Alþýðublaðið - 26.04.1988, Side 1
Húsnœðisstofnun:
PENINGUM MOKAD UT
segir Sigurður E. Guðmundsson framkvœmdastjóri Húsnœðisstofnunar.
Siguröur E. Guömundsson
framkvæmdastjóri Hús-
næðisstofnunar ríkisins
segir að á þessu ári verði
greiddir 8,3 milljarðar i hús-
næðislán, og sé það hugar-
burður sem margir imyndi
sér, að allt sé lokað hjá
stofnuninni. Segir hann út-
gáfu lánsloforðanna eitt það
besta sem gert hafi verið í
þessum málum, og vafamál
sé hvort hægt væri að nota
meira fé en það sem veitt er
nú til húsnæöismála, því það
hafi sýnt sig að fólk eigi oft
fullt í fangi með að nota láns-
loforðin, m.a. vegna lítils
framboðs á íbúðarhúsnæði.
I samtali viö Alþýöublaöiö
segir Sigurður E. Guðmunds-
son framkvæmdastjóri Hús-
næðisstofnunar ríkisins, aö á
þessu ári veröi greidd út lán
fyrir 8,3 milljaröa króna, sem
þýði aö meöaltali um 700
milljónir á mánuði eöa um 35
milljónir króna á dag úr
báðum byggingasjóóunum,
þ.e. Byggingasjóði ríkisins og
Byggingasjóöi verkamanna.
„Þaö hafa alltof margir
ímyndaö sér aó hér sé allt
lokað og stopp, þaó er ein-
tómur hugarburöur, því þaö
er mokað út fé.“
Búið er aö hans sögn aö
lofa fjármagni til útborgunar
til loka ársins, og fólk hafi í
stríðum straumum gert
samninga til íbúðarkaupa á
grundvelli þessara lánslof-
oröa. „Eitt þaö besta sem yfir
þessa þjóö hefur gegnið, er
útgáfa lánsloforöanna," segir
Sigurður. Segir hann aö þau
lánsloforð sem verió er aö
greióa út núna, og hafa verið
greidd frá áramótum, séu
vegna umsókna sem bárust
frá og með gildistöku nýju
laganna 1. sept. 1986 og til
13. mars 1987.
Segir Sigurður stööuna
vera góöa aó sínum dómi og
feiknalega mikið fjármagn
fari í húsnæðismálin í ár, og í
raun og veru sé vafamál hvort
hægt væri aö nota mikið
meira fjármagn en lagt veröur
fram. „Því aö þaö hefur marg
oft sýnt sig, aö fólk á fullt í
fangi meö aö nota lánsloforð-
in þaö er'svo mikið af þeim
og til þess aö gera lítiö fram-
boö á íbúðarhúsnæði, eóa
hefur oft verið. Þannig held
ég aö varla verói betur gert.“
segir Siguröur aö hins vegar
þurfi að fara að gefa út láns-
loforð vegna ársins 1989, svo
menn geti farið aö undirbúa
ibúðarkaup á því ári.
„Ég er þeirrar skoðunar, aö
þau lánsloforö sem gefin
hafa verið út með svona löng
um fyrirvara, og sumir hafa
kallað langan biötíma, hafi
orðið til þess aö lengja mjög
mikið samningsútborgunar-
timann." Aó sögn Siguróar er
það mjög merkilegt fyrirbæri
sem ekki hafi verið skoöaö
málefnalega, vegna þess aó
húsnæðismálin hafa veriö
rædd í miklum æsingi lengi.
Handhafar lánsloforða og
seljendur hafi getaö gert
með sér kaupsamning þó
langt væri i land meö útborg-
un lánsloforðanna og fast-
eignamarkaðurinn hafi viöur-
kennt þetta fyrirkomulag.
FRAMTIÐ HUNDSINS ORAÐIN
— segir Flosi Ólafsson hagyrð'mgur um afdrif hvolpsins Erótíkur.
„Þaö á eftir aö taka ákvörö-
un um framtíð hundsins,“
sagöi Flosi Ólafsson i viötali
viö Alþýöublaöiö. Flosi hlaut
óvænt hvolp aö gjöf frá hag-
yrðingi Eyfiröinga i beinni
útsendingu á sjónvarps-
spurningaþætti Ómars
Ragnarssonar „Hvaö held-
urðu?“. Flosi var ennfremur
heiöraöur sem athyglisverð-
asti hagyrðingur þáttanna.
Mikið hefur boriö á hamstri vegna verkfalls verslunarmanna.
A-mynd/Róbert.
SÍÐASTI MJÓLKURDROPINN
Hátt á annaö hundrað
manns voru viö verkfalls-
vörslu hjá Verslunarmannafé-
lagi Reykajvikur í gær, og
þurfti að hafa afskipti af 30
til 40 verkfallsbrotum. Mjólk
er víðast hvar að seljast upp,
og hefur fólk gert töluvert af
því aö hamstra.
Samkvæmt upplýsingum
frá verkfallsvakt Veislunar-
mannafélags Reykjavíkur,
voru hátt á annað hundraö
manns viö verkfallsvörslu og
var borginni skipt í tuttugu
hluta og grannt fylgst með
alls staöar. Grétar Hannes-
son hjá VR sagði aö töluvert
hafi verið um verktallsbrot.
„Ætli viö höfum ekki tekið á
svona 30 til 40 brotum.“
Áhrif verkfallsins fara nú
aö koma í Ijós. Alþýðublaðið
haföi samband viö fjölmargar
verslanir sem opnar eru, og
kom í Ijós aö mjólk er víðast
hvar uppseld
Þaó vakti óskipta athygli
og kátínu landsmanna sem
horföu á vinsælasta sjón-
varpsþátt íslendinga í fyrra-
kvöld, „Hvaó helduröu?" aö
Flosa Ölafssyni leikara og
pistlahöfundi Alþýðublaðsins
var afhentur hvolpur af hag-
yrðingi Eyfiröinga til eignar.
Hvolpurinn reyndist tik og
var gefiö nafnið Erótík. Al-
þýðublaöið spuröi Flosa hvaö
yröi um hvolpinn.
„Þaö á eftir aö taka ákvörö-
un um framtið hundsins,"
segir Flosi, „það tekur sinn
tima innan fjölskyldunnar aö
ákvaröa afdrif hans. Ég vona
þó aö tekin veröi ákvöröun
áöuren ríkisstjórnin tekurviö
ákvöröun frá Seölabanka ís-
lands um aö fella gengið.
Þessi mál eru aö mörgu leyti
lík og þurfa svipaða umfjöll-
un. Óll svona mál þurfa tíma
og likt og ráðherrann sagöi,
þá spyrjum viö að leikslok-
um.“ Flosi telur að hundalíf
efli listir og fagurt mannlíf
eins og sést gjörla á lokaorð-
um hans til blaðsins:
„Sá mun veröa sáluholpinn,
sem aö hlýtur hvolpinn.“
Aðspurður hvort aö sjón-
varpsvísur Flosa yróu gefnar
út, svaraði hagyröingurinn:
„Nei, ég legg blátt bann viö
allri útgáfu. Svona góðum
vísum má ekki misþyrma
meö því að prenta þær. Þær
eiga aðeins aö vera til i
munnlegri geymd.“
Alþýöublaöið óskar reyk-
vísku svarasveitinni og hag-
yröi þártanna til hamingju
með sigurinn og minnir les-
endur á, aö þótt Flosi sé
horfinn af skerminum í þetta
sinn, er hann að finna á
hverjum laugardegi I Alþýðu-
blaöinu.
FARID AD GÆTA HJÖÐNUNAR I EFNAHAGSLIFINU
segir Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra. Áhrif efnahagsaðgerða stjórnarinnar að koma fram. Dregið úr
verðhœkkunum, minni erlendar lántökur, fjármögnunarleiga og velta í verslun dregst saman.
„Þaö er eðlilegt aö stofn-
anir stjórnarflokkanna haldi
fundi til að meta stööuna því
í henni er ýmislegt sem
vekur áhyggjur. Viö Alþýöu-
flokksmenn höfum haldið tvo
slíka fundi meö mánaðar
millibili, fyrst í flokksstjórn
skömmu fyrir páska og svo í
fulltrúaráði um síðustu helgi,
til aö meta ástand og horfur í
efnahags- og þjóðmálum,“
segir Jón Sigurösson viö-
skiptaráðherra aöspurður um
áhrif miöstjórnarfundar
Framsóknar á stjórnarsam-
starfiö. „Ég sé ekkert i álykt-
unum framsóknarmanna sem
kemur á óvart eöa veldur
vanda í stjórnarsamvinn-
unni,“ bætir hann viö.
Viöskiptaráðherra segir aö
nú standi yfir athugun á vett-
vangi ríkisstjórnar á vanda út-
flutningsatvinnuveganna og
sér í lagi fyrirtækja á lands-
byggöinni. „Ég á ekki von á
aö niðurstöður úr þeim at-
hugunum berist fyrr en um
mánaðamótin," segir hann.
„Nú fyrst eru aö berast
marktækar tölur um hag-
þróun á þessu ári og eins og
fram kom á efnahagsmála-
ráöstefnu Alþýðuflokksins
um helgina þá bendir margt
til þess að hjöðnunar sé
þegar farið aó gæta. Verö-
hækkanir eru minni en þær
voru í lok síöasta árs. Lán-
tökur fjármögnunarfyrirtækj-
anna eru miklu minni en þaer
voru um mitt áriö í fyrra. Þar
er vafalaust farið aö gæta
þeirra reglna sem viðskipta-
ráöuneytió setti s.l. haust.
Farið er aó gæta verölækk-
unar á atvinnu- og verslunar-
húsnæói, velta í verslun virö-
ist vera aö dragast saman,
o.s.frv. Áhrif efnahagsaðgerða
ríkisstjórnarinnar eru því aó
koma fram núna en hinu ber
ekki aö neita, aö frá því aö
síðast var gripið til aögerða í
lok febrúar, hefur oröiö
lækkun á verði mikilvægra
sjávarafuröa og aflabrögð
hafa ekki batnað," segir Jón
Sigurðsson.
Hann segir ennfremur aö
ekki liggi nægilega skýrt fyrir
hvernig túlka beri þann vanda
sem viö blasir til aö grípa til
aðgerða strax. „Ég vil þó eng-
an veginn gera lítiö úr þeim
vanda sem steðjar að útflutn-
ings- og samkeppnisgreinun-
um og viö erum þess albúnir
að taka þátt i skynsamlegum
lausnum á honum en munum
þó ekki standa að aðgerðum
sem hafa í för með sér koll-
steypur í efnahagslífinu,"
segir hann.
Viðskiptaráðherra segir aó
fullyrðingar um yfirvofandi
fjöldaatvinnuleysi séu ekki á
rökum reistar.
í opnunni í Alþýóublaðinu í
dag er birt greinargerð ráð-
herra Alþýöuflokksins, sem
lögð var f ram á ef nahagsmála-
ráðstefnu flokksins um helg-
ina.