Alþýðublaðið - 12.04.1988, Síða 4

Alþýðublaðið - 12.04.1988, Síða 4
4 Þriðjudagur 12. apríl 1988 MENNING Q Óskar Vistdal, sendikennari i norsku skrifar PÉTUR GflUTUR OG EINAR BENEDIKTSSON Oskar Vistdal sendikennari skrifar um Pétur Gaut eftir Henrik Ibsen, sögu verksins og ís- lenska þýðingu Einars Benediktssonar. „Pétur Gautur er meðal-Norðmaðurinn sem Ibsen teiknar skarp- lega og skýrt eftir eðlisfari, lundarlagi og háttum þjóðar sinnar, “ skrifar Oskar Vistdal m.a. í grein sinni um verk Ibsens, Pétur Gaut. Dýr útgáfa í 30 eintökum 30. apríl 1901 segir svo ( fréttadálki „Þjóðólfs" í Reykjavík: „Pétur Gautur, leikrit í Ijóöum eftir Henrik Ibsen, er nýprentaður í ís- lenskri þýðingu eftir Einar Benediktsson. Bókin er mjög vönduð aö pappír og prentun. Hafa aðeins verið gefin út 30 eintök af henni og verður hvert eintak selt á 100 krónur.“ Þetta var fyrsta tölu- setta bókaútgáfan á íslandi og jafnframt dýrasta bók sem gefin hefur verið út hér á landi, að Guðbrandsbíblíu undanskilinni. Slíkt söluverð var fremur óheyrt, reyndar meira en kýr- verð, sem samkvæmt verð- lagsskrám var rúmar 90 krón- ur um aldamótin. Árið 1922 kom út endurskoðuð gerð þýðingarinnar í 1100 eintök- um á eðliegra verði. Hún hefur verið endurprentuð tvisvar, í heildarútgáfunni af Ijóðmælum Einars 1945 og í kvæðasafni sem út kom í til- efni af aldarafmæli skáldsins árið 1964. „Pétur Gautur" í gervi Ein- ars Benediktssonar birti Is- lendingum eitt auðugasta og andríkasta skáldrit Norð- manna í einhverju fullkomn- asta formi sem íslensk stór- þýðing hefur hlotið. Að mati Steingríms Þorsteinssonar er form þýðingarinnar samgróiö efni sem svörður holdi: „Það verður varla samið svo stutt ágrip íslenskrar bókmennta- sögu síðustu alda að ekki verði þar talið til tíðinda þegar Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen var gefinn út í þýðingu Einars Benedikts- sonar.” „Meö þessari þýðingu hafði honum tekist að þoka íslenskri tungu fram á veg sem menningarmáli" jafn- hliða öðrum þjóðmálum heimsins, „fært í allan sjó og fallið til þess að taka öllum þeim framförum vaxandi menningar sem nútíminn heimtar og veitir", eins og Einar orðar það í formála þýð- ingarinnar. Að vera sjálfum sér líkur Leikritið um Pétur Gaut var samið á Ítalíu, þar sem Ibsen settist að árið 1962 fullur beiskju vegna ófara sinna í Noregi á undangengnum árum og þeirrar skoðunar að hann væri misskilinn af lönd- um sínum. í þessu skapi skrifaði hann fyrsta stórverk sítt „Brand“ 1866, sem Matt- hías Jochumsson sneri á is- lensku og gaf út árið 1898. „Brandur" fjallar um hug- sjónamanninn sem krefst alls eða einskis og fórnar öllu fyrirtrú sina. Eftir „Brandi" fylgdi „Pétur Gautur" að sögn höfundarins „eins og af sjálfu sér“. Sendi hann frá sér Ijóðritið fyrir réttum tólf tuga árum, nánara tiltekið 14. nóvember 1867. Pétur Gautur er algjör andstæöa Brands, maður sjálfsblekkingarinnar sem alltaf hliðrar sér hjá þeim kröfum sem gerðar eru til hans. Hluti af leiknum gerist í Guöbrandsdal, þar sem Ibsen sótti yrkisefnið í þjóðsögurn- ar um glæframanninn Pétur Gaut, svo sem reiöina yfir Gvendaregg, selstúlkurnar, Þránd I Valbjörgum og Beig- inn. Inn í þetta grundvallar- efni fléttist þá miskunnarlaus ádeila á Norðmenn vegna sérplægni og sinnuleysis þeirra til að mynda í stríði Dana við Þjóðverja árið 1864, þegar Norðmenn og Svíar voru „sjálfum sér nægir" og brugðust bræðrum sínum í neyð. í framhaldi af þessu fylgir áfellisdómur höfundar- ins yfir þeim sem vilja halda einkennum sínum með því að byrgja sig frá áhrifum af öðrum. Að vera „sjálfum sér llkur“ er að lifa með anda annarra og auðgast af honum. Hitt or dauðinn, að hrökkva frá því viðfangsefni er að vera „sjálfum sér nægur“. En sú ævi sem gerir sér það að grundvallarboðorði, á að hverfa sviplaus úr veröldinni. Upphaflega til lesturs Söguhetjan er Meðalnorð- maðurinn, sem Ibsen teiknar skarplega og skýrt eftir eðlis- fari, lundarlagi og háttum þjóðar sinnar. Meginefni sögunnar er lýsing eigingirni og sjálfbirgingsskapar gagn- vart kærleika og æðri þekk- ing sem Pétur Gautur öðlast gegnum miklar llfsbreytingar, víðförli og örlagaríka atburði. Þjóðargort sem einangrar sig sjálft er meistaralega teiknað upp í sölum Dofrans, og sjálfgæði Gauts bera þessa einkunn út í ævistríðið, langt frá ættarstöðvunum. En þegar hann hverfur aftur til fósturjarðarinnar, sigrar kær- leikurinn og Pétur öðlast hærri sjón í gegnum ást, von, trú og fyrirgefning Sólveigar, ímyndar lífsins og hins eilífa kvenlega á borð við Dantes Beatrice eða Goethes Gretchen. Einmanaleikinn, hræðslan og viðurkenning af- brotanna leiða hann til hins sanna í sjálfum sér, og hann finnur það í Sólveigu, í ást- inni. „Pétur Gautur" var upphaf- lega saminn til lesturs, og það var ekki fyrr en um miðjan áttunda áratug sið- ustu aldar að fariö var að hugsa um að setja Ijóðsög- una á svið. Leikurinn var fyrst sýndur í Christiania Theater 24. febrúar 1876, en hefur síðan farið sigurför um öll helstu leikhús Evrópu og reyndar víðar. Þáttur Griegs Allt fram á þennan dag hafa sjónleikur Ibsens og tónlist Edvards Grieg verið ósundranlegir förunautar í mörgum frægum sviðsetn- ingum á „Pétri Gaut“. Grieg var fenginn til að semja tón- list fyrir fyrstu sýninguna árið 1875 þrátt fyrir yfirlýsta óánægju með verkið. „Þetta er andstyggilegasta og við- bjóðslegasta leikrit sem ég þekki, en hvað gerir maður ekki fyrir peninga", á hann að hafa sagt þegar hann fékk beiðnina og loforð um 200 krónur. Ibsen af sinni hálfu á einnig að hafa haft andúð á tónverki Griegs viö „Pétur Gaut“. Leikfélag Reykjavíkur sýndi þrjá fyrstu þætti „Péturs Gaut“ við frábærlega góðar viðtökur árið 1944. Stjórnandi var Gerd Grieg, eiginkona norska skáldsins Nordahls Grieg. Fyrir 25 árum, í des- ember 1962, fór fram fyrsta heildarsviðsetningin á „Pétri Gaut“ í málbúnaði Einars Benediktssonar á vegum Þjóðleikhússins í Reykjavík undir stjórn Gerdar Ring frá Osló. Hvernig stendur á því að „Pétur Gautur" virðist vera eins vinsæll meöal íslend- inga og meðal Norðmanna? Einar Benediktsson hefur vonandi rétt fyrir sér þegar hann svarar með þessum hætti: „Þjóðkjör vor og skyld- leiki við Austmenn frá fornu virðast og hljóta að mynda jarðveg hér hjá oss yfirleitt fyrir margt sem þaðan kemur, þótt saga vor sé nú að vísu oröin ólík og norsk menning og framfarir ennþá langt undan.“

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.