Tíminn - 26.10.1967, Page 14
14
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 26. október 1967.
Mikið af flöskunum
brotnaði á hafi úti
OÓ-Reykjavík, þriðjudag.
Leitað er enn að smygluðu
áfengi sem haldið er að kornið
hafi verið undan úr farmi þeim,
sem Áismundur GK 30 kom með
til iandsins. Skipverjar hafa verið
yfirheyrðir í dag, en ekkert er
látið uppi um rannsóknina að svo
stöddu.
Þeir sem að rannsókninni standa
álíta að enn sé nokkuð af áfeng-
inu óíundið, en ekki mikið miðað
við það magn sem fundizt hefur,
senniiega eru innan við 100 kass
TVÖ KJÖRDÆMiS-
ÞING
Kjördæmisþing Framsóknar-
manna i Norðurlandskjördæmi
vestra verður haldið í Miðgarði
við Varmahlíð sunnudaginn 5.
nóv. og hefst kl. 2 e. h. hinsmenn
flokksins í kjördæminu mæta á
þinginu.
S'.jcin kjördæmissambandsins.
Kjöirdæmisþing Framsóknar-
manna í Norðurlandskjördæmi
eystra verður haldið á Akureyri
laugardaginn og sunnudaginn 11.
og 12. nóvember. Þingið hefst kl.
14 og fundirnir verða að Hótel
KEA. Formenn Framsóknarfélag
anna í kjördæminu eru sérstak-
lega minntir á þingið, og vinsam
lega beðnir að sjá um, að fulltrúa
kjör fari fram sem fyrst. Tilkynn
ingar um kjörna fulltrúa óskast
sendar til skrifstofu Framsóknar
flokksins á Akureyri. Kjördæmis-
ar olundnir. Víst er að báturinn
tók miklu meira magn um borð
í Ostende en komið er í leitirn-
ar. En á leiðinni heim lenti bát-
urinn í ófsaveðri, Ikílega á Norð-
ursjó. og kastaðist þá til í lest-
inm og mikið af genever-flöskun-
um hefur brotnað.
Nokkrum dögum áður en Ás-
mutndur fannst í Hafnarfjarðar-
höfn hafði Landlhelgisgæzlan svip
azt um eftir bátnum, fyrir austan
og vestur með suðurströndinni.
Skipulögð leit var ekki hafin en
varðskipin leituðu eftir bátnum
á peim leiðum sem þau áttu er-
indi um.
Voru menn farnir að verða
áhyggjufullir vegna bátsins, því
vitaö var hvenær hann héU úr
höfn í Belgíu og átti hann að
vera komin fram við íslands-
strendur nokkrum dögum áður en
hann fannst'. Þá var talið víst að
Áfsmiundur hafi lent i ofsaveðr-
inu sem gekk yfir Vestur-Evrópu
á þessum tíma og fórust þá nokk
ur skip. En Ásmundur skilaði
sér til lands eins og aliir vita nú.
Hörpukonur Hafnar
firði Garða- og
Bessastaðahreppi
halda fund að Strandgötu 33, Haf.i
arfirði í kvöld,, fimmtudak kl.
8,30. Fundarefni 1. Félags-
mál. 2 Frú Sigríður Knstjáns
dóttir húsmæðrakennari talar um
frystingu matvæla og fieira 3.
kvikmyndasýning 4 kaffi. Mætið
vel og takið með ykkur riýja fé-
KRÝNING í ÍRAN
Framhaid aí bls. 1
hátíðarhöild, bæði í Teheran
Qg öðrúm bæjum. Er þar bæði
urn að ræða skrautsýninga.r, úti
hátíðir, sýnin.gar og fLugelda-
sýningar.
Krýningin fer fram á 48. af
mæilisdegi keisarans, og hann
mun sjálfiur setja á höfuð sitt
10.500 karata kórónuna. Jafn
framt mun hann tilkynna, að
sonur stnn, sjö ára gamall,
verði næsti keisari landsins.
Keisarinn var sjálfur sjö ára
gamal'l, þegar hann var gerðair
krónprins árið 1925.
Keisarinn mun einnig setja
kórónuna á höfuð konu sinnar.
Kóróna keisaraynjunnar er
gerð úr 1.6 kílóum a.f platínu
og skreytt þrem stórum og 36
litlum smarögðum, 499 demönt
u.m, 36 rúibínum og 105 perl
um.
---- ■ i i
FJÖGUR BÍLSLYS
Framhald af bls. 3.
sinn og hélt með 'hana áleiðis til
Reykjavíkur, en þegar hann mætti
sjúkrabílnum á leið á slysstaðinn
var konan færð yfir í hann.
Ástæða er til að benda mönnum á
sem koma að slösuðu fólki að
láta það liggja kyrrt og reyna að
hjúkra því eftir föngum, eftir að
þeir hafa tilkynnt réttum aðilum
um hvernig ástatt er og bíða eftir
sjúkrabíl og lögreglu.
Klukkan liðlega 13 varð aniað
slys á móts við Hesthól. Ökumaður
inn var einn í bílnum og meiddist
hann lítið og lítilsháttar skemmdir
urðu á farartækinu.
Rétt um kl. 17 valt enn oíll á
beygjunni við Eyri. Slys urðu ekki
á fólki og litlar skemmdir á bíln
um.
Skæringur Ilauksson, lögrogíu
þjónn í Mosfellssveit, hefur með
rannsókn allra þessa mála að gera
Sagði hann Tímanum í dag að
ekkert þessara slysa hafi
orsaikazt af of hröðum akstri.
Hálkukaflar hafi verið á /eginum
og var mjög erfitt að varast þá.
ísing myndaðist á veginum nótt-
ina áður og þar sem sól náði ekki
að skína um daginn var glerhálka.
Ekki bætti úr skák að ómögulegt
"ar að sjá hvar hálkukaf!arnir
voru, virtist aðeins að vegurinn
væri blautur á þessum köflum.
16 VITNISBURÐIR ....
Framhald af bls. 3.
berlega, og telst hún því ensk
ur ríkiisborgari sem áður.
Síðdegis í dag komu hingað
til lands tveir banraverndar-
ráðsimenn Færeyja, frú Malla
Samuelsson og formaðurinn
Jakob Alduk. Eru þaiu hingað
komin gagngert vegna máls
Marjun Gray. Blaðamanni Tím
ans cókst að hafa tal af þeirn
í kvöld. Á hinn bóginn vildu
þau ekki segja neitt um fyrir
ætlanir sinar hér, en þau
voru þráspurð um, hvort þau
hygðust taka stúlkuna með
sér til Færeyja.
— Við erum hingað komin
til að tala við þá a'Siila, sem
með málið fara, og ger-a þær
ráðstafanir, sem Marjun Gray
eru fyrir beztu að okkar dómi,
— sögðu þau. — Við álítum
að það séum við, eða barna
verndarnefndin í Færeyj-um,
sem höfum vald y.fir stúlkunni.
Það kom á dáginn í þessu
vi'ðtali, sem. og hefur fram
komið í Tímanum, að Barna-
verndarnefnd Færeyja hafði
iSSrei og alls ekki samráð við
Barnavcrndarráð né held.ur
neina af barnaverndarnefndum
íslands um vistun Marjun Gray
á skóil'aheimiilinu að Bjargi.
Engir aðrir íslenzkir aðilar en
Hjá'lpræðisherinn áttu þar
hlut að móli.
Barnaverndarmennirnir
sögðu, að vel heíði verið fylgzt
með Marjun eftir að hún kom
hingað, þrisvar til fjórum sinn
um hefði hún verið heimsótt
af nefndarmönnum, og hefði
hún ekki haft yfir neinu að
kvarta. Hefði ekki verið nein
ástæða til að ætla annaö, en
aiMit væri með felldu og formað
ur tók það fram, að vistarheim
iilinu að Bjargi hefði einungis
verið lagt gott orð af þeim að-
ilum, sem þar hefðu til þekkt
og hann hefði rætt vi'ð.
Fróðlegt verður að vita,
hvaða stefnu miál þetta tekur.
Verður Marjun Gray flutt með
valdi til Færeyja. eða geta ís-
lenzkir aðilar komið í veg fyr
ir það?
BARN FYRIR BÍL
Framhald af bls. 3.
eldri, með sér inn í verzlun
við Laugaveginn. neðan við
Kiapparstíg. En börnin fóru
út úr verzluninni án þess að
eftir væri tekið. HILupu þau
út á miðja götuna, utan gang
brauta. í því bar þar að lítinn
sendiferðabíl, sem ók upp
Klapparstíginn og ók hann á
grænu ljósi er barnið hljóp
fyrir bílinn. Drengurinn slapp
hins vegar. Telpan lá undir
bilnum þegar að var komið, en
við rannsókn kom í Ljós að^ún
var óbrotinn og virtist ekki al-
varlega slösuð
FRÖNSK MYNDLIST
Framhald af bls. 3.
eftir ósk Ragnars Jónssonar, for-
stjóra Helgafells, og eru þær eins
konar yfirlit yfir franska málara
list í eina öld. Flestar eru eftir
franska málara.
Á sýningunni eru verk flestra
höfuðsnillinga málaralistarinnar,
svo sem Monet, Renoir. Césanne,
Van Gogh, Picasso, Gauguin, Miro
Braque og fleiri. Myndirnar eru
allar til sölu nú þegar, en ástæða
er til að vekja athygli á því, að
aðeins er eitt eintak til af hverri
mynd. Sýningin verður aðeins op-
in eina viku.
Ragnar Jónsson skýrði frétta-
mönnum frá því að önnur sýning
yrði haldin síðar, þó yrðu þar
ekki sömu myndir og nú, og yrði
ágóðanum af þeirri sýningu varið
til byggingar nýja Listamanna-
skálans á Klambratúni.
ÞETTA KOSTAR . . .
Framhalo al ois lb
bessu kemur hlutfallsleg skipt
ing þátttakenda í neyzluathug-
uninni vei heim við raunveru-
lega skiptingu kvæntra karla
a þessar starfsstéttir“.
i ljós kemur, að tala ein-
staklinga i úrtakinu var þessi:
Hcimilisfeður 100. heimilismæð
ur ±00 og börn 198, samtals
398 einstaklingar. Að meðal-
taii er því um að ræða fjöi-
skyldu, sem er minni en vísi-
tölufjölskyldan.
i tilkynningunni segir, að
„með neyzlurannsókninni og
með uppsetningu hins nýja
grundvallar var stefnt að því,
að fá sem réttasta mynd af
raunverulegum neyzluvenjum
láunþegafjöiskyldna í Reykja-
vík án tillits til tekna fjöl-
skyldu barnatölu og annars
bcss, er áhrif hefur á heildar-
neyzlu og neyzluval. Hinn nýi
v'isitölugrunnur er því meðal-
tai af útgjöldum. sem í hverj-
um flokki fyrir sig geta verið
oæði miklu hærri og lægri en
pað meðaltal. sem í grunnd-
völlinr er sett.
BRUTTÓTEKJUR
Mlðað við framtaldar brúttó-
tekjur árið 1964, var tekju-
ireifing hinna 100 fjölskyldna
sem hér segir:
ráð.
laga.
ÞAKKARÁVÖRP
Innilegar þakkir til allra ættingja og vina, sem
auðsýndu mér vináttu á sjötíu ára afmælinu 20. okt. s.l.
Eggert Guðmundsson,
Bjaryi Sorgarnesi.
Hjartans þak'kir til allra, sem minntust mín með
gjöfum og heimsóknum, eða a annan hátt, á 75 ára
afmæli mínu hinn 16. sept. s.l-
Albert Bergsveinsson,
Krossi, Berufjarðarströnd.
Útför eiginmanns míns,
Guðmundar 5veinssonar
fulltrúa, Suðurgötu 6, Sauðárkróki,
er lézt fimmtudaginn 19. þ. m. fer fram frá Sauöárkrókskirkju
laugardaginn 28. þ. m. kl. 2 e. h Fyrir mína hönd og annarra vanda-
manna,
Dýrieif Árnadóttir.
Jarðarför
Margrétar Hallgrímsdóttur
frá Hvammi f Vatnsdal,
fer fram frá Fossvogskirkju kl. 10.30 27. þ. m. og verður útvarpað.
Hiimár Valdimarsson, Ásta Sölvadóttir,
Helga Sigurðardóttir, Daníel Óskarsson,
Theódóra Hallgrímsdóttir,
Guðjón Hallgrímsson,
Aðalheiður Hallgrimsdóttir.
Gróa Einarsdóttir,
Vestmannaeyjum,
lézt 16. þ. m. jarðarförin fer fram frá Krosskirkfu Austur-Land-
eyjum, laugardaginn 28. október kl. 2. siðdegis.
Vandamenn.
1. 10 tekjulægstu frá
2. 10 næstu
3. — —
4. — —
5. — —
6. — —
7. — —
3. — —
9. — —
þús. kr.
85—134
135—151
151—164
164—176
177—193
194—212
212—234
234—252
253—276
10. 10 tekjuhæstu frá 283—370
Framtaldar meðalbrúttótekj-
ur þessara fjölskyldna voru, að
þvi er segir í tilkynningunni,
202 þúsund á árinu 1964. Þegar
samanburður er gerður á þessu
og niðurstöðum neyzlurannsókn
arinnar, verður að hafa í huga,
miðaðar við annars vegar 1.
að tölurnar í rannsókninni eru
íebrúar 1966 og 1. ágúst 1967,
og i þessu tímabili hefur orðið
nokkur hækkun á launuim i
krónutölu
Um samsetningu þessara
nundrað fjölskyldna segir svo:
17 fjölskyldur voru bamlausar,
20 voru með eitt barn, 28 með
tvö börn, 22 með þrjú börn,
9 með fjögur börn og 4 fjöl-
skyldur með fimm börn.
Onnur atriði en tekjur og
barnafjöldi, sem hafa mikil á-
hrif á skiptingu neyzluútgjalda
eru m.a. þau, hvort fjölskylðan
á bifreið eða ekki og hvort
hún býr í eigin húsnæði eða
akki. Af þessum 100 fjölskyld-
um áttu 55 fjölskyldur bifreið.
66 fjölskyldur voru í eigin húí
næði. en 34 í leiguhúsnæði. í
tiikvnningunni segir, að við
akvörðun húsnæðisliðsins hafi
orðið að taka tillit til fleiri at-
nða, en fram komu í neyzlu
rannsókninni, en það ekkert
útskýrt nánar. |
_ Á alþingi í dag voru upp-
lýsingar þær, sem hér liggja
fyrir, lagðar fram er fjármála-
ráðherra svaraði fyrirspurn um
hetta efni.
BARINN í HÖFUÐIÐ
Framhals af bls. 1.
una, sem þar réði húsum.
Þegar hanm kom aftur . sá
hann hvar maðurinn lá silas
aður á gólfinu. Lét hann
lögregluna þegar vita. Var
maSurinn fluttur á Landa
kotsspítala en lögreglan tók
konuna í sína vörzlu, svo og
mann sem var í ibúðinni.
Höfuðkúpubrotni maður
inn og konan hafa búið sam
an s. 1. sjö mánu'ði. Eru þau
bæði dry'kkfeld og hefur hús
ið sem þau búa í lengi ver
ið samastaður drykkjiufólks
og lögreglan oft þurft að
hafa afskipti af í'búum og
gestum þeirra þar.
í gær voru nokkrir aðilar
gestkomandi í húsinu og
allsvallsamt. Eitthvað lenti
þeim saman konunni og
sambýlismanni hennar fyrr
um daginn.
Við yfirheyrslur bar
konan að sambýlismaður
hennar hafi ráðizt á sig
og ætlað að berja sig, en
hún hafi orðið fyrri til
og lamið hann í höfuðið
með stólfót, með fyrrgreind
um afleiðingum. Einn gesta
var eftir þegar þeir hinir
fóru. Svaf hann værum
svefni þegar barsmíðin átti
sér stað og getur engar UPP
lýsingar gefið um málið. Ber
fyirgreindur bílstjóri að
gestur þessi hafi sofið fast
og verið í sömu stelling'Um
í sama stól þegar hann kom
í íbúðina bæði í fyrra og
seinna sinnið.
Eins og eðlilegt er 'hefur
ekki verið hægt að yfir-
heyra slasaða manninn en
konan hefur verið úrskurð
uð > gæzluvarðhald á meðan
rannsókn málsins stendur yf
ir.