Alþýðublaðið - 13.10.1987, Blaðsíða 8
MWBiimn)
Þriðjudagur 13. október 1987
Norðurlöndin verða að beita
bresku stjórnina þrýstingi
— ef koma á í veg fyrir aö Dounreay — kjarnorkuverið verói byggt.
„Afskipti Norðurlandanna og þrýstingur á ríkisstjórnina bresku er mun líklegri til að hafa áhrif á gang Dounreay — versins um starf samtaka
minna,“ segir Chris Bunyan, við Alþýðublaðiö. Hann er félagi í samtökum sem berjast gegn byggingu Dounreay- kjarnorkuversins á Skotlandi.
Um mitt næsta ár veröur
væntanlega tekin ákvörðun
um það hvort byggt verður
endurvinnsluver fyrir Plútón-
íum í Dounreay á Skotlandi.
Verksmiðju þessari yrði ætt-
að að endurvinna úrgang úr
kjarnorkuverkum í Frakklandi
og víðar og myndi stafa mikil
mengunarhætta af verksmiðj-
unni, bæði fyrir nágrenni
hennar svo og fyrir allt norð-
ur Atlantshafið þar sem haf-
straumar bera úrganginn allt
norður til Jan Mayen og
Grænlands.
Chris Bunyan er einn
þeirra íbúa Shetlandseyja
sem vill ekki sætta sig við að
lífríki eyjanna og hafsins í
kringum þær sé stefnt í
hættu og er virkur í samtök-
unum „Champaign Against
Dounreay Expansion". Hann
hefur verið hér á landi við að
kynna máistað samtakanna
og afla þeim stuðnings.
Blaðamaður Alþýðublaðs-
ins hitti Chris að máli í gær
og spurði hann hverjar hann
teldi llkurnar á því að unnt
væri að stöðva byggingu
þessa endurvinnsluvers.
Chris sagðist telja mögulegt
að koma í veg fyrir að Doun-
reay-verið yrði byggt. For-
senda þess aö unnt væri að
stöðva áætlunina væri þó að
Norðurlöndin sýndu verulega
andstöðu við fyrirhugaða
staðsetningu versins og
beittu bresku ríkisstjórnina
verulegum þrýstingi.
Kjarnakljúfur
fyrir á staðnum
í Dounreay starfar rann-
sóknarkjarnorkuver sem
framleitt getur um 213 mega-
vött, eða álíka og borg á
stærð við Reykjavík notar.
Kjarnorkuverið hefur verið
ein helsta rannsóknarstöð
Breta á sviði „Hraðra kjarna-
kljúfa“ og hefur öryggi þar
verið mikið. Hins vegar óttast
menn að ef endurvinnsluver-
ið yrði byggt að auki og rekið
á viðskiptalegum grunni, ekki
sem rannsóknarstöð, væri
hætta á að öryggisreglur
yrðu ekki eins stífar, að sögn
Chris. Hann sagðist hafa
talað við starfsmenn Doun-
reay sem lýstu þessum
áhyggjum sínum f einkavið-
tölum, en opinberlega lýsa
stuðningi sínum við áformin
um endurvinnsluverið.
Bygging þessa vers verður
liður í áætlun Breta, Frakka
og Vestur Þjóðverja í þróun
„hraðra kjarnakljúfa". Sameig-
inleg stofnun landanna
áformar að byggja einn slíkan
„sýningarkjarnakljúf" og eitt
„sýningarendurvinnsluver" til
að sýna umheiminum að
bygging og rekstur slíkra vera
sé möguleg lausn á orku-
vandamálum.
Bretar munu leggja mikla
áherslu á að fá að byggja
endurvinnslustöðina og þrátt
fyrir að frönsk yfirvöld hafi
einnig lýst áhuga sínum á
stöðinni, er álitið að kjarna-
kljúfurinn verði byggður þar
eða í Þýskalandi og að Bretar
fái endurvinnsluverið.
En hönnun Dounreay vers-
ins er slður en svo lokið. Ef
ákvörðun verðurtekin seinni-
part næsta árs, um byggingu
versins, er eftir a.m.k. tveggja
ára hönnunarvinna og síðan
bygging sjálfrar stöðvarinnar.
Það er þvl Ijóst að rekstur
endurvinnslustöðvarinnar I
Dounreay hæfist aldrei fyrr
en undir lok aldarinnar, ef af
verður.
Mikill stuðningur
í Noregi
Chris Bunyan var nýverið í
Noregi og hitti þar frammá-
menn I verkalýðshreyfingunni
og stjórnmálamenn og þar
með umhverfismálaráðherr-
ann. Chris sagði að Norð-
menn hefðu lýst miklum
áhyggjum af þessu máli og
sagði að umhverfismálaráð-
herra Noregs hefði sagt hon-
um að norska ríkisstjórnin
myndi nota hvert tækifæri til
að reifa mál þetta við bresku
stjórnina.
Hann sagði líklegra að af-
skipti Norðurlandanna og
þrýstingur á ríkisstjórnina
bresku, væri mun liklegri til
að hafa áhrif en starf sam-
taka sinna, sem hann sagði
að væru tiltölulega Iftill
þrýstihópur. Chris benti einn-
ig á að þar sem Dounreay
væri I um það bil 1000 km
fjarlægð frá London, væri
íbúum nærliggjandi svæða
erfitt um vik með að hafa
áhrif á ákvarðanatöku.
Breska alþýðusambandið
hefur enn ekki markað sér
stefnu I kjarnorkumálum en á
síðasta þingi skoska alþýðu-
sambandsins, var samþykkt
ályktun, þvert gegn vilja mið-
stjórnar sambandsins, þar
sem lagst var gegn Dounreay
stækkuninni. Að sögn Chris
togast á ýmsir hagsmunir. í
miðstjórninni eru t.d. samtök
verkfræðinga sterk, en fjöldi
þeirra vinnur I kjarnorkuiðn-
aðinum en þá eru t.d. samtök
námamanna sterk og hags-
munir kolaiðnaöarins eru ein-
mitt öfugir, þ.e. að kol verði
notuð til orkuvinnslu.
Chris átti I gær fund með
Ásmundi Stefánssyni, forseta
ASÍ og ræddi stöðu mála I
Dounreay. Vinnan, tímarit
ASÍ, hefur fjallað nokkuð um
fyrirhugaða byggingu endur-
vinnsluversins og lýst áhyggj-
um af mengunarhættu vegna
þess. Á það hefur verið bent I
tímaritinu að eitt alvarlegt
mengunarslys, t.d. ef skip
með geislavirkt plútóníum
færist á leið til verksmiðjunn-
ar, gætu fiskimið íslendinga
verið i stórhættu.