Alþýðublaðið - 29.08.1987, Qupperneq 6
6
Laugardagur 29. ágúst 1987
Kynningarfundur
á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 1984-2004
Miðvikudagskvöldið 2. september, kl. 20.00,
kynna starfsmenn Borgarskipulags og borgar-
verkfræðings nýtt aðalskipulag fyrir Reykjavík í
húsnæði Byggingarþjónustunnar, Hallveigarstíg
1.
Sýning Borgarskipulags í Byggingarþjónustunni
á aðalskipulaginu og ýmsum öðrum skipulags-
verkefnum lýkur 9. september.
Athugasemdir við aðalskipulagið þurfa að berast
til Borgarskipulags, Borgartúni 3 fyrir kl. 16.00,
miðvikudaginn 23. september.
Borgarskipulag Reykjavíkur
IHR REYKJKIÍKURBORG ISI
Acuucci Stöcíar W
Heimilishjálp
Starfsfólk óskast í heimilishjálp.Tilvalið fyrir hús- mæður og skólafólk, sem hefur tíma aflögu. Geta,
unnið tveir saman ef óskað er. Upplýsingar veittar í síma 18800.
REYKJMJIKURBORG
Jlcuc&cvi Stödcci
Fóstrur óskast á eftirtalin heimili:
Skóladagheimilin: Völvukot, Hólakot, Hagakot,
Heiðargerði, Langholt og
Hraunkot.
Dagheimilin: Vesturborg, Valhöll, Bakka-
borg, Völvuborg, Suðurborg,
Garðaborg, Laugaborg, Aust-
urborg, Múlaborg, Dyngju-
borg, Hlíðarenda, Sunnuborg.
Leikskólana: Kvistaborg, Drafnarborg, Leik-
fell, Árborg, Fellaborg, Hóla-
borg, Lækjaborg, Barónsborg,
Tjarnarborg.
Dagh./leiksk. Ægisborg, Kvarnaborg (nýtt
heimili), lóuborg, Fálkaborg,
Hraunborg, Rofaborg, Ösp,
Foldaborg, Nóaborg.
Upplýsingar gefa forstöðumenn viðkomandi
heimilaog umsjónarfóstruráskrifstofu Dagvistar
barna í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,5. hæð, á sér-
stökum eyðublöðum sem þar fást.
INNRITUN
í kvöldnám prófadeilda
Námsflokka Reykjavíkur
Grunnskólastig:
a) aðfaranám hliðstætt 7& 8. bekk
b) fornám hliðstætt 9. bekk
kennslugreinar: íslenska, danska, enska, stærð-
fræði.
Framhaldsskólastig:
a) heilsugæslubraut = Forskóli sjúkraliða
b) viðskiptabraut, hagnýt verslunar- og skrifstofu-
starfadeild.
Einnig er hægt að velja kjarnanám án sérbrauta.
Innritun fer fram mánudaginn 7. og þriðjudaginn
8. september í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuveqi 1,
klukkan 17-21.
Upplýsingar í símum 12992 og 14106 síðdegis.
Námsflokkar Reykjavíkur.
„Alkóhólistar
geta veriö
syndugir“
Gunnar Þorsteinsson, forstöðu-
maður Krossins, heldur því fram,
að alkóhólismi sé ekki sjúkdómur,
heldur synd. Alþýðublaðið hafði
því áhuga á að heyra hvað læknar
hefðu um málið að segja og hafði
því samband við einhverja færustu
lækna landsins í meðferð sjúk-
dómsins alkóhólisma og spurði þá
álits.
Óttar Guðmundsson og Þórar-
inn Tyrfingsson, yfirlæknar á
sjúkrastöðinni Vogi:
„Ég get aldrei orðið samþykkur
því að sjúkdómur sé synd. Það sam-
ræmist ekki mínum trúarskoðun-
um.
Aftur á móti geta alkóhólistar
verið syndugir, en alkóhólismi er
ekki synd. “ Svo mörg voru þau orð.
Bankastimplun
felld niður
Frá 1. september n.k. verður fellt
niður skilyrði um bankastimplun
innflutningsskjala til þess að tollaf-
greiðsla geti farið fram. Var þetta
ákveðið með breytingu á lögum um
skipan gjaldeyris- og viðskiptamála
í tengslum við samþykkt nýrra
tollalaga.
Vakin er athygli á því að reglum
um greiðslufrest erlendis var í engu
breytt þótt bankastimplun væri af-
numin þannig að fara þarf eftir
þeim hér eftir sem hingað til. Gjald-
eyrisyfirvöld halda uppi nauðsyn-
legu eftirliti með því við sölu gjald-
eyris að farið sé eftir settum reglum
um greiðslufrestinn.
Um heimild til setningar skilyrða
um innflutning og gjaldeyrissölu og
viðurlög, ef út af þeim er brugðið,
vísast að öðru leyti til laga nr.
63/1979 um skipan gjaldeyris- og
viðskiptamála.
Hannes Hauksson, framkvæmda-
stjóri RKÍ.
Nýr framkvæmda-
stjóri Rauða
kross íslands
Hannes Hauksson, viðskipta-
fræðingur hefur verið ráöinn fram-
kvæmdastjóri Rauða Kross ís-
lands. Hann tekur við af Jóni Ás-
geirssyni sem hefur verið fram-
kvæmdastjóri RKÍ í rösklega sex ár.
Hannes hefur veitt fjármáladeild
félagsins forstöðu undanfarin fjög-
ur ár og hefur jafnframt verið stað-
gengill framkvæmdastjóra. Hann
hefur undanfarin ár setið í stjórn
Sjúkrahótels RKÍ og var í bygging-
arnefnd félagsins, sem hafði um-
sjón með framkvæmdum við hús-
eign félagsins við Rauðarárstíg 18.
Hannes er 29 ára og útskrifaðist
frá viðskiptadeild Háskóla íslands
árið 1982. Kona hans er Hjördís
Gunnarsdóttir meinatæknir og eiga
þau eina dóttur.
Nicholas J.G. Hall
ráðinn kennslustjóri
við Tölvuháskóla V.l.
Verzlunarskóli íslands hefur ráð-
ið Nicholas J. G. Hall í stöðu
kennslustjóra við Tölvuháskólann.
Nicholas hefur unnið sem kerfis-
fræðingur hér á landi og einnig í
Englandi, auk þess sem hann hefur
verið við kennslustörf við Háskóla
íslands og í Kanada.
Fráárinu 1981 hefurhann starfað
sem kerfisfræðingur og meðeigandi
Verk- og kerfisfræðistofnunarinn-
ar. Hann lauk M.A. gráðu í eðlis-
fræði frá háskólanum í Oxford árið
1973 og M.Sc. gráðu í eðlisfræði
fastra efna frá háskólanum í
Manitoba, Kanada árið 1976.
Nicholas er fæddur í London ár-
ið 1951 og flutti til fslands árið
1976. Hann er kvæntur Áslaugu
Helgadóttur.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráöa
VERKAMENN
við lagningu jarðsíma úti á landi.
Upplýsingar í síma 91—26000
Vetraráætlun SVR
Vetraráætlun S.V.R. tekur gildi
þann 31. ágúst n.k. Tíðni ferða
eykst þá á 9 leiðum. Vagnar á leið-
um 2—7 og 10—12 munu þá aka á
15 mínútna fresti frá kl. 07—19,
mánudaga til föstudaga. Akstur á
kvöldin og um helgar verður
óbreyttur. Strætisvagnar á leiðum 8
og 9 aka á 30 minútna tíðni alla
daga.
Leiðabók SVR kom síðast út í
júní s.l. og hún fæst á skiptistöðv-
um SVR á Lækjartorgi, Hlemmi og
Grensási og kostar kr. 30.
UTBOÐ
Hólavegur, Hjaltadalsvegur um
Hóla 1987
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í of-
angreint verk.
Lengd vegarkafla 4,7 km, magn 34.000 m3.
Verki skal lokið 1. júlí 1988.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rlk-
isins á Sauðárkróki og í Reykjavik (aðal-
gjaldkera) frá og með 1. september n.k.
Skilaskal tilboðum ásömu stöðum fyrirkl.
14:00 þann 14. september 1987.
Vegamálastjóri.
Æskulýðsfulltrúi
Laus er til umsóknar staða æskulýðsfulltrúa hjá
Borgarneshreppi. í starfinu felst umsjón með
æskulýðs- og tómstundamálum og að hluta til
önnur verkefni hjá sveitarfélaginu.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri
störf berist skrifstofu vorri að Borgarbraut 11 fyrir
15. september n.k.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
93-71224.
Sveitarstjóri
Starf þjóðgarðsvarðar
í Skaftafelli
Náttúruverndarráð auglýsir starf Þjóðgarðsvarð-
ar í Skaftafelli laust til umsóknar frá 1. janúar
1988.
Þjóðgarðsvörður er búsettur í Skaftafelli. Starf
hans útheimtir m.a. haldgóða þekkingu á náttúru-
fræði og hefur hann umsjón með starfsemi þjóð-
garðsins.
Laun eru skv. launakerfi opinberra starfsmanna.
Skriflegar umsóknir er greina frá menntun, aldri,
fyrri störfum og öðru sem máli skiptir, skulu ber-
ast Náttúruverndarráði, Hverfisgötu 26, 101
Reykjavík, fyrir 25. september 1987.
Náttúruverndarráð