópu. Segja má að ástand fiskmarkaða í Evrópu sé mjög gott, eftirspurn eftir helstu fisktegundum stöðug og verðlag hátt. Söluhorfur verða því að teljast góðar. Ennfremur hefur þróun flestra evrópskra gjaldmiðla verið hagstæð að undanförnu og hefur það hvatt til aukinnar fram- leiðslu á þessa markaði. Á aðalfundinum var kosin ný stjórn og tók Guðjón B. Ólafsson forstjóri Sambandsins við stjórnar- formennsku af Erlendi Einarssyni, sem gegnt hefur því embætti í 6 ár, eða frá stofnun fyrirtækisins. Nýlega urðu framkvæmdastjóra- skipti hjá fyrirtækinu. Bencdikt Sveinsson, sem verið hefur fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins s.l. sex ár lét af því starfi um s.l. áramót og tók við starfi aðstoðarfram- kvæmdastjóra Sjávarafurðadeildar Sambandsins. Við framkvæmda- stjórastarfinu tók Sigurður Á. Sig- urðsson, sem verið hefur fram- kvæmdastjóri skrifstofu Sam- bandsins í London. Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin Garðabær bæjarstjóri „Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir laust til um- sóknar starf bæjarstjóra. Æskilegt er að viökomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknarfrestur er til 21. maí n.k. Umsóknum skal skilað til forseta bæjarstjórnar, Sveinatungu v/Vífilsstaðaveg, Garðabæ. Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri Jón Gauti Jónsson f sfma 42311 eða forseti bæjar- stjórnar Lilja Hallgrímsdóttir f síma 42634.“ Bæjarstjóri FLUGMÁLASTJÓRN Rafeindavirkjar Staða eftirlitsmanns flugöryggistækja í radíó- deild Flugmálastjórnar er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rfkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, mennt- un og fyrri störf sendist samgönguráðuneytinu fyrir 29. maf n.k. ILAUSAR STÖÐUR HJÁ J REYKJAVÍKURBORG Staðaforstöðumanns við leikskólann Fellaborg, Völvu- felli 9. Fóstrumenntun áskilin. Fóstrustöður viö leikskólana Barónsborg, Njálsgötu 70, Brákaborg v/Brákarsund, Árborg, Hlaðbæ 17, Hlfða- borg v/Eskihlíð, Hottaborg, Sólheimum 21, Fellaborg Völvufelli. Fóstrustöður á leiksk./dagheimili, Grandaborg v/Boða- granda, Hálsaborg, Hálsaseli 27, Hraunborg, Hraun- bergi 10, Ægisborg, Ægisslðu 104. Fóstrustöður á dagheimilin, Dyngjuborg, Dyngjuvegi 18, Hamraborg v/Grænuhlið, Laufásborg, Laufásvegi 53—55, Suöurborg v/Suðurhóla, Bakkaborg v/Tungu- bakka, Völvuborg v/Völvufelli. Upplýsingar veita forstöðumenn viökomandi heimila og umsjónarfóstrur i síma 27277. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykja- vlkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð ásérstökum eyðu- blööum sem þar fást. ST. JÓSEFSSPÍTALI Landakoti Starfsmaður óskast á barnaheimili Starfsmaður óskast á barnaheimilið Brekkukot (börn á aldrinum 3—6 ára). 100% vinna. Þetta er ekki sumarafleysingastarf. Umsækjandi þyrfti að vera 20 ára eða eldri. Upplýsingar gefur forstöðukona í síma 19600-250 alla virka daga frá kl. 9.00—15.00. Reykjavík 7.5.1987 Flokksstjórnarmenn Alþýöuflokksins Flokksstjórn er hér með boðuð til fundar að Hótel Sögu hliðarsal laugardaginn 9. mai kl. 10.30. Dagskrá: 1. Stjórnarmyndunarviöræður 2. Ráðning stjórnmáiaritstjóra Alþýðublaðsins 3. Önnur mái. ATH. sameiginlegur hádegisverður. Jón Baldvin Hannibalsson formaður Alþýðuflokksins

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.