Alþýðublaðið - 11.07.1987, Síða 11

Alþýðublaðið - 11.07.1987, Síða 11
Laugardagur 11. júlí 1987 11 Guðmundur Einarsson, fararstjóri, útdeilirsvalandi meöölum við Hitar- vatn. Karl Steinar Guðnason, alþingis- maðurhlærhérað góðum brandara. Jón Sæmundur Sigurjónsson, ný- bakaður alþingismaður. Það er von að maðurinn sé kátur. Tvær ungar i anda láta fara vel um sig í sólinni. Það er llka gott að leggjast útaf og láta fara vel um sig. Sumarferð Alþýðuflokksins um Vesturland: Stórkostlegur dagur - ógleymanleg ferð Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík og á Reykjanesi fóru í hina árlegu sumarferð sína laugardaginn 4. júlí s.l. Var í ár um eins dags ferð að ræða og ferðast um Vesturland. Ágæt þátttaka var, um 180 manns og þurfti 4 stórar rútur undir mann- skapinn allan. Veður var hið ákjós- anlegasta þennan dag, sól fyrir há- degi en eftir það dró heldur úr henni og úr varð það sem kallað er hið besta ferðaveður. Lagt var af stað frá Umferðamið- stöðinni kl. 10.00, þar sem saman var komið Alþýðuflokksfólk úr Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík og Njarðvíkum. í Mos- fellssveitinni bættust einnig nokkr- ir við. Þá voru og gripnir upp 20 Skagamenn á Akranesvegamótun- um og þegar komið var í Borgarnes, bættist við tugur Borgnesinga sem skipti sér niður í rúturnar og önn- uðust leiðsögu um landnám Egils Skalla-Grímssonar. Fór sú leiðsögn fram af ótvíræðum myndarskap. Ekið var um Hítardal að Hítar- vatni, en þar var matast, sungið, rennt fyrir silung og hlaupið um í góða veðrinu. Kl. 15.00 var svo ekið suður að Ökrum sem standa niður við sjó og þaðan suður með strönd- inni, með eyjar og sker á hægri hönd, uns komið var að Straum- firði þar sem gengið var niður i fjöru undir leisögn Sigrúnar Guð- bjarnadóttur, sem þar er fædd og uppalin. Horft var út til skersins Hnokka, þar sem franska rann- sóknarskipið Pourquoi pas? fórst árið 1936 í september. 38 manns fórust en aðeins einn komst lífs af. Var öll þessi saga og sýnin yfir strandstaðinn átakamikil stund. Þá var aftur ekið í Borarnes og sest að snæðingi á hinu glæsilega hóteli staðarins. Undir borðum voru fluttar ræður og ávörp og má m.a. til nefna Svein Hálfdánarson, Jón H. Guðmundsson, Jón Sæ- mund Sigurjónsson, Karl Steinar Guðnason o.fl. Kristín Viggósdótt- ir stjórnaði fjöldasöng og Örn Bjarnason greip ögn í gítarinn. Hápunktur borðhaldsins var þó þegar inn snöruðust Jón Baldvin Hannibalsson, Jóhanna Sigurðar- dóttir og Eiður Guðnason og frú og fluttu glóðvolgar fréttir þess efnis, að stjórnarsamstarf hefði tekist við Framsóknar- og Sjálfstæðisflokka, og að tekist hefði að útkljá öll deilumál. Sérstaklega var til þess tekið að Jóhanna Sigurðardóttir hafði haft sigur í kaupleiguíbúða- málinu. Eftir að þingmennirnir höfðu flutt mál sitt, risu allir úr sætum sem einn maður og klöpp- uðu þessum dugmiklu fulltrúum okkar lof í lófa. Ætlaði því lófataki seint að linna. Að lokum söng svo Guðmundur Einarsson, skrifstofu- stjóri Alþýðuflokksins og farar- stjóri þennan gleðidag, tvö karl- mannleg lög og varð af þeim enginn maður svikinn. Að lokum var svo ekið aftur til Reykjavíkur og sungið og trallað í rútunum. Til Reykjavíkur var svo komið um kl. 23.30. Er það mál allra sem þátt tóku í þessari fróð- legu ferð, að hún hafi í alla staði tekist eins og best varð á kosið og það voru hamingjusamir kratar sem héldu hver til síns heima eftir stórkostlegan dag. Við Hltarvatn skoðuöu margir sig vandlega um. Aðrir renndu fyrir silung. Setiö að snæðingi út i náttúrunni. Uppfinningamaðurinn Birgir Dýrfjörö hefur oröið. Ekki þýddi að vera kappklæddur I rútunni. Fólk notaði þvi tækifærið milli laga f fjöldasöng og fór úr yfirhöfnum. Kvöldverður að Hótel Borgarnesi. Stórkostlegur endir á velheppnaöri ferð.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.