Alþýðublaðið - 05.03.1988, Síða 9
Laugardagur 5. mars 1988
9
Hið pólitiska vald er ekki hjá verkalýðshreyfingunni," segir Þröstur Ólafsson í viðtali við Alþýðubladiö
Samningar felldir í verkalýðsfélögunum:
„ÞETTA ER
DÓMUR YFIR
FÁRÁNLEGU
ÞJÓÐFÉLAGS-
KERFI"
segir Þröstur Ólafsson framkvœmdastjóri
Dagsbrúnar
Kjarasamningarnir sem
voru undirritaðir i Garða-
stræti í fyrri viku hafa veriö
felldir i hverju verkalýðsfélag-
inu af öðru. Ýmsum þykir það
dómur yfir hreyfingunni
sjálfri. Þröstur Ólafsson er á
öðru máli. Lengra varð ekki
komist, en vilja menn fara i
verkfall?
„Þv( veróur fólk aó svara
sjálft. Viö mátum það þannig
aö lengra yröi ekki komist."
Þröstur kvaö þetta ekki
dóm yfir verkalýóshreyfing-
unni helduryfir þjóðfélags-
þróun sem heföi átt sér staö
allt frá 1983 aó Frjálshyggju-
öflin væru alls ráðandi i þjóö-
félaginu. „Viö gátum ekkert
gert annaö en skrifað undir
eftir aö hafa þrefað í þrjár vik-
ur í Garðastræti. Margt lagð-
ist á eitt til þess aö samning-
arnir hafa verið felldir víða.“
Nefndi Þröstur matarskatt-
inn, staðgreiðslu skatta sem
fólk heföi ekki áttaö sig á.
Áöur heföi fólk fengið pen-
inga I hendur og greitt
seinna. Nú fengi það einung-
is í hendur sem útborgað
væri endanlega. Síöan hefði
umræöa um laun forstjóra I
SÍS sem virtist hafa mánaöar-
laun sem verkafólk væri 2 ár
aö vinna fyrir. Og bílatrygg-
ingar hækkuðu. „Þetta er
domur yfir fáránlegu kerfi en
ekki verkalýðshreyfingunni,
þegar menn fella samning-
ana,“ segir Þröstur.
— En hvaö ráðleggur þú fólki
í þeirri stööu sem það er í
núna?
„Ég get ekkert annaö sagt
en það sem kom fram í því
aö ég hvatti til aó samningar
yröu samþykktir og mat það
þá aö lengra yrói ekki kom-
ist.“
Þar er álit Þrastar aö staöa
frystingarinnar sé afar slæm
og því megi búast við gengis-
fellingu hækki laun I fisk-
vinnslu meira en orðið er.
„Hiö pólitíska vald er ekki
hjá verkalýöshreyfingunni. Ég
hef sagt þaö áöur aö eina
vonin er aö A-flokkarnir sjái
aö sér og fari að starfa sam-
an,“ sagöi Þröstur Ólafsson
framkvæmdastjóri Dagsbrún-
ar I viðtali viö Alþýublaöiö i
gær.
MIKIL SAMKEPPNI Á REYKJAVÍKURSVÆDINU
en augljós munur milli Reykjavíkur og landsbyggð-
ar er meðal annars niðurstaða í viðamikilli verð-
könnun Alþýðublaðsins á matvöru og hreinlœtis-
vörum.
Það er dýrara að versla úti
á landi en á Reykjavíkur-
svæðinu. Það er mikil sam-
keppni milli verslana hér fyrir
sunnan. í viðamestu verð-
lagskönnun Alþýðublaðsins
til þessa er þetta hvoru
tveggja staðfest.
Kannað var verö á 48 teg-
undum matvara og hrein-
lætisvara í 6 stórverslunum
og kaupfélögum á Suðurlandi
og í Reykjavik og Hafnarfirði.
Beitt var þeirri aðferð að
athuga lægsta verð á nokkr-
um vörutegundum og var þá
litið fram hjá hugsanlegum
gæöamun, en einnig ar borið
saman verð á merktum vör-
um.
Verómunur á vörum milli
verslana hér á suöurpartinum
er sáralítill en augljós verð-
munur milli Reykjavíkursvæö-
is og landsbyggðar. Línuritiö
sýnir þetta í hnotskurn. í ný-
legri könnun Verölagsstofn-
unar er sama uppi á teningn-
um. í þeirri könnun mældist
allt aö 23% munur milli ódýr-
ustu og dýrustu verslana.
Munur var mestur rúm 13% í
okkar könnun.
HVERJU MUNAR í VERÐI?
Ef lægsta verö er stillt á 100, stígur súlan
lítiö í fyrstunni enda má segja aö lítill munur
sé á verölagi milli stórverslana á Reykjavíkur-
svæöinu. Stólpinn verður rismeiri viö saman-
burö út á land.
VEMHDIKQNNUN ALþ WB UMLABSIINS
SAMANBURÐUR Á VERÐLAGI
115
110
105
100
95
FJARÐARKAUP MIKLIGARÐUR HAGKAUP HÖFN KAUPFÉLAG
HAFNARFIRÐI REYKJAVÍK SELFOSSI ÁRNESINGA
Gert með Graphics Gallery
hjá ÖRTÖLVUTÆKNI