Tíminn - 26.09.1967, Blaðsíða 1
ísom
.AssociatioiT'
um Shivall,
EJ-Reykjavík, mánudag.
ic Hálfgert gullæði hefur
breiðzt út á Bretlandseyjum eft
ir að tilkynnt var síðustu dag-
ana um fund tveggja stórkost-
legra fjársjóða.
aamammmmmmmmmmmm
Vantar lækni,
fógetajjgrest^
og Ijósmóður!
EJ-Reykjavík, mánudag.
Erfitt virðist að halda góð-
um starfskröftum á Neskaup-
stað sem og víða annarsstað-
ar i dreifbýlinu. Þar á staðn-
um er nú bæjarfógetalaust,
prestslaust, héraðslæknislaust
og verður bráðlega Ijósmóður
laust:
Umsoknarfrestur um oæjar
fógetaembættið rann út fyrir
rúmum mánuði, og sótti eng-
inn um. Þórhallur Sæ-
mundsson, sem nú er að aætts
á Akranesi. mun síðar i naust
taka við þvi embætti um stund
arsakir. Er bvi enginn bæjar-
fógeti sem stendur.
Presturinn er að flytja bú-
ferlum til Akureyrar, héraðs-
læknir hefur ekki verið fast-
ráðinn þar í um tvö ár, og
Ijósmóðurin hefur sagt ausu
starfi sínu oig er að yfirgefa
staðinn.
ic Annar f jársjóðurinn fannst
við Gilstone Reef við Scilly-eyj
ar fyrir utan Cornwall. Er það
hinn frægi fjársjóður, sem var
um borð' i Miðjarðarhafsflota
Sir Cloudesly Shovells, en flot-
inn fórst við Gilstone Reef i
október 1707. Hafa miklar deil
ur verið uppi síðan um, hvort
hinn trægi fjársjóður Shovells
hafi virkilega verið til. Hann
er nú fundinn og er lauslega
áætlað verðmæti lians um 130
milljónir íslenzkra króna.
it Hinn fjársjóðurinn fannst
við írlandsströnd, og fullyrðir
sá, sem hann fann, að hér sé
um að ræða flaggskip úr
spönsku armöðunni, en skipið
— „Santa Maria de la Rose“
— fórst árið 1588. Er áætlað,
að þessi fjársjóður sé álíka
stór og hinn fyrri. f þessu skipi
voru gullpeningar, en í Shovell
fjársjóðinum er aðalléga gull-
stengur og silfurpeningar.
í aldaraðir hefur verið deilt
um tilveru fjársjóðsins í skip-
„Eagle“ og „Romney“. Hefur
hópur kafara úr brczka flotan-
um leitað skipanna og fjársjóðs
ins í allt sumar. Fannst eitt
skipanna, líklega „Association"
en enginn fjársjóður.
Annar hópur kafara leitaðj
einnig að fjársjóðnum á 9ama
tíma og var sá leiðangur undir
stjórn Roland Morris. Köfuðu
þeir nokkur hundruð metra frá
þeim stað, þar sem flotakafar-
arnir leituðu. Skyndilega fundu
menn Morris þröng göng gegn
um neðansjávarsker, og er þeir
renndu sér í gegnum göngin
fundu þeir^fjársjóðinn.
Einn úr þessuim hóp, Geoff-
rey Upton, seglr svo frá fundin
um: — „Þetta va_r mjög dimm
og óálitleg hola. Ég gat einung-
is komizt í gegnum göngin með
því að taka súrefnistækin af.
ýta þeim inn og synda síðan á
eftir. Göngin lágu inn í dýpri
göng, og skyndilega sá ég stórt
svæði pakið silfurpeningum fyr
ir framan mig.
Það er gífurlegur fjöldi
mynta þarna niðri, og við vit-
um ekki enn þá hversu mikið
magnið er. Fyrst ætlaði ég ekki
að trúa augum mínum. Ég
horfði lengi á þetta allt saman
og sagði við sjálfan mig, að 1
þetta gætu ekki verið peningar
— þeir þöktu svo stórt svæði“
Silfurpeningarnir eru orðnir
nokkuð mattir, en gullstengurn
ar skína fagurlega, þar sem
guli breytir ekki um lit, þótt
það liggi i vatni.
„En fjársjóðurinn liggur á
mjög nættulegum stað. Þetta
er eins og að fara niður i gegn-
um skorstein". — sagði Upton
Fundarmennirnir hafa þegar
tekið 1500 silfurpeninga upp á
yfirborðið og voru þeir afhent-
ir fógetanum á eynni St. Mary,
en hann mun geyma peningana
í eitt ár. Því næst mun leitað
eftir tilboðum frá söfnum og
Framhald á bls. 15.
Mikið af
ösp frá
Síberíu
á f jörum
syðra!
GÞE-Reykjavík, mánudag.
A3 undanförnu hefor rekið
á Holtsfjöru undir Eyjafjöll-
um sérkennilega srvala staura
í talsverðum mæfi. Eru jseir
allmisjafnir að stærð, en þeir
stærstu hafa mælzt tæpir 7
metrar- Að því er Karl Sígur-
jónsson bóndi á Efstu-Grund
tjáði Tímanum í dag, gera
bændur á þessum sióðum sér
ekki fulla grein fyrtr því,
hvaða viðartegund hér er um
að ræða, en halda að þetta
sé, það sem kaftað hefur verið
Hvítviður í Skaftafellssýslum.
Líklega borízt með
hafísnum.
Te.ja menn, að viðurkm hafi
borizc að landinu með hafís, en
að sjaifsögðu er þetta aðeins get-
gáta. Hann er mjög vel notlhæfur,
og sagði Karl að bændur hefðu
- hyggju að nota hann f girðinga
staura og annað því um Mkt. Að
hans sögn er það mjög sjaldgæft,
að rekavið beri á fjörur þama,
og ekki kvaðst hann vita nein
dænu þess, að þama hafi rekið
sívalnxnga.
Sennilega osp
frá Síberíu
Timinn hafði samband við Bald
ur Þorsteinsson skógfræðing, og
taldi hann sennilegt, að hér væri
um að ræða aspir, sem borizt
hefðu frá Sfberíu, og að öllum
Mkindum úr fleytiám. Nafnið hvít-
viðm kvaðst hann ekki kannast
við. en það væri sennilega orð,
sem Skaftfellingar notuðu um
þessa legund rekaviðax, en Mn er
tnjög ljós að lit.
Hefur komið fyrir áður
Baldur sagðist og vita til þess,
Framhald ð bls 15
Alþingi sett
10. október
Forseti íslands hefur samkvæmt
tillögu forsætisráðherra kvatt
reglulegt Alþingi 1967 til fundar
þriðjudaginn 10. október 1967, og
fer þingsetning fram að lokinni
guðsþjónustu i Dómkirkjunni, er
hefst kl. 13.30.
Forsætisráðuneytið, 25. sept.
1967.
Meimtastofnanir landsins
ern mer þvi óstarfhæfar!
Lesið yfirlýsingu skólastjóra á bls. 3
)