Alþýðublaðið - 11.07.1987, Síða 12
12
Laugardagur 11. júií 1987
Mynd IN VINO VERITAS
Rannsókn á fjárhagsstöðu Von
Veritas, sem er í höndum Michael
Lunoe, sýnir að samanlagðar
skuldir fyrirtækisins eru 8.6 millj-
ónir Dkr. Þetta eru býsna háar
skuldir, miðað við upphaflegt
hlutafé, sem var aðeins 300.000 kr.
Eftir þvi sem kostnaðurinn við
stofnun stöðvarinnar óx, langt um-
fram upphaflega áætlun, fékk Von
Veritas meira að láni í bönkunum.
Þótt ekki blési byrlega með rekstur-
inn, hættu bankarnir ekki að lána
fé.
Á íslandi vekur það furðu hve
skipafélagið og blómaverslunin
fengu mikla lánafyrirgreiðslu, en
enginn þeirra dönsku lánastofnana
sem lánuðu fé þekkti til vafasamrar
fortíðar kaupsýslumannanna frá
íslandi þegar ákveðið var að fjár-
magna fyrirtæki þeirra.
Ebbe Helmer Nielsen, aðstoðar-
forstjóri við Lálandsbanka, segir að
víst hafi þetta verið áhættufyrir-
tæki og þær tvær milljónir sem
bankinn Iánaði sé mikið fé fyrir
jafn lítinn banka. En hann vissi
ekkert um gjaldþrot og fjársvik á
íslandi og bankinn taldi rétt að
stuðla að nýjungum í fábreyttu at-
vinnulífinu á þessum slóðum. Niel-
sen segir að það sé mjög erfitt að fá
upplýsingar um viðskipti manna í
íslenskum bönkum, en hefði bank-
inn vitað um fyrri viðskipti þeirra
félaga, hefðu þeir ekki fengið lán.
Ole Ankersen, sérfræðingur í
lánamálum hjá Verslunarbankan-
um, segir að það hefði átt að rann-
saka fortíð mannanna og rekstrar-
horfur fyrirtækisins betur, áður en
þeim var veitt svo mikið fé að láni.
Hann segir að þarna hafi ekki verið
kunnáttusamlega að verki staðið og
jafnframt telur hann það siðlaust af
íslenskum bönkum að halda leynd-
um upplýsingum af þessu tagi.
Afvötnun SAS-
flugmanna
Það var fyrirfram vitað að ekki
yrði auðvelt að finna viðskiptavini
sem gætu greitt 42.000 Dkr. fyrir
dvöl á Von Veritas. Reiknað var
með að dönsk fyrirtæki myndu
greiða fyrir meðferð dýrustu starfs-
Von Veritas, íslenska meðferðarstöðin i Danmörku, hefur verið mikið til
umfjöilunar að undanförnu, bœði hérlendis og í Danmörku þar sem yfir-
vofandigjaldþrot stofnunarinnar hefur vakið bœði undrun og reiði ekki síst
eftir að uppvíst varð um tengslBjörgúlfs Guðmundssonar við Hafskipsmál-
ið. Sem sýnishorn af dönskum blaðaskrifum birtum við hérgrein sem tveir
nemendur danska blaðamannaháskólans unnu fyrir blaðið Jnformation.
Þrátt fyrir einstaka lítilsháttar staðreyndarvillur er greinin vel þess virði að
vera lesin á íslandi.
SANNLEIKURINN UM
Tveir íslendingar héldu til Danmerkur snemmsumars 1986. Að
þeirra sögn voru danskir drykkjumenn haldnir sjúkdómi. Þess
vegna stofnuðu þeir eigin meðferðarstöð fyrir alkóhólista. Nú
sitja fyrrverandi vistmenn íslensku meðferðarstöðvarinnar í botn-
lausum skuldum eftir hina kostnaðarsömu dvöl. Og enn eru þeir
þyrstir.
Það er liðin tíð að óhófleg áfeng-
isneysla eigi sér stað í skúmaskot-
um. Nú á dögum eiga betri borgar-
arnir einnig við mikinn áfengis-
vanda að stríða.
En meðferðarstofnanir hins
opinbera höfða ekki til áfengis-
sjúklinga úr efri stéttum þjóðfé-
lagsins. Áfengismeðferðarstofnanir
sem njóta stuðnings hins opinbera
hafa á sér þann stimpil að þangað
leiti aðeins þeir sem myndu að öðr-
um kosti hafna í rennusteininum.
Þess vegna spretta einkareknar
meðferðarstöðvar upp eins og gor-
kúlur á öllum Norðurlöndunum
þessi árin. Það er markaður fyrir
lítt áberandi dvöl á meðferðarstöð,
þar sem eru leðurhúsgögn, fransk-
ur matseðil! og billjard. Stöð þar
sem hið bandaríska Minnesóta-
kerfi er lagt til grundvallar í með-
ferðinni. Kerfi, sem byggist á því að
alkóhólismi sé ekki félagslegt fyrir-
bæri, heldur sjúkdómur á borð við
t.d. sykursýki.
í Svíþjóð eru eins og stendur átta
Minnesóta-stöðvar. Og í Dan-
mörku vilja menn líka vera með.
Margar afvötnunarstöðvar eru ým-
ist í bígerð eða þegar teknar til
starfa. Von Veritas, sem er sú
stærsta, berst í bökkum vegna mik-
ils stofnkostnaðar.
Trúarreynsla
Von Veritas á upphaf sitt á ís-
landi fyrir 12 árum. Björgúlfur
Guðmundsson, Fritz Hendrik
Berndsen og Edwald Ellert Bernd-
s?n voru þá nýkomnir úr meðferð á
meðferðarstofnuninni Hazelden í
Minnesóta í Bandaríkjunum. Þar
höfðu þeir lært að aðeins andleg
reynsla, ásamt félagsskap annarra
alkóhólista, gæti komið í stað
áfengislöngunarinnar.
Ásamt öðrum íslendingum, sem
einnig höfðu farið til meðferðar í
Bandaríkjunum, stofnuðu þeir fé-
lag með það að markmiði að kynna
Minnesóta-meðferðina á íslandi.
Fljótlega komu þeir á fót meðferð-
arstöð og hafa nú, með aðstoð ís-
Ienska ríkisins, yfirtekið alla með-
ferð áfengissjúklinga á íslandi.
Síðar fengu þeir Björgúlfur og
Fritz og Edwald Berndsen nýja hug-
mynd. Þeir stofnuðu meðferðar-
stöðina Von, sem flytur inn alkó-
hólista frá hinum Norðurlöndun-
um. Uppistaðan í viðskiptunum
voru færeyskir ofdrykkjumenn.
Síðan Von tók til starfa í janúar
1985, hefur félagsstofnun Færeyja
sent um 100 Færeyinga til meðferð-
ar á Von árlega. Verð: 5.5 milljónir
Dkr. á ári.
Nú eru Færeyingar um það bil að
koma á fót engin meðferðarstöð
eftir Minnesóta-fyrirmynd svo að
Von þarf framvegis að finna sér við-
skiptavini annars staðar.
Gjaldþrot og fjársvik
Auk starfseminnar á Von, gegndi
Björgúlfur Guðmundsson for-
stjórastöðu hjá skipafélaginu Haf-
skip. Berndsen rak stærstu blóma-
verslun á íslandi.
Bæði skipafélagið og blóma-
verslunin urðu gjaldþrota vorið
1986. Gjaldþrot Hafskips tók
stærsta banka íslands, Útvegsbank-
ann, með sér í fallinu. Bankinn tap-
aði um 75 milljónum Dkr. og aðeins
fjármagnstilfærslur frá Seðlabank-
anum komu í veg fyrir að hann yrði
gjaldþrota.
Eftir gjaldþrot Hafskips var
Björgúlfur fangelsaður í einn mán-
uð á meðan málið var rannsakað.
Ári síðar var borin fram ákæra á
hendur honum fyrir fjársvik.
Islenskar heimildir herma að
Berndsen og Björgúlfur Guð-
mundsson hafi haldið til Danmerk-
ur vegna þess að þeir hafi verið bún-
ir að fá á sig illt orð á íslandi og ill-
mögulegt að stunda þar viðskipti.
„Þessu nenni ég ekki að svara“,
sagði Hendrik Berndsen aðspurð-
ur. Hann segir að þeir Björgúlfur
hafi stofnað Von Veritas í þeim til-
gangi að kynna þær hugmyndir sem
Minnesóta-kerfið byggir á. Þeir
hafi fengið marga Dani til meðferð-
ar og dregið þá ályktun að þessi val-
kostur ætti að vera fyrir hendi í
Danmörku, þar sem þörfin væri
stór.
BMW og greiðslustöðvun
Berndsen og Björgúlfur komu til
Kaupmannahafnar snemma sum-
ars 1986 og komu sér fyrir á hótel
Sheraton. Þeir fengu lán úr útlána-
stofnun tengdri Amagerbankanum
og á Lálandi. Því næst keyptu þeir
hvítan BMW handa Berndsen, sem
átti að vera framkvæmdastjóri og
héldu til Lálands, þar sem þeir
fundu gamlan skóla í Vesterborg
við vatnið.
Skólinn var gerður upp eftir nýj-
ustu tísku og þar stofnuðu þeir
meðferðarstöðina Von Veritas Vest-
erborg A/S, ásamt Edwald Ellert
Berndsen og Þorsteini Frey Viggós-
syni fyrrum eiganda veitingahúss-
ins Pussycat.
Þá settu þeir upp skrifstofu í
Kaupmannahöfn með öllum ný-
tísku tæknibúnaði og bjuggu jafn-
framt meðferðarstöðina á Lálandi
húsgögnum úr leðri. Þeir útveguðu
vellaunað starfsfólk, að mestum
hluta íslenska meðferðaraðilja og
dreifðu dýrum auglýsingaspjöld-
um.
Um miðjan september komu
fyrstu gestirnir á Von Veritas. En
þeir voru bara ekki nógu margir.
Meðferðarstöðin getur tekið við 60
sjúklingum, en þar voru sjaldan
innritaðir fleiri en 30. Þriðjungur
viðskiptavinanna gat ekki greitt
fyrir dvölina, því gagnstætt því sem
vonast var eftir fékkst hún ekki
greidd af því opinbera.
Tekjurnar urðu sem sagt vonum
minni og þegar kostnaðurinn við
stofnun stöðvarinnar fór fram úr
áætlun, fóru fjárhagserfiðleikar að
gera vart við sig.
Þann 5. maí fékk Von Veritas
greiðslustöðvun. Iðnaðarmennirn-
ir, sem enn höfðu ekki fengið greitt
fyrir vinnu sína, kröfðust þess að
fyrirtækið yrði gert upp.
Lögmaður frá Kaupmannahöfn,
Michael Lunoe, var fenginn til að
stýra fyrirtækinu á meðan á
greiðslustöðvun stæði, en síðar tók
við því starfi Peter nokkur Scaven-
ius, sem áður hafði viljað eignast
hlut í Von Veritas. Hann reynir nú
að fleyta fyrirtækinu áfram og
forða þvi frá gjaldþroti.
Lánuðu í góðri trú